Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ 40% gfsláttur af öllum uppfærslum. Með því að nýta möguleikann á uppfærslu Novell NetWare fyrir 31. júlí 1994, velur þú að njóta þess besta sem kerfið býður upp á hverju sinni. Og þú færð þar að auki 40% afslátt af listaverði -1 boði Novell og Tæknivals hf. Tæknival Skeifunni 17-Sími (91) 681665 - Fax (91)680664 Rauði kross íslands heldur námskeið til undirbúnings fyrir HJÁLPARSTÖRF ERLENDIS í Munaðarnesi 16.-21. október 1994 Þátttökuskilyrði eru: —25 ára lágmarksaldur —góð tungumálakunnátta, a.m.k. enska —góð starfsmenntun (ýmis störf koma til greina) —góð alménn þekking og reynsla Námskeiðið fer fram á ensku og verða leiðbeinendur m.a. frá Alþjóða Rauða krossinum í Genf. Fjöldi þátttakenda er áætlaður um 20 og er þátttökugjald kr.15.000 (innifalið er fæði, gisting, kennslugögn og ferðir Rvk. - Munaðames - Rvk.). Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RKÍ, Rauðarárstíg 18, Rvk. Umsóknum ber að skila á skrifstofu RKÍ fyrir f 5. sept. nk. Þar veitir Sigríður Guðmundsdóttir g nánari upplýsingar. § Rauði kross Islands Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722 Blað allra landsmanna! -kjarnimálsins! I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Huga þarf að fornleifum á Þingvöllum ÉG VAR á þjóðhátíðinni á Þingvöllum 17. júní eins og svo margir aðrir og hef svo sem ekkert nema gott um það að segja. Þó má ég til með að minnast á það að þar sem þingpallurinn var, rétt við rústirnar á Lögréttuhúsinu gamla, stóð steinn með allt að því ólæsilegu letri, en þar við hliðina var prik með þverspýtu þar sem þessi áletrun stóð, sem sennilega hefur verið Lög- rétta. Textinn á skiltinu var máður af og algjörlega ólesanlegur og þyrfti að bæta úr því þar sem þetta hefur sögulegt gildi. Einar G. Pétursson Forhertar bankastofnanir GUÐRÚN Einarsdóttir hringdi og hún er sammála Kristjáni Ingvarssyni sem skrifaði í Morgunblaðið 21. júní sl. Henni finnst ástæða til þess að landsmenn verði samtaka einu sinni og sameinist um að hætta að leggja peningana sína inn í bankana, hvort sem það eru laun eða annað. Það er ósvífni af bönkunum að ætla sér að taka greiðslu af fólki fyrir úttekt á sín- um eigin peningum sem bankinn fær ókeypis. Af hveiju taka þeir þá ekki alveg eins greiðslur fyrir þegar við leggjum inn pen- ingana? Er þetta ein leið bank- anna til að ná inn pening- unum aftur t.d. vegna vaxtalækkunnar? Einnig þarf fólk að borga hærra verð fyrir hvert ávísana- hefti en áður þurfti. Guð- rún segist hafa verið með fyrirtæki úti á landi fyrir nokkrum árum og andvirði ávísanaheftana til bankans var notað í skemmtanasjóð starfsmannanna. Fá lífeyrisþegar og öryrkjar ekki lengur aöstoð? SKÚLI Einarsson hringdi í Velvakanda og vill koma þeirri fyrirspum á fram- færi, hvort hætt sé við að veita lífeyrisþegum og ör- yrkjum aðstoð við garð- vinnu eins og tíðkast hefur í tíð sjálfstæðismanna. Sl. ár hafa krakkar komið og hreinsað til í görðunum hjá þessu fólki, en enn sem komið er hefur enginn lát- ið sjá sig. Oánægja með Sigmund SIGRÚN hringdi í Velvak- anda og vildi koma því á framfæri að henni finnst Sigmund vera kominn yfir öll velsæmismörk í sam- bandi við teikningar sínar á Ingibjörgu Sólrúnu upp á síðkastið. Henni hefur alltaf fundist hann hafa haft góðan húmor, en þess- ar teikningar finnast henni jaðra við að vera karl- remba og ekki smekklegar. Anægð þau sem heima sátu á 17. • / p jum VIÐ ætlum að lýsa yfir ánægju okkar og þakklæti til allra sem gerðu okkur sem heima sátum daginn ógleymanlegan 17. júní á þingvöllum. Viljum við þar nefna barnakórinn og þá sem þar áttu hlut að máli, söngfólkið góða, leikarana, hljóðfæraleikarana alla og stjórnandann Garðar Cort- es, en allt þetta fólk stóð sig með slíkri prýði að seint mun gleymast. Er það svo rétt, sem við heyrum utan að okkur, að þetta fólk hafi gleymst þegar boðið var til veislu- halda í boði hins opinbera? Finnst okkur það vera mik- il hneisa. Ellilífeyrisþegar. Tapað/fundið Veski tapaðist SVART seðlaveski tapað- ist fyrir framan Reynimel 90. Skilríki voru í veskinu. Finnandi vinsamlega hringi í síma 870377. Hraða- og vegmælir tapaðist HRAÐA- og vegmælir af gerðinni Cateyemity 2 hvarf úr hjólageymslu við Bogahlíð fyrir nokkrum dögum. Vegmælirinn sýnir u.