Morgunblaðið - 07.07.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Svernr
HINN nýi glerskáli framan við Iðnó hefur valdið töluverðum deilum innan borgarkerfisins og utan þess.
Formaður skipulagsnefndar um breytingamar á Iðnó
GUÐRÚN Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, telur að gler-
skálinn við Iðnó sé í ósamræmi
við þá kynningu, sem fram fór í
skipulagsnefnd og í borgarráði.
„Ég tel að glerbyggingin eins og
hún er sé eyðilegging á húsinu
og ég vil að hún verði tekin nið-
ur,“ sagði hún. Kostnaður við
nýtt gler gæti numið 4,6 miHjón-
Glerskálinn
verði tek-
Síðan hafi komið í Ijós að valið
hafi verið gler sem ekki er í sam-
ræmi við þá lýsingu. Húsfriðunar-
nefnd mótmælir þessari breytingu
og fer fram á að skipt verði um
gler í skálanum.
Yfirbyggt útivistarsvæði
um.
Umræður spunnust um gler-
skála framan við Iðnó á fundi
borgarráðs á þriðjudag og voru
þrjú bréf Iögð fram á fundinum
vegna hans. I erindi Margrétar
Hallgrímsdóttur borgarminja-
varðar segpr að Iðnó sé sögulegt
hús á viðkvæmum stað og því
mikilvægt að endurbygging þess
verði í samræmi við eiginlegan
byggingarstíl hússins og útlit
þess. Þá segir: „Glerbygging með
dökku gleri er þar í miklu ósam-
ræmi og alls ekki við hæfi. Lagt
er til að glerbyggingin í núver-
andi mynd verði fjarlægð og allar
ákvarðanir um viðbyggingu við
húsið endurskoðaðar. Best færi á
því að ekki verði ný viðbygging
við húsið og ytra útlit þess þannig
í samræmi við upprunalegt útlit.“
í bréfi Húsfriðunarnefndar rík-
isins til Teiknistofu Ingimundar
Sveinssonar kemur fram að þegar
hugmynd að glerskála var kynnt
nefndinni hafi komið fram að
hann yrði gegnsær þannig að
unnt yrði að sjá húsið fyrir innan.
ínn niður
Nýtt gler kostar 4,6 milljónir
UNNIÐ er að endurbótum jafnt innan Iðnó sem utan.
í bréfi Ingimundar Sveinssonar
arkitekts, segir að glerskálinn
hafi aldrei verið hugsaður sem
stækkun hússins í stil þess tíma
heldur sem yfirbyggt útivistar-
svæði sem tengdist Iðnó, þannig
að sem minnst yrði hróflað við
upprunalegri gerð hússins. Þá
segir: „Rétt er að taka fram að á
teikningum eða gögnum kom ekki
fram hvers konar gler átti að
koma í skálann, enda hafði ekki
verið tekin um það ákvörðun á
þeim tíma. Af líkani og Ijósmynd-
um af því hefði reyndar mátt ætla
að um venjulegt gler væri að ræða,
þótt teikningamar sjálfar sýni
mynd likari því sem við blasir í
dag.“
Fram kemur að upphaflega hafi
verið hugmyndin að venjulegt tvö-
falt gler yrði í skálanum með góðri
einangrun. Ábendingar og at-
hugasemdir hafi hins vegar komið
frá ráðgjafa, sem taldi að verulegt
vandamál mundi skapast vegna
hita og loftræstingar. Telur hönn-
uður að rétt sé að flýta sér hægt
við að ákveða breytingar á skálan-
um. Tæknilega sé ekkert þvi til
fyrirstöðu að skipta um gler.
Ekkert eftirlit með heitum
pottum utan sundstaða
ENGINN aðili hefur eftirlitsskyldu
með því að -lokar sem stýra hita-
stigi vatns í heitum pottum við sum-
arhús og hótel virki eins og til er
ætlast. Byggingayfírvöld taka út
slíkan búnað á byggingastigi en hjá
Vinnueftirliti rikisins fengust þær
upplýsingar að hvorki sú stofímn
né aðrar líti eftir því að slíkum
búnaði sé haldið við.
varði gesti og gangandi snúi eftir
atvikum almennt að byggingaryfir-
völdum eða heilbrigðiseftirliti í við-
komandi sveitarfélögum.
Jens Andrésson hjá Vinnueftirliti
ríkisins sagði að hlutverk Vinnueft-
irlitsins væri að fylgjast með atrið-
um sem lúti að öryggi, hollustu og
aðbúnaði starfsmanna en hlutir sem
Vinnueftirlitið hafi hins vegar
tekið að sér eftiriit með ýmsum
búnaði á sundstöðum, enda beri því
að líta eftir hreinsibúnaði og véiar-
sal. Eftir óhapp í sundlaug Kópa-
vogs í fyrra var sett á laggimar
nefnd að frumkvæði menntamála-
ráðuneytis með fulltrúum sveitarfé-
laga, SVFÍ og eftirlitsstofnana til
að setja nánari eftirlit með þáttum
sem lúta að öryggi sundgesta. Jens
sagði að í drögum að reglum sem
nefndin hefði samið væri m.a.
