Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 52
 imdir einu þaki SinvArWTAI MENNAR MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK §K SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKtíREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/RAX Trilluþvottur ÞEGAR birtan leikur við lands- ^—Bienn jafn lengi í senn og um þessar mundir er auðvelt að gleyma sér við útiverkin. Augna- blikið verður amstrinu yfirsterk- ara og engum vandkvæðum bundið að gleðjast yfir hvunn- dagsverkum á borð við trillu- þvott í Hafnarfjarðarhöfn. Rússum svarað Vilji til Bættar horfur í efnahags- og atvinnulífi landsmanna Tilefni til einhverra kjarabóta 1. júní Aðilar vinnumarkaðarins og forsætisráðherra funduðu um málið í gær VIÐSKIPTAKJARABATI sá sem náðst hefur að undanförnu hér á landi er samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins talinn gefa tilefni til þess að einhverjar almennar kjarabætur verði 1. júní nk. Davíð Oddsson forsætisráðherra átti í gær fund með aðilum vinnumarkaðarins þar sem skipst var á skoðunum og farið yfír stöðu mála. Forsætisráðherra vildi lítið tjá sig efnis- lega um fundinn þegar Morgunblaðið náði tali af honum í gærkveldi þar sem hann var stadd- ur á fundi í Siglufirði. Hann sagði þó að niður- stöðu í þessum efnum væri að vænta á næstu dögum. í gildandi kjarasámningum er ákvæði um að fyrir 20. maí skuli staðan hafa verið yfírfarin og það metið hvemig til hafí tekist. „Þessi fund- ur var haldinn að beiðni aðila vinnumarkaðar- ins, til þess að fara sameiginlega yfír stöðuna, því eins og þeir orðuðu það, þá hafði ríkisvald- ið, og ég sérstaklega, mikil afskipti af samnings- gerðinni á sínum tíma,“ sagði forsætisráðherra. Hann kvað ekki efni til að segja annað en að samstaða væri um það á milli hans og launa- nefndarinnar að málið yrði unnið áfram á næstu tveimur til þremur dögum. Vonum framar Davíð sagði að það hefði verið mat allra á fundinum í gær að það sem stefnt hefði verið að við gerð kjarasamninga hefði á flestum svið- um náð betur fram að ganga en menn hefðu þorað að vona. „Verðbólga er orðin minni en menn áttu von á, vextir hafa lækkað meir en menn áttu von á, matarskatturinn hefur skilað sér eins og menn vonuðu og svo framvegis. Þannig má segja að almennt hafí verið ánægja með þann árangur sem náðst hefur, þótt að því hafi verið fundið að framkvæmdafé ríkisins hafi ekki alveg skilað sér ennþá, en það stendur til bóta,“ sagði forsætisráðherra. Hann sagðist engu vilja spá um hver niður- staða þessara samráðsfunda yrði, enda væri hún í sjálfu sér á verksviði samningsaðilanna. „Á ríkisstjórnarfundi í dag var líka kynnt að atvinnuleysi fer minnkandi, sem er mjög mikil- vægt,“ sagði Davíð „Á milli mars og apríl minnk- aði það verulega og enn á milli apríl og maí og fer þá væntanlega niður fyrir 4,7%. Það sem merkilegra er, samkvæmt þeim upplýsingum sem lagðar voru fram, er að margt bendir til þess að vinnuveitendur muni ráða fleira sumar- fólk til sín en þeir höfðu áður búist við, þannig að léttar verði um vinnu skólafólks en ella.“ Þórarinn V. Þórarinsson um sam- skiptin við rússneska sjómenn Tilefnislaus fjandskapur „SENNILEGA hafa tollyfirvöld í Reykjavík og á Sauðárkróki brotið lög með því að gera upptækar eignir rússneskra sjómanna í formi bílhræja sem þeir hafa verið að kaupa, þó að íslenskir seljendur hafí gerst sekir um veðsvik. Þetta er eitt dæmi um hvemig íslensk embættismannastétt hefur misbeitt valdi sínu herfílega," segir Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, en hann átti sæti í nefnd sem ríkisstjómin skipaði með aðild fulltrúa atvinnulífíns um viðskipti íslands og Rússlands. Hefur nefndin skilað áliti sínu og bendir þar á ýmis atriði sem hún telur að torveldi viðskipti við rússnesk fískiskip. samnmga DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra svaraði Tsjernomyrdín, forsætisráðherra