Morgunblaðið - 12.07.1994, Side 4

Morgunblaðið - 12.07.1994, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 HM I KNATTSPYRIUU MORGUNBLAÐIÐ Reuter Branco, til hægri, faðmar mið- herjann Romario að sér eftir sigurinn gegn Hollandi. „Mikilvæg- astamark á ferlinum“ „ÞETTA slekkur ífólki, sem hafði ekki trú á mér,“ sagði varnarmaðurinn Branco eftir að hafa gert sigurmark Brasil- íu gegn Hollandi. „Ég hef leik- ið í þremur heimsmeistara- mótum og tel að ég eigi skilið að fá meiri virðingu," bætti hann við. Branco sagði að markið væri það mikilvægasta, sem hann hefði gert á ferlinum. „Markið var fyrir fólkið, sem trúði ekki á mig, fólkið, sem sagði að ég væri ékki nógu góður og ætti ekki að leika með landsliðinu. En guð gaf mér tækifærið til að endurgjalda traustið, sem samheijamir, stjórn- endur liðsins og læknalið hafa sýnt mér. Þetta var mikilvægasta mark mitt á ferlinum." Margir í Brasilíu óttuðust að Branco stæði sig ekki gegn Hol- lendingum, sérstaklega þar sem hann hefur ekki leikið í mánuð, og var talið að Marc Overmars, sem lék írsku vörnina grátt, færi illa með hann, en annað kom á daginn. „Stór orð féllu vegna þess að ég var valinn í liðið og ég var undir miklum þrýstingi. Hægri kantmaður Hollendinga [Overm- ars] er besti leikmaður liðsins, en ég hélt honum niðri.“ Sigurmark Brancos kom á 81. mínútu. „Ég leit á klukkuna, sá að 10 mínútur voru til leiksloka og sagði við sjálf- an mig: „Það verður að vera núna.““ Branco, sem var með Brasilíu gegn íslendingum 4. maí, lék á laugardag 74. landsleik sinn, en valið á honum í hópinn fyrir HM var harðlega gagnrýnt í Brasilíu. Sagt var að hann hefði misst hraða og væri hreinlega ekki í nógu góðri æfingu auk þess sem hann virtist ekki lengur hafa sama hæfileika og áður til að skora með langskot- um. LeonardOj sem kom inn á fyr- ir hann gegn Islandi á 63. mínútu, hélt stöðunni í liðinu, sem benti til þess að Parreira þjálfari hefði ekki sömu trú á Branco og áður. Branco sagði að í kjölfarið hefði fylgt erfið- asti mánuðurinn á ferlinum. „Ég hef lagt mjög mikið á mig og æft einn, en aldrei gefist upp,“ sagði hann. Hann hefur ávallt þótt ástríðu- fullur í landsleikjum, en gekk of langt þegar hann skoraði í æfinga- leik gegn Paraguay í fyrra. Hann hljóp að stuðningsmönnum, sem höfðu púað á liðið, og benti þeim á merki Brasilíu á búningi sínum, en það pirraði áhorfendur enn meira. Samherjar Brancos sögðu að viðbrögð hans eftir markið gegn Hollendingum, hefðu verið á sömu nótum. „Hann losnaði við eitt- hvað,“ sagði Mauro Silva. „Hann hefur gengið í gegnum margt og þjáðst mikið, en við höfum alltaf stutt hann.“ Frábær seinni hálfleik- ur og Brasilía fór áfram BRASILÍA er komið í undanúrslit HM ífyrsta sinn síðan 1978 eftir 3:2 sigur gegn Hollandi. Fyrri hálfleikur var markalaus og óvenju daufur, en sá síðari var hreint út sagt frábær. „Hann hafði upp á allt að bjóða, sem einkennir góðan knattspyrnu- leik,“ sagði Dick Advocaat, þjálfari Hollendinga. „Þetta var einn af bestu leikjum keppninnar hjá tveimur sókndjörfum liðum,“ bætti Carlos Parreira, þjálfari Brasilíumanna, við og hrósaði mótherjunum fyrir að gefast ekki upp í Dallas, þegar staðan var 2:0 fyrir Brasilíu. Vamarmaðurinn Branco tók stöðu Leonardos, sem fékk fjögurra leikja bann, og var í fyrsta sinn í byijunarliði Brasilíu í keppn- inni. Hann innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki úr aukaspymu, sem hann fékk sjálfur 35 metra frá marki. Romario braut ísinn með fal- legu marki eftir góða sendingu frá Bebeto, sem bætti öðru við eftir að hafa komist einn inn fyrir og leikið á Ed de Goey, markvörð, en í báðum mörkunum var Jan Wouters illa á verði. Dennis Bergkamp minnkaði muninn í næstu sókn og Aron Wint- er jafnaði með skalla á 77. mínútu eftir homspymu. Taffarel, mark- vörður Brasilíu, hikaði í úthlaupinu, sem kostaði glæsilegt mark en Bras- ilía fékk síðast tvö mörk á sig í HM-leik gegn Ítalíu 1982. Dick Advocaat sagði að jafnræði hefði verið með liðunum, en í lokin „var það heppnara liðið, sem sigr- aði. Brasilía er með heimsklassa lið og ég verð að hrósa liði mínu fyrir hvernig það lék, sérstaklega þegar það breytti stöðunni úr 2:0 í 2:2.“ Miðjumaðurinn Rob Witschge gagnrýndi dómarann Rodrigo Ba- dilla frá Costa Rica og línuverði hans. „Bebeto var tvo eða þijá metra fyrir innan, þegar hann gerði annað mark Brasilíu. Dómarinn var hræðilegur og sérstaklega línuvörð- urinn.