Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ BORGAR OG SVEITARSTJORNARKOSNIIMGAR 28. MAI Glimdroðinn og R-listinn Björn Bjarnason ÞEGAR vinstri menn sátu við stjóm- völinn í Reykjavík á árunum 1978 til 1982 gerðu þeir eina breyt- ingu á yfirstjórn Reykj avíkurborgar: Þeir fjölguðu borgar- fulltrúum úr 15 í 21. Eitt fyrsta verk sjálf- stæðismanna eftir að þeir endurheimtu meirihlutann var að fækka borgarfulltrú- um í 15 að nýju. Margt bendir til þess, að mál þróist með svipuðum hætti í yfírstjórn borgarinnar, ef R-listinn næði meirihluta í kosningunum 28. mai næstkomandi. Fjórir stjórnmálaflokkar og brotabrot úr þessum flokkum standa að framboði R-listans. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspumir um, hvemig verkum verði skipt á milli flokkanna að kosningum loknum, fást engin svör. Þetta kom skýrt fram á framboðsfundi Ríkisútvarps- ins í beinni útsendingu laugardag- inn 14. maí. Þrír í nefndir Á sínum tíma þegar sósíalistar og kommúnistar fóru með stjórn í Evrópuríkjum í óþökk íbúa þeirra, kenndu þeir stjómarhætti sína gjaman við „samvirka forystu". Hugtakið var áróðursbragð í því skyni að fela alræðisvald flokks- brodda, sem tóku ekki tillit til neins annars en eigin hagsmuna. Á fyrrgreindum útvarpsfundi var gengið á vinstri menn á R-listanum og þeir spurðir, hvernig verkaskipt- ingu þeirra yrði hátt- að, ef þeir fengju meirihluta í Reykjavík. Svaraði Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgar- stjóraefni á þann veg, að í hverri nefnd borg- arstjórnar fengi R-list- inn þijá menn og þar yrði „samvirk for- ysta“. Með hliðsjón af hugmyndafræði R- listans var ef til vill ekki sérkennilegt að heyra þetta gamal- kunna sósíalíska hug- tak notað um þá stjómarhætti, sem Reykvíkingar eiga í vændum, fái R-listinn meirihluta. Guðrún Ág- ústsdóttir úr Alþýðubandalagi bætti um betur í þessu efni með því að segja, að Ingibjörg Sólrún ætlaði ekki að stjórna fólki heldur með fólkinu. Slagorð. af þessu tagi voru letruð á stóra borða í kommúnista- ríkjunum fyrrverandi einræðisherr- unum til trausts og halds. Að R-listanum standa fjórir flokkar auk brotabrotanna, þannig að einn verður útundan við val þriggja manna í nefndir. Þögnin um verkaskiptingu innan R-listans sýn- ir vandann vegna ágreinings flokk- anna um hvernig skipta eigi „her- fanginu". Vegna þessa ágreinings mun koma fram krafa um fjölgun borgarfulltrúa til að fleiri flokkar og brotabrot fái menn í nefndir. Það verður lausn hinnar samvirku forystu. Þrír verkstjórar Á sínum tíma var það forsenda lýðræðislegra stjórnarhátta i Hver virkjar á Nesjavöllum? í STJÓRNMÁLA- UMRÆÐUNNIíút- varpinu sl. laugar- dag sagði Sigrún Magnúsdóttir, odd- viti R-listans, að sjálfstæðismenn hefðu ekki staðið við kosningaloforð frá 1990 um að heija annan áfanga Nesja- vallaveitu. Það er ótrúlegt að forysta R-listans skuli vera svona illa að sér í málefnum Hitaveitu Reykjavík- ur. Þegar það kemur svo einnig til að Sigrún hefur sem fuiltrúi Framsóknarflokksins setið sl. fjögur ár í stjóm Véitustofnana. Það sanna er að á árinu 1990 var tekinn í notkun fyrsti áfangi Nesja- vallaveitu, þrátt fyrir harða and- stöðu sumra minnihlutaflokka sem nú mynda R-listann. Þetta var 100 MW afl og siðan var haldið áfram með annan áfanga og tekið í notk- Páll Gíslason un árið 1992 um 50 MW afl. Þetta tryggði næga orku og öryggi fyrir notendur. Þar sem ekki varð af byggingu álvers þarf ekki frekari virkjun í bili og því ekki ástæða til