Morgunblaðið - 18.05.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 31
BORGAR- OG SVEITASTJORNARKOSIMINGAR 28. MAI
INGIBJÖRG Sólrún
Gísladóttir stefnir að
því að verða næsti
borgarstjóri Reykja-
víkur. Frá 1982-88
gegndi hún starfi
borgarfulltrúa. Að
sjálfsögðu nýtti hún
sér óspart þann rétt
að láta í ljós skoðun
sína á borgarmálum
og því hvernig hún
myndi breyta ef hún
réði. Það er athyglis-
vert að skoða ummæli
hennar í borgarstjórn
nú, þegar hún stefnir
að því að verða valda-
mesti maður borgarinnar. Af nógu
er að taka en hér verður fjallað
um afstöðu hennar til nýrra hverfa
en um hana má lesa í ræðum henn-
ar í borgarstjórn.
„Ónauðsynleg útþensla
borgarmarka"
Ingibjörg Sólrún settist fyrst í
borgarstjórn árið 1982. Mikill
lóðaskortur var í borginni eftir
valdatíma vinstri manna og var
því brýnt að taka
ákvörðun um hvar
framtíðarbyggð
Reykjavíkur ætti að
rísa. Vinstri menn
vildu byggja á
sprungusvæðinu
austur af Rauðavatni
en sjálfstæðismenn
meðfram sjónum eða
í Grafarvogi. Ingi-
björg Sólrún tók þá
skýra afstöðu gegn
því sem hún kallaði
„ónauðsynlega út-
þenslu borgarmarka“
en vildi þess í stað
þétta byggðina innan
hennar. Ingibjörg færði margvís-
leg rök fyrir þessari andstöðu sinni
gegn byggð í Grafarvogi. Meðal
annars dró hún í efa þær spár um
mannfjölda sem meirihluti sjálf-
stæðismanna í borgarstjóm studd-
ist við og sagði að fólksfjölgun í
Reykjavík yrði vart meiri en ca
10.000 fram að aldamótum „eða
miklu minni en áður hefur verið
álitið". Annað kom á daginn. Frá
árinu 1981 hefur Reykvíkingum
Ingibjörg Sólrún var á
móti byggð í Grafar-
vogi, segir Kjartan
Magnússon, ogtalaði í
niðrandi tóni um Breið-
hyltinga og Grafar-
vogsbúa.
íjölgað um liðlega 18.000 og enn
eru séx ár til aldamóta!
Skröltandi konur
Öll rök Ingibjargar Sólrúnar
gegn byggð í Grafarvogi studdust
þó ekki við hennar eigin mann-
fjöldaspár. Hún notaði önnur rök
sem hljómuðu ekki eins málefna-
lega. Á borgarstjórnarfundi haust-
ið 1982 amaðist hún mjög við ósk-
um þeirra borgarbúa sem vildu fá
að reisa einbýlishús í Grafarvogi
og spurði hneyksluð hverjir gætu
hugsað sér að búa í einbýlishúsi.
Síðan sagði hún orðrétt: „Slíkt
umhverfi er vægast sagt mjög ein-
hæft og verður líklega eins og í
Breiðholtinu, að það verður ein
kona skröltandi í hverju húsi, tak-
andi á móti börnum úr skóla, sem
er bæði stuttur og óstabíll."
Lesendum skal látið eftir að
dæma ummæli Ingibjargar
Sólrúnar um kynsystur hennar úr
Breiðholtinu en hvað varðar um-
mæli hennar um stuttan skóladag,
þá hlýtur hún að fagna því átaki
um heilsdagsskóla sem Árni Sigf-
ússon hefur haft forystu um í
borgarstjórn.
Réð illskan uppbyggingu
Grafarvogsins?
Fyrstu íbúamir fluttust i
Grafarvog 17. júní 1984. Meðan
Ingibjörg Sólrún sat í borgarstjóm
minnti hún þó reglulega á fjand-
skap sinn við byggð í Grafarvogi.
Af nógu er að taka. Á borgar-
stjórnarfundi haustið 1984 sagði
hún þetta: „Mér virðist nú yfirleitt
eins ogmottó borgarstjóra í skipu-
lagsmálum sé það, að betra sé illt
en að gera ekki neitt. Sannast það
t.d. í Grafarvoginum."
