Morgunblaðið - 26.06.1994, Blaðsíða 6
6 SUNNUÐAGUR 26. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Beðið í fimmtíu ár
'US-Æry
Mál íslenska gagnnjósnarans
Ibs Ámasonar Riis vekur æ
meiri athygli og hefur
breskur þingmaður tekið
það upp á þingi.
Mál íslenska gagnnjósnarans Ibs
Árnasonar Riis, sem hefur ekki enn
fengið viðurkenningu breskra
stjómvalda á starfí sínu, var tekið
upp á breska þinginu í síðustu viku. Það var
þingmaðurinn og njósnasagnahöfundurinn
Rupert Allason sem það gerði. Viðtal birtist
við Riis í breska blaðinu Sunday Express um
síðustu helgi og þar kemur fram að Riis, sem
var gagnnjósnari Breta á íslandi í heimsstyij-
öldinni síðari, hefur ekki fengið greiðslur fyr-
ir starf sitt í stríðinu auk þess sem honum
var meinað að segja frá því í 25 ár. Málið er
nú komið á rekspöl, því fréttir og viðtöl við
Riis hafa verið í fjölmiðlum í Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Danmörku og hér á landi. Upphaf
þessa má þó rekja til bókar Ásgeirs Guðmunds-
sonar sagnfræðings, Gagnnjósnari Breta á
íslandi, sem út kom 1991.
Ib Riis, sem búsettur er í Kaliforníu ásamt
eiginkonu sinni, Sigrúnu Þórarinsdóttur, er
íslendingur, fæddur og uppalinn í Danmörku.
Voru foreldrar hans frá ísafírði en Riis-nafnið
er þannig tilkomið að faðir hans var ættleidd-
ur af dönskum kaupmannshjónum.
í grein Sunday Express segir að Riis-hjónin
búi við kröpp kjör og að Sigrún sé veik af
krabbameini. Segir Riis þetta alrangt, þau
hjón búi í ósköp venjulegu húsi á amerískan
mælikvarða og að kona sín hafi náð heilsu á
ný eftir veikindi. Hann starfaði lengst af á
sjóminjasafninu í San Francisco en er nú kom-
inn á eftirlaun, 79 ára. Á stríðsárunum sendu
Þjóðveijar hann til íslands til að njósna en
hann bauð Bretum fram aðstoð sína skömmu
eftir komuna og var gagnnjósnari þeirra frá
1942-1945.
Riis segir að vissulega sé langur tími liðinn
frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar en hann
geri sér vonir um að nú gerist eitthvað. „Von
mín er sú að Bretar viðurkenni að starf mitt
í stríðinu hafí gert eitthvert gagn. Ég gat
ekkert gert í mínu máli fyrstu 25 árin vegna
þagnarreglu og öll viðleitni mín síðan þá hef-
ur engan árangur borið, enda á ég nær engin
skjöl sem sanna mál mitt. Ég er því búinn
að bíða í fímmtíu ár.“
Gleymt allt of lengi
Breski þingmaðurinn Rupert Allason segist
hafa lagt fram tillögu á breska þinginu um
að ríkið greiddi Riis það sem honum bæri.
„Málið er nú í athugun og gæti tekið nokkurn
tíma. Færa þarf sönnur á að Riis sé sá sem
hann segist vera. Bresk stjórnvöld verða auð-
vitað að vera varkár í þessum efnum. Sjálfur
efast ég ekki um að Riis sé „köngulóarvefur"
(cobweb), en það var dulnefni gagnnjósnara
Breta á Islandi. Mál Riis hefur verið gleymt
um að ég vildi vísa til hans
í inngangi bókarinnar, sem
gefa á út síðar á árinu. Hon-
um var síðar sagt að ég
væri þingmaður og ég fékk
þær upplýsingar hjá blaða-
mönnum sem höfðu haft
samband við Riis að hann
byggi við erfiðar aðstæður
og þarfnaðist fjárhagsað-
stoðar. Hann skrifaði mér
stuttu síðar, sem þingmanni,
og bað mig um að taka mál
sitt upp. Mér var sönn
Gagnniósnari ánæsia að gera það“
° " „Köngulóarvefur"
IB Ámason Riis, árið 1943,
þá í þjónustu bresku leyni-
þjónustunnar, og í
Kaliforníu rúmum 50 árum
síðar. Þar býr hann ásamt
konu sinni, Sigrúnu Þórar-
insdóttur.
allt of lengi í Bretlandi en til þess að vera
sanngjarn er rétt að benda á að mér vitanlega
hefur Riis aldrei haft samband við bresk
stjórnvöld og beðið um aðstoð. Hann hefur
skrifað fjölda fólks í Bandaríkjunum. Málið
er nú komið á rekspöl og ég er afar vongóður
um að það fái farsælan endi,“ segir Allason.
