Morgunblaðið - 12.07.1994, Page 10

Morgunblaðið - 12.07.1994, Page 10
10 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MEISTARAMÓT GOLFKLÚBBANNA Þorsteinn meistari íEyjum Jakobína Guðlaugs- dóttir sigraði örugg- lega í meistaraflokki kvenna Það var gaman að verða fyrstur til að vinna meistaramót á 18 holu velli hér í Eyjum. Þessar nýju níu holur eru ótrúlega góðar miðað við að þær Sigfús Gunnar eru aðeins eins árs Guðmundsson gamlar, en nokkuð skrífar frá erfiðar í öftustu yjum teigum/* sagði Þor- steinn Hallgrímsson, Islandsmeist- ari, sem sigraði á meistaramóti Golfklúbbs Vestmannaeyja. „Ég tel það vel þess virði fyrir aðkomumenn að koma og prófa völlinn eftir að hann er orðinn 18 holur — þetta er besti völlur á landinu. Skorið var svona upp of ofan hjá mér enda er ég í lítilli æfingu. Þetta mót var fyrst og fremst æfing hjá mér fyrir Landsmótið. Það er slæmt að geta ekki lagt sig allan fram í golfinu, en þetta ár fyrst og fremst í að ná sér góðum af bakmeiðslunum. Ég bjóst allt eins við að geta ekkert spilað í ár, þannig að árangurinn er framar vonum. Ég fer síðan á Landsmót með því hugarfari að hafa gaman af því, en set mér ekkert takmark, þar sem ég er í raun þremur til fjórum mánuðum á eftir í æfingu,“ sagði Þorsteinn. Jakobína Guðlaugsdóttir sigraði mjög örugglega í meistaraflokki kvenna að vanda. Lék á 367 högg- um. Leikið var í drengjaflokki í fyrsta sinn í þessu meistaramóti og það var náfrændi Þorsteins Hallgrímssonar, Karl Haraldsson sem sigraði örugglega í flokknum. Morgunblaðið/Frosti B. Eiðsson Meistarinn I fullri sveiflu. Slgurjón Arnarsson hafði nokkra yflr- burði á meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur og vann í sjötta sinn. Sjötti sigur Siguvjóns SIGURJÓN Arnarsson sigraði í sjötta sinn í meistaraflokki á meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur. Sigurjón lék jafnt og vel, lauk 72 holunum á 294 höggum sem að öllum líkind- um er lægsta skor sem náðst hefur i meistaramóti GR. rátt fyrir að Siguijón væri fímm höggum á undan næsta manni sagði hann að þetta hefði ekki verið auðveldur sigur. „Ég var raunar fyrstur allan tímann, en fyrir síðasta hringinn átti ég aðeins tvö högg, en tókst að breikka bilið fljótlega þannig að munurinn var oftast fímm til sex högg. Sigurinn var því aldrei í hættu, en ég lék síðari níu holum- ar mjög illa síðasta daginn. Eftir fyrri níu var ég einn undir en lék síðan á fímm yfír síðari níu,“ sagði Siguijón í samtali við Morgunblað- ið. Þess má geta að hringina fjóra lék Siguijón á tíu höggum yfír pari og þar af síðustu níu holumar á fímrn ydir pari. „Ég er ánægður með að hafa varið titilinn og ánægðastur er ég með að ég lék jafnt og vel. Það er hlutur sem ég hef verið að bíða eftir í sumar og nú er ég að vona að ég sé að toppa á réttum tíma, því það styttist í Landsmótið á Akureyri," sagði Siguijón sem varð fyrst meistari hjá GR árið 1987. í kvennaflokki varð keppnin ekki eins spennandi og búast hefði mátt við því Ragnhildur Sigurðar- dóttir sigraði með níu högga mun. Munurinn á henni og Herborgu Arnarsdóttir, systur Siguijóns, lá fyrst og fremst í fyrstu tveimur hringjunum en þá lék Ragnhildur vel en Herborg illa. Þann mun tókst Herborgu ekki að vinna upp. Kúlan hennar ömmu Hjátrú íþróttamanna tekur á sig ýmsar myndir og eru kylfíngar engin undantekning. í meistaramótinu hjá Golfklúbbi Suðumesja lék 19 ára strákur í 1. flokki, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Amma hans, Gerða Halldórsdóttir, sem sigraði í kvennaflokki, hefur lengi verið í golfinu og er nokkuð góð þann- ig að Guðmundur Rúnar tapaði stundum fyrir henni, þegar hann var að byija. Annan dag keppn- innar var hann meðal annars með meistaranum í 1. flokki, Kristni Óskarssyni körfuknattleiksdóm- ara, og þegar þeir koma á teiginn spyr Kristinn eitthvað í þá vemna hvort hann ætli nú að vinna ömmu gömlu í dag. Guðmundur Rúnar upplysti þá Kristinn um að amma hans væri nýkominn inn og hefði leikið á 82 höggum og verið nokkuð ánægð með það og látið hann hafa kúluna sem hún hafði leikið með allan hringinn. Guðmundur Rúnar notaði kúluna og lék á tveimur höggum undir pari vallarins! En sagan er ekki búin. Síðasta dag mótsins ætlaði Guðmundur