Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ * 2 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 FRÉTTIR Borgarspítali tekur í notkun beinþéttnimæli Mikilvægt tæki til for- Hlýrra fram- undan LANDSMENN mega búast við hlýnandi veðri þegar líður á vikuna. Veðurstofan gerir ráð fyrir að hlý sunnanátt verði ríkjandi á landinu eftir um það bil 2-3 daga og að hiti geti farið allt upp í 20 gráður á Celsíus á Norður- og Austur- landi. Einar Sveinbjömsson veður- fræðingur á veðurspádeild staðfestir að kalt loftslag hafí einkennt júnímánuð. Aðfara- nótt laugardags hafí hitastig t.a.m. farið niður fyrir frost- mark á Hveravöllum og í Bás- um og víða á landinu hafí hiti farið allt niður í 2 gráður. Hann bendir einnig á að sömu nótt í Reykjavík hafi hiti við jörð far- ið niður að frostmarki en tekur þó fram að það gerist í hverjum júnímánuði. Einar telur að nú fari veður hlýnandi á öllu land- inu um miðja næstu viku í kjöl- far hlýrrar sunnanáttar. Erill hjá lögreg'lu NOKKUÐ erilsamt var hjá lög- reglunni í Reykjavík síðustu nótt. Óvenju margir ökumenn voru teknir ölvaðir við stýri í gærkvöldi og nótt ef miðað er við síðustu daga og vikur. Alls voru níu ökumenn teknir í mið- ur góðu ástandi til aksturs. Þá reyndu ökumaður og far- þegi bifreiðar að stinga lög- reglu af þegar hún ætlaði að veita þeim tiltal. Ökumaður hafði ekki sinnt stöðvunar- skyldu og ók jafnframt óvar- lega. Tvímenningamir yfirgáfu bíl sinn og reyndu að hlaupa á brott en vom eltir uppi. vama og rannsókna BORGARSPÍTAUNN tók í síðustu viku í notkun nýtt tæki, beinþéttni- mælitæki, en það mælir þéttleika og kalkmagn beina. Að sögn Gunn- ars Sigurðssonar læknis og yfír- manns lyflækningadeildar á Borgarspítalanum mun tækið nýt- ast vel til þess að fínna þá einstakl- inga sem sérstaklega er hætt við brotum vegna beinþynningar og gefa þeim næringarráðgjöf eða mæla með lyíjameðferð. Faraldur 21. aldarinnar Það kom fram á blaðamanna- fundi þar sem tækið var kynnt að beinþynning hafí aukist mikið á íslandi einkum hjá konum. Ólafur Ólafsson landlæknir telur beinþynn- ingu verða faraldur 21. aldarinnar og telur brýna nauðsyn að styðja við bakið á rannsóknum á sjúk- dómnum. Beinþynning orsakast m.a. af ónægri kalkinntöku og af-‘ leiðingar hennar felast í því að burðarþol beina minnkar og líkur á beinbrotum aukast. Sem dæmi má nefna að um 35-40% kvenna við 85 ára aldur hafa hlotið a.m.k. eitt brot sem tengja má beinþynningu. Gunnar Sigurðsson hefur lengi stundað rannsóknir á beinþynningu. Hann segir að erfítt hafí reynst að segja fyrir hverjum sé hættást við að hljóta beinbrot vegna þunnra beina. Vissir áhættuþættir s.s. ættarsaga, reykingar, næringar- og Morgunblaðið/Golli Mikill fengur GUNNAR Sigurðsson Iæknir og Soren Bo Christiansen full- trúi Merck, Sharp & Dohme standa hér við nýja tækið sem mælir beinþéttni og kalk- magn í beinum líkamans. hreyfíngarleysi hafí komið í ljós en ekki reynst hafa forspárgildi. Þess, vegna hafi verið þróuð tækni á síð- ustu árum til mælinga á kalkinni- haldi beina en sú aðferð er kölluð beinþéttnimæling Fyrir tveimur árum fékk Borgar- spítalinn tæki að gjöf frá Kvenna- deild til að mæla kalkmagn í fram- handlegg. Að