þ.b. 800 kílómetra. Nokkra kunnáttu þarf til að nota tækið og eru þeir, sem kunna að vita af því, vinsamlega beðnir að láta vita í síma 631208. Sigurð- ur. SKÁK Um.sjón Margeir P é t u r s s o n EFTIR AÐ Englendingurinn Michael Adams (2.665) vann tvær fyrstu skákimar í einvígi sínu við Rússann Sergei Tivjakov (2.630) töldu flestir að úrslitin væru ráðin. En ungi Rússinn lét engan bilbug á sér fínna og í þriðju skákinni kom upp þessi staða eftir fremur kæruleysislega taflmennsku Adams með svörtu. Hann lék síðast 18. - h6 í afar erfiðrí stöðu. Sjá stöðumynd 19. Bxh6! — Dxd4 (Þama er voðinn vís fyrir svörtu drottninguna, en 19. — gxh6, 20. Dxh6+-Ke8, 21. g5 leit heldur ekki vel út) 20. Bxg7+! - Kxg7, 21. Dg5+ - Kf8, 22. Dh6+ - Ke8, 23. fxe6 (Nú fellur svarta drottningin eftir 23. — fxe6, 24. Bg6+. Staðan er því töpuð. Lokin urðu:) 23. - Bf8, 24. exf7+ - Ke7, 25. Dg6 - Hd5, 26. c3 - Df4, 27. Hhel+ - He5, 28. Df5 og svartur gafst upp. Tivjakov vann líka næstu skák og jafnaði metin. Þeirri fimmtu lauk með jafn- tefli, en Adams vann þá sjöttu, en aftur jafnaði Rúss- inn. Þeirri áttundu lauk svo með jafntefli og þurfti því að framlengja. Farsi + SvcL, 'e.£ Acitet- utiLegu Yíkveiji Aþað hefur verið bent í umræð- unni um umferðarhnútinn, sem varð á þjóðhátíðardaginn á Þingvallaleiðinni, að ein megin- ástæðan væri afkastageta vegakerf- isins; Það væri einfaldlega ekki gert fyrir svo mikla umferð á skömmum tíma. Vafalaust er þetta rétt. Það leiðir aftur hugann að því, hvernig ákvarðanir eru teknar um vegafram- kvæmdir og út frá hvaða forsendum. XXX Landsmenn hafa horft upp á það áratugum saman, að vega- framkvæmdir eru ekki í samræmi við umferðarþunga eða hagkvæmni. Vegagerð, brúarsmíði og lagning malbiks hefur alla tíð verið, og er enn, pólitískt bitbein. Þar takast á hagsmunir kjördæmanna og þing- manna þeirra, hið víðfræga kjör- dæmapot. xxx Venjulegt fólk gæti haldið, að ákvarðanir í vegaframkvæmd- um væru teknar af Vegagerð ríkis- ins í framhaldi af fjárveitingum Al- þingis til þess málaflokks. En því skrifar... er ekki að heilsa. Að sjálfsögðu ákveður Alþingi fjárveitingarnar og vegaáætlun er samþykkt þar. En í kjölfarið hefst kjördæmapotið. Þing- mennimir ákveða sjálfir, hvernig peningunum er skipt milli kjördæma, þ.e. hvaða vegaspottar skulu lagðir, hvar skuli malbikað o.s.frv. xxx Fyrst stendur slagurinn milli kjör- dæmanna og þegar honum er lokið og ljóst er, hversu mikið fé hvert kjördæmi hreppir, þá setjast þingmenn hvers þeirra fyrir sig nið- ur og ákveða hvað skuli gert innan þess. I kjördæmapotinu fara lands- byggðarþingmenn ætíð með sigur af hólmi, því þeir eru ekki einungis fleiri en þingmennirnir frá höfuð- borgarsvæðinu heldur virðast þeir einnig hafa næmari tilfinningu fyrir þörfum kjördæma sinna og vænting- um kjósenda. Þingmenn Reykjavíkur og Reykjaness eru áhugalitlir í þess- um slag um peninga, enda líta ýms- ir þeirra ekki á sig sem kjördæmis- þingmenn, t.d. Reykjavíkur, heldur þjóðarinnar allrar. Slíkir hafa lítinn tíma til að sinna svo hversdagslegum hlutum eins og vegagerð. Afleiðingin er spottalagning og brýnar fram- kvæmdir sitja á hakanum á umferð- arþyngstu þjóðvegum landsins en malbiki skellt á sveitavegi, þar sem örfáir bílar fara um. Gott dæmi um þetta er einmitt Þingvallavegurinn, sem mörg ár hefur tekið að mal- bika, enda er hann á mörkum tveggja kjördæma og þingmenn hafa því lítinn áhuga á honum í heild. Enn þann dag í dag hefur ekki ver- ið malbikað að Gullfossi og Geysi eða Skálholti, þrátt fyrir þá óhemju- umferð sem fer um þá vegi. Svo eru menn undrandi á því, að eitthvað fari úrskeiðis og nefndir eru skipað- ar til að finna ástæðuna. XXX Ekki væri úr vegi að skipa enn eina nefndina og nú til að gera úttekt á ákvörðunartöku í vega- gerð. Jafnvel mætti fela henni að gera tillögur um við hvað skuli mið- að, þegar fé er útdeilt til vegafram- kvæmda. Þá liggur ljóst fyrir, hvar ábyrgðin er, næst þegar hneykslin ríða yfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.