Morgunblaðið - 26.06.1994, Side 25

Morgunblaðið - 26.06.1994, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 1994 25 an hátt. Hún kenndi þeim að meta fallega steina sem þær fundu niðri við á og bjuggu síðan til úr lítil listaverk. Margar vísumar lærðu þær og mikið sungu þær saman. Þær komu því að jafnaði fróðari og þroskaðri manneskjur úr „menntaskólanum í Árgerði", þar sem skólastjórinn Daníel læknir kenndi fagurbókmenntir, listir og vísindi ýmiss konar, en yfirkennar- inn Dýrleif kenndi öll hin fögin, þar með talin mannleg samskipti. Dýrleif brást aldrei trausti nokk- urs manns og henni fannst alltaf sjálfsagt að aðstoða og hjálpa þeim sem á þurfti að halda. Að koma í Árgerði var engu líkt. Heimilisfólkið stóð úti á hlaði með útbreiddan faðm til að fagna gest- um sínum. Þegar inn var komið var allt til reiðu bæði fyrir sál og líkama. Andblær menningar sveif þar yfír vötnunum. Hvergi bruðlað, allt mátulegt og eins og best varð á kosið. Daníel greip þá gjarnan í orgelið og var þá sungið af hjart- ans lyst. Ég kveð Dýrleifu með söknuð í huga og jafnframt þakklæti fyrir margar ógleymanlegar ánægju- stundir. Vinir hennar og ættingjar sjá nú á bak óvenjulegri mann- kostakonu. Ég er þess fuilviss að foreldrar og systkini hennar sex sem á und- an eru gengin munu fagna henni hjartanlega og þá verða rifjaðar upp margar góðar minningar frá Efri-Hólum. Fyrir mína hönd og dætra minna, Ásrúnar, Guðrúnar, Heiðrúnar og Sigrúnar votta ég Daníel og fjöl- skyldu hans innilegustu samúð. Oddný Ólafsdóttir. Nú þegar Dýrleif Friðriksdóttir frá Efri-Hólum í Núpasveit, lækn- isfrú á Dalvík, hefur kvatt þennan heim, er mér skylt, en umfram allt ljúft, að festa á blað nokkur kveðju- og þakklætisorð fyrir að hafa átt hana að kunningja, mér er nær að segja vini, nú um árabil. Fyrstu kynni mín við þau læknis- hjón í Árgerði á Dalvík, Dýrleifu og Daníel Á. Daníelsson, get ég rakið til óvæntrar heimsóknar minnar þangað fyrir hartnær aldar- íjórðungi. Því miður urðu þau kynni ekki endurnýjuð fyrr en fyrir rúm- lega sex árum. Þá réðust mál svo, að Bókaútgáfa Menningarsjóðs, sem ég var í fyrirsvari fyrir, tók að sér að gefa út þýðingar Daníels læknis á sonnettum Shakespeares. Átti ég þá samfundi nyrðra með þeim Daníel og Dýrleifu til að ráðslaga um ýmsa þætti útgáfunn- ar. Mér þótti þetta verkefni sérstætt og heillandi, ekki sízt, þegar litið var til þess, að þýðandinn var þá meira en hálfníræður læknir, sem ekki hafði látið mikið á sér bera á þessu sviði um dagana. Þó vissu margir, að hann hafði glímt við þýðingar á ljóðum erlendra höfuð- sicálda um langt skeið, með merki- legum árangri, eins og sonnettum- ar sýna líka glöggt, en þær komu út haustið 1989. Auk Shakespeares fékkst hann m.a. við slíka andans jöfra eins og Ezra Pound og T.S. Elliot. Frá þessum tíma hafa leiðir mín- ar legið til Dalvíkur á hveiju ári á vit þessa einstæða menningarheim- ilis að Árgerði, nærri fagurri strönd Eyjafjarðar, þar sem þau Dýrleif og Daníel hafa tekið gestinum tveim höndum. Það reyndist svo, að það var ekki aðeins húsbóndann, sem eink- ar ánægjulegt var heim að sækja og ræða við um heima og geima, heldur líka konuna hans, hana Dýrleifu, sem einlægt fagnaði manni sem kærkomnum gesti og vini, leiddi til stofu og lét mann fínna hlýtt þel með tilheyrandi góð- gerðum á veizluborði. Og á veggn- um blasti við manni litfagurt mál- verk Blöndals úr síldinni á Siglu- fírði. Það var skemmtilegt og fróðlegt að njóta samvista við þessa góðu konu, hlýða á orðræðu hennar, sem bar vott um andlegt atgervi, gáfur og lífsvizku. Hún var til frásagnar um líf og sögu á fomum slóðum, hvort sem var í Öxarfírði, þar sem hún ólst upp, eða á Hesteyri í Jökul- fjörðum, og síðar Siglufírði og Dalvík, þar sem hún var læknisfrú og ljósmóðir um áratuga skeið. En þótt Dýrleif hafi lengstum verið fjarri hringiðu mannlífsins, fylgdist hún vel með því sem var að gerast í nútímanum, og hafði gaman af að ræða um menn og málefni líðandi stundar, á sviði bókmennta, lista og landsmála. Hún