Morgunblaðið - 07.07.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994 39
BRÉF TIL BLAÐSINS
BRÉFRIT^RI skorar á fólk að athuga rétt sinn í stéttarfélagi
sínu, svo það lendi ekki í þeirri aðstöðu sem um getur í bréfinu.
Stolin reiðhjól -
neyðarkall!
Ert þú
félags-
maður?
Frá Herdísi Brynjarsdóttur:
ÉG LENTI í þeirri ógæfu að missa
manninn minn í vinnuslysi. Hann var
verkamaður og borgaði sín stéttarfé-
lagsgjöld til Dagsbrúnar í nokkur
ár samfleytt. Því hélt ég að hann
væri skráður félagsmaður, en annað
kom á daginn þegar hann féll frá
og ég fór að leita réttar míns hjá
Dagsbrún.
Þar var mér sagt að hann hafði
ekki verið fullgildur félagsmaður
vegna þess að hann sótti ekki form-
lega um félagsaðild á þar til gerðu
formi. Mér var neitað um dánarbæt-
ur, þar sem Dagsbrún líftryggir ein-
göngu fullgilda félagsmenn, og
stóðu forsvarsmenn félagsins fast á
því að líta ekki á Siguijón, manninn
minn, sem fullgildan féiagsmann —
þótt hann hefði greitt til félagsins
til nokkurra ára.
Réttur minn er enginn
Dagsbrún auglýsir að félagsmenn
þess séu slysatryggðir allan sólar-
hringinn, allan ársins hring, en þau
félagsgjöld sem maðurinn minn
greiddi hafa verið til einskis, þar sem
réttur minn til þess að sækja dánar-
bætur við fráfall hans var enginn.
Skylduaðild að stéttarfélagi er
ekki lengur til staðar, og þess vegna
væri það nauðsynlegt og sjálfsagt
að stéttarfélög sendi félagsmönnum
sem greitt hafa til félagsins í þijá
mánuði eða lengur umsóknareyðu-
blöð, ásamt greinargóðum upplýs-
ingum um mismunandi rétt þeirra
sem eru fullgildir félagsmenn, þ.e.
þeirra sem sótt hafa um formlega
og þeirra sem ekki æskja þess að
vera í stéttarfélagi. Slíkar upplýs-
ingar höfðum við hjónin aldrei séð.
Það ætti ekki að vera erfitt fyrir
stjórnendur Dagsbrúnar eða annarra
stéttarfélaga að tölvukeyra lista yfir
þá sem borga til félagsins, á þriggja
til sex mánaða fresti, og senda
tryggingafélagi sínu, þannig að þeir
sem hafa borgað félagsgjöld í þijá
mánuði eða lengur séu tryggðir og
skráðir sem félagsmenn (eftir að
þeir óska eftir félagsaðild) og öðlist
réttindi samkvæmt því. Þeir sem
hunsa slíkar upplýsingar eru í raun
að neita félagsaðild.
Það ætti að vera skylda verkalýðs-
félaganna að sjá til þess að þeir sem
eru „ófullgildir" verði fullgildir fé-
lagsmenn, því þessi tveir hópar
borga jafnt í félagsgjöld.
Athugið rétt ykkar!
Verkalýðsfélögin ættu að standa
vörð um rétt þeirra sem vilja vera í
stéttarfélagi og greiða sín gjöld
reglulega, en standa í þeirri trú að
innborguð gjöld séu ígildi félagsað-
ildar.
Ég er ansi hrædd um að það séu
fleiri en ég sem standa í þeirri trú
að þeir eða makar þeirra séu fullgild-
ir félagsmenn vegna þess að þeir
hafa greitt reglulega til félagsins.
Því skora ég á fólk að athuga
rétt sinn í stéttarfélagi sínu svo að
það lendi ekki í minni aðstöðu.
Það er nógu sárt og erfitt að missa
ástvin sinn, þó ekki þurfi að hafa
íjárhagsáhyggjur og vita ekki hvern-
ig eigi að framleyta sér og börnum
sínum.
HERDÍS BRYNJARSDÓTTIR,
ekkja Dagsbrúnarmanns,
Sundlaugavegi 10, Reykjavík.
Frá Guðrúnu Ólafsdóttur:
REIÐHJÓLAÞJÓFNAÐUR hefur
færst í vöxt og í Reykjavík hafa
borist u.þ.b. 250 tilkynningar til lög-
reglunnar um þjófnað á reiðhjólum
fyrstu sex mánuði ársins. í fyrra var
talan 435 yfir allt árið.
Er þetta orðin slík plága að hjól-
reiðafólk getur varla skilið eftir far-
kosti sína úti við, því óprúttnir ná-
ungar svífast einskis og draga upp
tól sín og saga í sundir lásana ef
svo ber undir, jafnvel í augsýn ann-
arra. Þannig tapa margir hjólunum
sínum í hendur þeirra sem svo marg-
ir hveijir losa sig við þau fyrir pen-
ing.
