Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Láttu mig um þetta, Jan minn. Þetta er bévað sjóræningjapakk . Engar kröfur gerðar um menntun erlendra leiðsögumanna Félag leiðsögumanna vill að íslensk stjómvöld setji reglugerð um menntun erlendra leið- sögumanna sem vilja starfa hér. Gerhard Grone lögfræðingur hefur kynnt íslenskum embættismönnum hvaða reglur gilda í Evrópu. GJALDKERI Evrópusambands leiðsögumanna, Gerhard Grone, er staddur hér á landi til þess að kynna sér málefni íslenskra leið- sögumanna, sem telja sig ekki sitja við sama borð og leiðsögumenn af meginlandinu, sem ekki þurfi að stunda nám eða þreyta próf til þess að starfa hérlendis í kjölfar gildistöku EES-samningsins. Hef- ur Gerhard Grone, sem er lögfræð- ingur, meðal annars átt fund með embættismönnum í samgöngu- ráðuneyti til þess að kynna þá þróun sem orðið hefur í málefnum leiðsögumanna á meginlandinu. Oft komið áður Grone hefur sótt ísland heim með reglulegu millibili frá 1973 og segir áhyggjuefni að erlendir leiðsögumenn geti.starfað hér án tilskilinna leyfa, geti þeir gefið ranga mynd af Iandi og þjóð og greiði engin gjöld til ríkisins. Seg- ir hann ennfremur að hæfír leið- sögumenn séu besta landkynning- in. „Hver maður segir að minnsta kosti fimm öðrum frá reynslu sinni,“ segir hann. Félag leiðsögu- manna efndi til blaða- mannafundar þar sem vakin var athygli á því að ekki væri lengur hægt að takmarka starfsemi erlendra leiðsögumanna hér- lendis. Vilja þeir að íslensk stjómvöld setji reglugerð sem krefjist sömu eða sambæri- legrar menntunar af erlendum leiðsögu- mönnum og krafíst er af þeim íslensku. Þórhallur Jósepsson deildar- stjóri i samgönguráðuneyti segir að nokkur áhöld hafí verið um það hvemig halda eigi á starfsréttinda- málum leiðsögumanna í kjölfar gildistöku EES-samningsins og hvaða kröfur eigi að gera til út- lendinga sem hingað komi og vilji starfa sem leiðsögu- menn. Hafi nefnd skilað drögum að reglugerð í vor sem verið sé að skoða í ráðuneytinu og niðurstaða hafi ekki fengist ennþá. Segir Þórhallur að eins og máium sé háttað í dag, séu eng- ar kröfur gerðar til erlendra leiðsögu- manna. Von sé á reglugerð um þessi efni en ekkert sé hægt að fullyrða um hve- nær hún verði tilbúin. Hafi fundurinn með Grone verið gagnlegur því nefndin sem starf- aði í vetur hafi skrifað til ýmissa stofnana í Evrópu til að leita eftir upplýsingum með litlum árangri. I augnablikinu sé verið að ræða hvemig reglur sé hægt að setja og verði reynt að draga það ekki á langinn. Gerhard Grone Fellur Islandsmótið í skuggann af HM? Yfirbyggðir vellir lykill að árangri Einn mesti knatt- spyrnuviðburður heims, Heimsmeist- arakeppnin í knattspyrnu, er kominn á fullt skrið. Margir fótboltafíklar eru á þeirri skoðun að sjaldan eða aldrei hafí keppnin farið jafn vel af stað. Sóknarknattspyma sé í hávegum höfð þar sem fjölmargir lítríkir leikmenn fari á kostum. Eggert _ Á. Magnússon formaður KSÍ er einn margra sem er þessarar skoðunar, en hann var stadd- ur í Bandaríkjunum þegar keppnin hófst. Blaðamanni Morgunblaðsins lék forvitni á að vita hvort hann hafi farið á völlinn? „Já, ég sá opnunarleik heimsmeistara Þjóðvetja og Bólivíumanna í Chicago og einnig leik íra og ítala í New York. Sá fyrri var frekar daufur eins og aðrir opnunarleikir, hitinn óbærilegur og áhorfendur ber- skjaldaðir fyrir sólinni. Sá seinni var miklu skemmtilegri, stemmn- ingin rosaleg, enda Italir og írar áberandi á vellinum." - Hvemig er að upplifa stemmninguna í kríngum keppn- ina? „Það er geysilega skemmtilegt. Eftir allt umtalið í fjölmiðlum heima og erlendis um að Banda- ríkjamenn sýni þessari keppni engan áhuga komst ég að hinu gagnstæða i heimsókn minni. Bæði í Chicago og New York sner- ist allt um keppnina, skrúðgöngur haldnar í tilefni af henni og um- ræða um hana mikil.