Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HESTAR / LANDSMOTIÐ A GADDSTAÐAFLOTUM
Alh það besta
í hestamennsku
V S/ív/
LANDSMÓT hestamanna, mesti viðburður á sviði hestamenns-
kunnar, hefst á þriðjudag og lýkur sunnudaginn 3. júlí. Mótið
er hið tólfta í röðinni en öll eiga mótin sem haldin hafa verið
það sammerkt að bjóða upp á allt það besta hverju sinni í þess-
um efnum. Mótið, sem haldið verður á Gaddstaðaflötum við
Hellu, virðist ekki ætla að verða þar nein undantekning. Allt
bendir til þess að hestakostur mótsins verði sá besti sem sést
hef ur hingað til á einu móti og virðist það sér í lagi eiga við um
kynbótahrossin en ráðunautar hafa látið þau orð falla að aldrei
hafi verið boðið upp á jafnmörg og góð hross á mótum hingað
til. Aðstaðan á Gaddstaðaflötum er að sögn sú besta á landinu.
Mannlíf landsmóta á sér ekki neinn samjöfnuð þar sem saman
koma á annan tug þúsunda, skemmta sér og drekka t sig fegurð
og fimi íslenska hestsins.
Valdimar
k Kristinsson
skrifar
jpkki er við öðru að búast en
™ gæðingakeppni landsmóts
verði að venju æsispennandi og
ekki dregur það úr
að óvenju mörgum
stóðhestum verður
nú teflt fram í gæð-
ingakeppninni auk
þess sem margar hryssur verða þar
á meðal. Hafa menn gert sér betur
grein fyrir mikilvægi þess að stóð-
hestarnir fái góða kynningu svo
þeir tolli í tísku og fái notkun. Ljóst
er að margir góðir stóðhestar muni
ekki ná í efsta sæti í kynbótasýn-
ingu en hafa kannski góðan mögu-
leika á að komast í úrslit gæðinga
og verða þar af leiðandi meira í
sviðsljósinu en ella.
Af þeim stóðhestum sem koma
fram í gæðingakeppninni má fyrst-
an frægan telja Orra frá Þúfu sem
stóð efstur í B-flokk-i hjá Geysi á
dögunum. Hlaut hann 8,89 í ein-
kunn sem er að því er best er vitað
hæsta einkunnin á þeim vettvangi
og er hann talinn mjög sigurstrang-
legur. Ekki langt undan í einkunn
koma Næla frá Bakkakoti og Muni
frá Ketilsstöðum, sá sami og stóð
efstur í A-flokki á síðasta lands-
móti.
Af öðrum stóðhestum sem fram
koma í B-flokki og þykja líklegir
til afreka má nefna Stíganda frá
Hvolsvelli og Loga frá Skarði og
. Fákshestana Odd, Kolskegg og
Svörð svo einhverjir séu nefndir.
Auk þeirra verður fjöldi annarra
B-flokks gæðinga sem koma til með
að beijast um sæti í úrslitakeppn-
inni. Nú eins og áður bíða mótsgest-
ir eftir nýjum stjörnum.
Veldi Gýmis ógnað?
Gera má ráð fyrir að margir
knapanna í A-flokki vilji ryðja hin-
um ósigrandi Gými frá Vindheimum
úr toppsætinu. Ef mið er tekið af
einkunnum úr úrtökum er Gýmir
langefstur og sá eini með einkunn
yfir 9 og því ekki líklegt að hróflað
verði við honum. En ekkert er ör-
uggt undir sólinni og margt getur
gerst á þeim tíma sem liðinn er frá
úrtökum fram að landsmóti. Hvern-
ig hefur þjálfunin tekist á Gými og
keppinautum hans á tímanum frá
úrtöku til landsmóts? Eiga einhveij-
ir yngri hestanna eftir að springa
út á landsmótinu og skjótast upp
fýrir Gými? Svo er það náttúrlega
spumingin um hvemig til tekst hjá
knöpunum þegar á hólminn er kom-
ið og dagsformið hjá parinu.
Við lauslega talningu kemur í
ljós að einir sjö stóðhestar eru
skráðir til leiks í A-flokki en þeir
eru Prúður frá Neðra-Asi, Álmur
frá Sauðárkróki, Rökkvi frá Álfta-
gerði, Léttir frá Flugumýri, Asi frá
Brimnesi, Funi frá Stóra-Hofi og
Geysir frá Dalsmynni, Hávarður frá
Hávarðarkoti, Hrafnfaxi frá Búðar-
dal, Gumi frá Laugarvatni og Emir
frá frá Efri-Brú. Fróðlegt verður
að sjá hvernig kynbótahestunum
reiðir af í keppninni við geldingana.
