Morgunblaðið - 18.05.1994, Side 23

Morgunblaðið - 18.05.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ1994 23 Helgi Hálfdanarson Nóta fölsk UMMÆLI MÍN um minn- ingarkvæði það, sem Steinn Steinarr orti eftir Jón Pálsson, hafa heldur betur dregið dilk á eftir sér. Þrír listamenn hafa, svo 'mér sé kunnugt, risið upp til varnar þessum kveðskap, nú síðast Jón Þórarinsson tón- skáld í Morgunblaðinu 14. þ.m. Grein hans er full af góðri hlýju í garð þeirra beggja, Jóns og Steins. Um þessa umræðu er ann- ars það að segja, að hún virð- ist komin í hring, svo að í framhaldi hennar yrði ég að endurtaka það sem ég hef áður sagt. Ég hef getið þess til, að enginn, sem eitthvað þekkti til Steins, myndi taka sjálfs- niðurlægingu hans alvarlega. Og hvað sem því líður, er óra- langt á milli þess annars veg- ar, að snillingur á borð við Stein Steinar setji saman vælukveðskap um sjálfan sig, og hins vegar þess að yrkja hálfkæring í vorkunnartón um annan mann, nýlátinn og vandlega nafngreindan, sem fortakslaust er kallaður mis- heppnaður tónsnillingur og stutt ævi hans fölsk nóta í mannlífinu. Svo er mér óskilj- anlegt, hvernig hægt væri að lesa það út úr kvæðinu, að sá sem um er ort, sé í alvöru sagður marktækur tónlistar- maður. Það þarf kynlegan ein- strenging til að vilja ekki sjá háðsglottið á bak við þessar línur. Að birta slíkt kvæði opinberlega hefði ég haldið að flestir hlytu að kalla smekk- leysu, svo ekki sé meira sagt. Og það er sú smekkleysa sem ég áfellist Ríkisútvarpið fyrir að stagast á. Mér þykir miður, að skap- gerð Steins Steinars hefur að nokkru komizt inn í þessa umræðu. Ég hef forðazt að drepa á hana umfram það gáleysi hans að missa kvæðið um Jón Pálsson frá sér á prent. Skapgerð Steins var flókin, og lauslegt umtal um hana vegna þessa ljóðs kynni að valda misskilningi og varpa ómaklegum skugga á mann- kosti hans. En þess má þó geta, að allir kunnugir vita, að margt var Steini betur gef- ið en nærgætni. Og æði marg- ir voru þeir, sem ekkert dáðu meir í fari hans en skort hans á nærgætni. Þann skort hefur Ríkisút- varpið tileinkað sér með sið- lausu dekri sínu við kvæðið um Jón Pálsson. BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNIIVIGARNAR 28. MAÍ „Yið erum bara venj ulegt fólk í venjulegri kosningabaráttu“ ÞETTA var svar Árna Sigfússonar borgarstjóra á Stöð 2 sl. mánudagskvöld þegar hann var af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ásakaður fyrir ijáraustur Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík í kosninga- baráttunni og ófræg- ingarherferð á hendur einstaka frambjóðend- um Reykjavíkurlist- ans. Og hvernig skyldi nú „venjulegt fólk í venjulegri kosninga- baráttu“ haga sér að mati Árna Sigfússonar borgarstjóra? Kosningabarátta Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík ber þess öll merki að flokkurinn er á barmi taugaáfalls við þá tilhugsun að vera að missa völdin í borginni til óverð- ugra. „Komma og fylgifiska“, „flokksbrota með ólíkar stefnur“, fólks sem „aðeins hefur staðið í að rífa niður“, þeirra sem eru „óreyk- vískastir allra og villi því á sér heim- ildir“, fólk sem „laug“, „ókynning- arhæft rauðlistafólk“, svo vitnað sé til fúkyrðaflaums stuðningsmanna Árna Sigfússonar í aðeins einu ein- taki Morgunblaðsins, nánar tiltekið þriðjudaginn 17. maí. Enn fleira opinberar örvæntingu Sjálfstæðisflokksins. Við höfum