Morgunblaðið - 26.06.1994, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
jHarguttÞfafrft
VIKAN 19/6 - 25/6.
► BJÖRK Guðmundsdótt-
ir söngkona hélt vel
heppnaða
tónleika í
Laug-
ardalshöll á
Listahátíð i
Reykjavík.
Yfír fímm
þúsund
manns
komu á tónleikanna til að
hlusta á söngkonuna sem
söng lög sín á íslensku.
Meðal tónleikagesta var
Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands.
► TEXTI hf., Sambíóin,
Saga film hf. og Japis hf.
fyrirhuga að hefja rekstur
á kapalsjónvarsstöð í
haust. Leyfi til reksturins
liggur fyrir og undirbún-
ingur að útsendingum er í
fullurn gangi.
► ÍSLAND leikur í A-riðli
heimsmeistaramótsins í
handknattleik, sem fram
fer hér á landi.í maí á
næsta ári, en dregið var í
riðla við athöfn í Laugar-
dalshöll. Forystumenn ís-
lensk landsliðsins eru mjög
ánægðir með dráttinn.
►MÁNI Fjalarsson læknir
og níu aðrir starfsmenn
friðargæsluliðs Samein-
uðu þjóðanna voru hafðir
í haldi serbneskra her-
manna í bænum Rocatica
í Bosníu í sjö daga. Friðar-
gæsluliðunum var ekki
gert mein, en þeim var
einu sinni ógnað.
Jóhanna segir af sér
ráðherraembætti
JÓHANNA Sigurðardóttir sagði af sér
ráðherraembætti á ríkisstjómarfundi
síðastliðinn þriðjudag vegna ágrein-
ings við Jón Baldvin Hannibalsson
formann Alþýðuflokksins. Jóhanna
sagði eftir fundinn að hún styddi ríkis-
stjórnin til góðra verka. Hún útilokaði
ekki að hún færi í sérframboð í næstu
alþingiskosningum. Að tillögu Jóns
Baldvins var ákveðið að Guðmundur
Árni Stefánsson tæki við félagsmála-
ráðuneytinu af Jóhönnu og að Sig-
hvatur Björgvinsson bætti við sig heil-
brigðisráðuneytinu, en því stýrði hann
á fyrstu tveimur starfsárum ríkis-
stjórnarinnar.
Dæmdur í 4 ¥2 árs
fangelsi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi 15 manns 'til fangelsisvistar
en sýknaði þijá af ákærum um aðild
að stóra fíkniefnamálinu, sem snerist
um ætlaðan innflutning á allt að 40
kg af hassi og 6 kg af amfetamíni.
Meintur höfuðpaur málsins, Ólafur
Gunnarsson, 39 ára, var dæmdur í
4'A árs fangelsi.
Aðferðum Norð-
manna mótmælt
RÍKISSTJÓRNIN sendi stjómvöldum
í Noregi hörð mótmæli vegna aðfara
norsku Strandgæslunnar á miðunum
við Svalbarða. I samþykkt stjómarinn-
ar er aðförum Strandgæslunnar líkt
við aðferðir Grænfriðunga. Sjópróf
fóru fram vegna atburðanna við Sval-
barða, en þar kom m.a. fram að skip-
stjórar íslensku skipanna töldu að
glæfralegar aðfarir Strandgæsluskip-
anna hefðu oftar en einu sinni sett
íslensku sjómennina og skipin í stór-
hættu.
Kjarnorkuáætlun
frestað í N-Kóreu
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
tilkynnti á miðvikudag að sljómvöld í
Norður-Kóreu hefðu fallist á að fresta
áætlunum sínum í kjamorkumálum.
Hefur Bandaríkjastjóm í framhaldi af
því ákveðið að taka upp viðræður við
stjómina í Pyongyang og hætta um
sinn að minnsta kosti undirbúningi
refsiaðgerða gegn henni. Af hálfu Al-
þjóða kjamorkumálastofnunarinnar
(IAEA) er unnið að því að setja Norð-
ur-Kóreumönnum skilyrði sem þeir
verða að uppfylla til að sannfæra þjóð-
ir heims um að þeir vinni ekki að
smíði kjamorkusprengju.
