Morgunblaðið - 18.05.1994, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjasta mynd Charlie
Sheen (Hot Shots) og
Kristy Swanson.
í gær var hann saklaus
maður. I dag er hann
bankaræningi, bílaþjófur
og mannræningi á rosa-
legum flótta...
Ein besta grín- og spennu-
mynd ársins. Meiriháttar
áhættuatriði.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
Spennandi kvikmyndagetraun á
Stjörnubíólínunni í síma 991065.
í verðlaun eru boðsmiðar á
myndir Stjörnubíós.
Verð kr. 39,90 mínútan.
FÍLADELFÍA
★ * * Mbl.
★ * ★ Rúv.
★ ★ ★ DV.
★ * * Tíminn
★ * ★ ★ Eintak
Sýnd kl. 4.50,
9 og 11.20.
Miðav. 550 kr.
MORÐGÁTA Á MANHATTAN
Nýjasta mynd Woody Allen. Sýnd kl. 7.
DREGGJAR DAGSINS
★ ★ * * G.B. D.V.
★ * * * Ai.MBL.
* * * * Eintak
* * * ★ Pressan
Sýnd í A-sal kl. 6.45.
Stórmynd frá Bertolucci
leikstjóra Síðasta keis-
arans. Síðustu sýningar
Sýnd kl. 5.15
S.V. MBL
STEPHEN DORFF SHERYL LEE \ . v !
„Einkar athyglisverð mynd um upphaf Bítlanna og óþekkta bítilinn, Stu Sutcliffe, ástir hans
og vináttu. Slær aldrei feilnótu." S.V. Mbl. Aðgöngumiðinn gildir sem 300 kr. afsláttur af
geislaplötunni Backbeat í verslunum Skífunnar.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára.
besti leikstjörinn
DAVID THEWLIS
bestí aðalleikarinn
Óvenjuleg, litrík og margbrotin saga úr Bretiandi
samtimans. Frábær leikur en skemmtilegastur er
David Thewlis í aðalhlutverkinu. Það neistar af
honum." A.l. MBL.
Sýnd kl. 5.15 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
/7771
HÁSKÖLABIÖ
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
í NAFNI FÖÐURINS
★ ★★★ ★★★★
HH PRESSAN A.l. MBL
★★★★ *★★★
ö/ú- Tíl^tftól ij'l.É EINTAK
Sýnd kl. 5.1s og 9.10.
Bönnuð innan 14 ára.
Han
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Kóngafólk
LEONARDO DiCaprio og Johnny Depp í hlutverkum sínum í
myndinni Hvað pirrar Gilbert Grape?
Hvað pirrar Gilbert
Grape? í Sambíóunum
SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga
kvikmyndina HVað pirrar Gilbert
Grape? eða „What’s eating Gilbert
Grape“. Með aðalhlutverk fara
Johnny Depp, Juliette Lewis og
Leonardo DiCaprio.
Myndin fjallar um skrítinn ná-
unga, Gilbert Grape, sem býr með
300 kílóa móður sinni, þroskaheft-
um bróður sínum og tveimur systr-
um í stórfurðulegum bæ. Þar býr
líka kolruglaður vinur hans, Tuck-
^ er, sem heldur að opnun nýs skyndi-
bitastaðar sé lausn á öllum hans
vandamálum. Ofan á allt þetta held-
ur Gilbert svo við eiginkonu yfir-
manns síns, kaupmannsins á horn-
inu. Dag einn er þessum furðulega
heimi Gilberts umturnað þegar dul-
arfull, ókunnug táningsstelpa,
Becky, fer að sjást í bæ þar sem
allir þekkja alla. Koma hennar í
bæinn hrindir af stað óvæntri at-
burðarás sem gjörbreytir daglegu
lífi Gilberts.
Leikstjóri myndarinnar er hinn
sænski Lasse Hallstrom sem hlaut
heimsfrægð fyrir mynd sína „Mitt
liv som hund“. Þess má einnig geta
að hinn ungi Leonardo DiCaprio var
útnefndur til óskarsverðlauna fyrir
leik sinni í þessari mynd.
Benedikta prinsessa fimmtug
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MIÐSYSTIRIN í dönsku kon-
ungsfjölskyldunni, Benedikta
prinsessa og drottningarsystir,
átti fimmtugsafmæli 29. apríl.
Benedikta er gift Richard prins
af Berleburg í Þýskalandi, þar
sem fjölskyldan hefur búið.
Börnin þijú eru eiginlega flutt
að heiman. „En maðurinn minn
býr enn heima,“ sagði hún bros-
andi, þegar hún rakti aðstæður
sínar nýlega fyrir blaðamönn-
um. Það er ekki djúpt á skop-
skyninu hjá prinsessunni. Af-
mælið hefur útheimt hátíðahöld
bæði heima fyrir og í Dan-
mörku. Endirinn var veisla Mar-
grétar Þórhildar drottningar
fyrir systur sína og um 140 vini
og vandamenn um síðustu helgi.
Afmælishaldið bar merki um
að prinsessan komi víða við og
því voru ýmis félög og samtök
sem þurftu að fá að heiðra hana.
Prinsessan er áköf hestakona og
hefur tekið þátt í ýmiss konar
starfsemi reiðfélaga og verið
verndari bæði danskra og er-
lendra reiðfélaga. Ein af afmælis-
gjöfum hennar var því eðlilega
góður reiðhestur. Frá konungs-
fjölskyldunni fékk hún málverk
af sjálfri sér, sem rússneskur
málari málaði heima hjá henni,
Benedikta prinsessa ásamt fjölskyldu sinni.
en málarinn hefur málað marga
úr drottningarfjölskyldunni.
Boðsgestir voru annars vegar
vandamenn eins og sænska kon-
ungsfjölskyldan, en einnig vinir,
bæði aðalsfólk og áhrifamenn í
viðskiptalífinu, eins og Christian
Kjær og eiginkona hans Janni
Spies Kjær. Biaðamenn tóku eft-
ir að borðdama Friðriks krónprins
var undurfögur dönsk stúlka,
sem býr í Bandaríkjunum, en þar
dvaldi prinsinn nýlega við nám.
í tilefni afmælisins kom nýlega
út bók um Benediktu og er höf-
undurinn norsk blaðakona, Randi
Buchwald.