Lengi getur gott batnað
Svíar á sigurbraut
Martin Dahlin gerði tvö glæsileg
skallamörk í sigri á Rússum í lyrrinótt
Fyrir fjórðungsmótið sem haldið
var ’91 á Gaddstaðaflötum voru
gerðar verulegar^ndurbætur á að-
stöðunni þar. Nú verður enn bætt
við og ekki von á öðru en boðið
verði upp á það besta sem völ er á
hérlendis í þeim efnum.
All nokkrar breytingar verða á
aðstöðu knapa sem munu sýna
hross á mótinu. Suðurhluti svæðis-
ins verður eingöngu fyrir þá, þ.e.a.s.
aðstaða fyrir tjöld og hjólhýsi og
mönnum gefinn kostur á að leigja
sér litlar lóðir, 370 fermetra þar
sem hægt er að hafa hrossin í léttri
rafmagnsgirðingu yfir daginn með-
an á dagskrá stendur eða allan sól-
arhringinn. Er þetta fyrirkomulag
A Gaddstaðaflötum
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SÍÐAST var haldið landsmót á Gaddstaðaflöt 1986 en nú hafa verið gerðar miklar breytingar á svæðinu. Aðstaða fýr-
ir keppendur verður syðst á svæðinu, neðst á myndinni þar sem möguleiki er á að hafa hestana hjá sér í rafmagnsgirð-
ingu. Hópreið landsmótsins verður á sunnudagsmorgun þar sem á fimmtahundruð manns og jafnmargir hestar mun fara
um vöilinn undir fánaborg mikilli. Efri myndin er frá hópreiðinni á landsmóti 1986.
Stórt tjald verður á svæðinu þar sem haldnir verða dansleikir á föstudags
og laugardagskvöld og Geirmundur mun leika fyrir dansi.
til mikilla þæginda fyrir knapana
og gerir það að verkum að lítið mál
er að skipta um hross á stuttum
tíma. Þá verður ekki heimilt að
geyma hestakerrur og flutningabíla
við stóðhestahúsið sem er suðaust-
an við aðalsvæðið heldur verða sér-
stök stæði fyrir þess konar farar-
tæki skammt austan við húsið.
Vel verður gert við erlenda gesti
sem talið er að geti orðið þijú til
fjög^ur þúsund. Töluðu máli verður
útvarpað á staðbundnum útvarps-
rásum á íslensku, ensku og þýsku.
Seld verða lítl handhæg og ódýr
útvarpstæki á mótsstað þannig að
enginn á að þurfa að fara á mis
við það sem er að gerast á mótinu
hverju sinni.
Útlendingarnir koma flestir á
vegum ferðaskrifstofa og gista
ýmist í tjöldum á svæðinu, gisthús-
um í næsta nágrenni og bændagist-
ingu vítt og breytt um Suðurland.
Einnig er eitthvað um að íbúðarhús
á Hellu verði rýmd og leigð. Nær-
veran við þéttbýlið á Hel'.u er ótví-
rætt kostur fyrir svo fiöimennt sam-
komuhald sem landsmótið er. Þar
er að sjálfsögðu öll þjónusta eins
og sundlaug, banki, pósthús, versl-
anir, heilsugæsla, apótek, hjól-
barðaviðgerðir, bílaverkstæði svo
eitthvað sé nefnt.
Hinum erlendu gestum var einnig
gefínn kostur á þátttöku í keppni,
því í tengslum við landsmótið verð-
ur haldið á vegum Hestaíþróttasam-
bands íslands og FEIF (Alþjóða-
samband eigenda íslenskra hesta)
heimsbikarmót í hestaíþróttum. Um
sextíu manns hafa skráð sig til leiks
í heimsbikarmótinu og er um þriðj-
ungur þeirra útlendingar sem munu
keppa á lánshestum. Forkeppnin fer
fram á mánudag og þriðjudag en
úrslit í tölti, fjórgar.gi og fimm-
gangi verða í dagskrá landsmótsins
á laugardag.
Hestaleiga verður starfrækt á
mótsstað meðan á mótinu stendur
þannig að mótsgestir ættu að geta
brugðið sér á hestbak. Eins og á
fjórðungsmótinu ’91 verður farið í
sameiginlegan útreiðartúr frá
Gaddstaðaflöt að stóðhestastöðinni
í Gunnarsholti þar sem stöðin verð-
ur skoðuð og seldur grillaður matur.
