Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 17 ► I I V ) ) | W ) ) h P > > > > i > > KonráA Jóhann var horadur og lœrAur þegar hann kom til islands eftir tœpra sex vikna dvöl i Kúrdistan, en kveAst tilbúinn til aA fara á sömu slAAir á nýjaieik. að ráðastinn í götuna,“ segir Kon- ráð. „Sem betur fer voru verðir við báða enda götunnar sem hröktu mannsöfnuðinn á brott áður en tjón hlaust af. Á öðrum tökustað, torgi nokkru, höfðum við 100 manna herlið til að bægja fólki frá. Ég frétti af því síðar að 50 manns hefðu verið drepnir á þessu torgi í óeirðum sem brutust út eftir andlát einhvers stórmennis. Á kvöldin hljómuðu iðulega skothvellir." Hinn helsti tökustaður myndar- innar var þorp um 100 kílómetra norður af Sulaimanija. Þar fylgdu tveir lífverðir Konráði hvert fót- mál. „Þar gengu allir með alvæpni, hluti af þorpsbúum, leikararnir og ýmsir starfsmenn aðrir, mættu á morgnana með vélbyssur um öxl og skammbyssur í buxnastrengn- um. Vélbyssur fengust keyptar á 3.000 krónur og eru nánast skyldu- eign. Þar var hvorki rafmagn, vatn né sími, og fólk veit ekki hvort stríð hefur skollið á að nýju eða ekki, og er því við öllu búið. Allar aðstæður aðrar voru einnig mjög frumstæður og þannig var eina drykkjarvatnið lækjarspræna með skítugu vatni fýrir neðan þorpið, mengað af sýklum og skordýrum. Ég hafði vit á að sjóða allt vatn sem ég drakk. Annað þorp var spöl fyrir ofan og þar var að finna krana sem menn frá Sameinuðu þjóðunum höfðu látið koma fyrir. Eini maturinn sem var að fá samanstóð af hrísgijónum, tómöt- um og agúrkum en einstaka sinn- um var boðið upp á lambakjöt til málamynda, sem var svo illa útilát- ið að hver maður fékk aðeins einn munnbita. Þegar ég hafði lifað á hrísgijónum í hálfan mánuð, bað ég lífvörð minn um að útvega eitt- hvert kjöt. Hann greip næsta hænsni sem vappaði fram hjá og sneri úr hálsliðnum.“ Vaknaði við skothríð Þremur dögum eftir að tökuliðið kom til þorpsins var fyrsta árásin gerð. „Við höfðum þá hengt upp veggspjöld með myndum af Sadd- am Hussein fyrir tökumar og lík- legast farið um einhveija heilaga staði, óafvitandi. Kannski freistaði féð sem var lagt Vesturlandabúum til höfuðs. Menn frá nærliggjandi þorpum höfðu tekið sig saman um að stöðva kvikmyndatökuna fyrir fullt og allt, sennilega að drepa okkur. Þeir læddust að svefnstað okkar í skjóli nætur og vissu greini- lega ekki að við höfðum varð- menn,“ segir Konráð. „Ég vaknaði við skothríð og sá að verðimir vom horfnir. Við héldum kyrru fyrir inn- andyra, því átök voru algeng þarna rétt við landamæri írans, og töldum í fyrstu að þau skýrðu skothvellina eða að einhveijar fyllibyttur væru að þrama út í loftið. Verðirnir komu aftur eftir nokkra stund og sögðu okkur að fara að sofa, en í morg- unsárið var okkur hins vegar sagt af árásinni og að þeir hefðu stökkt hópnum á brott. Nokkram dögum síðar reyndu þeir aftur, þá um hábjartan dag meðan við voram við kvikmyndatöku í miðju þorpinu. Engum skotum var hleypt af í það skiptið, því verðirnir ráku þá burtu með harðri hendi áður en þeim tókst að gera óskunda. Maður reyndi að útiloka hættuna og halda vinnunni áfram til að ljúka henni sem fyrst. Við unnum allt að 17 tíma á sólarhring, og allan tímann svaf ég aldrei meira en sex tíma samfellt." Einu möguleikamir á samskipt- um við umheiminn voru í þorpi Sameinuðu þjóðanna, þar sem m.a. faxtæki var að finna. Þangað fór Konráð einu sinni til að senda sím- bréf og hitti danskan friðargæslu- liða, sem bað hann um að yfirgefa svæðið eins fljótt og hann gæti, dvöl þarna væri of hættuleg. „Ég fullvisaði hann um að mín væri vel gætt, en hann sagði það ekki skipta neinu. Þremur mánuðum fyrr hafði þýsk blaðakona verið á þessum slóðum, gætt af heilum varðflokki, en samt tókst mönnum að myrða hana. Líklegast voram