ákvæði um skilti sem sýni hitastig
vatns í heitum pottum við sundlaug-
ar þar sem hámarkshiti yrði 44
gráður, auk ákvæðis um að við
hvem pott skuli vera búnaður með
öryggisventli sem geri vart við ef
hitastig fer yfír mörk.
Grá svæði
Hins vegar sagði Jens að slíkt
eftirlit og slíkar reglur ættu ekki
við um aðra heita potta, hvorki við
sumarbústaði á vegum einstaklinga
eða félaga né hótel eða gististaði
eins og þann á Flúðum þar sem
banaslys varð vegna of heits vatns
í potti. „Ef starsfmenn hafa aðgang
að þessum böðum þá er mál Vinnu-
eftislitsins, en það má segja að þetta
sé eitt af mörgum gráum svæðum
varðandi eftirlit sem ekki hefur
verið skilgreint nægilega vel,“ sagði
hann og kvaðst telja að samkvæmt
gildandi lögum væri aðeins lögð
skylda á hendur byggingaryfírvalda
í viðkomandi sveitarfélagi að taka
út lagnir og búnað á byggingarstigi
en eftirlit með viðhaldi væri ekki
falið öðrum aðilum en eigendum í
hverju tilviki.
Reykjavík
Mikið frió
ílofti
MIKIÐ fíjó er í lofti í Reykja-
vík og jafnast magnið á við
góðviðrissumarið 1991 að sögn
Margrétar Hallsdóttur hjá
Raunvísindastofnun Háskólans.
Stofnunin hefur sent frá sér
yfírlit yfír helstu frjótölur júní.
Heildarfíjómagn í lofti í júní sl.
var 689 fíjókom á hvem rúm-
metra miðað við 797 í júní 1991
og 289 á sama tímabili í fyrra.
Mikið er af birkifíjói í lofti
og má því að mati Margrétar
vænta góðrar fræuppskeru í
haust, óiíkt síðasta ári. Hún
segir að ofnæmi fólks fyrir frjó-
komum stafí fyrst og fremst
af grasfrjóum en 2. og 3. júlí
sl. mældist mikið stökk í magni
þeirra og telur hún ástæður
þess vera mikinn hita undanfar-
ið. Grasfijó ná yfirleitt hámarki
seinni hluta júlí og getur fólk
með ofnæmi fundið fyrir þeim
fram í ágúst að sögn Margrétar.
Búast má við grasfíjóum alla
daga júlímánaðar, minna þá
daga sem úrkoma er eða loft-
raki hár en meira á þurram,
heitum dögum.
Skipað í
dómnefnd
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að tilnefna Soffíu Auði Birgis-
dóttur, Eirík Hrein Finnboga-
son og Huldu Valtýsdóttur í
dómnefnd um bókmenntaverð-
laun Tómasar Guðmundssonar.
Jafnframt er borgarstjóra falið
að beita sér fyrir endurskoðun
núgildandi reglna um verðlaun-
in.
Eiríkur Hreinn Finnbogason
er tilnefndur í dómnefndina af
Almenna bókafélaginu, Hulda
Valtýsdóttir er tilnefnd af
menningarmálanefnd og Soffía
Auður Birgisdóttir er tilnefnd
af borgarráði.
í bréfí Rithöfundasambands
íslands, sem lagt var fram á
fundi borgarráðs, segir að sam-
bandið sjái sér ekki fært að til-
nefna fulltrúa í nefndina.
Þrír sóttu
um starfið
ÞRJÁ umsóknir bárust um stöðu
aðstoðarvegamálastóra, en um-
sóknarfrestur rann út þann 1.
júlí.
Tveir umsækjendanna era Jón
Rögnvaldsson, settur aðstorðar-
vegamálastjóri, og Gunnar
Gunnarsson, lögfræðingur hjá
Vegagerðinni. Einn umsælqandi
óskaði nafnleyndar.
Innsetning
Jörmundar
í kvöld
INNSETNING Jörmundar Inga
sem allsherjargoða Ásatrúarfé-
lagsins verður á Þingvöllum í
12. viku sumars, þ.e. í kvöld.
Allsheijargoðinn mun koma
ríðandi niður Almannagjá við
blástur fomra lúðra. Lýst verð-
ur griðum og staðarhelgi að
fomum sið og lögsögumaður
segir upp lögin og lýsir kjöri.
Athöfnin verður í Öxarár-
hólma og að henni lokinni verð-
ur blótveizla í Hótel Valhöll.
Þar munu kvæðamenn kveða
og glímumenn reyna sig í fang-
brögðum.