Mótið stendur yfir í sex daga,
lýkur síðdegis á sunnudag með úr-
slitum í gæðingakeppni og keppni
unglinga. Þegar þetta er ritað ligg-
ur ekkert fyrir um veðrið meðan á
mótinu stendur og má því segja að
veðrið og mannlífið sé óskrifað blað.
Að vísu má fastlega gera ráð fyrir
að mannlífið verði bæði fjölskrúðugt
og skemmtilegt, svo hefur alltaf
verið, en veðrið er að' sjálfsögðu
óráðið eins og venja er til hér á
landi. Allt virðist þó benda til að
landsmótið ’94 verði stórkostleg
samkoma til 'dýrðar íslenska hestin-
um fyrst og fremst.
Eg get ekki annað en verið stolt-
ur af leikmönnum mínum. Þeir
létu það ekkert á sig fá þó að Rúss-
ar skoruðu úr vítaspyrnu strax í
byijun leiks,“ sagði Tommy Svens-
son, þjálfari Svía, eftir að þeir voru
búnir að vinna frækilegan sigur á
Rússum, 3:1. Þetta var fyrsti sigur
Svía í úrslitakeppni HM síðan í
Þýskalandi 1974, en þá lögðu þeir
Júgóslava að velli, 2:1.
Svíar, sem mæta Brasilíumönn-
um í næsta leik, eru svo gott sem
búnir að tryggja sér sæti í 16-liða
úrslitum. Martin Dahlin var hetja
Svía, en hann skoraði tvö mörk
með skalla — eftir að Thomas Brol-
in hafði jafnað fyrir Svía, 1:1, úr
vítaspyrnu. Sovétmenn léku tíu síð-
Svíþjóð - Rússland.................3:1
Pontiac, Michigan:
Tomas Brolin (34. - vítasp.), Martin Dahlin
2 (60., 82.) — Oleg Salenko (4. - vitasp.).
71.528.
Dómari: Joel Quiniou, Frakklandi.
Gul spjöld: Kennet Andersson (42.), Stefan
Schwarz (52.), Martin Dahlin (58.) — Ser-
gei Gorlukovich (2.), Dmitry Kharin (34.)
Rautt spjald: Sergei Gorlukovich (50)
Svíþjóð: 1-Thomas Ravelli, 2-Roland Nils-
son, 3-Patrik Andersson, 4-Joachim Björk-
Iund (20-Magnus Erlingmark 89.), 5-Roger
, Ljung, 6-Stefan Schwarz, 8-Klas Ingesson,
9-Jonas Them, 19-Kennet Andersson (7-
Henrik Larsson 84.), 10-Martin Dahlin,
11-Tomas Brolin.
Rússland: 16-Dmitry Kharin, 2-Dmitry
Kuznetsov, 3-Sergei Gorlukovich, 5-Yuri
Nikiforov, 18-Viktor Onopko, 21-Dmitry
Khlestov, 8-Dmitry Popov (10-Valery Karp-
in 41.), 19-Alexander Mostovoi, 13-Alex-
ander Borodyuk (4-Dmitry Galyamin 51.),
15-Dmitry Radchenko, 9-Oleg Salenko.
STAÐAN:
Brasilía.................2 2 0 0 5:0 6
Svíþjóð..................2 1 1 0 5:3 4
Kamerún..................2 0 11 2:5 1
Rússland.................2 0 0 2 1:5 0
iLeikir sem eftir eru, 28. júní: Svíþjóð -
Brasilía, Rússland - Kamerún.
ustu 40 mín. leiksins, eftir að Ser-
gei Gorlukovich fékk að sjá rauða
spjaldið — fékk tvisvar að sjá gult.
Pavel Sadyrin, þjálfari Rússa,
gerði fímm breytingar á liði sínu
frá tapleiknum, 0:2, gegn Brasilíu-
mönnum. Hann setti Sergei Juran
út og auk þess gerði hann þijár
breytingar á miðjunni. Miðheijinn
Oleg Salenko, sem var einn af þeim
leikmönnum, sem komu inn, skor-
aði mark Rússa úr vítaspymu eftir
aðeins fjórar mín., eftir að Roger
Ljung hafði fellt Alexander Borody-
uk. Svíar áttu í erfiðleikum í fyrri
háfleik, en gerðu út um leikinn í
seinni hálfleik, þegar Rússar voru
búnir að missa Gorlukovich af
leikvelli.
Rcuter
Hetja Svía, Martin Dahlln gengur
ánægður af velli í leikslok ásamt fé-
laga sínum Jesper Blomqvist (t.v.).
KNATTSPYRNA / HM