“ - Er raunhæft að ætla að Bandaríkjamenn fái áhuga á íþróttinni til langframa? „Við verðum að athuga það að fótboltinn er nú þegar geysilega vinsæl íþrótt í Bandaríkjunum, einkum meðal ungs fólks. í raun stunda fleiri einstaklingar íþrótt- ina en nokkra aðra íþrótt. Það verður aftur á móti erfítt að byggja upp sterka atvinnumanna- deild í Bandaríkjunum. Aðstand- endur atvinnumannadeildanna í ruðningi, körfuknattleik, hafna- bolta og ísknattleik, sem hags- muna eiga að gæta, eiga það sam- eiginlegt að vilja hindra það að fótboltinn verði vinsæl íþrótt. Þeir óttast að atvinnumannadeild í knattspyrnu skerði ágóða þeirra." - Verður íslandsmótið í knatt- spymu ekki litlaust í samanburði við HM? „Ég veit nú ekki hvort hægt er að segja það. Mér fannst mótið fara nokkuð hægt af ---------- stað, Það vantaði fleiri mörk og skemmtilegri sóknarknattspymu. Mörg lið fóru af stað af varkárni og óttuðust að tapa. Ég trúi því aftur á móti að hin frábæra byrjun á HM hafi jákvæð áhrif á íslandsmótið og ég fullyrði að það er mikil knatt- spymustemmning í landinu um þessar mundir.“ - Það hefur veríð til þess tekið að færri mörk hafa veríð skoruð í 1. deild karla og færri áhorfend- ur séð leikina en áður. Er ástæða til að ætla að íslensk knattspyrna sé í öldudai? „Það held ég ekki. Við verðum að hafa það hugfast að sennilega hefur aldrei verið jafn mikið starf innt af hendi í féíögunum út um allt land. Á móti kemur að meiri kröfur em gerðar jafnt til leik- manna, stjómarmanna og þjálfara um árangur. Það hlýtur að vera þrúgandi stemmning að þurfa að standa undir þessum kröfum. Ég held að ákveðinn titringur og Eggert Á. Magnússon ►EGGERT Á. Magnússon er fæddur í Reykjavík árið 1947. Eftir stúdentspróf frá MR lauk hann námi í skipaverkfræði við Norges Tekniske Hogskole í Þrándheimi árið 1969 og við- skiptafræði frá HÍ árið 1974. Eggert kenndi í nokkur ár við Vélskóla Islands en hefur sinnt starfi framkvæmdástjóra í nokkrum fyrirtækja frá 1977, nú síðast í Kexverksmiðjunni Frón. Formaður Knattspyrnu- deildar Vals var hann á árunum 1985-89 en var kosinn formað- ur Knattspyrnusambands Is- lands árið 1989. Eggerter kvæntur Guðlaugu Nönnu Ólafsdóttur og eiga þau fjögur börn. Vaxtarbrodd- ur í kvenna- knattspyrnu taugaspenna hafí valdið því að knattspyrnan varð ekki eins litrík. Varðandi fjölda áhorfenda er ljóst að alltaf verður erfítt að keppa við HM og EM um áhorfendur.“ - Hver er staða kvennaknatt- spyrnu á íslandi um þessar mund- ir? „Ég hef lýst því yfir áður að mér finnist vaxtarbroddur ís- lenskrar knattspyrnu felast í kvennaknattspyrnu. Þar hafa stórtækar framfarir átt sér stað og mikilvægt er að þrjú kvenna- landslið eru starfrækt. Það gefur stúlkum tækifæri til að keppa að einhverju. Um þessar mundir fer t.a.m. fram Norðurlandamót kvennalandsliða 16 ára og yngri á Norðurlandi með þátttöku Hol- lendinga.“ - Hver telur þú vera brýnustu verkefni KSÍ á næstu mánuðum og misserum? „Okkur er náttúrlega mjög ofarlega í huga að byggja yfir knatt- ________ spymuvelli. Við von- umst til að sjá yfír- byggða velli rísa sem víðast um landið. Það er ekki ósk okkar að reist verði dýr mannvirki eða minnisvarðar. Mikilvægast er að knattspyrnumenn komist í skjól frá veðri og vindum og geti spilað við sómasamleg skilyrði allt árið. Reynsla nágrannaþjóða okkar hef- ur sýnt að árangur næst ekki nema með bættri æfingaaðstöðu. I annan stað leggjum við áherslu á að efnd verði loforð um endurbætur á Laugardalsvelli, en þar þurfum við stúku fyrir u.þ.b. 10 þúsund manns fyrir undan keppni HM ’96. Þær mega ekki bíða lengur. Loks viljum við efla unglingastarf enn frekar en yngri landsliðin hafa þegar fengið mörg verkefni. Reynsla ungu spilaranna í þessum landsleikjum á síðan eft- ir að skila sér þegar leikmennirnir færast upp í Á-landsliðin.“ Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.