að fjár- festa meira (sbr. Blöndu). Þetta hefur sennilega farið framhjá Sigrúnu Magnúsdóttur, stjórnarmanni Hita- veitunnar, og er það miður. Annars má benda á að stuðningur fram- sóknarmanna við orku- öflun Hitaveitu Reykjavíkur og áður Rafmagnsveitu Reykjavíkur (Sogið), hefur ávallt verið lítill. Gæti það orðið til vandræða ef þeir ættu með sigri R-listans að taka við forystu þar. Höfundur er formaður stjórnar veitustofnana. Reykjavík að mati vinstrisinna, að borgarstjórinn væri ekki pólitískt kjörinn, hann ætti að vera ráðinn til starfsins að kosningum loknum. Nú hafa vinstrisinnar snúið við blaðinu og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hamrar á því, að hún verði pólitískur borgarstjóri, pólitískur leiðtogi og verkstjóri. Leggur hún ríka áherslu á þetta hlutverk sitt og vísar til þess, þegar hún er spurð um stjórnarhætti vinstrisinna að kosningum loknum. Kappsamur málflutningur hennar um þetta stingur í stúf við talið um hina sam- virku forystu og stjórn með fólkinu. Máli hennar sýnist ekki síst beint til samheijanna, því til áréttingar, að hún eigi síðasta orðið. Á fýrrgreindum útvarpsfundi sagði Ingibjörg Sólrún að Sigrún Magnúsdóttir Framsóknarflokki yrði verkstjóri borgarstjórnarflokks R-listans. Þá kom fram, að Guðrún Ágústsdóttir Alþýðubandalagi yrði forseti borgarstjórnar og þar með verkstjóri hennar. Þannig hafa full- Fjölgun borgarfulltrúa kann að verða leið R- listans til að koma í veg fyrir átök innan eigin raða að mati Björns Bjarnasonar, sem telur listann yfirbreiðslu yfir djúpstæðan ágreining meðal vinstrisinna. trúar þriggja flokka af fjórum á bakvið R-listann fengið verkstjóra- hlutverk. Alþýðuflokkurinn liggur utan garðs. Við skilgreiningu á hlutverkaskipan verkstjóranna kemur hins vegar fram, að ekki hafi þeir allir sama rétt til póli- tískra yfirlýsinga. Því hefur ekki verið lýst, hvar mörkin eru. Yfirbreiðsla R-listinn er boðinn fram til að breiða yfír glundroða vinstri flokk- anna í Reykjavík. Hlutverk listans er einnig að fela, hve illa þessir flokkar eru staddir hver um sig i Reykjavík. Með framboðinu tókst að koma í veg fyrir illviga valdabar- áttu innan Alþýðubandalagsins um eftirmann Siguijóns Péturssonar í efsta sæti á borgarstjómarlista flokksins. Af framboðinu leiðir, að sérstaða Kvennalistans er úr sög- unni og brotthvarf hans af stjórn- málasviðinu er markmið margra öflugra stuðningsmanna R-listans. Kosningabarátta R-listans hefur miðað að því að fela þessa þver- bresti í baklandi framboðsins. For- vígismenn R-listans geta ekkert sagt um það, hvernig staðið verði að stjórn borgarinnar, fái þeir meiri- hluta, þeir vita það einfaldlega ekki. Nafn og númer munu ekki sjást fyrr en að kosningunum loknum. Það er undir kjósendum í Reykjavík komið að ýta þessu feluskipi á brott og forða því að sundurlynd áhöfnin fari að ráðskast með málefni borg- arbúa. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Það sem þarf er nýtt samfellt húsnæðiskerfi Guðrún Ágústsdóttir Vlð NEFNUM leigu- húsnæði í stefnuskránni okkar. Af hveiju er það? Er það vegna þess að við séum á móti því að fólk búi í eigin hús- næði? Nei, það er vegna þess að við horfumst í augu við veruleikann eins og hann er. Til þess að eignast húsnæði nú um stundir þarf fólk að hafa miklar tekjur. Dæmi: Til að kaupa íbúð upp á sjö milljónir króna þarf að eiga eigið fé upp á eina til tvær miilónir. Segjum að af- gangurinn sé á húsbréfum, 5 milljón- ir króna. Af húsbréfunum