Rússlands, bréflega í gær, þar sem hann ítrekaði rétt íslendinga til út- hafsveiða, ásamt því að ítreka vilja íslenskra stjómvalda til góðra samskipta við Rússland, „eins og við höfum haft að fornu og nýju við það land, í hvaða formi sem það hefur verið,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. Davíð sagði að efnislega hefði ■' hann einnig, í bréfinu til forsæt- isráðherra Rússlands, lýst þeim vilja íslenskra stjómvalda að kannaður yrði grundvöllur til samninga. „Án samninga getum við ekki bannað okkar útgerðar- mönnum eða sjómönnum að stunda þarna veiðar, þar sem um fijálst úthafsveiðisvæði er að ræða. Frá þessari afstöðu íslenskra stjórnvalda greindi ég einnig í bréfí mínu,“ sagði Dav- íð Oddsson, forsætisráðherra. VAXTAÁLAG banka hérlendis af gjaldeyristryggðum afurðalánum til fiskvinnslufyrirtækja hefur á örfáum árum hækkað úr um 1,5% í 3,0-3,5%, sem leiðir til tugmilljóna- . -^fróna aukningar í útgjöldum fyrir- tækja vegna afurðalána, að sögn Friðriks Pálssonar, forstjóra Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. Til að fjármagna lánin taka bankarnir lán erlendis á einhverju ákveðnu gengi og leggja þeir þjónustugjöld sín eða álag ofan á þau og lána síð- an áfram til fyrirtækja. » Aðildarfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna fólu SH að ræða við viðskiptabankana í fyrra um þetta vaxtaálag og annap kostnað Þórarinn gagnrýndi einnig fram- komu Landhelgisgæslunnar við rússnesku togarana og sagði að fulltrúar Gæslunnar hefðu greint við afurðalánakerfíð. Að sögn Frið- riks Pálssonar var niðurstaða þeirra viðræðna sú að bankarnir kváðust ekki treysta sér til að gera breyting- ar á afurðalánakerfínu að sinni, en féllust á að veita aðildarfyrirtækjum SH bestu hugsanlegu kjör. „Við vorum í sjálfu sér ekki ósátt- ir við þessa niðurstöðu, en samt sem áður er um mikinn vaxtamun að ræða fyrir aðildarfyrirtæki okkar. í sumum tilvikum hafa vextir erlendis verið komnir niður í 4-6% og við þá vexti bæta bankamir allt upp í 3,5% álagi, þannig að þó að prósentustigið hækki aðeins um 1,5-2% skiptir hækkun álagsins tugum prósenta hlutfallslega séð,“ sagði Friðrik. frá því, að þeir héldu uppi reglu- bundnu eftirliti með þessum skipum á flugvélum til að kanna hvort sjó- mennirnir hentu fyrir borð bflflök- um, sem tollyfirvöld hefðu ekki náð að koma í veg fyrir að yrðu flutt úr landi. Þórarinn sagði að þó eng- in formleg viðbrögð hefðu borist frá rússneskum yfirvöldum vegna þessa hefðu aðilar sem önnuðust afgreiðslu við þessi skip orðið varir við að tilefnislaus fjandskapur af þessum toga væri til þess fallinn að áhafnir rússnesku togaranna myndu beina viðskiptum sínum Clllna^ Komið verði í veg fyrir misrétti Þórarinn sagði að þama væri um fautaskap að ræða sem þyrfti að stöðva. Viðskiptaráðuneytið hefði beint þeim tilmælum til dómsmála- ráðherra að komið yrði í veg fyrir að erlendir sjómenn væm misrétti beittir af jslenskum löggæsluyfir- völdum. „Ég geri líka ráð fyrir að Landhelgisgæslan hafi nóg annað við sinn tíma og fjármuni að gera en að halda uppi eftirlitsflugi til þess að tryggja að gamlar íslenskar Lödur sitji örugglega fastbundnar á lestarhlerum rússneskra togara," sagði hann. Hækkað vaxtaálag á afurðalán Tugmilljóna kr. útgjaldaaukning Blásið í kristalsglas SÍÐASTI dagur opinberrar þriggja daga heimsóknar Vig- dísar Finnbogadóttur, forseta íslands, til Tékklands er í dag. Heldur forsetinn áleiðis í tveggja daga opinbera heim- sókn til Slóvakíu um hálftíu að staðartíma og er búist við að Michal Kovác, forseti landsins, taki á móti forseta íslands, í Bratislava um há- degisbil. í gærdag heimsótti Vigdís Finnbogadóttir meðal annars Moser-verksmiðjuna í Karlovy Vary og fékk að spreyta sig á að blása krist- allsglas með aðstoð Josefs nokkurs Adameks. ■ Sýning á verkum Errós/2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.