sögn Gunnars reynist nýja tækið mikilvægt til þess að mæla beinþéttni í hryggsúlu og lærlegg. Að mati hans er ástæða til að framkvæma mælingar á bein- þéttni við tíðahvörf kvenna, ef bein- þynning er þekkt í ætt og þegar metinn er árangur meðferðar á sjúklingi. Helstu úrræði til að hindra bein- þynningu eru nokkur að mati Gunn- ars. í fyrsta lagi má taka inn kalk og/eða D-vítamín. í annan stað er hægt að gefa lyf sem hindra niður- brot beina og loks er hreyfing og líkamsáreynsla mikilvæg. Brýnt hagsmunamál kvenna Guðrún Ögmundsdóttir í stjóm Borgarspítalans bar lof á tækja- kaupin og sagði þau hafa verið brýnt hagsmunamál fyrir konur. Hún kvaðst vona að konur og kven- félagasamtök tækju þátt í að efla rannsóknir á þessu sviði m.a. með ijárframlögum. Gunnar Sigurðsson greindi frá því á blaðamannafundi að tækið hefði verið keypt með styrk frá bandaríska lyíjafyrirtækinu Merck, Sharp & Dohme og tækjakaupa- sjóði Háskólans en væntanleg væru fjárframiög frá ýmsum aðilum m.a. frá kvenfélagasamtökum. Tækið kostaði um 10 milljónir króna. Morgunblaðið/PPJ Helgafellssveit Ibúðarhús ónýtt eftir eldsvoða GAMALT íbúðarhús á bænum Hraunhálsi í Helgafellssveit er ónýtt og allir innanstokksmunir eyðilögðust eftir eldsvoða í fyrrakvöld. íbúamir, hjón á sjötugsaldri, voru staddir í útihúsum þegar eldurinn kom upp, en þau og yngra íbúðarhús voru aldrei í hættu vegna elds- voðans, að sögn Þorbergs Bæringssonar slökkviliðsstjóra í Stykkis- hólmi og Helgafellssveit. Þorbergur segir að vegfarandi hafi tilkynnt um eldinn en þegar fullmannað slökkvilið kom á staðinn hafí íbúðarhúsið verið alelda og Ijóst að því yrði ekki bjargað. Erfiðar aðstæður „Aðstæður voru mjög erfiðar. Við þurftum til að mynda að sækja vatn 600 metra leið,“ sagði Þor- bergur í samtali við Morgunblaðið. Þorbergur taldi víst að húsið sjálft hafí verið tryggt en hann hafði ekki vitneskju um hvort inn- anstokksmunir voru tryggðir. Allt lið slökkviliðsins í Stykkis- hólmi og Helgafellssveit var kallað út til að beijast við eldinn en jafn- framt kom fólk víða að úr sveitinni til hjálpar. Sýnhf. Kærttil Hæstaréttar Staðfestingar héraðsdóma Reykjavíkur og Norðurlands vestra á synjun lögbannsbeiðna vegna sölu 20% hlutabréfa í Sýn hf. voru kærðar til Hæstaréttar á föstudag. Sigurður G. Guð- jónsson hrl. og talsmaður nýs meirihluta í íslenska útvarpsfé- laginu reiknar með að gögn vegna kærunnar hafi borist Hæstarétti í lok vikunnar og þá verði hægt að taka hana fyrir. Pólsk smíði - rússnesk hönnun Pólveijar hafa lengi framleitt flugvélar fyrir Rússlandsmark- að og flestar af rússneskri gerð. Ein slík, Mielec M-27-Skytruck, 18 farþega flugvél, hafði við- komu á Reykjavíkurflugvelli á leið sinni vestur um haf. Þetta er pólsk útgáfa af Antonov AN- 28 sem hefur verið endurbætt til markaðssetningar á Vestur- löndum. Meðal breytinga er að kanadískir PT-6 skrúfuhverflar knýja nú vélina í stað pólskra hreyfla. Vélin getur borið 18 farþega eða 2 tonn af fragt og athafnað sig á mjög stuttum flugbrautum, líkt og hin vinsæla kanadíska Twin Otter-flugvél sem hætt er að framleiða. Vöru- hleðsla er um stórar dyr aftan á skrokknum og í lofti er krani sem gengur eftir teinum til að