Frakkar hefja íhlut-
un í Rúanda
FYRSTU frönsku herdeildirnar héldu
til Rúanda á fímmtudag og hófst þar
með umdeild hemaðaríhlutun Frakka
í landinu. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti íhlutunina á miðviku-
dag. Markmiðið er að stöðva dráp á
óbreyttum borgurum í átökum upp-
reisnarmanna tútsía og stjómarhersins
sem skipaður er hútúum. Að sögn
fransks embættismanns var hermönn-
unum vel tekið þar sem þeir komu.
Rússar samþykkja
stækkun NATO
ANDREJ Kozyrev utanríkisráðherra
Rússlands tjáði fastafulltrúum Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) á
fímmtudag að Rússar samþykktu fyrir
sitt leyti stækkun NATO til austurs
en þeir teldu þó að stækkun af því
tagi ætti að bíða þar til reynsla væri
fengin á Friðarsamstarf NATO. Koz-
yrev undirritaði samkomulag um aðild
Rússa að samstarfínu sem felur í sér
nána samvinnu á sviði evrópskra ör-
yggismála. Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti hefur þegið boð um að koma til
leiðtogafundar við Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta í Washington í september.
►SUÐUR-Afríka hlaut aft-
ur sæti á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) á
fimmtudag eftir 20 ára
fjarveru. Var landinu vísað
af allsherjarþinginu áríð
1974 vegna aðskilnaðar-
stefnu minnihlutastjórnar
hvítra.
►FYRRUM Bítlarnir Paul
McCartney, George Harri-
son og Ringo Starr hafa
tekið upp nokkur lög sam-
an, í fyrsta sinn frá því að
hljómsveitin lagði upp
laupana fyrir 24 árum.
Verða þau leikin í sjón-
varpsröð um breska tónlist-
armenn.
►BANDARÍSKI táningur-
inn Michael Fay var látinn
laus úr fangelsi í Singapore
á þriðjudag en þar hefur
hann afplánað refsingu fyr-
ir skemmdarverk á bifreið-
um. Var hann meðal annars
hýddur fjórum vandar-
höggum þrátt fyrir mót-
mæli Bills Clintons forseta.
►BRESKUR þingmaður,
Anthony Steen, hefur lagt
fram frumvarp um bann
við notkun franskra orða á
almannafærí í Bretlandi.
Er það svar hans við þeirri
viðleitni Frakka að hreinsa
frönskuna af enskuslettum.
►LÍKLEGT þykir, að
samningar náist á þessu ári
mUli Rússa og olíufélag-
anna Texaco, Norsk Hydro,
Exxon og Amoco um sam-
eiginlega olíuvinnslu í
norðurhéruðum Rússlands.
Er samningurinn upp á 45
til 58 miRjarða dollara og
á að standa í 47 ár.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/PPJ
Kanadískur „slökkviflugbátur“ á ferðinni
Kanadískur flugbátur af gerðinni Canadair CL-215
lenti á Reykavíkurflugvelli um miðjan mánuðinn,
en hann var á leiðinni frá Quebec í Kanada til
Rómar á Ítalíu. Flugvélum af þessari gerð svipar
mjög til Catalina-flugbátanna sem voru i notkun
hérlendis um árabil. Helsta hlutverk þessara flug-
báta er við slökkvistörf í baráttunni við skógarelda
og eru þeir notaðir viða um lönd utan framleiðslu-
lands síns, m.a. í Frakklandi, Grikklandi, og á
Spáni. Einnig eru nokkrar flugvélar af þessari
gerð notaðar til björgunarflugs á hafi úti. Flestar
fylkisstjórnir Kanada reka slíkar flugvélar enda
skógareldar vandamál þar í landi. Flugbáturinn,
sem hér var á ferðinni, er í eigu ríkisstjómar
Quebec, sem á um 18 slíkar slökkvivélar. Við
slökkvistörf geta Canadair-flugbátarnir fyllt tanka
sína af vatni á 10 til 16 sekúndum með þvi að
renna sér eftir yfirborði vatns eða sjávar. Einnig
er hægt að fylla tanka þeirra með slökkviefnum
á jörðu niðri. Canadair CL-215 flaug fyrst árið
1967 og er enn I framleiðslu. Nýjasta gerð þessara
flugvéla er knúin skrúfuhverflum í stað gömlu
stjörnuhreyflanna, sem eru á vélinni sem hér hafði
viðdvöl.