Rúnar að nota kúluna góðu og lék fyrstu tvær holurnar á pari, sem er gott í Leirunni. Þegar komið var á Bergvíkina illræmdu sló Guðmundur Rúnar hins vegar í sjóinn og glataði þar með kúl- unni góðu. Meistarinn fór holu í höggi í fyrsta skipti Oruggt hjá Karen Meistarinn hjá golfklúbbi Suð- umesja, Sigurður Sigurðs- son, náði þeim skemmtilega áfanga að fara holu í höggi í mótinu. Sig- urður gerði þetta á 16. braut á fyrsta degi mótsins, sló metrana 153 með sjö jámi. „Ég var með Helga Þórissyni og Gylfa Kristins- syni í riðli og við Gylfí héldum að kúlan væri fyrir aftan holuna en Helgi sagði að hún væri í. Skyggn- ið var slæmt þannig að við sáum þetta ekki vel. Síðan þegar við kom- um nær og sáum að kúlan var í varð að gera tveggja mínútna hlé á öllu golfi á vellinum því ég varð svo ofsalega kátur," sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið. Þetta er í fyrsta sinn sem Sigurður fer holu í höggi í þau 23 ár sem hann hefur leikið golf. Sigurður lék fyrsta hringinn á 68 höggum sem er mjög gott síðan komu 79 högg, 77 og loks 78 högg. Samtals 302 högg, tveimur færri en Páll Ketilsson notaði en hann varð í öðru sæti. „Fyrsti dagurinn var ágætur hjá mér, bæði góur og sætur, en hitt var hálfgert rugl. Páll náði að jafna við mig enda í kvennaflokknum komst hann í mikið stuð við að. pútta, sullaði bókstaflega öllu niður um tíma. En á sjautjándu holu missti hann teighöggið og þá var þetta búið,“ sagði Sigurður. „Ég spilaði ekkert illa en gekk hræðilega að pútta og ég verð að hugsa minn gang þar. Ætli ég verði ekki bara að fara að poútta örv- hent, Ég notaði 35 til 37 pútt á hring í mótinu og það er of mikið," sagði meistarinn á Suðumesjum. Karen Sævarsdóttir var öruggur sigurvegari í meistaraflokki kvenna og kemur það ekki á óvart. Karen lék á 307 höggumn og hafði mikla yfirburði. Kristinn Óskarsson sigraði í 1. flokki og lék mjög vel og í raun betur en nokkur annar, kom inn á 299 höggum eða þremur höggum færra en meistarinn í meistara- flokki karla. „Það var sérstaklega ánægjulegt að vera með betra skor en Siggi [Sigurður Sigurðsson], en hann er auðvitað búinn að fínna ástæðuna. Hann segir að við í fyrsta flokki leikum á kerlingateigum," sagði Kristinn. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Meistararnir hjð GS: Slgurður Slgurðsson og Karen Sævarsdóttir. Glæsilegt högg í Eyjum Einn kylfínganna á meistaramótinu í Vestmannaeyjum lenti í því að bolti hans stöðvaðist aðeins örfáa sentímetra frá háum kletti. Eig- andi boltans ætlaði upp á klettinn til að taka víti, en annar félaga hans í hollinu vildi ekki heyra á það minnst; sagðist hafa séð í sjónvarpinu hvernig leysa ætti slík vandamál. Bara að standa gleiður og slá boltann í gegnum klofíð á sér. Sá sem átti boltann var tregur til enda frægur hrekkjalómur sem var að leiðbeina honum. Hann lét samt slag standa, sló boltann þar sem hann var, nokkuð utan flatar, boltinn fór hratt, small í stönginni og datt því næst í holuna... ■ JÓN Þorsteinsson, sem varð annar í öldungaflokki hjá Golf- klúbbi Suðurnesja, var að taka þátt í 30. meistaramótinu í röð. Jón fékk-sérstaka viðurkenningu frá klúbbnum í tilefni þessa. ■ ÞRÍR ættliðir fengu verðlaun á meistaramóti GS; Ketill Vilhjálms- son, sem varð þriðji í 4. flokki, Páll Ketilsson, sonur hans, sem varð annar í meistaraflokki, og Garðar og Vilhjálmur VilhjáJms- synir, sonarsynir Ketils og bróður- synir Páls, synir Vilhjálms Ketils- sonar, skólastjóra Myllubakkaskóla og fyrrverandi knattspymumanns. Garðar varð í þriðja sæti í 2. flokki og Vilhjálmur þriðji í unglinga- flokki. H KAREN Sævarsdóttir, sem sigraði í meistaraflokki hjá GS, setti vallarmet er hún lék á 72 högg- um á öðrum degi mótsins. H KRISTINN Óskarsson sigur- vegarinn í 1. flokki hjá Golfklúbbi Suðurnesja var ánægður með ár- angurinn. „Þetta var Hagkaupsstíll hjá mér, ég lék á 299 höggum,“ sagði hann. H ÞEGAR hann kom á 18. flötina vissi hann að hann þyrfti að setja niður meters pútt til að Ieika á undir 300 höggum sem var mark- mið hans. Áhorfendur vissu það hins vegar ekki og skildu því ekk- ert í hverskonar rosalegur fögnuðm það var hjá Kristins er hann setti niður púttið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.