Rétt er í þessu samhengi að benda á að Riis
skrifaði hertoganum af Edinborg fyrir tæpum
tveimur áratugum og bað um aðstoð en fékk
ekki. Hefur hann reynt mikið, hafði t.d. sam-
band við breska sendiráðið í Kaupmannahöfn
eftir stríð, án árangurs. Þá hefur hann einnig
ritað Edward Kennedy, öldungadeildarþing-
manni, Gerald Ford og Richard Nixon, fyrrver-
andi Bandaríkjaforsetum, auk þess sem banda-
ríska leyniþjónustan, CIA, vissi af máli Riis.
Njósnasögur
Þingmaðurinn skrifar bækur undir nafninu
Nigel West, aðallega um öryggis- og varnar-
mál. Segist hann hafa vitað um „köngulóar-
vef“ og önnur njósnamál sem tengdust Islandi
um allnokkurt skeið, en hann hafi ekki þekkt
raunveruleg nöfn njósnaranna. „Þegar ég vann
að rannsóknum fyrir nýjan inngang að bók-
inni „The Double Cross System“, sem var
gefin út fyrir nokkrum árum, rakst ég á hið
raunverulega nafn „köngulóarvefs". Þegar ég
hafði samband við Riis, útskýrði ég fyrir hon-
Mál Ibs Ámasonar Riis
kom ekki upp á yfirborðið
fyrr en árið 1991 er Ásgeir
Guðmundsson sagnfræðing-
ur komst að því hver „köngu-
lóarvefur“ var. „Það hófst
þannig að Ólafur K. Magnús-
son ljósmyndari gaukaði að
mér ljósritum úr bresku bók-
inni „The Double Cross Syst-
em“, þar sem rakin er saga
gagnnjósnaranna sem Bretar
höfðu á sínum snærum í
heimsstyijöldinni síðari. M.a.
vom nefndir tveir sem verið
höfðu á íslandi, „köngulóar-
vefur“ og „bjalla“. Við þótt-
umst nokkuð vissir um hver
„bjalla" væri, þ.e. Pétur
Thomsen, sem kom á daginn,
en hinn olli okkur miklum
heilabrotum. Ég fór af stað
og fletti dagblöðum og fann
viðtal sem Valtý Stefánsson,
ritstjóri Morgunblaðsins,
hafði tekið i júni 1942 við
ónafngreindan ferðamann,
sem var nýkominn til landsins
og hafði verið í Danmörku,
Þýskalandi og Noregi. Þá
þóttist ég viss um að þetta væri maðurinn.
Nafnið vantaði hins vegar og ég komst að
endingu í skjalasafn dómsmálaráðuneytisins
og þar fann ég skýrslu frá sýslumanninum á
Seyðisfirði þar sem hann skýrir frá því að
maður að nafni Ib Riis hafí gengið á land á
sunnanverðu Langanesi í apríl 1942 við „dular-
fullar aðstæður". Hann hafði komist á land
eftir mikla hrakningar og var nær dauða en
lífí. Næsta verk var að fínna út hvort maður-
inn væri lífs og hvar hann ætti heima. Ég
fann hann í loftskeytamannatali og ættartali,
svo og konu hans, Sigrúnu Þorsteinsdóttur.
Þá var eftirleikurinn auðveldur. Ég hringdi í
Riis og spurði hvort ég mætti koma og taka
við hann viðtal, sem ég og gerði. Bókin kom
svo út í nóvember 1991.“
Ásgeir segir bókina ekki hafa vakið mikla
athygli er hún kom út, en undanfarnar vikur
hefur mál Riis tekið breytta stefnu. „Fyrir
tveimur árum hafði Allison samband, hafði
séð bókarinnar getið í bandarísku tímariti um
leyniþjónustumál. Hann telur fulla ástæðu til
að þýða bókina. Þá fór málið að vinda upp á
sig, ABC-News sendi menn til að taka viðtal
við Riis, svo og Sky-sjónvarpsstöðin. Fyrir
utan greinina í Sunday Express var skrifað
um Ib Riis í Berlingske Tidende, TV2 í Dan-
mörku hefur haft samband við hann og Gyld-
endal-bókaútgáfan vill fá bók mína til skoðun-
ar, með hugsanlega útgáfu í huga.“
Stjórnarkreppa framundan í Japan
Tsutomu Hata
biðst lausnar
Tókíó. Reuter.
rjúfa þing og efna til
nýrra kosninga en því
hafnaði hann þar sem
stjórnin hefði verið
nánast óstarfhæf þar
til nýtt þing kæmi
saman.
Hata tilkynnti af-
sögn sína í beinni sjón-
varpsútsendingu inn-
an við klukkustund
áður en umræður áttu
að heijast á þingi um
tillögu Fijálslyndra
demókrata, stærsta
stjórnarandstöðu-
Tsutomu Hata
Þingleiðtogar
stefndu að því í gær
að kjósa nýjan forsæt-
isráðherra á þingi á
morgun, mánudag, en
stjórnmálaskýrendur
töldu að mun lengri
tíma tæki að ná sam-
stöðu um eftirmann
Hata og gæti ný
stjómarmyndun því
dregist á langinn. Þeir
sögðu einnig að vegna
flokkaskipunar á þingi
biðu væntanlega sömu
örlög nýs forsætisráð-
herra; hann yrði gísl
TSUTOMU Hata sagði af sér
starfí forsætisráðherra í Japan í
gær, laugardag, í stað þess að
bíða ósigur í atkvæðagreiðslu á
þingi um vantraust á stjórnina.
