Morgunblaðið - 07.07.1994, Page 7

Morgunblaðið - 07.07.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1994 7 FRÉTTIR Tveir gríð- arstórir í Vesturdalsá EFTIR frísklega bytjun, hefur veiði dalað í stóru ánum í Vopnafirði. Að sögn Garðars H. Svavarssonar, veiðimanns að Vakursstöðum í Vopnafirði, bíða menn nú spenntir eftir framvindu mála. Veiðin hafi hafi farið vel af stað, en dalað til- tölulega fljótt aftur. „Aftur á móti opnaði Vesturdalsá vel. Þar er kominn all mikill lax og þeir sem opnuðu ána fengu sex laxa fyrstu vaktina," sagði Garðar og bætti við að miðað við aðstæður vænti hann þess að góð veiði verði næstu daga. „Þetta lítur mjög vel út í Vesturdalsá og meðal þeirra mörgu laxa sem í ána eru komnir, eru tveir verulega stórir. Best að spá ekkert í þyngdina, en menn hafa verið að velta fyrir sér mjög háum tölum í því sambandi," sagði Garðar. Þær stóru dala Mjög dauf veiði hefur verið í Hofsá síðustu dagana eftir frísklega byij- un. Garðar sagði 63 laxa hafa ver- ið komna á land á þriðjudagskvöld og síðdegisvaktin þann daginn gaf aðeins tvo laxa. Annan veiddi hann sjálfur, 10-11 punda fisk, sem var óvenju lúsugur. „Sá fiskur var von- andi vísbending um að eitthvað sé í uppsiglingu,“ sagði Garðar. Ingvar Viktorsson fyrrver- andi bæjarstjóri í Hafnarfirði og Páll Pálsson ferðamála- stjóri bæjarins fengu þessa fallegu iaxa í Laxá í Kjós. Selá er á sama róli og Hofsá og hafði gefið um 60 laxa á þriðjudags- kvöldið. Hæfir veiðimenn voru í ánni, kempurnar Walter Lenz og Hermann Jónsson ásamt fleirum, en áin er enn gríðarlega mikil og ekki að fullu tær enn sem komið er. Mikil snjóalög eru enn í fjöllum og taldi Garðar, tíðindamaður Morgunblaðsins á þessum slóðum, að snjórinn myndi endast ánum vel fram í ágúst. Hofsáin er einnig mikil, en þó tær að stærstum hluta. Þokkalegt ástand í Flóku A hádegi á þriðjudag voru komnir 33 laxar á land úr Flóku, en þar hófst veiði 20. júní. Að sögn veiði- manna sem voru að koma úr ánni, er talsvert gengið af laxi og fiskur kominn fram í Múlastaðafoss. Hóp- urinn fékk 3 laxa á tveimur dögum, ekki mikla veiði, en allir fiskarnir voru grálúsugir og töldu menn sig mega vel við una, því aðstæður til veiðiskapar voru afleitar. Lofthiti allt að 25 gráður og áin heit eftir því. Tilboð júlímánaðar: et’nhá tta* \W Hvað er Kvarg? HUMAR, BAKAÐUR UNDIR CRILLI, í KÍLÓAVÍSH HÁLFT KÍLÓ KR. 1.700,- EITT KÍLÓ KR. 2.900,- EITTOG HÁLFTKÍLÓ KR. 4.200,- M/HVÍTLAUKSBRAUÐI, SALATI 06 SALSA. ÓTRÚLEGT VERf> ÞÚ BARA VERf>UR!í! sima I jgg, - — —Í Trrvir ' ’ ‘ mmmtt sm v//i fs'< f</*•/><-/-/*fstt ðlflllf -mS- Nú fá íslenskir neytendur að gæða sér á Kvargi - nýrri, undurgóðri mjólkurafurð! Kvarg er ekki eins og skyr og ekki eins og jógúrt - en eitthvað einstaklega ljúffengt þar á milli. Margir íslendingar þekkja Kvargið erlendis frá en þessi eftirsótta mjólkurafurð er upp- runnin í Mið- og Austur-Evrópu. Mikið hefur verið lagt í þróun Kvargsins hér á landi og hefur sérstök áhersla verið lögð á bragðgæðin og rétta þykkt og áferð. Við erum afar stolt af útkomunni: Kvargið er meiriháttar gott á bragðið og leynir sér ekki að það er unnið úr íslensku úrvals hráefni. Kvarg er til með jarðarberjum, bláberjum og blönduðum ávöxtum og er kjöríð á morgnana, í hádeginu og sem eftirréttur. II ógí jymanlega gott nmr MJÓLKURSAMSALAN Humar sumar á Hótel Valhöll

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.