Morgunblaðið - 18.05.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 19
LISTIR
Tágaðir
vefir
MYNDLIST
TEXTÍLSKÚLPTÚRAR
Guðrún Marinósdóttir
Opið alla daga kl. 14-19 til 29. maí.
Aðgangur ókeypis.
GUÐRÚN Marinósdóttir við verk sitt, horfnar fyrirmyndir.
SUMIR listamenn taka miklu
ástfóstri við afmarkaðan þátt list-
sköpunar og meðal þeirra er ótví-
rætt Guðrún Marinósdóttir, sem
vinnur textílverk í óhefðbundnum
stíl eins og það heitir.
En myndverk Guðrúnar eru þó í
kjarna sínum hefðbundnari en í
fljótu bragði virðist og þannig er
hér um fléttuð verk að ræða, sem
er meira en maður sér á mörgum
sýningum nútíma textíla, sem jafn-
vel eru úr járni og grjóti! Þá notar
hún náttúruleg efni við gerð verka
sinna eins og við, viðartágar, papp-
ír, hamp og bómullarefni.
Fyrirferð verkanna er lauflétt
eins og nærri má geta og fer best
að nálgast þau með varúð, en þau
ættu þó að endast vel við rétta
meðhöndlun.
Öll sýningin er sem óður til kross-
ÁSDÍS Gísladóttir
sópransöngkona og
Jórunn Viðar píanó-
leikari koma fram á
tónleikum í Listasafni
Siguijóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, á
morgun, fimmtudag-
inn 19. maí, kl. 20.30
Tónléikarnir eru síð-
asti hluti burtfarar-
prófs Ásdísar í einsöng
frá Söngskólanum í
Reykjavík. Á efnis-
skránni eru sönglög og
aríur eftir Pál ísólfs-
son, Mozart, Schubert,
Granados, Marchesi og
Verdi.
Ásdís lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands og er starf-
andi grunnskólakennari við Álfta-
mýrarskóla. Hún hóf söngnám hjá
Elísabetu Erlingsdóttur, fyrst í Tón-
listarskóla Kópavogs og síðar Tón-
listarskólanum í Reykjavík og lauk
þaðan 8. stigs prófí vorið 1989.
Ásdís hóf söngnám við Söngskól-
ins sem helgitákns, og hér er lista-
konan með á nótunum, því krossinn
er áberandi í daglegu lífi nú um
stundir og sést víða í gluggum
verzlana, þó minna fari kannski
fyrir honum sem helgitákni.
Guðrúnu finnst hann í öllu falli
hafa misst merkingu sína og vill
endurreisa virðingu hans, en þetta
ævafoma form er jafnfagurt í sjálfu
sér, hvort sem það tengist trúar-
brögðum eða ekki. Þema sýningar-
innar er annars velferð mannsins,
valdagræðgi og trú, eyðing og upp-
bygging.
Þetta kemur kannski ekki nógu
vel fram í fljótu bragði, vegna þess
hve yfirborð verkanna er fágað og
ann í Reykjavík 1992
undir handleiðslu Þur-
íðar Pálsdóttur og Jór-
unnar Viðar og lauk
burtfararprófi í söng
ári síðar og eru þessir
tónleikar síðasti liður
prófsins. Jafnframt
skólanámi sínu hefur
hún sótt námskeið hjá
E. Ratti, Glendu
Maurice og Marilyn
Cotlow. Ásdís söng um
árabil með Pólýfón-
kórnum og hefur komið
fram sem einsöngvari
með kómum. Auk þess
hefur hún starfað í
Þjóðleikhúskórnum og
í Kór íslensku óperunnar. Hún
stundar nú nám við söngkennara-
deild Söngskólans í Reykjavík.
Jórunn Viðar er þekkt fyrir tón-
listarstörf, bæði sem tónskáld og
píanóleikari. Hún starfar nú sem
kennari við Söngskólann í Reykja-
vík.
skírskotunin þannig ekki eins bein-
skeitt og ef verkþættirnir hefðu
verið grófgerðari og umbúða-
lausari. Formrænt em þau hins
vegar áhugaverð og aðlaðandi fýrir
augað. Ber helst að nefna „Hring-
rás“ (1), en í það er meira borið
en önnur verk, og sem trúarlegt
tákn er það mjög sannfærandi og
færi mjög vel á helgum stað. Annað
verk með sterka skírskotun er „Um-
breyting" (9) sem listakonan hefur
unnið að í tíu ár.
Þtjú verk á sýningunni em þó
mest í anda stefnumarkanna og em
það „Krossberar I-III“ (2-4). Þar
sér í tálgaðar fígúmr handan tága-
rimlanna. sem eru eins og tákn-
gervingar pínu og píslarvættis og
skírskotunin er mun beinskeyttari
en í öðmm og skyldum verkum.
Aðeins 10 verk eru á sýningunni,
en þeim er mjög vel fyrir komið í
rýminu þannig að hvert og eitt
nýtur sín til fulls. En eins og ég
sagði um sýningu Guðrúnar í Ás-
mundarsal fyrir tveim ámm hefði
hnitmiðuð lýsing aukið áhrifamátt
verkanna til muna.
Bragi Ásgeirsson.
♦ ♦ ♦-----
Orgeltónleik-
ar í Hvamms-
tangakirkju
SÍÐUSTU tónleikar Tónlistarfélags
Vestur-Húnvetninga verða haldnir
í Hvammstangakirkju í kvöld kl. 21.