þarftu þá að borga um 35 þúsund krónur á mánuði. „Eigið“ fé gætir þú hafa fjármagnað að hluta með lausaláni eða lífeyrissjóðsláni. Þar með er greiðslubyrði þín orðin 50 þúsund krónur á mánuði hið minnsta. Til að standa undir þessu iáni þarftu miklar tekjur. Sá sem hefur minna en 150 þúsund krónur á mánuði ræður illa við þessa greiðslubyrði. Sá sem hefur meira, kannski allt að 250 þúsund krónur á mánuði, ræður við þessa greiðslubyrði en það getur samt ver- ið erfitt og fer þá eftir öðrum rekstr- arkostnaði heimilsins. Niðurstaða: Til að kaupa íbúð um þessar mundir þurfa fjölskyldutekjurnar að vera vel yfír 200 þúsund krónur á mánuði. Og hver hefur þær tekjur? Sveigjanlegt húsnæðiskerfi Það sem við þyrftum að eignast er sveigjanlegt húsnæðislánakerfí þar sem saman spila kostir félags- lega kerfísins og almenna íbúðakerf- isins. Það er ekki skynsamlegt að ioka þessi tvö kerfi af í hólfum þar sem ekkert rennsii er á milli. Það er skynsam- legt að þessi kerfí hjálpi hvort öðru til dæmis með sveigjanlegum og breytilegum kjörum eftir tekjum einstakl- inganna. Ég hugsa að mismunandi lánstími væri skynsamlegri leið en mismunandi vextir og mismunandi vaxta- bætur. Þannig mætti hugsa sér að þeir sem hafa lægstu launin fengju ián til allt að tvisvar sinnum iengri tíma en þeir sem hafa mestar tekjumar. Og síðan mætti hugsa sér að þessi láns- tími breyttist á lífsleiðinni eftir tekj- um viðkomandi lántaka o.s.frv. Með þesu móti væru kerfín látin vinna saman - hið almenna kerfi og félags- iega kerfið. Það er skynsamlegasta leiðin. Á þeirri leið frá félagslegu kerfi til almenns kerfis eru svo marg- víslegir kostir. Til dæmis búsetakerf- ið þar sem nauðsynlegt er hins vegar að lengja lánin verulega til að þetta kerfí geti þrifíst. Og allt þetta er svo að lokum borið uppi af stoðkerfum. Eins og húsaleigubótum annars veg- ar og verulegu framboði af húsnæði í eigu sveitarfélaganna eða í annarri féiagslegri eign hins vegar. Núna mætti hugsa sér, til að hleypa lífí í húsnæðismarkaðinn, að hefjast handa um nýja byggingaráætlun eins og þá sem skilaði 1.250 íbúðum í lok sjötta áratugarins í samvinnu ríkis borgar og samtaka launafólks. Ný húsnæðistefna í þágu unga fólksins Nú vill svo vel til að í Morgunblað- inu laugardaginn 7. maí er einmitt slegið á þessa sömu strengi. Það Ég er sammála Haraldi Sumarliðasyni, segir Guðrún Ágústsdóttir, sem telur að ný hús- næðisstefna geti einnig orðið hornsteinn að _______bjartsýni í____ atvinnumálum. gerir Haraldur Sumarliðason for- maður Samtaka iðnaðarins. Hann bendir á að íbúðum hefur „snarfækk- að“, „viðhaldsþörf eldra húsnæðis er vanmetin", „ungt fólk (hefur) ekki bolmagn til að kaupa sína fyrstu íbúð jafnvel þótt það hafí þokkalegar tekj- ur“, „vandinn vex með hveijum deg- inum sem líður“ o.s.frv. „Fólk er ein- faldlega hrætt“ segir Haraldur líka. Ég tek undir með Haraldi. Og R-list- inn hefur sett fram stefnu til að höggva á hnútinn. Þar þarf að taka á vanda unga fólksins númer eitt og framkvæma nýja húsnæðisstefnu í þágu ungs fólks. Það er númer eitt. Það á að gera með hagstæðari lánum fyrir ungt fólk. í öðru lagi á að setja í gang öfluga viðgerðaráætlun fyrir íbúðarhúsnæði. Hvorttveggja þýðir hundruð nýrra atvinnutækifæra. Þannig getur virk jákvæð húsnæðis- stefna orðið einn af hornsteinum nýrrar atvinnustefnu líka. Höfundur skipar 2. sætið á Reykjavíkurlistanum. Nýtt greiðslukortatfmabil hefst í dag HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.