þessa dagana fyrir augum kosn- ingabaráttu þeirra, sem í Reykjavík einni kostar ekki undir 50 milljónum króna; áróðursþættir dag eftir dag á sjónvarpsstöðinni Sýn, leiknar sjónvarps- auglýsingar daglega, útvarpsauglýsingar, marglita dagblaðsaug- lýsingar í Morgunblað- inu, DV og Pressunni, flettiauglýsingaskilti út um allan bæ. Þetta er fyrir utan hefðbundnar kosningaaðferðir með útgáfu, kosningafund- um og -skemmtunum, sem teljast vera eðlileg- ar og í samræmi við þær hefðir sem hér hafa skapast. Á sama tíma kostar kosningabar- átta Reykjavíkurlistans, lista sem fjórir stjórnmálaflokkar standa að, einungis um 10-12 milljónir og finnst ýmsum það ærið á þeim tím- um kreppu, atvinnuleysis og.fá- tæktar margra sem við nú lifum. En sjálfstæðismönnum og Árna Sigfússyni, sem stjórnar kosninga- baráttunni í Reykjavík, finnst ekki nóg að gert. I örvæntingu sinni grípa þeir til annarra og miður geðslegra aðferða, sem marka óhugnanleg tímamót í íslenskri stjórnmálabaráttu. Þar á ég við sið- lausar auglýsingar og árásir þeirra á tvo frambjóðendur Reykjavíkur- listans, þau Sigrúnu Magnúsdóttur og Alfreð Þorsteinsson. Sigrún Magnúsdóttir hefur um langt skeið verið sjálfstæðismönn- Kosningabarátta Sjálf- stæðisfiokksins ber þess merki, að mati Mar- grétar S. Björnsdótt- ur, að flokkurinn sé á barmi taugaáfalls við þá tilhugsun að missa völdin. um þyrnir í augum fyrir skelegga og hugrakka baráttu gegn hvers- kyns sóun og fjármálaóreiðu hjá Reykjavíkurborg, einkum við ýmsar stærri framkvæmdir borgarinnar. Framganga hennar við að krefja Árna Sigfússon og Markús Örn Antonsson svara við þeirri eðlilegu spurningu, hvar í skjölum borgar- innar sjái stað tveggja og hálfrar milljón króna ráðgjafai'vinnu Ingu Jónu Þórðardóttur hefur þar farið sérstaklega i taugarnar á þeim. Þeir hafa því í blaðaauglýsingum og í málflutningi ráðist linnulaust á Sigrúnu og langt gekk Inga Jóna sjálf, þegar hún í beinni útsendingu á Rás 2 sl. laugardag gaf í skyn, að kunnáttu og þekkingu kaup- mannsins, Sigrúnar Magnúsdóttur á uppgjöri og skilum virðisauka- skatts væri stórlega ábótavant. Á hinn frambjóðandann, Alfreð Þorsteinsson, er síðar ráðist í heil- síðuauglýsingu í Morgunblaðinu sl. laugardag. Óhugnanlegri auglýs- ingu þar sem grímuklætt fólk er sýnt og þess krafist að Alfreð Þor- steinsson sýni sitt rétta andlit, komi úr felum, hætti að blekkja kjósend- ur. Hér er því miður ekki á ferðinni „venjuleg kosningabarátta venju- legs fólks“ eins og Árni Sigfússon heldur fram. Með því sem hér hefur verið lýst, þ.e. gegndarlausum fjár- austri í mestanpart innihaldslaust auglýsingaskrum og rætnum per- sónulegum árásum á pólitíska and- stæðinga, er Árni Sigfússon og Sjálfstæðisflokkurinn að marka tímamót í íslenskri stjórnmálasögu. Tímamót sem merkja að eftir þetta verður ekkert heilagt í baráttunni um völd og áhrif í stjórnmálum, tímamót sem merkja að kosninga- barátta verður ekki lengur háð á þokkalegum jafnréttisgrundvelli, heldur munu þeir sem ekki hafa auðmenn og stórfyrirtæki landsins á bak við sig standa verulega höll- um fæti. Eru þetta „lyklar“ Árna Sigfús- sonar að siðuðu og réttlátu samfé- lagi okkar Islendinga? Á því sem hér hefur verið lýst ber Árni Sigfússon stjórnandi kosn- ingabaráttunnar í Reykjavík ábyrgð. Það er til umhugsunar fyr- ir þá Reykvíkinga sem enn hafa ekki gert upp hug sinn fyrir