Organisti Akureyrarkirkju Bjöm
Steinar Sólbergsson mun slá botn-
inn í starfsárið að þessu sinni. Á
efnisskránni eru orgelverk eftir D.
Buxtehude, J.S. Bach, Pál ísólfs-
son, Þorkel Sigurbjörnsson, Jóhann
Ó. Haraldsson og Eugen Gigout.
Með þessum tónleikum lýkur 3ja
ára starfsári félagsins, en það er
komin sú venja á að ljúka starfsár-
inu með orgeltónleikum.
Björn Steinar hefur víða haldið
tónleika, auk þess hefur hann leikið
með Sinfóníuhljómsveit íslands og
Kammersveit Ákureyrar.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Burtfarartónleikar
Ásdísar Gísladóttur
Ásdís Gísladóttir
sópransöngkona.
Gamansamur gæludýraspæjari
KYIKMYNPIR
Bíóhöll/Bíóborg
„ACEVENTURA" ★ ★
Leikstjóri: Tom Shadyac. Framleið-
andi: James G. Robinson. Aðalhlut-
verk: Jim Carrey, Sean Young,
Courteney Cox og Tony Loc.
ÞAÐ ER mála sannast að enginn
veit hvernig myndir slá í gegn í
Hollywood. Menn dæla tugum
milljóna dollara í stórmyndir sem
kolfalla svo í miðasölunni á meðan
aðrir gera litlar, ódýrar myndir
sem slá í gegn öllum að óvörum.
Skýrasta dæmið um það er Aleinn
heima.
Gamanmyndin „Ace Ventura“
er ekki smellur af sömu stærðargr-
áðu en óvæntur smellur samt, var
lengi í efsta sæti aðsóknarlistans
í Bandaríkjunum. Það er auðvelt
að sjá hvaða aidursflokkur gerði
hana vinsæla, henni er stefnt rak-
leitt á unglingamarkaðinn með
sinni furðulega kómísku titilper-
sónu og dularfulla söguþræði. Að-
alpersónan, Ace Ventura, gerir al-
varlega tilraun til að stæla Jerry
Lewis af öllum mönnum og hefur
eflaust, miðað við vinsældir sínar,
komið Jerry kallinum í tísku aftur?
Ace er svokallaður gæludýra-
spæjari sem þýðir að hann hefur
uppi á stolnum gæludýrum. Nýj-
asta verkefni hans er að finna
lukkudýr ruðningsliðs staðarins,
höfrung, fyrir úrslitaleikinn og ber
sú leit hann á slóðir takmarka-
lausrar brenglunar. Nýliðinn Jim
Carrey leikur Ace og hefur gengið
í gamanmyndaskóla Jerry Lewis
með öllum þeim ýktu og ofkeyrðu
líkamstilburðum, fettum og brett-
um og andlitsgrettum sem til-
heyra. Carrey gengur lengra en
Lewis ef eitthvað er og ýkjuleikur-
inn fer í taugarnar á manni til að
bytja með en það furðulega gerist
að hann venst og svo fer maður
að hlæja.
„Ace Ventura“ er einn fyrsti
vottur þess að sumarið sé á næsta
leiti í bíóunum. Þetta er fullkomið
léttmeti sem þú annaðhvort með-
tekur eða hristir hausinn yfir. Car-
rey minnir stundum á vitleysing-
ana tvo í Veröld Waynes og mynd-
in er á svipuðu plani. Fáránleika-
fyndnin snýst í kringum rassbrand-
ara og kynskiptingu og Carrey fer
auðveldlega með að herma eftir
goðum poppmenningarinnar eins
og kapteini Kirk og áhöfn hans á
Enterprise. Einnig lendir hann í
klónum á Ókindinni í fínu atriði.
Myndin er dæmigert unglinga-
fóður sem sjálfsagt nær miklum
vinsældum hér heima og áður en
maður veit af verður mynd númer
tvö komin í bíóin.
Arnaldur Indriðason
[Sumartilboðf
Garðáhöld á einstöku verði
Hrífa, 1
Verð
Hrífuhau
antskeri.
Kr. 990.
ltanna.
■. 890.
kr. 360.
I r.
s ar
Stunguskóflur.
Verð kr. 1.550 og 770
Laufhrífa.
Með skafti kr. 890,
Án skafts kr. 230.
fj
Klippur
mjög vandaðar,
teflon húðaðar.
kr. 1.150
Aðrar gerðir frá
kr. 740
Gafflar.
I Verð kr. 1.550 og 770
Slöngurúlla á hjólum.
Kr. 2.250.
á hjólum
með fittings og
20 m slöngu
kr. 2.950.
Úðari úr áli.
Kr. 350.
löngu skafti, teflon
húðaðar
kr. 1.100.
Slöngutengi og úðari.
Kr. 400.
Trjáklippur.
Verð frá kr.260.
fí/
Gróðursett.
Verð kr. 290.
3 gerðir.
Verð frá kr. 650.
Úðakútur 10 1.
Verð kr. 2.990
Þetta er aðeins hluti af úrvalinu.
Komið, skoðið og gerið góð kaup!
Ath.: Við eigum einnig úrval af hillum og
hillukerfum í bílskúrinn eða geymsluna á
hagstæðu verði.
FAXA
FENI 9,
67733
Öll verð
eru stgr. verð
m/VSK
Op
mánud. til föstud. 9-
Laugard. 10-14.