Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 41 BRÉF TIL BLAÐSINS ENGUM ætti að leiðast í sumarbúðum. Þar gefst m.a. einnig tæki- færi til að eignast nýja kunningja. * „ Ykt“gaman í sumarbúðum Sjálfstæðis- flokkurinn hefur unnið gott verk Frá Karli Ormssyni: ÞAÐ ER eins og Ingibjörg Sólrún sé ein í framboði á R-listanúm. Þegar maður spyr fólk sem ætlar að styðja R-liðið (en það er til) segir það Ingibjörg og svo ekki meir. Þar er Höllustaðafrúin, sem hefur verið lengi í borgarstjórn, Sigrún Magnúsdóttir framsókn, Guðrún Ágústsdóttir, Alþýðu- bandalagi, Guðrún Ögmundsdóttir, Kvennalista, Guðrún Jónsdóttir, Nýjum vettvangi, Alfreð Þorsteins- son framsókn. Þetta fólk hefur allt fengið tæki- færi til að breyta. Nei, það hefur eitt markmið, að fella þann meiri- hluta sem hefur gert þessa borg okkar að einni hreinlegustu og glæsilegustu höfuðborg í heimi. Fólk sem er í vafa ætti að kynna sér betur hvað gert hefur verið. Á fáum árum hafa verið byggðar I 1.400 íbúðir fyrir aldraða, það seg- ir sína sögu, þar sem aldraðir eru flestir í Reykjavík. Og þrátt fyrir allt tal um barnaheimiliseklu eru þau orðin yfir sjötíu að tölu, með þeim er félagasamtök reka. Síðan Ingibjörg lét plata sig út í framboð hefur hún áorkað því einu að kljúfa Kvennalistann. í skoðanakönnun hefur fylgi hans hrunið um nær helming. Það vekur furðu sú kok- hreysti misvitra flokksbrodda að halda að nú á tímum sé hægt að stjórna fólki eins og gert var dög- um Jónasar frá Hriflu. Það getur vel verið að Valdimar Kr. Jónsson sé þeirra skoðunar, en þá þekkir hann kjósendur illa. Ekkert gæti komið Sjálfstæðisflokknum betur í kosningum en nýtt hræðslu- bandalagsmótframboð. KARL ORMSSON, Huldulandi 5, Reykjavík. Frá Sigurði Arnarsyni: LANGAR þig í sumarbúðir? Eflaust hljóða svörin við þessari spurningu á marga vegu en langflestir myndu svara: „Já, auðvitað." Eins og und- anfarin sumur starfrækir Æsku- lýðssamband kirkjunnar í Reykja- víkurprófastsdæmum (ÆSKR) sumarbúðir fýrir börn á aldrinum 6-12 ára í Heiðarskóla í Borgarfirði í júní og júlí. Markmið þessara sumarbúða er að bjóða börnum upp á áhugavert umhverfi, góða aðhlynningu og síð- ast en ekki síst uppfræðslu í krist- inni trú og siðum. Margt spennandi er í boði. Á staðnum eru leiktæki, fótboltavöllur, íþróttahús, útisund- laug og smíðavöllur. Fótbolti, körfubolti, hlaup, borðtennis og aðrar íþróttir eru stundaðar af kappi. í hverjum flokki er búið til stutt myndband sem allir leika í. Ekki má gleyma kvöldvökunum en þar ríkir oftast „bijálað stuð“. Allir skiptast á að sjá um þær og eru með og taka virkan þátt. Daglega er fræðslustund þar sem sköpunar- gleði þátttakenda er virkjuð á fjöl- breyttan hátt og einnig er sameigin- leg bænastund í byijun og lok hvers dags. Eftir þessa upptalningu er ljóst að engum ætti að leiðast í sumarbúðum. Þær eru staður þar sem gefst meðal annars tækifæri til þess að vera í afslöppuðu um- hverfi, eignast nýja vini og kunn- ingja, dveljast úti í náttúrunni og kynnast mörgu skrítnu og skemmti- legu. SIGURÐUR ARNARSON, guðfræðinemi. Friðun eða ekki friðun Meingallað villidýrafrumvarp Frá Ásmundi