Morgunblaðið - 07.07.1994, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ
, 40 FIMMTUÐAGUR 7. JÚLÍ 1994
KÍNA
N/ESTA SKEMMTI- OG FRÓÐLEIKSFERÐ TIL KÍNA
VERÐUR FARIN 16. SEPT., EN ÞETTA VERÐUR
22 DAGA FERÐ, VÍDSVEGAR UM LANDIO.
HEILDARVERD, ALLT MED ÖLLU, ER KR. 162.500,-
VIÐSKIPTAFERÐ Á VÖRUSÝNINGUNA f GUANGZHOU
(KANTON) VERÐUR FARIN ÞANN 12. OKT. OG KOMIÐ
HEIM ÞANN 23. OKT. FYRIR UTAN GUANGZHOU,
VERÐUR FARIDTIL HONG KONG OG BEIJING.
UNNUR GUÐJÓNSDÓTTIR, BALLETTMEISTARI, ER
FARARSTJÓRI FERÐANNA OG MUN KYNNA
FERDIRNAR í DANSI, MÁLI OG MYNDUM Á KÍNA-
KVÖLDI Á VEITINGASTADNUM SHANGHAÆ, SÍM116513.
UNNUR GEFUR UPPLÝSINGÁR UM FERÐIRNAR OG
TEKUR Á MÓTI PÖNTUNUM NÚ ÞEGAR í SÍMA 12596.
KÍNAKLÚBBUR UNNAR
Reykjahlíð 12,
sími 12596.
Vampyr 7100
1300 wött,
stillanlegur sogkraftur,
dregur inn snúruna,
4 föld sía
innbyggS fylgihluta-
geymsla.
Litur: Jökulgrá.
Ver& kr.14.501,-
Stgr. 13.776,-
◄gggjj
Vampyr 7200
1300 wött, stillanlegur
sogkraftur, 4 föld sía,dregur
inn snúruna,
innbyggð fylgihlutageymsla.
Litur: RauS.
Ver& kr. 15.742,-,-
Stgr. kr. 14.955,-
Vampyr 8200
1500 wött,
stillanlegur sogkraftur,
6 föld sía,
dreaur inn snúruna,
innbyggS fylgihlutageymsla.
Lifur: Hvít.
Verft kr. 16.735,-,-
Stgr. kr. 15.899,-
DlORMSSONHF
Lágmúla 8, Simi 38820
Umboismenn um land allt
■ r730
kraftmikil
1 300 wött
dregur inn
snúruna,4 föld sia
2 fylgihlutur,Litur: Ijósgrá.
ver6 kr. 13.678,-
Stgr. kr. 12.994,-
I DAG
Farsi
7-9
,CM994FaTCtgCartoonj2isjnbu|ed^^
UA/S&t-ASS/caocTUAa-T
// bókxxbct&iru i/'iLjc encbur-
t- þ&/~peningariCL."
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
ÞESSI STAÐA kom upp á
afar öflugu skákmóti í Las
Palmas á Kanaríeyjum í vor.
Búlgarinn Veselin Topalov
hafði hvítt og átti leik, en
Lettinn Aleksei Shirov var
með svart.
Sjá stöðumynd
Hvítur sem er manni undir
getur nú drepið á f8, en eft-
ir 26. exf8=D+ — Rxf8 verð-
ur hann að leggjast í vörn
vegna hótunarinnar 27. —
IIa8. Topalov fann sterkari
leik: 26. Re6! og Shirov gafst
upp, því eftir 26. — fxe6,
27. Dxg6+ - Kh8, 28. Hd4
blasir við mát á h4.
Gata Kamsky sigraði á
mótinu en Anatólí Karpov,
FIDE—heimsmeistari, mátti
gera sér annað sætið að
góðu. Aleksei Shirov er í
öðru sætinu á nýjum stiga-
lista FIDE með 2.740 stig á
eftir Karpov sem hefur
2.780. En hann var heillum
horfinn í Las Palmas og varð
með neðstu mönnum. FIDE
hefur enn ekki tekið þá Ka-
sparov og Short inn á stiga-
lista sinn.
COSPER
Umfram allt máttu ekki láta það finna að þú sért hræddur.
VELVAKANDI
svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til Svölu
FRIÐRIK Björgvinsson
hringdi og vildi þakka
Svölu Magnúsdóttur fyr-
ir að vekja athygli á gler-
bragganum við Iðnó,
þetta hús minninganna.
Hann vildi bæta við að
setja svona bankahólf
sem nef á gamla góða
Iðnó væri hreint ótrú-
legt. Og við sem ættum
frábæra arkitekta, s.s.
Þorstein Gunnarsson
(Viðeyjarstofa, Hólar í
Hjaltadal o.fl.). Hann
spyr: Hefur þessi snill-
ingur ekkert með þetta
að gera? Þverslaufumað-
urinn Haraldur Blöndal
ætti að halda sig við
gatnakerfi Reykjavíkur-
borgar.
Tapað/fundið
Gleraugu
töpuðust
SJÓNGLERAUGU í
dökkbrúnni umgjörð og
grænu hulstri töpuðust á
Stór-Reykj avíkursvæð-
inu í vikunni 6.-12. júni.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 626486 eða
42524. Fundarlaun.
Gallajakki fannst
GALLAJAKKI fannst
við Hafravatn sl. sunnu-
dag. Upplýsingar í síma
674281.
Svefnpoki
tapaðist
GRÆNN dúnpoki í blá-
um hlífðarpoka tapaðist
á leiðinni frá Asparfelli
út í Kaldasel sl. föstu-
dag. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 10130
eða 71440. Dagný.