auðvelda hleðsluna. Vélin er nú í fyrsta sinn í söluferðalagi á Vesturlöndum og verður sýnd flugfélögum í Suður-Ameríku þar sem mikill áhugi er fyrir hendi, að sögn talsmanna Mielec. Sjóprófin Ekki of skammur fyrirvari ÁSGEIR Pétur Ásgeirsson, hér- aðsdómari við Héraðsdóm Norður- lands eystra, segir að það sé ekki rétt að norska sendiráðið hafí feng- ið boð um að mæta við sjópróf vegna atburðanna á Svalbarða- svæðinu með einungis 10 mínútna fyrirvara. LÍÚ hefði sent bréf til sendiráðsins degi áður en sjóprófín fóru fram. Ásgeir Pétur sagði að það væri alls ekki hlutverk dómaranna að boða menn fyrir dóm. Það sé hlut- verk málsaðila að ákveða hveijir þeir vilji að mæti fyrir dóm og þeir eigi að sjá um að boða þá. Hann sagði að bréf LÍÚ feli því í sér hina formlegu tilkynningu um að mæta fyrir dóminn. Ásgeir Pét- ur sagði að hann hefði ekki gert annað en að hafa samband við sendiráðið skömmu áður en sjó- prófín hófust til að fá staðfest að sendiráðinu hefði borist bréfið. ►Jóhanna Sigurðardóttir sat síð- asta ríkisstjómarfund sinn á föstu- dag og er hér í viðtaii spurð um viðhorf sín og framtíðaráformum ástjómmálasviðinu. /10 IMorAmenn mismuna engum ►Norski lagaprófessorinn Carl August Fleischer hefur að beiðni utanríkisráðherra Noregs tekið saman greinargerð um réttarstöðu vemdarsvæðisins við Svalbarða og segir afstöðu íslendinga í Sval- barðamálinu vera byggða á mis- skilningi. /12 Land tréklossa og túlipana ►Beatrix Hollandsdrottning, ásamt Claus eiginmanni sínum, er væntanleg í opinbera heimsókn til íslands síðari hluta vikunnar. /14 Geigvænleg ævintýri ►Konráð Jóhann Sigurðsson kvik- myndatökumaður komst í hann krappann í Kúrdistan. /16 HarAur húsbóndi og hörkutól ►Rætt við Áma Gíslason bifreiða- smið og verkstæðisforstjóra./18 MeA grímu fyrir aug- um ►Böm eiga orðið erfiðara með að sjá sjálf sig í sínu umhverfi og verða æ veruleikafirrtari í teikn- ingum sínum, segir Sigríður Bjömsdóttir myndlistarmaður. /21 B ► 1-32 Andapabbi ►Carl Barks, sem skapaði Andabæ, ferðaðist i fyrsta skipti út fyrir landsteina Bandaríkjanna íbyijunjúní. Hann varþá 93 ára að aldri og hóf ferð sína á ís- landi./l Framfarir í krabba- meinslækningum ►Á norrænu þingi um bijósta- krabbamein vom saman komnir margir helstu sérfræðingar Norð- urlandanna ásamt fyrirlesurum víða að og fóm yfir helstu nýjung- ar á svið krabbameinslækninga. /8 Enn eitt tilbrigAiA víA vitleysuna ►Þorkell Diego Þorkelsson stjórn- ar bílalestum og ekur matvælum og hjálpargögnum fyrir Rauða krossinn um styijaldarsvæðin í fyrrum Júgóslavíu./12 BÍLAR______________ ► 1-4 IMý Mazda 323 til landsins í haustsins ►í byijun júní kynnir Mazda nýja línu 323 og líklegt er talið að hann verið boðinn á íslandi næsta haust. /1 Reynsluakstur ►Renault 21 Nevada röskur og rúmgóður ferðabíll. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Velvakandi 32 Leiðari 22 Fólk f fréttum 34 Helgispjall 22 Bíó/dans 35 Reykjavíkurbréf 22 íþróttir 38 Minningar 24 Útvarp/sjónvarp 40 Myndasögur 30 Dagbók/veður 42 Brids 30 Kvikmyndir 4b Stjömuspá 30 Gárur 6b Skák 30 Mannlífsstr. 6b Bréf til blaðsins 30 Dægurtónlist lOb INNLENDAR FI .ÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.