Morgunblaðið - 12.07.1994, Page 12
12 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SUNDMEISTARAMOTIÐ
ísinn brotinn
Mikil spenna var í 100 metra
flugsundi karla, þar sem Magnús
Már Ólafsson hefur verið nær
ósigrandi. 18 ára piltur frá Akur-
eyri, Ómar Þorsteinn Ámason úr
Óðni, varð sjónarmun á undan
Magnúsi Má og fékk tímann
1.00,46 en Magnús 1.00,53.
Ómar Þorsteinn hefur æft sund
í níu ár og er í landsliðshópnum
sem fer til Darmstadt. „Þetta var
mjög ljúft en einnig mjög tæpt.
Ég var að klára takið en hann
þurfti að láta sig renna og það
munaði bara því. Þessi sigur var
mikilvægur fyrir mig og sýnir
mér hvað ég get gert og ég fæ
gott sjálfstraust. Nú er ísinn brot-
inn,“ sagði Ómar en hann hirti
silfur í 200 metra flugsundi, 200
metra fjórsundi og í 100 metra
skriðsundi.
Þjarmað að
okkur gömlu
„Mér gekk frekar brösulega
en ég stefni á alþjóðamótið í
Darmstadt í Þýskalandi og ætl-
aði að vera pínulítið léttari á
þessu móti en var bara þungur
og lélegur. Þetta var samt svo
sem í lagi en ég bjóst við að
vera í aðeins betra formi heldur
en ég er núna,“ sagði Magnús
Már Ólafsson úr Sundfélaginu
Ægi, einn af bestu sundmönnum
landsins, sem varð að játa sig
sigraðan í 100 metra flugsundi,
en það hefur verið besta grein
Magnúsar. „Maður þarf að
minnka æfingarnar fyrir stór
mót eins og í Þýskalandi en það
hef ég verið að gera síðustu vik-
umar og þá kemur þreytan fram
og maður verður þá þungur.
Síðan á toppurinn að koma. Það
er mikið að gerast í sundinu og
heilmargir ungir krakkar eru að
koma upp en það hefur verið
hálfgerð lægð. Þeir eru nú að
þjarma að okkur þessum gömlu
enda ágætt að hafa þetta ekki
of auðvelt fyrir okkur.“
Guðmundur Harðarson, fyrr-
um þjálfari, situr í landsliðs-
nefnd og hann segir nýja kyn-
slóð vera að taka við í sundinu.
„Kynslóðin sem fór á Ólympíu-
leikana 1988 er nú hætt eða að
hætta, kynslóðin sem tók við af
henni er enn að en nú er komin
enn önnur sem er betri en hin-
ar. Þar hefur mest að segja að
æft er meira og aldrei hafa ver-
ið fleiri þjálfarar á fullum laun-
um en þeir munu vera um fjór-
ir. Það er að skila sér nú,“ sagði
Guðmundur.
Baráttan við lágmörk er einn-
ig harðari því nú er stefnan að
senda einungis keppendur á
stórmót sem þangað eiga er-
indi. „Fólk þarf að berjast en
það er líka á hreinu hvað er í
boði,“ sagði Guðmundur.
'\ ‘, -i •;
WaBSBK*
Morgunblaðið/Golli
Magnús Konráðsson, SFS, í 100 m bringusundi. Hann fékk 722 stig fyrir árangurinn í þelrri grein
og Guðmundarbikarinn þar með fyrir besta árangur í karlaflokki.
Metin og lágmörk-
in létu á sér standa
VEÐURGUÐIRNIR fóru blíðum höndum um keppendur á Sund-
meistaramóti íslands sem fram fór í Laugardalslauginni um helg-
ina, alveg þangað til eftir hádegi á sunnudeginum þegar fór að
rigna. Sundmenn höfðu á orði að það væri aðeins til að minna á
að það vanti enn innilaug. Metin urðu ekki mörg, Eydís Konráðs-
dóttir úr Sundfélagi Suðurnesja sló gamalt íslandsmet Ragnheið-
ar Runólfsdóttur í baksundi en mótið er meira hugsað til að ein-
hverjir nái lágmörkum á alþjóðleg mót, sérstaklega í 50 metra
skriðsundi karla og kvenna, en það gekk ekki eftir.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Keppendur voru 167 sem er um
100 fleiri en á sama móti í
fyrra og skráningar á sund voru
rúmlega 500. Ægis-
fólk var fjölmennast
með 31 þátttakanda
sem tók gull og silf-
ur í öllum sveita-
keppnum og tæplega helming af
öðrum gullpeningum.
Ingibjörg Ólöf ísaksen Ægi og
Elín Sigurðardóttir SH skiptu á
milli sín gullpeningunum í skrið-
sundinu. Ingibjörg vann 200, 400
og 800 metra lengdirnar en Elín
50 og 100 metrana. í karlaflokki
voru það hinsvegar Svavar Kjart-
ansson, SFS, og Magnús Már Ólafs-
son, Ægi, sem skiptu gullunum á
milli sín, Svavar með 200, 400 og
1500 metrunum en Magnús Már í
50 og 100.