Er hann sjötti forsætisráðherra
Japana sem segir af sér nauðugur
á síðustu fímm árum.
Stjómmálaskýrendur sögðu að
tæpast myndi afsögn Hata verða
til þess að auka möguleika minni-
hlutastjórnarinnar á að halda velli.
Nú færu í hönd átök um eftirmann
hans og væri tæpast að búast við
að sá héldi lengi velli.
Annar valkostur Hata var að
flokksms, um van-
traust á stjórnina. Við ákvörðun
hans féll tillagan sjálfkrafa um
sjálfa sig.
sérhópa og hagsmunaklíka eins
og Hata og forveri hans Morihiro
Hosokawa.
Kortaf
skiptingu
Bosníu á
lokastigi
Genf. Reuter.
VESTRÆNIR stjómarerindrekar
sögðu í gær að flest benti til þess
að utanríkisráðherrar Bandaríkj-
anna, Rússlands, Bretlands, Frakk-
lands og Þýskalands hittust í Genf
næstkomandi föstudag, 1. júlí, til
þess að leggja blessun sína yfír nýja
tillögu um skiptingu Bosníu milli
deiluaðila.
Fundur ráðherranna stendur og
fellur með því hvort háttsettir emb-
ættismenn ríkjanna nái samkomulagi
á morgun mánudag í París um end-
anlega skiptingu Bosníu milli sam-
bandsríkis múslima og Króata ann-
ars vegar og Serba hins vegar. Vitað
er að Rússar setja enn nokkra fyrir-
vara um skiptinguna eins og hún
liggur nú fyrir þar sem þeir telja að
Serbar muni ekki geta gengið að til-
lögunni. I aðalatriðum verður landinu
þó skipt þannig að múslimar og Kró-
atar fá 51% svæðisins og Serbar 49%
en í stríðinu sem braust úr eftir að
þingið í Sarajevo samþykkti sam-
bandsslit frá Júgóslavíu í mars 1992
hafa þeir síðarnefndu náð undir sig
70% Bosníu.
Ætlunin er að binda þannig um
hnúta að þessu sinni að hægt verði
að stilla deiluaðilum upp við vegg
þegar lokatillagan verður lögð fyrir
þá næstkomandi laugardag. Að því
búnu hittast leiðtogar ríkjanna fimm
í tengslum við fund sjö helstu iðn-
velda heims í Napólí 8.-10. júlí og
staðfesta endanlega nýtt kort uin
skiptingu Bosníu.
------»■ ♦ «-----
Stjórnin í
steininn
Taipei. Reuter.
HELMINGUR héraðsstjórnarinnar í
héraðinu Taoyuan á norðurhluta
Taiwan var fangelsuð í gær vegna
spillingarmála og var forseti
stjórnarinnar meðal þeirra sem send-
ir voru í dýflissuna.
Alls voru 30 sveitarstjómarmenn
af 60 fangelsaðir fyrir að hafa þegið
alls kyns mútur. Hver um sig fékk
dóm sem hljóðar upp á 10 mánaða
til tveggja ára fangelsi. Enn er ólok-
ið rannsókn í málum flestra hinna
30 og má búast við að þeirra bíði
einnig fangavist.
Málið snýst um atkvæðakaup og
var Hsu Chen-yun forseti stjórnar-
innar dæmdur fyrir að hafa tryggt
sér kosningu með mútum. Hann mun
hafa boðið þijár milljónir
tævandollara, jafnvirði 111.000
Bandaríkjadala, og ókeypis utanferð
fyrir hvert atkvæði. Keppinautur
hans um starfíð, Wu Chen-huan, er
sagður hafa boðið jafn vel og verður
réttað síðar í máli hans. Þá verður
varaforseti héraðsstjómarinnar einn-
ig dreginn fyrir rétt síðar þar sem
hann er einnig sakaður um atkvæða-
kaup þó ekki hafi hann verið eins
stórtækur og Hsu og Wu; borgaði
milljón tævandollara, jafnvirði
37.000 Bandaríkjadala, fyrir at-
kvæðið.
Hörð átök
í Kabúl
Kabúl. Reuter.
GÍFURLEGA hörð átök brutust út
í Kabúl í gær milli sveita sem hlið-
hollar eru Burhanuddin Rabbani
forseta og sveita sem styðja
Gulbuddin Hekmatyar forsætisráð-
herra.
Átökin voru sögð vera hin hörð-
ustu um margra vikna skeið en
talið er að rúmlega 2.500 manns
hafi fallið í átökum sveita Rabbani
Hekmatyars og skæðasta keppi-
nautar hans, um yfirráð í Kabúl.