hafði þar ákveðnar skoðanir, sem mótuðust af góðvilja og um- burðarlyndi. Hugur hennar var opinn og fordómalaus. Og ekki fór hún dult með, að málstaður þeirra, sem stóðu höllum fæti 5 lífínu, var hennar málstaður. Og ég er viss um, að þegar Daníel hefur leitað til konu sinnar í bókmenntaiðju sinni, hefur hann mátt treysta skilningi hennar og smekkvísi. Það var eftirsóknarvert að njóta nær- veru Dýrleifar, og maður fór ríkari af þeim fundi, og hlakkaði til að taka þráðinn upp aftur. Þegar ég hugsa til Dýrleifar Friðriksdóttur koma mér í hug frægar ljóðlínur úr erfiljóði skálds- ins á Möðruvöllum, Bjarna Thor- arensens, um Rannveigu, konu Bjama riddara Sívertsens. Mér fínnst þau eiga einstaklega vel við um hina látnu vinkonu mína: Svo fékk ei áttræðs aldur ófríða gjörva Rannveigu, riddara Bjama rétta húsfreyju. Sálar um fatið hið foma fögur skein innri konan. Skýrt máttu skatnar og líta að skrúðkWi var það. Þegar ég gekk úr hlaði í Árgerði frá Dýrleifu og Daníel fyrir fjómm vikum eftir minnisstæða samvem- stund, eins og svo oft áður, vissi ég, að brugðið gæti til beggja vona, að allt yrði við það sama, áður en sumarið væri á enda. Þó bar ekki á öðru en viðmót Dýrleifar væri, eins ogjafnan áður, markað göfug- mennsku og tiginleik. En - falls er von að fornu tré, stendur þar. Nú að leiðarlokum færi ég Dýr- leifu hjartans þakkir fyrir allar samverastundirnar góðu í Árgerði. Ég sendi Daníel mínar innilegustu samúðarkveðjur vegna hans mikla missis. Einnig votta ég börnum þeirra og fjölskyldum samúð við fráfall þessarar góðu konu. Einar Laxness. Er ég heyrði lát Dýrleifar Frið- riksdóttur, fyrrverandi læknisfrúar á Dalvík, urðu löngu liðin atvik sem ný í hugarheimi mínum. Minningar tengdar læknishéraðinu á Hesteyri, Jökulfjörðum. Á vordögum 1938 komu þangað Daníel Á. Daníelsson sem héraðslæknir og kona hans Dýrleif Friðriksdóttir. Þetta læknishérað var stórt og erfítt yfír- ferðar. Það tók yfír svæði sem nú er ekki lengur föst búseta á, Sléttu- hrepp og Grannavíkurhrepp með vegleysur og án símasambands. A haustdögum það ár átti móðir mín Matthildur Benediktsdóttir, Reykjarfírði, von á þrettánda barni sínu. Það varð að ráði að hún fékk dvalarstað hjá kunningjakonu sinni á Hesteyri, svo hún væri nær lækni ef með þyrfti. En forlögin höguðu því á þann veg að Dýrleif sem var lærð og reynd ljósmóðir varð ljósa næst- yngsta bróður míns 26. september 1938. Læknishjónin önnuðust móð- ur mína við bamsfæðinguna. Fund- um Dýrleifar og móður minnar bar fyrst saman daginn áður, en upp frá því var með þeim svo einlæg og trygg vinátta sem entist á með- an báðar lifðu. Þessi vinátta var móður minni ákaflega mikils virði, og okkur börnum hennar einnig. Þær skiptust á bréfum frá 1938- 1988 og stundum fóru sendingar þeirra á milli, enda var það svo að MIIMIIMGAR móðir mín lumaði stundum á sára- vatni og sótthreinsuðum umbúðum og fleira ef búa þurfti um sár eða hreinsa meiðsli sem fyrir kom heima í Reykjarfirði. Þetta lýsir því hvað læknishjónin Dýrleif og Daní- el skildu aðstöðu þeirra sem byggðu nyrstu ból þessa læknishéraðs. Eftir tveggja ára dvöl á Hest- eyri fluttu þau til Siglufjarðar en sumarið 1944 komu þau aftur til Hesteyrar og dvöldu þar í fjórar vikur og sinnti Daníel læknisþjón- ustu þar þann tíma. Dýrleif og móðir mín höfðu ákveðið með bréfaskriftum sínum að læknis- hjónin kæmu í heimsókn í Reykjar- Qörð áður en þau færa aftur norð- ur. Mér er minnisstætt hve eftir- vænting foreldra minna, sér í lagi móður minnar var mikil. Margan morguninn hafði hún orð á því, skyldu þau nú ekki koma í dag. Og einn daginn komu þau. Þær stundir sem læknishjónin dvöldu í Reykjarfírði vora foreldram mínum dýrðlegir dagar og löngu eftir að gestimir vora farnir var minningin um komu þeirra heimilisfólkinu í Reykjarfirði gleðigjafi. En það era ekki bara minningar um vináttu móður minnar og Dýr- leifar sem urðu mér hvatning til að skrifa þessi orð. Ég naut einnig vináttu og góðvildar læknishjón- anna sem þá voru sest að á Dal- vík. Um skírdagshelgar 