Morgunblaðið - 18.05.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ1994 25
_________BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 28.MAÍ
Athafnir í stað aðgerðaleysis
ÞAÐ ER ekki og á ekki að vera
neinu sveitarfélagi sérstakt kapps-
mál að dæla fjármunum í atvinnulíf-
ið. Ríkisvaldið á auðvitað að skapa
þau skilyrði í landinu að atvinnulíf-
ið þrífist og dafni án stórkostlegra
björgunaraðgerða. Sveitarfélögin
geta hins vegar ekki horft upp á
það aðgerðalaus að fyrirtækin leggi
upp laupana hvert á fætur öðru og
dugmikið og vinnufúst fólk sé dæmt
til að mæla göturnar. Þau hljóta
að gera það sem í þeirra valdi stend-
ur til að fá hjól atvinnulífsins til
að snúast.
Þetta veit og skilur það fólk sem
stendur að Reykjavíkurlistanum.
Við viljum beita pólitískum aðgerð-
um til að ýta atvinnulífinu í borg-
inni af stað en þegar af stað er
komið verða fyrirtækin auðvitað að
spjara sig sjálf. Við viljum styðja
við bakið á fólki og fyrirtækjum sem
búa yfir frumkvæði og sköpunar-
krafti. Við viljum axla ábyrgð í at-
vinnumálum með fólkinu í borg-
inni. Við neitum að horfa aðgerða-
laus upp á það að þúsundir karla
og kvenna í Reykjavík séu dæmd
úr leik á vinnumarkaði.
Garmurinn hann Ketill
Höfundur Reykjavíkurbréfs
Morgunblaðsins hélt því fram fyrir
rúmri viku að fallandi gengi sjálf-
stæðismanna í Reykjavík væri öll-
um öðrum að kenna en þeim sjálf-
um. Þeir væru leiksoppar erfiðleika
síðustu sex ára í efnahags- og at-
vinnumálum landsmanna. Þó að
þeir hefðu bæði um haldið hjá ríki
og borg hefðu þeir engu um valdið.
Þeir væru fómarlömb
gæftaleysis og ytri
aðstæðna.
í bréfinu var því
jafnframt haldið fram
að sjálfstæðismenn
hefðu á umliðnum
árum lagt sig alla
fram um að draga úr
áhrifum alls þess
vonda sem þeir hafa
ekkert á valdi sínu.
Sagt var að þetta
hefðu þeir gert með
því að „leggja fram
svo mikla fjármuni úr
borgarsjóði til þess að
skapa atvinnu í höfuð-
borginni, ekki síst fyr-
ir ungt fólk, að þeir hafa legið und-
ir stórárásum vinstri flokkanna fyr-
ir stefna fjármálum borgarinnar í
voða“.
Meiri tekjur og meiri skuldir
Betra að satt væri. Eitthvað hafa
mál skolast til hjá höfundi bréfsins
því sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hafa legið undir ámæli fyrir flest
annað en rausnarleg fjárframlög til
atvinnumála. Skuldasöfnun borgar-
innar á umliðnum árum á ekki rót
sína að rekja til öflugra aðgerða í
atvinnumálum. Skuldirnar eiga
fyrst og fremst rót sína að rekja
til illa undirbúinna framkvæmda við
óhagnýtar byggingar sem reistar
voru á einum mesta þenslutíma í
íslenskum byggingariðnaði. Svo
einfalt er það.
Morgunblaðið minntist á erfið-
leika síðustu sex ára. Það er því
fróðlegt að skoða
hvemig þeir birtust
hjá Reykjavíkurborg.
Rekstartekjur
borgarinnar hafa
aldrei verið meiri en á
árunum 1987 til 1992
og hæstar urðu þær
árið 1989. Reykjavík
hafði umtalsvert
hærri tekjur á þessu
tímabili en flest önnur
sveitarfélög á landinu.
Umframtekjur
Reykjavíkur á árinu
1991 voru þannig um
1.600 milljónir króna.
Sömu sögu er að segja
um árið 1992.
Á þessum tíma versnaði skulda-
staða borgarsjóðs verulega og fór
úr rétt rúmum 3.000 milljónum
áriðn 1987 í 9.500 milljónir við síð-
ustu áramót. Bara á árinu 1989 -
árinu sem tekjumar urðu hæstar -
hækkuðu skuldirnar um 1.000 millj-
ónir.
