Morgunblaðið - 07.07.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Daniel Bergman vill
gera kvikmynd eftir
Sjálfstæðu fólki
Margir erlendir og innlendir aðilar hafa
lýst áhuga á að kvikmynda verkið
VIÐRÆÐUR um gerð kvikmyndar
eftir Sjálfstæðu fólki Halldórs Lax-
ness hafa verið í deiglunni undan-
famar vikur. Sænski leikstjórinn
Daniel Bergman kom til landsins si.
sunnudag ásamt Bertil Ohlson,
þekktum sænskum kvikmyndafram-
Microsoft
kaupir ís-
lenskt forrit
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Microsoft hefur keypt leyfí til að
nota og selja vírusvarnarforrit eftir
Friðrik Skúlason, tölvunarfræðing.
Þetta kemur fram í nýjasta tðlublaði
InfoWorld. Vírusvamarforritið heitir
F-Prot og er sambærilegt við forrit-
ið Lykla-Pétur eftir Friðrik, sem
hefur verið notað lengi á íslandi.
Í InfoWorld er sagt að F-Prot sé
eitt besta vírusvamarforrit, sem til
er og það muni koma í staðinn fyrir
forritið, sem Microsoft notar núna,
svokallað Scan-McAfee. Líklegt er
að Microsoft muni nota F-Prot eins
og McAfee áður en því var dreift
með ýmsum stýrikerfum frá fyrir-
tækinu. Microsoft er einn stærsti
hugbúnaðarframleiðandi í heimi og
selur hugbúnað á borð við Windows,
MS-DOS, Word og Excel. Ekki náð-
ist í Friðrik Skúlason í gærkvöldi.
leiðanda, til frekari viðræðna um
málið. í ár eru 60 ár liðin frá því
fyrsti hluti Sjálfstæðs fólks kom
fyrst út og hefur verkið verið þýtt
á tugi tungumála um víða veröld.
Ólafur Ragnarsson framkvæmda-
stjóri bókaútgáfunnar Vöku/Helga-
fells, segir að margir aðilar, bæði
innlendir og erlendir, hafi sýnt
áhuga á að gera kvikmyndir og sjón-
varpsþætti eftir Sjálfstæðu fólki en
þetta sé eitt áhugaverðasta tilvikið.
Jafnframt sé um að ræða stærsta
viðfangsefnið en Bergman og Ohlson
hugsa sér að upp úr bókinni verði
gerðar fleiri en ein kvikmynd sem
bæði gætu orðið fyrir kvikmyndahús
og sjónvarp.
Ólafur fer með höfundarréttarmál
Halldórs Laxness en Vaka/Helgafell
gefur út bækur hans hériendis og sér
um sölu á útgáfurétti þeirra erlendis.
Hann segir að í framhaldi af viðræð-
unum hafí verið óskað eftir frékari
upplýsingum og í ljósi þeirra ráðist
hvert framhaldið verður.
Handrit fór forgörðum
Ólafur sagði að handrit hefði ekki
verið skrifað en rætt hefði verið um
að Daniel Bergman skrifaði það
ásamt fleirum. Hann sagði að fram
hefði komið í spjalli við Daniel að
faðir hans, Ingmar, hefði á sinum
tíma lagt drög að handriti að kvik-
mynd eftir Sjálfstæðu fólki en ekk-
ert hefði meira orðíð úr því og segir
Ólafur að svo virðist sem það hand-
rit hafi farið forgörðum.
Morgunblaðið/Golli
Einföld lausn
FÓLK hefur notað góða veðrið
undanfarna daga til útiveru
eins og gefur að skilja. Þessir
ungu menn brugðu sér í körfu-
bolta I matartímanum og fundu
góða Iausn á því vandamáli að
festa körfuspjaldið. Þeir settu
það einfaldlega á gaffal lyftar-
ans sem þeir voru að vinna
með.