1948 var ég ásamt fleiram gestur á heimili þeirra og naut þess í ríkum mæli. Síðar eftir að ég varð húsfreyja í Þingeyjarsýslu bar fundum okkar nokkram sinnum saman og símtöl fóru okkar á milli. Það var skemmtilegt að eiga tal við þessa stórgáfuðu frjálslegu konu, sem geislaði af góðvild, vináttu og tryggð. Þökk sé henni fyrir samfylgdina. Ég get ekki skilið svo við þessar línur að ég minnist ekki á vináttu og góðvild Svanhvítar systur henn- ar. Mér finnst einhvem veginn að sú vinátta standi okkar á milli jafn djúpum rótum og vinátta móður minnar og Dýrleifar. Eftirlifandi eiginmanni, börnum og öðram aðstandendum Dýrleifar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Jakobsdóttir frá Reykjarfirði. Sem dropi tindrandi taki sig út úr regni hætti við að falla héldist í loftinu kyrr - þannig fer unaðssömum augnablikum hins liðna. Þau taka sig út úr tímanum og Ijóma kyrrstæð, meðan hrynur gegnum hjartað stund eftir stund. (Hannes Pétursson) Við lát Dýrleifar Friðriksdóttur fyllist hugurinn sáram söknuði og innilegu þakklæti. Dýrleif var stór- brotinn persónuleiki, gædd miklum mannkostum. Það era forréttindi að hafa fengið að kynnast henni. Hún var skarpgreind, falleg, skap- andi, lagin til allfa verka, hlúði að öllu lífi. Dýrleif var gift Daniel Á. Danielssyni, lækni, skáldi og ljóða- þýðanda og lifir hann konu sína. Saman ræktuðu þau fagurt menningarheimili og eignuðust þrjú börn, Guðnýju, lækni, Friðrik, efnaverkfræðing og Bjama, fram- kvæmdastjóra Norræna Menning- arsjóðsins. Dýrleif var einstaklega skemmti- leg og hrifnæm og návist þeirra hjóna var sérstök og góð. Eg fór frá þeim ríkari en ég kom. Ég þakka Dýrleifu öll þau augnablik sem við áttum saman. Tíminn er afstæður. Þessi fagra æviandrá er liðin en Dýrleif mun lifa í hugum allra sem hana þekktu, og reisn hennar og heiðríkja lýsa upp tilvera þeirra. Ég og fjölskylda mín sendum öllum aðstandendum Dýrleifar hugheilar samúðarkveðjur. Hulda Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VIKTORÍA RUNÓLFSDÓTTIR, áðurtil heimiiis í Sörlaskjóli 38, Ystaseli 31, lést 9. júní í Landspítalanum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. JóhannesJensson, Jens Jóhannesson, Erla Magnúsdóttir og barnabörn. t VALGERÐUR SVEINSDÓTTIR frá Langholti, Meðallandi, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, andaðist þann 22. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Valgerður Ólafsdóttir, Valgerður Sigurjónsdóttir og systkini hinnar látnu. t Bróðir okkar og móðurbróðir, EIRÍKUR MARELSSON, Njarðargötu 43, sem andaðist 16. júní í Borgarspítalanum, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 27. júní kl. 13.30. Sigurbjörg Marelsdóttir, Sigurður Marelsson, Sofffa Marelsdóttir, Már Marelsson, Sigurður Már Hilmarsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, DÝRLEIF FRIÐRIKSDÓTTIR, Árgerði, Dalvík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 27. júní kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir, sem vildu minnast hennar, láti Hjartavernd njóta þess. Daníel Á. Daníelsson, Guðný Daníelsdóttir, Páll Kristjánsson, Friðrik Danfelsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Bjarni Danfelsson, Valgerður Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, GUÐLAUGS JAKOBSSONAR fyrrverandi verkstjóra, Hjálmholti 5, sem lést 20. þessa mánaðar, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. júnf kl. 13.30. Katrín Kristjánsdóttir, Kristján Guðlaugsson, Guðmundur Guðlaugsson, Margrét Möller, Lilja Guðlaugsdóttir, Hjörtur Gunnarsson, Þorbjörg Guðlaugsdóttir, Grfmur Ólafsson og barnabörn. t Móðurbróðir okkar, HALLDÓR VIGFÚSSON, Laufásvegi 43, Reykjavfk, sem lést í Landspítalanum 19. júní, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni f Reykjavík þriðjudaginn 28. júnf kl. 13.30. Sigríður Guðmundsdóttir, Vigfús Guðmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Filippus Guðmundsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Kristfn Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.