Kennaraháskólinn
Yfir 100 maiins
brautskráðust í vor
BRAUTSKRÁNING kandidata frá
Kennaraháskólanum fór fram
laugardaginn 11. júní sl. Að þessu
sinni voru brautskráðir 103 kandi-
datar með B.Ed.-gráðu, og tveir
með viðbótarnámi í valgrein til
B.Ed.-prófs. Þrír leiðbeinendur við
framhaldsskóla luku kennslurétt-
indaprófí og einn lauk námi til
kennsluréttinda við grunnskóla. Þá
luku 15 skólastjórar og yfirkennar-.
ar framhaldsnámi fyrir stjómendur
skóla.
Við brautskráninguna færðu 40
ára og 10 ára kennarar skólanum
gjafír og kandidatar færðu einnig
skólanum gjafir. Rektor minntist
þess í ræðu sinni að fyrir tuttugu
áram, vorið 1974, vora fyrstu
kandidatar með háskólapróf braut-
skráðir, og nú hefur skólinn fengið
heimild til þess að bjóða framhalds-
nám til M.Ed.-gráðu sem hefst í
haust og verða teknir 18 nemendur
í það nám, en 43 umsóknir bárast.
Þá hefur skólinn fengið til umráða
skólahús húsmæðraskólans á
Varmalandi í Borgarfírði og sagðist
rektor vænta þess að það húsnæði
yrði starfi skólans mikil lyftistöng,
sérstaklega skapaðist þar góð að-
staða fyrir námskeið og ráðstefnur.
B.ED.-NÁM:
Aðalbjörg Ragnarsdóttir, Anna
Agnarsdóttir, Anna Ágústa Hauks-
dóttir, Anna Lísa Þorbergsdóttir,
Anna María Amfinnsdóttir, Anna
María Jónsdóttir, Anna Steinunn
Friðriksdóttir, Agúst Einarsson,
Álfheiður Einarsdóttir, Ásthildur
Guðrún Guðlaugsdóttir, Ásthildur
Lóa Þórsdóttir, Benjamín Þröstur
Júlíusson, Berglind Arndal Ás-
mundsdóttir, Bima Jóhanna Jónas-
dóttir, Bryndís Böðvarsdóttir, Bryn-
hildur Sigurðardóttir, Edda Júlía
Helgadóttir, Einar Bjarki Sigur-
jónsson, Elín Arndís Gunnarsdóttir,
Elín Hilmarsdóttir, Elín Hlíf Helga-
dóttir, Elín Kristjánsdóttir, Elísabet
Steingrímsdóttir, Erna Björg Guð-
laugsdóttir, Eydís F. Hjaltalín,
Fríða Björk Tómasdóttir, Guðlaug
María Lewis, Guðlaugur Baldurs-
son, Guðmunda Arna Lúðvíksdóttir,
Guðmundur Þorkelsson, Guðríður
Ólafsdóttir, Guðrún Dröfn Ragnars-
dóttir, Guðrún Guðbjarnadóttir,
Guðrún Lilja Rúnarsdóttir, Gunn-
hildur Lilja Gísladóttir, Hafdís
Hilmarsdóttir, Halla Jóhannesdótt-
ir, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir,
Hanna Dóra Markúsdóttir, Heba
Friðriksdóttir, Heiðrún Jóhanns-
dóttir, Helga Kristinsdóttir, Helga
María Jóhannesdóttir, Helga Sal-
björg Guðmundsdóttir, Herdís Pála
Pálsdóttir, Hildur Heimisdóttir,
Hjördís Björg Gunnarsdóttir,
Hrafnhildur Pálsdóttir, Hrafnhildur
V. Kjartansdóttir, Hrand Gauta-
dóttir, Hulda Hauksdóttir, líulda