Stuðningur við atvinnulífið
Ef litið er til beinna framlaga
sveitarfélaga til atvinnulífsins koma
athyglisverðar tölur í ljós. í skýrslu
sem unnin var fyrir félagsmála-
ráðuneytið um fjárhagsaðstoð sveit-
arfélaga við atvinnufyrirtæki á ár-
unum 1987 - 1991 var gerð úttekt
á stöðu mála í 24 kaupstöðum. I
ljós kom að aðstoð þeirra hafði
numið tæplega 3.200 milljónum
króna á þessum fimm ámm. Fram-
lög kaupstaðanna í formi hluta-
bréfakaupa, lána, niðurfellingar
Sj álfstæðisflokkurinn
setti allt traust sitt á
markaðinn, telur Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir, og svaf Þyrni-
rósarsvefni þegar hann
brast.
gjalda og beinna framlaga voru
rúmlega 1.700 milljónir, en ábyrgð-
irnar einar sér tæplega 1.500 millj-
ónir.
Hlutur Reykjavíkurborgar af
þessum 3.200 milljónum voru 209
milljónir króna en það samsvaraði
0,43% af skatttekjum borgarinnar
á þessu árabili. Þetta eru nú öll
ósköpin! Þetta eru fjármunirnir
miklu úr borgarsjóði sem höfundur
Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins
telur að valdi mikilli skuldasöfnun
borgárinnar á undangengnum
árum.
Peningaleg staða
Þegar litið er til þessara talna
um stuðning við atvinnulífið skyldi
maður ætla að peningaleg staða
sveitarfélaganna á landinu hefði
versnað verulega á þessum árum,
ef frá er talin Reykjavík. Raunin
er hins vegar allt önnur. Staðan
hefur að vísu versnað hjá flestum
sveitarfélögum á höfuðborgar-
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Áfram Reykjavík
HÚN ER er heldur þunn súr-
mjólkin sú sem sjálfstæðismenn
bera á borð fyrir unga kjósendur í
Reykjavík. Boðsmiðar á skemmti-
staði borgarinnar voru sendir inn
á heimili ungra kjósenda. Virðing
þeirra fyrir ungu kynslóðinni er
ekki meiri en svo að þeir halda að
hún sé föl gegn einnar nætur
gamni. Flokkurinn ætlar sér að
veiða undirmálsfisk með hlægileg-
um veiðarfærum. Ungir Reykvík-
ingar eru einfaldlega betur gefnir
en svo að þeir láti glepjast af ódýr-
um brögðum af þessu tagi.
Mjúku málin
Að hætti bandarískra kosninga-
stjóra birtist Árni Sigfússon okkur
nú sem maður hinna mjúku mála.
Glaður í bragði á skjánum segist
hann vilja hlúa að komandi kyn-
slóðum og veita öldruðum áhyggju-
laust ævikvöld. Árni hefur nú setið
í átta ár í samhentri, samtaka og
afkastamikilli borgarstjórn Sjálf-
stæðisflokksins sem hefur reyndar
stjórnað borginni síðustu tólf ár.
Hvernig stendur á því að mjúku
málin ná fyrst athygli Árni fyrir
kosningar í vor? Hvernig stendur á
því að Sjálfstæðisflokkurinn vill
biðlistana burt nú, biðlistana sem
þeir sjálfir hafa búið til? Gleymum
ekki því að menn skulu dæmdir af
verkum sínum, ekki innantómum
orðum.