Leigutakar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vilja lækka sameiginlegan kostnað
Utboð á ræstingn spar-
aði um 10 milljónir
TALSVERÐ óánægja hefur verið
á meðal leigutaka í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar vegna hás sameigin-
legs rekstrarkostnaðar og hárrar
leigu á húsnæði í flugstöðinni,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Logi_ Úlfarsson, fram-
kvæmdastjóri íslensks markaðar,
segir að ræsting flugstöðvarinnar
hafí verið boðin út og hafí kostnað-
ur lækkað um 10 milljónir króna
á ári.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, hefur
verið í forystu fyrir leigutaka í
viðræðum við leigusala og segir
hann að málið sé tvíþætt. Annars
vegar vilji þeir ná niður sameigin-
legum rekstrarkostnaði, sem hafði
hæksað mikið á árunum 1990-93,
og einnig vilji þeir að leiga á hús-
næði verði endurskoðuð.
Brynjólfur segir að leigutakar
hafí náð því fram að engar hækk-
anir verði á rekstrarkostnaði nema
í samráði við þá. Einnig eigi allur
rekstrarkostnaður að verða sem
hagkvæmastur. Tekist hafí að
lækka ræstingarkostnað með nýju
útboði og samist hafí um lækkun
á rafmagnskostnaði.
Viðræður um lækkun leigu
Leigutakar hafa verið í viðræð-
um við stjórnvöld um lækkun á
leigu, segir Brynjólfur, en ekkert
er ákveðið í þeim efnum. Leigutak-
amir eru meðal annars Flugleiðir,
Landsbankinn, Póstur og sími og
íslenskur markaður og er leiga
algengust í flugstöðinni á bilinu
3.500 kr./m2 til allt að 13.500
kr./m2.
„Þetta verð er út úr kortinu,"
segir Brynjólfur. „Leigan er engan
veginn í samræmi við markaðsað-
stæður."
Enginn vill leigja
Hann nefnir sem dæmi að Póst-
ur og sími hafí flutt starfsemi sína
á jarðhæð yfir í húsnæði Lands-
bankans til að ná niður rekstrar-
kostnaði. Það segi sitt um leiguna
að enginn hafi sóst eftir hús-
næðinu sem Póstur og sími var í.
Brynjólfur segir að leigutakar
vilji leiðrétta ýmsa vankanta á
innheimtu leigunnar. Til dæmis
borgi Landsbankinn, sem er með
rekstur á tveimur stöðum í bygg-
ingunni, tvöfalt startgjald, þ.e.
bankinn borgar hæsta verð fyrir
fyrstu fermetrana á báðum stöð-
um.
Öryggisgæsla boðin út?
Logi segir að leigutakamir hafí
verið óánægðir með háan sameig-
inlegan kostnað, þar með talinn
kostnað við ræstingu, öryggis-
gæslu, hita og rafmagn. Hann
segir að leigutakamir hafí krafíst
þess að ræsting væri boðin út og
hefði þá náðst umtalsverður
spamaður.
Einnig hafí leigutakamir áhuga
á að bjóða út öryggisgæslu í flug-
stöðinni. Öryggisverðir starfa í
flugstöðinní og segir Logi að þeir
sinni ekki löggæslu, heldur al-
mennu eftirliti í byggingunni.
Útsendingar Sjónvarpsins frá HM ’94
Síminn tekinn af
vegna kvartana
KVARTANIR vegna beinna út-
sendinga Sjónvarpsins frá Heims-
meistarakeppninni í knattspymu
hafa verið miklar að sögn Gísla
Valdimarssonar útsendingarstjóra.
Hafí þær verið mestar 17. júní og
hafi þurft að taka símann af á tíma-
bili vegna álags. Þegar mest lætur
sé tekið við milli 20-30 símtölum
á dag frá óánægðum áhorfendum
auk þeirra sem hringi í skiptiborð-
ið. Segir Gísli að til standi að halda
fund hjá Sjónvarpinu að keppninni
lokinni vegna kvartananna.
„Fólk hefur hringt mikið og
kvartað vegna útsendinganna og
til dæmis var mikil óánægja með
það síðastliðinn laugardag að bíó-
myndum væri seínkað vegna fót-
boltans,“ segir Gísli. Aðspurður
hvort hægt sé að senda út á ann-
arri rás segir hann Sjónvarpið ekki
hafa yfír henni að ráða. „Eg held
að þetta sé spurning um kostnað.