borgar- stjórnarkosningarnar 28. maí nk. Höfundur er stuðningsmaður R-listans. Margrét S. Björnsdóttir Rugl Sigrúnar Sj álfstæðismönnum á Seltjarnarnesi hefur löngum verið það ljóst að minnihlutaflokkarn- ir á Nesinu hafa fengið utanaðkomandi stuðn- ing, á bak við tjöldin. Þessa verður sérstak- lega vart fyrir kosning- ar. Varpað er fram óstaðfestum fullyrðing- um - rógburði - sem oft kann að vera erfitt að leiðrétta, en lýsir best, þeim sem flytur. Nýjasta dæmið um slíka aðstoð er grein Sigrúnar Magnúsdótt- ur, oddvita R-listans í Reykjavík (lista Alþýðubandalags, Álþýðu- flokks, Framsóknar, Kvennalista, Nýs vettvangs og Birtingar) í Mbl. 29. apríl sl., þar sem hún slær því fram, algerlega órökstutt, að Sel- tjarnarnes sé illa rekið sveitarfélag og að peningaleg staða þéss sé slæm. Blaðaskrif undanfarinna daga fara greinilega í taugarnar á henni og þeim er hún styður, en þar er sjálfstæðismönnum á Seltjarnarnesi hælt fyrir störf sín, m.a. fyrir lágar skattaálögur, fyrir stefnu sína og brautryðjendastörf í skólamálum og nú síð- ast fyrir fyrsta yfir- byggða torgið á ís- landi, Eiðistorg, þar sem skapað hefur ver- ið bjart og hlýlegt umhverfi árið um kring - torg, sem Selt- irningar eru stoltir af. Samkvæmt árs- reikningum er staða Seltirninga góð. Um áramótin 1993/1994 voru skuldir umfram peningalega eign pr. íbúa um 35.000 kr. Það eru ekki mörg sveitarfélög á íslandi sem sýna betri stöðu. Skuldir bæjarsjóðs Seltjarn- arness eru að stórum hluta vegna kaupa á landi sem mun verða nýtt undir opin svæði. Með nýlega framlögðum árs- reikningum bæjarsjóðs Seltjarnar- ness og stofnana hans fyrir árið 1993 sér endurskoðandi bæjarsjóðs ástæðu til að hæla sérstaklega fyr- ir góða fjármálástjórn. Þar segir hann orðrétt: „Athygli vekur hversu vel virðist hafa tekist á liðnu ári að haga rekstri'bæjarsjóðs nálægt áætlunum. Þannig eru heildarskatt- Jón Sigurðsson Ársreikningar Seltjarn- arnesbæjar 1993 voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum, segir Jón Sigurðsson, og telur það sýna tiltrú minnihlutans á störfum sj álfstæðismanna. innan við 3% lægri en áætlun.“ Ársreikningar Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 1993 voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum. Slík er tiltrú minnihlutans á Sel- tjarnarnesi á störfum sjálfstæðis- manna á Seltjarnarnesi í fjármála- stjórnun. Er hægt að hugsa sér það betra? Seltirningar vita að fjármáþbæj- arsjóðs eru í góðum höndum sjálf- stæðismanna á Seltjarnarnesi. Þveröfugt við það sem Sigrún held- ur fram er oft bent á Seltjarnarnes sem dæmi um vel rekið sveitarfélag. tekjur einungis innan við 1% lægri ----------------------------------- en áætlun og heildarkostnaður Höfundur skipar 5. sæti á D-lista vegna reksturs málaflokka einungis Seltjarnarnesi. Málverkasýningar á kosningaskrifstofum Vogum - Frambjóðendur fram- boðslista við kosningarnar til hreppsnefndar hafa opnað kosn- ingaskrifstofur og til að draga athygli að þeim hafa þeir fengið listamenn til að halda málverka- sýningar. Hjá F-lista fólksins sýna Hreinn Guðmundsson og Patricia Hand en kosningaskrifstofa F- listans er í þjónustumiðstöðinni Iðndal 2. Hjá H-lista óháðra borgara sýnir Þórunn Guðmundsdóttir en kosningaskrifstofan er í Voga- gerði 4. Kosningaskrifstofurnar eru opnar öll kvöld fram að kosning- um.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.