Sem betur fer var meirihluti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
svo framsýnn að tryggja Reykvík-
ingum nægar byggingarlóðir í
Grafarvogi og íbúum þar öfluga
uppbyggingu. Hefði Ingibjörg Sól-
rún fengið að ráða hefði hins veg-
ar ekkert verið byggt í Grafarvogi
Ingibjörg Sólrún um
Grafarvog og Breiðholt
Kjartan Magnússon
Getur einhver treyst þeim?
Alfreð Þorsteinsson Pétur Jónsson
Sjálfstæðismenn í borgar-
stjórnarframboði hafa farið
undan í flæmingi þegar farið
er fram á að þeir leggi fram
þau skriflegu gögn sem Inga
Jóna Þórðardóttir skilaði af
sér til borgarstjóra sem
vinnu 2,4 milljóna króna ráð-
gjafaþóknunar árið 1992.
Með þessu háttalagi hafa
Reykvíkingar og aðrir lands-
menn fylgst undanfarnar
vikur furðu lostnir, vegna
þess að hvað sem mönnum
kann að finnast um fram-
bjóðandann Ingu Jónu Þórð-
ardóttur verður vart dregið
í efa að hún hafi unnið á
einhvern hátt fyrir því kaupi sem
Markús Örn Antonsson þáverandi
borgarstjóri ákvað fyrir tveimur
áram að greiða henni af skattfé
borgarbúa.
í stað þess að leggja fram
pappírana jiafa sjálfstæðismenn -
nú síðast Árni Sigfússon á borgar-
ráðsfundi - bragðist við með
skömmum og skætingi eins og allt
þetta sé þeirra einkamál og komi
venjulegu fólki í borginni ekki við.
Markús Örn reyndi þó að reka
af sér slyðruorðið í Morgunblaðs-
grein 27. apríl sl. og kom þar ein-
mitt fram að Inga Jóna hefði reglu-
lega lagt fram „minnisblöð og
greinargerðir“ sem hann hefði tek-
ið í sína vörslu. Markús kýs þó enn
að halda ritgögnum Ingu Jónu
leyndum, en birtir úr þeim endur-
sagnir ásamt nokkrum orðum um
afdrif tillagna hennar.
Útboð á hundaeftirliti
Athyglisvert er að samkvæmt
endursögnum fyrrverandi borgar-
stjóra í Morgunblaðinu hefur engin
af tillögum Ingu Jónu falið í sér
einkavæðingu borgarfyrirtækis.
Er þá aðeins undanskilin sala
nokkurs hluta af hlutabréfum
borgarinnar í Jarðborunum hf.
Flestar tillagna Ingu Jónu virðast
hafa ijallað um ýmiss konar sak-
leysisleg útboð, t.d. á öryggis-
gæslu, leiguakstri og ræstingum
að ógleymdum merkilegum um-
ræðum þeirra Ingu Jónu og borg-
arstjórans um tilhögun hundaeftir-
lits sem tillaga var gerð um að
bjóða út.
Það er raunar einkar upplýsandi
að orðið „einkavæðing" aldrei fyrir
í grein Markúsar, sem þó þekur
um þijá fjórðu af Morgunblaðssíðu.
Einkavæðing - tískuorð 1992
Fróðlegt er að bera þessa grein
Markúsar Arnar Antonssonar sam-
an við fréttaviðtöl og fundafrá-
sagnir í Morgunblaðinu árið 1992,
fyrsta heila ár hans sem borgar-
stjóra. Sá samanburður gefur
glögga hugmynd um það hvers
vegna Árni Sigfússon, fyrsti maður
D-listans, vill umfram allt ekki að
umrædd gögn Ingu Jónu Þórðar-
dóttur, fjórða manns á D-lista,
komi nú fram í dagsljósið.
Hinn 16. janúar 1992, einmitt í
þann mund að Inga Jóna var feng-
in til starfa, birtist viðtal við
Markús Örn í Morgunblað-
inu með fyrirsögninni „Stór-
felld einkavæðing á döfinni
hjá Reykjavíkurborg“. Þar
segist Markús Örn m.a. vilja
breyta Rafmagnsveitunni í
hlutafélag og bjóða hluta-
bréf á markaði, hugsanlega
bréf í sameinaðri rafmagns-
veitu og hitaveitu. Hann vill
selja Pípugerð Reykjavíkur
og athuga um einkavæðingu
á malbikunarstöðinni og
strætisvögnunum.
