Morgunblaðið - 18.05.1994, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
bg bapa BAÐ-
AÐ/ M/G ÍHEHNt.
tA/ER- He/=UR D/ZU/CKUB)
'MJOLkHhlA /HÍNA ? /
Zátr,
Ljóska
Smáfólk
OKAY, 5AY/ BIRPSEEP
H-V7
■sMl
Jæja þá, segðu „fuglafræ".
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Meðulsemeiga
að fylgja sjuk-
dómsgreiningunni
Frá Jan Habets:
BJÖRN G. Jónsson, skrifaði grein
í Morgunblaðið 20. apríl sl., „Al-
menn siðblinda þjóðarinnar", sem
virðist sjúkdómsgreining þjóðar-
innar. Sjúkdómsgreining er auð-
vitað mikilvæg, en það eru einnig
meðul sem eiga að lækna sjúkdóm-
inn. Kannski mun Björn sjálfur
skrifa aðra grein um meðul. Ég
vil gera það nú frá kaþólsku sjón-
armiði. Þá kemur fyrst samband
hjartans (lifandi trú) við heilaga
Þrenningu, Föður, Son og heilagan
Anda. Því að Guðs sonur varð
maður, dó á krossinum fyrir synd-
ir okkar og er þess vegna „meðal-
gangarinn“ (1. Tm. 2,5), leiðir
Hann okkur í samband við Föður-
inn og heilagan Anda.
Jesús gerði það með útskýringu
um himnaríkið, setningu sakra-
mentanna og með stofnun kirkj-
unnar, sem Hann fól tólf postulun-
um. Þeir áttu sem hirðar að fram-
fylgja í verki Hans. Hann lofaði:
„Ég er með yður alla daga allt til
enda veraldar.“ Hann lofaði einn-
ig: „Hann (Faðirinn) mun gefa
yður annan hjálpara, að hann sé
með yður að eilífu." Páll postuli
kallar kirkjuna „líkama Krists" og
Jesúm „Höfuð hennar“.
Lesum, hvað biblían segir um
kirkjuna. Hvað á kirkjan þá að
gera? Við vitum að framþróun
mannkynsins hefur aukið þekk-
ingu á öllum sviðum. Það má kalla
vinning en þýðir líka aukningu
erfíðleika til að átta sig á því sem
bækur, ræður, blöð, útvarp og
sjónvarp hella daglega yfir okkur.
Starf kirkjunnar er því hjálp á
skynsemi tl að greina á milli. Það
er vilji Jesú, að hún sé í myrkrum
heimsins „ljós og salt“ fyrir með-
limi sína.
En maður er ekki aðeins skyn-
samur, hann hefur einnig vilja.
Kirkjan á líka að styrkja vilja
mannsins. Hún gerir það með
sakramentum sem Jesús stofnaði.
í skíminni gerir hún okkur að
guðsbörnum, í skriftum fyrirgefur
hún sýndir, í fermingu og smurn-
ingu sjúkra og vígslu hjónabands
styrkur hún okkur með Guðs náð,
í prestvígslu gefur hún okkur hirða
en í altarissakramentinu gefur
Jesús sig sjálfan okkur sem lifandi
fæðu sálar okkar (Jh. 6,53). Heilög
Messa með biblíulestrum og verð-
uglega altarisgöngu minnir okkur
á orð Jesú: „Ef þér etið ekki hold
Mannssonarins og drekkið ekki
blóð hans, hafíð þér ekki lífið í
yður“ (Jh. 6,53).
Kaþólska kirkjan trúir því og
þess vegna er títt samband við
hinn lifandi Drottinn í Messu fyrir
hana mikilvægasta trúarmeðalið.
Því að kaþólskar kirkjur hafa Ta-
bernakel (Guðslíkamahús) til að
framlengja vist Jesú, líka eftir
Messu, er fyrir okkur mögulegt
að koma sérhvert augnablik dags-
ins í nærveru hans. Og margir
gera það. Það er fyrir kaþólska
styrkur og hamingja sem aðrir
geta kannski ekki skilið.
Að lokum er María mey, móðir
Jesú og þess vegna móðir Guðs
fyrir kaþólska menn hæft meðal,
sem Guð býður okkur til að styrkja
okkar trúarlíf. Það er ekki undra-
vert. Er hún ekki þessi nýja Eva
í Mós. 3,15: „Fjandskap vil ég
setja milli þín (djöfuls) og konunn-
ar“ og líka konan í Opb. 12,1:
„Kona, klædd sólinni og tunglið
var undir fótum hennar og á höfði
hennar var kóróna af 12 stjörn-
um“. Þegar hún var valin móðir
Guðs, kallaði María sig „ambátt
Drottins" og stóð hjá krossi sonar
síns með „sverði, níst í sálu sinni“
skv. orði Símeons, spámanns. Við
undrumst þá ekki að Guð notar
hana sem móður okkar í mörgum
birtingum, t.d. í París (1830), í
Lourdes (1858) í Fatíma (1917)
til að kalla menn til afturhvarf frá
siðlausu og syndugu lífí sínu. Þjón-
usta hennar er ekkert annað en
að segja okkur það, sem hún sagði
við þjóna á brúðkaupi: „Gjörið
það, sem hann (Jesús) kann að
segja yður“. Notum við meðul sem
kaþólska kirkja býður okkur, þá
mun trúarlíf þjóðarinnar heilbrigt
vera. Það gefí Guð.
SR. JAN HABETS,
Austurgötu 7, Stykkishólmi.
------» ♦ »
Yfirlýsing
VEGNA frétta í fjölmiðlum í gær
er það tekið fram, sem hér fer á
eftir:
Undanfarna daga hafa nokkir
starfsmenn Ríkisútvarpsins látið í
ljós stuðning við frambjóðendur í
komandi sveitarstjómarkosning-
um. Enginn þessara starfsmanna
tekur þátt í umfjöllun Ríkisút-
varpsins um kosningamar.
I 15. grein útvarpslaga segir:
„Ríkisútvarpið skal halda í heiðri
lýðræðislegar gmndvallarreglur
og mannréttindi og frelsi til orðs
og skoðana. Það skal gæta fyllstu
óhlutdrægni í frásögn, túlkun og
dagskrárgerð." Þessum ákvæðum
hlítir Ríkisútvarpið jafnan af
ýtmstu kostgæfni. Svo er enn í
ofangreindu dæmi.
Reykjavík, 17. maí 1994,
Heimir Steinsson,
útvarpsstjóri.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.