U. Guðmundssyni: ÞAÐ ER engin furða þó skotveiði- menn mótmæli framkomnu frum- varpi til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, öðrum en hvölum, sem birtist í Morgunblaðinu 1. maí sl. á síðu 6. Þar var líka pistill, er bar yfirskriftina: „Deilt um hvort friðun skuli vera meginregla", undirtitill: „Skiptar skoðanir um stjórnarfrum- varp um dýravernd", sem Tómas Ingi Olrich er höfundur að, líka klausa frá Fuglaverndunarfélagi Islands, sem bar yfirskriftina: „Hvetja til samþykktar". Við lestur á umræddu frumvarpi kemur skýrt fram sú árátta að stjórna öllu með geðþóttatilskipun- um og valdboði með ónauðsynlegum gjaldtökum í formi veiðikorta, laust við þá skynsamlegu veiðinýtingu sem veiðimenn viðhafa er þeir ganga til veiða sér til ánægju. Það er vandséð hvort hættulegra er hinni náttúrulegu lífkeðju, hinir tví- fættu ofvitar er skipa villidýra- nefndina með umhverfisráðherra í broddi fylkingar, eða þau ferfættu villidýr sem land okkar byggja og það fiðurfé sem flögrar um hátt til fjalla eða með sjó. Skynsamlegast væri að umrætt skjal, sem er upp á 19 síður, hafni nú þegar í pappírstætaranum, en veiðimenn sjálfir semji nýtt frum- varp handa umhverfisráðherra, sem byggt verði á þeirri þekkingu sem veiðimenn hafa á veiðiskap og sjálf- virkni í friðun á ferfætlingum og fiðurfé. Það eru nefnilega óskráð lög veiðimanna að ganga aldrei of fast að þeim stofni er veitt er úr hveiju sinni, nema þegar refa- og minkaveiðar eiga í hlut, í hálfgerðri óþökk veiðistjóra, sem er þekktur friðunarsinni á vargfénaðinn. Gefum þeim steinrunnu nátttröll- um frí sem villidýranefndina skipa, sem aldrei hafa séð byssu, hafa ekki hugmynd um hvernig hún á að snúa og vita ekkert um hvað þeir eru að fjalla, enda er allt skjai- ið eitt allsheijar rugl. ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON, Súðurgötu 124, Akranesi. Kynningartilboð til Benidorm 1. júní - Aðeins kr. 39.900 í 3 vikur - Glæsilegt kynningartilboð á nýjan gististað Heimsferða á Benidorm í sumar. í tilefni þess að við bjóðum nú í fyrsta sinn þennan gististað, bjóða hóteleigendur okkur sértilboð fyrir farþega okkar í fyrstu ferðina, þann 1. júní í 3 vikur. Aðeins 8 íbúðir eru í boði. Bókaðu því strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust. Verð kr. 39.900 Verð pr. mann m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Verð kr. 49.900 Verð pr. mann m.v. 2 í íbúð. Flugvallaskattar: Kr. 3.660 fyrir fullorðna, kr. 2.405 fyrir börn Austurstræti 17 Sími 624600 REYKJAVIKUR LISTINN Ertu að fara úr bænum? Reykjavíkurlistinn hvetur alla stubningsmenn sína sem verba ab heiman á kjördag til ab kjósa ábur en þeir fara. Utankjörfundarkosning fer fram í Ármúlaskólanum alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 (lokab hvítasunnudag). Skrifstofa Reykjavíkurlistans ab Laugavegi 31 veitir allar naubsynlegar upplýsingar varbandi utankjörfundarkosninguna og kjörskrá. m Komib vib hjá okkur eba hafib samband í síma 15200 og 15241. (Bréfsími 15246). Laugavegi 31 - Sími 15200- Bréfasími 16881 Sjábu hlutina í víhara samhengi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.