“ Heyra hefði mátt saumnál detta í búningsherbergi Hollend- inga eftir leikinn. „Það var erfitt að sætta sig við þetta og við þurfum langan tíma til að jafna okkur, en svona er knattspyrnan," sagði Witschge. „Leikmennirnir em of niðurbrotnir til að tala um leikinn," sagði Advocaat. „En við getum borið höfuðið hátt og ég er hreykinn af strákunum mínum.“ „Þetta var einn af dramatískustu leikjum keppninnar," sagði Carlos Alberto Parreira. „Við vorum með- vitaðir um hæfíleika hollenska liðs- ins, sem gerði allt, sem ég átti von á. Við gáfum þeim ekki tækifæri til að skapa marktækifæri — mörk þeirra komu eftir innkast og horn. Við sýndum andlegan styrk og náð- um okkur enn einu sinni út úr vand- ræðum.“ Branco tók undir með þjálfurun- um um ágæti Hollendinga. „Lið, sem er 2:0 undir og jafnar 2:2 er ákveðið og mjög gott.“ „Við sýndum að lið okkar er til- búið,“ sagði Romario. „Mörg lið hefðu brotnað eftir að hafa misst niður 2:0 forystu, en við sýndum að við erum nógu góðir til að verða meistarar og Hollendingar eru með besta liðið, sem við höfum mætt.“ Skoradi fyrir soninn BRASILÍSKI framherjinn Bebeto eignaðist son í síðustu viku og hafði nánast lofað því fyrir leikinn gegn Hollandl að skora fyrir sonlnn. Bebeto stóð við loforðið og fagnaði markinu með tilþrifum; með því að vagga ímynduðu barni í fangi sér. Mazinho, t.v., tók þátt í atriðinu og síðar Romario. ■ THOMAS Ravelli markvörður Svía lék sinn 115. landsleik gegn Rúmenuin og jafnaði þar með sænskt landsleikjamet Björns Nordqvist. Ravelli sagði það hafa hvatt sig mjög til dáða fyrir leikinn að hann fékk símbréf frá Nordqvist þar sem hann óskaði honum góðs gengis og að hann myndi líka slá metið í keppninni með fleiri leikjum. ■ RA VELLI var ómyrkur í máli í garð Rúmena eftir leikinn. Hann sagði að Dumitrescu hefði hrækt í andlitið á sér í leiknum og síðan öskrað á sig eftir að hann skoraði í vítaspyrnukeppninni. ■ SIGUR Svía er besti árangur þeirra síðan 1958 er þeir voru í úrslitum gegn Brasilíu. Göteborgs Posten telur þennan árangur þann besta í sænskum íþróttum síðan Ingemar Johansson varð heims- meistari í hnefaleikum 1959. Árangur Svía í HM í handknattleik kemst hins vegar hvergi á blað. ■ JÖFNUNARMARKIÐ sem Kennet Andresson skoraði í fram- lengingunni, þar sem hann stökk hærra en markvörður Rúmena, var ekki fyrsta slíka markið sem hann skorar. í undanúrslitaleiknum gegn Þjóðverjum í EM 1992 gerði And- ersson nánast eins mark gegn Bodo Ulgner. Hann hefur nú feng- ið gælunafnið „kengúran". ■ EFTIR vítaspyrnukeppnina var bent á að vítapunkturinn hefði leg- ið í dæld og þess vegna hefði Mild skotið yfir úr fyrstu spyrnunni. Mönnum hafi hins vegar hug- kvæmst í framhaldinu að leggja boltann við hlið vítapunktsins. Grétar Þór Eyþórsson skrifar frá Sviþjóð Hagur Brasilíu vænk- ast hjá veðbönkum Brasilíu hefur ávallt verið spáð mikilli velgengni í yfirstandandi HM- keppni og jafnan talið sigurstranglegast, eitt sér eða ásamt Þýska- landi. Brasilía er eina þjóðin, sem hefur átt lið í öllum 15 úrslitamótum HM, en hefur ekki leikið í undanúrslitum síðan 1978 og eftir leiki helgar- innar eru möguleikar liðsins á heimsmeistaratitlinum taldir vera 11-10 hjá veðbönkum í London (gangi dæmið upp fást 11 krónur fyrir hverjar 10, sem eru lagðar undir). Möguleikar Ítalíu eru taldir næst mestir, 5-2. Möguleikar Svía og Búlgara hafa einnig aukist til muna, en fyrir keppn- ina voru líkurnar á því að liðin sigruðu á HM þær sömu, 40 á móti einum. Brellan frá Parma Tomas Brolin leikmaður með Parma á Ítalíu átti stóran þátt í sigri Svía gegn Búlgaríu. Auk þess að vera einn best leikmaður liðs- ins var það hann sem gerði fyrsta markið, eftir aukaspyrnu. Brellan á bak við aukaspyrnunan var fengin að láni hjá Parma og æfðu Svíar hana með mikilli leynd daginn fyrir leikinn. Þegar Parma reyndi þessa brellu gegn Degerfors í Evrópukeppninni í fyrra, mistókst hún gersamlega. Brolin hvíslaði að Thomas Raveili markverði Svía fyrir vítspyrnu- keppnina að hann ætti að bíða í lengstu lög á marklínunni og slá þannig Rúmenana út af laginu. Gerði Ravelli mikið úr mikilvægi þessarar ráðgjafar í viðtölum eftir leikinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.