Valdís Valdimarsdóttir, Inga
Harðardóttir, Ingibjörg Þorsteins-
dóttir, Jenný Björk Olsen, Jóhanna
Einarsdóttir, Jóhanna Höskulds-
dóttir, Jóhanna Þuríður Þorsteins-
dóttir, Jóna Benediktsdóttir, Jóna
Björk Jónsdóttir, Jónína Helga Ól-
afsdóttir, Jóhína Ómarsdóttir, Kam-
illa Hildur Gísladóttir, Katrín Guð-
jónsdóttir, Klara Öfjörð Sigfúsdótt-
ir, Kolbrún Jónsdóttir, Kolbrún Sig-
þórsdóttir, Kristín Einarsdóttir,
Kristín Einarsdóttir, Kristín Sigurð-
ardóttir, Lára Eymundsdóttir, Lilja
Dóra Harðardóttir, Lilja Karlsdótt-
ir, Linda Sjöfn Sigurðardóttir, Lísa
Sigríður Greipsson, Magnús Þór
Jónsson, Margrét Líney Laxdal,
María Paloma Ruiz Martinez, Marta
María Oddsdóttirj Oddný Guðrún
Guðmundsdóttir, Olöf F. Jónsdóttir,
Pétur Vilbergur Georgsson, Ragna
Kristjánsdóttir, Ragnheiður Ragn-
arsdóttir, Ragnhildur Sigurðardótt-
ir, Rósa Bjamadóttir, Sesselja Tóm-
asdóttir, Sigríður Schram, Sigrún
Hrönn Hauksdóttir, Sigurbjörg
Kristjánsdóttir, Siguijóna Jónsdótt-
ir, Sigurvin Bergþór Magnússon,
Steindóra Kristín Gunnlaugsdóttir,
Steinunn Baldursdóttir, Steinunn
Margrét Larsen, Una Kristjana
Jónatansdóttir, Unnur Baldursdótt-
ir, Unnur Hrefna Jóhannsdóttir,
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir,
Þóra Þórisdóttir, Þórdís Helga Ól-
afsdóttir, Þórdís Pálsdóttir, Þórey
Garðarsdóttir.
Viðbótarnám kennara:
Sigríður Österby, Valgerður
Björnsdóttir.
Stjórnendanám:
Björn Magnús Björgvinsson,
Guðlaug Guðrún Teitsdóttir, Gunn-
ar Gíslason, Halldór Valdimarsson,
Hildur Hafstað, Jóna Möller, Kristín
Gísladóttir, Ólafur Amgrímsson,
Ólafur Guðmundsson, Óttar Einars-
son, Rúnar Sigþórsson, Sigfús Grét-
arsson, Sigurður Aðalgeirsson,
Stella Guðmundsdóttir, Úlfar
Bjömsson.
UF-nám:
Sigurður G. Þorsteinsson, Þor-
steinn Gunnar Þórhallsson, Þráinn
Sigurðsson.
Nám til kennsluréttinda við
grunnskóla:
Hermann Jóhannesson.
Morgunblaðið/RAX
Stoðbýli
opnað fyrir
heilaskaðaða
FYRSTA stoðbýli fyrir aldraða
með einkenni heilabilunar hefur
veríð opnað að Logafold 56.
Heimilið er rekið af Reykjavík-
urdeild Rauða krossins í sam-
vinnu við öldrunarþjónustudeild
Reylgavíkurborgar. Gert er ráð
fyrír sjö vistmönnum í einbýli
og að starfsmenn verði sjö. Tal-
ið er að þörf sé fyrir tíu sambýli
í Reykjavík ef vel ætti að vera.
» ♦ ♦----
Afhenti trún-
aðarbréf
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra, afhenti 22. júní hans
hátign Juan Carlos I, konungi Spán-
ar, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Islands á Spáni.