Það væri lítið mál að senda út fyr-
ir Reykvíkinga og tiltölulega lítill
kostnaður þvi samfára en það væri
auðvitað ósanngjamt. Sé ætlunin
hins vegar að senda út fyrir allt
landið á sérstakri rás mætti gera
ráð fyrir kostnaði upp á 200 millj-
ónir,“ segir Gísli.
Fleiri kvarta núna en síðast
Aðspurður sagði hann að meira
hafí verið kvartað núna en vegna
síðustu heimsmeistarakeppni. Sé
skýringin hugsanlega sú að tíma-
munur sé ekki ýkja mikill milli
landanna og leikimir ekki sendir
jafn mikið út að kvöldlagi. „Verst
var það 17. júní þegar útsending
Sjónvarpsíns á þjóðhátíðardag-
skránni var rofin vegna opnunarhá-
tíðarinnar í Bandaríkjunum. Var
álagið svo mikið að við önnuðum
ekki ölium símtölum og þurftum
að taka Símann af á tímabili.“
Lýst eftir
manni
LÖGREGLAN í
Reykjavík hefur
lýst eftir tæp-
lega þritugum
manni, Valgeiri
Víðissyni. Síð-
ast er vitað um
ferðir Valgeirs
um miðnætti
19. júní er hann Valgeir
fór frá heimili Víðisson
sínu á Laugavegi.
Valgeir er lágvaxinn, grannur
og með skollitað hár. Hann var
klæddur í ljósbláar gallabuxur,
brúnan leðuijakka, köflótta
skyrtu og í brúnum, reimuðum
leðurstígvélum. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir Val-
geirs frá 19. júní eru beðnir um
að láta lögregluna í Reykjavík
vita.
Dæmdur
fyrir
skilasvik
ÓLAFUR Laufdal, veitingamað-
ur, hefur í Héraðsdómi Reylqa-
ness verið dæmdur í sjö mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
skilasvik. Dómurinn telur sannað
að Ólafur hafí sagt ósatt þegar
hann var í tengslum við gjaldþrot
sitt spurður hvort hann ætti fast-
eignir á Spáni.
Eftir að Ólafur var tekinn til
gjaldþrotaskipta kom í ljós að
hann átti húseignir á Spáni sem
hann keypti fyrir 18 milljónir
árið 1985. Ólafur hafði áður neit-
að því að hann ætti eignir á Spáni.
Ríkissaksóknari höfðaði því mál
gegn honum fyrir skilasvik. Dóm-
urinn taldi skýringar Ólafs ótrú-
verðugar á því hvers vegna hann
svaraði spurningu um eignir á
Spáni neitandi. Hann taldi því
sannað að um lögbrot hefði verið
að ræða.
Dómari í málinu var Gunnar
Aðalsteinsson.
Innanlands-
flug' tefst
ÞOKA hefur tafíð innanlandsflug
undanfarna daga, að sögn Inga
Sigurðssonar vaktstjóra Flug-
leiða á Reykjavíkurflugvelli. Þok-
an hefur lagst yfír þegar kvöldar
og ekkí horfíð fyrr en undir há-
degi næsta dag.
Sagði Ingi að flug til Vest-
mannaeyja, Akureyrar, Horna-
fjarðar, Egijsstaða, ísafíarðar og
Patreksfjarðar hafi tafist um 2-3
klukkustundir að morgni þriðju-
dags. Þá var ekki hægt að fljúga
til Vestfjarða og ekki var fært
til ísafjarðar og Akureyrar fyrr
en um hádegi í gær.
Sumarhús
brennur
SUMARBÚSTAÐUR við Miðdal
í V-Eyjafíallahreppi brann til
kaldra kola upp úr miðjum degi
í gær. Énginn var í bústaðinum
þegar eldurinn kom upp og hafði
hann staðið mannlaus frá síðustu
helgi.
Slökkviliði barst tilkynning um
eldinn kl. 14.10 í gær. Að sögn
lögreglunnar á Hvolsvelli fuðraði
húsið upp á um tuttugu mínútum
og fékk slökkviliðið ekki við neitt
ráðið. Upptök eldsins eru ókunn
en að sögn sjónarvotta virtist sem
hann kæmi upp í garðskála fram-
an við bústaðinn.