við í stöð- ugri hættu. Aðalleikarinn sprengdur upp Hættan fólst ekki aðeins í um- hverfinu, því menn sem sáu um sérstakar tæknibrellur gerðu alvar- leg mistök sem stefndu okkur í hættu. Þeir áttu að spengja smá blett af landi og huldu sprengjuna með sandi, en ekki nægilega vel, því aðalleikari myndarinnar fékk svo kraftmikla gusu yfir sig að hann var allur götóttur á eftir. Hann var fluttur með hraði til að- hlynningar í sjúkraskýli, en við héldum að hann yrði ekki fær um að ljúka vinnu þá viku sem var eftir af tökum. Hann komst þó aftur á fætur og okkur tókst að ljúka myndinni með því að nota nægan farða og hjálp ögn sérstakr- ar lýsingar. Leikarinn er fyrrver- andi yfirmaður í her Kúrda og var reiðubúinn til að endurtaka atriðið með sprengingunni aftur eftir að hann komst á fætur. Við höfnuðum því góða boði.“ Þeir lentu einnig í vandræðum á leiðinni úr landi, því þeir höfðu notið vemdar PUK og þurftu að fara gegnum yfirráðasvæði PDK. „Þrátt fyrir að hafa sofið í húsi utanríkisráðherra þeirra fyrstu nóttina í landinu, þóttu samskipti okkar við andstæðingana tor- tryggileg," segir Konráð. „Þeir grunuðu okkur annaðhvort um njósnir eða að við ynnum að gerð áróðursmyndar fyrir PUK, og voru ekki hressir með að hleypa okkur í gegn. Eina bréfið sem við höfðum í höndunum var frá ríkisstjóranum í Sulaimanija, PUK-manni, og það var ekki rétta plaggið til að veifa. Við biðum í átján tíma og sérstak- lega litu þeir félaga minn, leikstjór- ann, hornauga, því þeir töldu hann flokksbundinn meðlim í PUK. Ég held raunar að eina ástæðan fyrir því að þeir drápu hann ekki, hafí verið sú að ég var þarna, Vestur- landabúinn." Veikindin ágerðust Þeir komust loks úr landi á þjóð- hátíðardaginn, 17. júní. „Ég hafði þá orðið æ veikari, kannski af of- þreytu en líka vegna matvælanna. Ferðin var erfíð og veikindin ágerð- ust. Ég kom engu niður seinustu dagana. Ekki tók betra við þegar við komum á svæðið á milli íraks og Tyrklands, því þeir vildu ekki hleypa okkur inn í landið. Við gist- um þarna í smáþorpi á einskis manns landi, en næsta morgun voram við færðir á lögreglustöð í skýrslutöku. Þarna voru líka ein- hver átök, því skriðdrekar óku um göturnar og við heyrðum skot- hvelli. Pallbíll með reykvél á pallin- um ók um svæðið og dældi reykjar- mekki yfír svæðið, í þeim tilgangi að hylja húsin og gera skotmönnum erfítt fyrir. Við vissum aldrei hvað var á seyði þarna megin landamær- anna. Landamæraverðirnir vildu augljóslega mútur, en við létum það ekki eftir þeim því við óttuðumst að þá héldu þeir áfram að krefjast peninga. Eftir margra tíma þras hringdu þeir til Ankara og Istanb- ul, og við sögðum þeim að banda- ríska sendiráðið hefði fullvissað okkur um að við mættum fara yfír landamærin og þeir mættu ekki hindra ferð okkar. Það gerði útslag- ið, við fengum að halda áfram.“ Frá landamærunum óku þeir til borgarinnar Diyarbakir í fímm tíma, en þaðan flugu þeir til Ank- ara og biðu í um sex stundir eftir næsta flugi til Istanbul. Þar tók við tveggja daga bið eftir flugferð til Lundúna og niu tíma bið eftir flugi til íslands. Konráð var því eðlilega örmagna þegar hann kom til landsins, og bættu veikindin ekki úr skák. Hann er þó kok- hraustari en við komuna til lands- ins, og farinn að sjá atburðina í mildara ljósi. „Ég þarf að jafna mig á þessari ferð fyrst, en myndi eflaust endurtaka leikinn ef það stæði til boða.“ Alltaf nægur tími fyrir leikinn... ..fjórar McÞrennur, einn McMjólkurhristing, þrjár kók, fjórar McFranskar, þrjár Eplabökur... Hraðlestin Beint-í-Bílinn, Suðurlandsbraut 56. OPIÐ 10:00-23:00 Alþjóðlegur styrktaraðili HM1994USA Laugavegi 97 UTSALAN HEFST MIÐVIKUDAG LOKAÐ MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG Laugavegi 97

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.