Gleraugu fundust
SJÓNGLERAUGU í
brúnni og gylltri umgjörð
fundust við Silfurtún í
Garðabæ sl. föstudag.
Upplýsingar í síma
652486.
BRIDS
Umsjón Guóm. I* n 11
Arnarsun
„ÞIÐ SPILIÐ fjórða hæsta,
ekki satt?“ spurði suður og
tók ekki augun af hjarta-
þristinum sem lá á miðju
borðinu. Andstæðingarnir
játuðu því. Þá leit spilið
strax betur út.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G53
9 K6
♦ 9753
♦ 8642
Suður
♦ ÁK
9 1052
♦ ÁKDIO * KDG9
Vestur Norður Austur Suður
- - 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: hjartaþristur.
Hjartakóngurinn átti
fyrsta slaginn og hjarta
vamarinnar skiptist 4-4.
Allt eins og blómstrið eina,
en samt tapaði sagnhafi spil-
inu. Hvers vegna?
Hann var of sigurviss eft-
ir vel heppnaða byijun og
spilaði strax laufi í öðrum
slag. Vestur drap á ásinn og
vömin tók þrjá slagi á hjarta.
Sagnhafi vaknaði upp við
vondan draum þegar hann.
þurfti að finna afkast í síð-
asta hjartað. Hvort átti hann
að henda tígultíu eða lauf-
níu? hann valdi laufníuna.
Norður
♦ G53
9 K6
♦ 9753
♦ 8642
Vestur Austur
♦ D104 ♦ 98762
9 ÁG83 IIIIH 9 D974
♦ G842 111111 ♦ 6
♦ Á7 ♦ 1053
Suður
♦ ÁK
9 1052
♦ ÁKDIO
♦ KDG9
En var óheppinn.
Þetta er dæmigert vand-
virknisspil. Suður á að sjá
afkastvandræðin fyrir og
undirbúa sig með þvi að taka
AK í tígli áður en hann spil-
ar laufi. Þá veit hann frá
hvomm láglitnum hann á að
henda.
Yíkveiji skrifar...
Inn á ritstjórn Morgunblaðsins
barst fyrir skömmu fréttatil-
kynning, um að stofnuð hefði ver-
ið sérstök sveit gegn ofbeldi, sem
væri ætlað það hlutverk að
stemma stigu við ofbeldi í mið-
borginni. I fréttatilkynningunni
sagði að sveitin myndi vera á ferli
í miðborginni um helgar, stöðva
ofbeldi, taka óeirðarseggi úr um-
ferð og jafnvel grípa til borgara-
legrar handtöku, reyndist þess
þörf. Þá fylgdi sögunni að sveitin
starfaði með samþykki viðeigandi
yfirvalda.
Fréttatilkynningin kom blaða-
manni spánskt fyrir sjónir og þeg-
ar leitað var upplýsinga hjá lög-
reglu hafði hún ekkert af þessari
sveit heyrt. Yfirmaður hjá lögregl-
unni, sem kannaði málið, kvaðst
hafa fengið þau svör, að fréttatil-
kynningin væri í raun auglýs-
ingabrella, til að vekja athygli á
leikriti, sem sýningar voru að hefj-
ast á. Þar sem Morgunblaðið hafði
þegar sagt frá fyrirhuguðum leik-
sýningum ákvað blaðamaðurinn
að hafast ekki frekar að, enda
þótti honum fremur súrt í broti
að reynt hefði verið að blekkja
hann með þessum hætti.
xxx
Undrun blaðamannsins var því
mikil næstu helgi á eftir,
þegar fréttir glumdu úr viðtækinu
um framgang þessarar sveitar í
miðborginni. A mánudag ákvað
hann því enn að kanna hveiju
sætti, en fékk sem fyrr þær upp-
lýsingar hjá lögreglu, að sveitin
væri auglýsingabrella. Aðstand-
endur leikritsins hefðu verið á ferli
í miðborginni um helgina, en lög-
reglan hefði vísað þeim til síns
heima, þar sem þeir hefðu verið
að grípa inn í störf hennar. Þá
sagði annar yfirmaður innan lög-
reglunnar að hlutaðeigandi yfir-
völd, til dæmis íþrótta- og tóm-
stundaráð, hefðu ekkert viljað við
þessa sveit gegn ofbeldi kannast.
Víkveiji verður að viðurkenna að
þarna þykir honum leikhópurinn
hafa seilst ansi langt til að vekja
athygli á sýningum sínum.
xxx
Víkveiji lagði leið sína í Kringl-
una fyrir nokkrum dögum
til að sækja símaskrána sína og
kaupa eina kippu af bjór í leið-
inni. Klukkan var rétt liðlega sex
en Víkverji taldi sig hafa nægan
tíma til að reka erindi sín, enda
opið til klukkan hálf sjö. En annað
kom á daginn. Allar verzlanir
Kringlunnar voru opnar svona
lengi nema tvær, nefnilega póst-
húsið og ríkið! Þessar tvær þjón-
ustustofnanir voru lokaðar klukk-
an sex.
Þetta telur Víkverji alveg dæmi-
gert fyrir opinberar stofnanir sem
geta farið sínu fram í krafti einok-
unar. Sem betur fer eru ýmis teikn
á lofti um að báðar þessar stofnan-
ir þurfi innan skamms að mæta
stóraukinni samkeppni. Sú tíð _er
sem betur fer liðin að fólk á Is-
landi láti bjóða sér hvað sem er.