Almenningssamgöngur
Sjálfstæðismenn hafa löngum
haft illan bifur á almenningssam-
göngum hvers konar. Dregið hefur
verið úr þjónustu SVR jafnt og
þétt síðustu ár. Fargjöld eru dýr,
einkum fyrir börn og unglinga sem
teljast fullorðnir tólf ára og borga
samkvæmt því. Hinn heilagi einka-
bíll hefur verið tilbeðinn á altari
Sjálfstæðismenn verða
dæmdir af verkum sín-
um, segja Hrafnkell
Orri Egilsson og Ing-
ólfur Gíslason, en ekki
af innantómum orðum.
efnishyggjunnar. í stað þess að
gera strætó að eftirsóknarverðum
kosti hefur verið neytt allra bragða
til að koma fólki á einkabíl. Nú
bregður hins vegar skyndilega svo
við að flokkurinn undirbýður tillög-
ur minnihlutans um unglingafar-
gjöld mánuði fyrir kosningar. Þess
ber að geta að svipaðar tillögur
hafa margoft komið fram og verið
felldar af styrkri stjórn sjálfstæðis-
manna. Kosningaútsalan er í full-
um gangi, allt á að seljast því nýir
eigendur taka við.
D fyrir rugling
Hræðsluáróður D-listans um
sundrungu vinstri manna hljómar
ekki mjög sannfærandi. Á síðustu
fjórum árum höfum við Reykvík-
ingar haft þrjá börgarstjóra, hver
öðrum ólíkari. Sá fyrsti lagði eink-
um áherslu á byggingu stein-
steypukumbalda og marmarahalla,
næsti á einkavæðingu borgarfyrir-
tækja og sá hinn þriðji geisist fram,
nýr og ferskur, með hin gömlu gildi
fjölskyldunnar sem aðalatriði.
Stöðugleikinn er þannig farinn fyr-
ir lítið. Eigum við von á því að
næsti borgarstjóri verði t.d. Þor-
bergur Aðalsteinsson með áherslu
á handboltann: Fleiri hendur, meiri
mörk? Hávær áróður sjálfstæðis-
manna um rugl á öðrum listum
verður að hjákátlegum söng í eyr-
um kjósenda.
Höfundar eru nemar við
Menntaskólann við Hamrahlíð.
svæðinu en óvíða eins mikið og í
Reykjavík. Ef taka ætti eitthvað
sveitarfélag til samjöfnuðar væri
það helst Kópavogur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjóðhagsstofnun hefur peningaleg
staða höfuðborgarinnar versnað úr
því að vera jákvæð um 15% af
rekstrartekjum ársins 1989 í það
að vera neikvæð um 25% af tekjum
ársins 1992. Sveitarfélög utan
höfuðborgarsvæðisins, sem öðrum
fremur hafa þurft að styðja við
bakið á atvinnulífinu, hafa hins
vegar bætt talsvert peningalega
stöðu sína.
Skynsemi en ekki kreddur
Af bernsku gagnrýnisleysi þess
sem vill heldur lúta forræði síns
flokks en hugsa sjálfstætt, getur
höfundur Reykjavíkurbréfs Morg-
unblaðsins lifað sæll í þeirri trú að
borgarbúar hafi ekkert upp á meiri-
hluta sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur að klaga. Borg-
arbúar vita betur. Sjálfstæðisflokk-
urinn setti allt sitt traust á markað-
inn og svaf Þyrnirósarsvefni þegar
hann brást. Nú horfum við upp á
risann vakna á elleftu stundu með
írafári og fálmi.
Við í Reykjavíkurlistanum erum
hvorki í viðjum flokksvalds né
þeirrar hugmyndafræðilegu kreddu
að markaðsöflin leysi hvers manns
vanda. Við viljum athafnir í stað
aðgerðaleysis. Það kann að kosta
einhveija fjármuni í upphafi en þá
er vert að hafa í huga að atvinnu-
leysi er gífurlega dýrt, bæði mælt
í hamingju einstaklinganna og aur-
um samfélagsins.
Höfundur er borgarsljóraefni
R-listans.
Plastaar
ogsMr
Sterkir plastkassar og skúffur.
Fyrir skrúfur, rær og aðra smáhluti.
Hægt að hengja á vegg, eða stafla
saman.
lyiargar stærðir gott verð.
Avallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BlLDSHÖFÐA 16
SlMI 672444 • FAX 672580
±±±JL±±±!EL±±±2W±m*^±±!L±±+±±'ITTTXTITT^
Blátt áfram X-D i
Hafdís Armannsdóttir
húsmóðir
Birgir Georgsson Sif Jónsdóttir Steinar Guðgeirsson
kaupmaður skrifstofumaður knattspyrnumaður
Máihildur Angantýsdóttir
sjúkraliði