í árslok - eftir að Inga
Jóna hafði skilað gögnum
sínum og tillögum til Mark-
úsar Arnar - samþykkti Sjálfstæð-
isflokkurinn síðan á ráðstefnu að
nú þyrfti „víðtæka verkefnatil-
færslu"; „einkavæðingu borgarfyr-
irtækja í samkeppni við einkafyrir-
tæki“ en einnig væri hægt „að
einkavæða ýmsan þjónusturekstur
borgarinnar sem ekki er í beinni
samkeppni við einkaaðila á mark-
aði“ (Mbl. 2. des. 1992).
1994: flótti
Öllum sem þetta sjá er ljóst að
allt árið 1992 hafa tillögur Ingu
Jónu hafa verið samdar undir þeim
gunnfána einkavæðingarinnar sem
Markús Örn reisti í Morgunblaðinu
í janúar. Að loknum heilu ári af
„reglulegum“ tillöguflutningi Ingu
Jónu samþykktu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins síðan að
einkavæða hvort sem samkeppni
rikir eða ekki.
Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn
hins vegar ákveðið að flýja frá
þessum stefnumiðum. Sá flótti er
hin raunverulega ástæða fyrir því
að ekki er orðið við eðlilegum ósk-
um kjörinna fulltrúa um að birta
„minnisblöð og greinargerðir"
Ingu Jónu frá 1992.
Árni Sigfússon studdi
heilshugar þá stórfelldu
einkavæðingu borgar-
fyrirtækja, segja Jón
Alfred Þorsteinsson
og Pétur Jónsson, sem
Inga Jóna hannaði fyrir
Sj álfstæðisflokkinn.
Ámi „samstiga"
einkavæðingunni
I kosningabaráttunni nú (m.a. á
opnum fundi í Tækniskólanum 22.
apríl) hefur Árni Sigfússon fullyrt
að það sé og hafi verið stefna Sjálf-
stæðisflokksins í borginni að grípa
ekki til einkavæðingar nema sam-
keppni væri fyrir hendi.
Auðvitað stafar leyndin yfír
gögnum Ingu Jónu af því að raun-
verulegt innihald þeirra stangast á
við þessa yfirlýsingu Áma.
í lok viðtalsins um sölu hluta-
bréfa í hita- og rafmagnsveitu lýsti
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri því sérstaklega „að borgar-
fulltrúarnir hefðu verið samstiga í
einkavæðingaráformum“. Fyrir
aðeins tveimur árum studdi Árni
Sigfússon heilshugar hina stór-
felldu einkavæðingu borgarfyrir-
tækja sem Inga Jóna Þórðardóttir
hannaði fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Nú henta þær skoðanir ekki lengur
og þess vegna má ekki birta plögg-
in sem útsvarsgreiðendur í Reykja-
vík borguðu fyrir 2,4 milljónir
króna.
Getur einhver treyst þessu fólki?
Höfundar eru í 6. og 4. sæti R-lista
heldur verið þrengt að grónum
hverfum.
Miðað við andstöðu borgar-
stjóraefnis R-listans gegn Grafar-
vogshverfunum þegar hún sat í
borgarstjórn hljóta borgarbúar að
óska svara við eftirfarandi spurn- .
ingum: Hvað finnst Ingibjörgu nú
um þessa byggð og íbúana sem
þar búa? Hefur hún skipt um skoð-
un eða vill hún hætta uppbyggingu
þar og troða nýbyggingahverfum
inn í gömul og gróin hverfi? Hvern-
ig getur frambjóðandi, sem ítrekað
hefur sýnt hverfum með tugi þús-
unda íbúa fullan fjandskap, hugs-
að sér að verða „borgarstjóri allra
Reykvíkinga?" ^
Höfundur er sagnfræðinemi.
flísar
j - s .7,
llltlKTU. -n *
1 -rl LLLI
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Kunststoffe
Ptestics • PÍástiques
Stangir og plötur.
Suðuþráðuro.fl.
Vandað efni.
Gott verð.
Leitið upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
'«1
BÍLDSHÖFÐA 16
SlMI 672444 • FAX 672580
Nemendasambandsmótið og stúdentafagnaður Verzlunarskóla Islands
verður haldið í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 20. maí og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Aðgöngumiðar fást á
skrifstofu Verzlunarskólans frá miðvikudegi 18. maí og við innganginn. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í
borðhaldinu á skrifstofu VÍ í síðasta lagi á fimmtudagskvöldið (símar 688400 og 17190).