Reiðhjól eru misdýr, sum hver
slaga hátt í 100.000 kr. eða jafnvel
þar yfir. Reiðhjólaþjófar slægjast
auðvitað oft eftir þessum dýrari hjól-
um og selja þau svo á margfalt lægra
verði, hveijum sem vi!l. Dæmi er um
að þeir reyni að selja þau sjómönnum
á útlenskum skipum, í Kolaportinu,
eða jafnvel úti á götu. Sá sem kaup-
ir stolið reiðhjól er í klípu, hann er
ekki réttlátur eigandi hjólsins frekar
en þjófurinn þrátt fyrir að hafa borg-
að fyrir það. Láttu ekki blekkjast.
Það getur hljómað vel að geta feng-
ið vel útbúið fjallahjól á 20.000 hjá
einhveijum manni úti á götu í stað
þess að borga fyrir það 80.000 kr.
úti í búð. En staðreyndin er sú að
þeir sem kaupa stolin hjól eru í raun
meðsekir þjófnum og geta allt eins
átt von á því að mæta hinum rétta
eiganda hjólsins sem getur auðvitað
krafist þess að fá hjólið sitt til baka.
Þetta er leiðindamál fyrir alla nema
þjófinn, sem græðir illa fengið fé.
Til að kippa fótunum undan þess-
ari gróðastarfsemi þarf að eyði-.
leggja markaðinn fyrir þessi hjól sem
tekin eru ófijálsri hendi. Ef þú ætlar
að kaupa notað hjól þarftu að vera
viss um að það sé ekki stolið, að sá
sem er að selja það sé hinn rétti
eigandi þess. Það getur verið erfitt
að vera viss um að hjólið sé ekki
stolið. Best er að þekkja eigandann
og hægt er að biðja um sölunótu sem
fólk vonandi varðveitir þaðan sem
hjólið var upphaflega keypt. Fyrir-
tækið Vari hefur verið hjólreiðafólki ^
innan handar og boðist til að skrá
hjól. Þannig að reynandi er að hafa
samband við þá og athuga hvort
þeir hafi upplýsingar um viðkomandi
hjól. Tekið skal fram að lögreglan
heldur ekki skrá yfir stolin hjól,
þ.e.a.s. upplýsingar um hvert og eitt,
þannig að ekki er hægt að leita til
hennar til að athuga hvort ákveðið
hjól sé stolið. Til að vera öruggur
um að kaupa ekki köttinn í sekknum
er best að kaupa aldrei hjól af ein-
hveijum sem maður þekkir ekki.
Til að sporna við reiðhjólaþjófnaði
verður að gera þjófunum erfitt fyrir
þegar þeir vilja losna við hjólin. Ef
enginn markaður er fyrir stolin hjól
er ekki lengur gróðavænlegt að saga
í sundur hjólalása út um allan bæ.
Þetta veltur á þér, neytandi góður,
farðu varlega í sakirnar þegar þú
hefur hug á því að kaupa notað hjól.
Vertu viss um að það hafi ekki ver-
ið tekið ránshendi, þannig gerirðu
sjálfum þér greiða og einnig þeim
rétta eiganda sem situr eftir með
sárt ennið, hjólhestalaus.
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
félagi í íslenska fjallahjólaklúbbnum,
Miklubraut 20, kj., Reykjavík.
Kynningardagar í Habitat:
Boun
húsgö
FATASKAPAR
Vandaðir og fallegir skápar. Tvær gerðir.
HILLUR
Stórar og
litlar hillur.
• —- ~v~
' * » : t v: '
K0MM0ÐUR
Ýmsar stærðir.
3, 5 eða 6 skúffur.
RUM 0G NATTBORÐ
Rúm með eða án fótagafls. Breiddir 90, 140 og 160 cm.
habitat
HÚSQÖQN FINQÖNQU
ÚR HÆKTUDUM 8KÓQII
s
<1
habitat
LAUGAVEGI 1 3 - SIIVII (91) 625870
OPIÐ VIRKA DAGA 10.00 - 18.00 OG LAUGARDAGA 10.00 - 14.00
KISTUR
Hentugar geymslur fyrir fatnað,
rúmteppi, sængurverasett o.fl.
ÖLL HELSTU GREIÐSLUKJÖR:
VISA
r) ^
- ' —iXlan
HABITAT í 30 ÁR Á ALÞJÓÐAVETTVANGI 1964 - 1994 • ÍSLAND • ENGLAND • FRAKKLAND • SPÁNN • HOLLAND • SINGAPORE • MARTINIQUE • BELGÍA