Berglind Daðadóttir, SFS, var
sigursæl í bringusundi og vann þar
100 og 200 metra sundið en Hall-
dóra Þorgeirsdóttir úr Ægi kom
fast á hæla hennar með silfur í
báðum greinum. Þess á geta að
Halldóra er aðeins 12 ára og á því
framtíðina fyrir sér. í karlaflokki
tók Magnús Konráðsson, SFS, gull-
ið fyrir 100 metra sundið og silfur
í 200 metra sundinu og Hjalti Guð-
mundsson í Sundfélagi Hafnar-
fjarðar aftur á móti gull fyrir 200
metrana og silfur fyrir 100 metra
sundið. Óskar Öm Guðbrandsson,
ÍA, var ekki íjarri með bronspening
á báðum greinum. Mesta spennan
var í 200 metrunum hjá körlunum
þar sem Magnús var á undan eftir
100 metra en góður endasprettur
færði honum sigur.
Ama Þórey Sveinbjömsdóttir
vann bæði 200 og 400 metra flór-
sundið ömgglega en hún vann einn-
ig allt í flugsundinu. Hörður Guð-
mundsson, Ægi, vann í 400 metra
fjórsundi en Magnús Konráðsson,
SFS, í 200 metrunum. Ómar Þor-
steinn Ámason úr Óðni varð sjpnar-
mun á undan Magnúsi Má Ólafs-
syni í 100 metra flugsundi en Kári
Sturlaugsson, Ægi, sló þeim við í
200 metmnum. Eins og áður sagði
sigraði Eydís Konráðsdóttir, SFS,
100 og 200 metra baksundið og
setti ný íslandsmet en í karlaflokki
varð Logi Jes Kristjánsson, ÍBV,
hlutskarpastur.
Eydís með tvö
Islandsmet
Besta afrek mótsins vann Eydís
Konráðsdóttir, 16 ára stúlka úr SFS.
Hún fékk 746 stig fyrir 100 metra
baksundið, og setti um leið íslands-
met. Hún bætti einnig íslandsmetið
í 200 metra baksundi, en bæði metin
vom um fímm ára gömul, sett á sín-
um tíma af Ragnheiði Runólfsdóttur.
Eydís hlaut Kolbrúnarbikarinn fyrir
besta afrekið í kvennaflokki, og einn-
ig Pálsbikarinn fyrir besta afrek
mótsins. Bróðir hennar, Magnús
Konráðsson, fékk Guðmundarbikar-
inn fyrir besta afrekið í karlaflokki.
„Ég átti von á að þetta kæmi hjá
mér og eftir æfingabúðirnar í Frakk-
landi, þar sem við æfðum í tvær vik-
ur við frábærar aðstæður, vissi ég
að þetta væri á leiðinni. Ég vil nota
tækifærið og þakka þeim fyrirtækj-
um og einstaklingum sem studdu
okkar til ferðarinnar kærlega fyrir,“
sagði Eydís.
Vildi ekki
gefast upp
Ama Þórey Sveinbjömsdóttir,
sundfélaginu Ægi, er liklega einn
af síðustu sundmönnunum til að ná
sér eftir sýkinguna sem sundfólkið
varð fyrir á smáþjóðaleikunum á
Möltu og hún var sigursæl á mótinu
núna. Hlaut 7 gull; sigraði í 200 og
400 m fjórsundi, 100 og 200 m flug-
sundi og þremur boðsundum.
„Ég er nýstigin upp úr „Möltuerf-
iðleikunum" og er búin að eiga við
mikil vandamál að stríða. Ég hef
æft alveg síðan en er rétt að koma
upp núna og er aðeins að sjá bæt-
ingu. Það er mjög þægileg tilfinning
og gott að vera kominn aftur á sinn
stað,“ sagði Arna Þórey sem er 19
ára. „Hin sundkonan sem átti líka í
þessum vandræðum gafst upp en
mér datt ekki í gefast upp sjálf. Það
hefði verið alltof miklu að fóma. Ég
er ekki svekkt útí neinn útaf þessu.“
Systkinin
með bikarana
Þrír bikarar voru afhentir á mót-
inu og komu þeir allir í hlut systkin-
anna Eydísar og Magnúsar Konr-
áðsbama.
Pálsbikarinn, sem gefinn var af
forseta Islands, er veittur þeim
keppenda sem vinnur besta afrek
móteins. Eydís og Magnús bitust
um bikarinn en þegar upp var stað-
ið varð Eydís hlutskarpari með 746
stig en Magnús var með 722 stig.
Kolbrúnarbikarinn sem gefinn
var af ættingjum Kolbrúnar Olafs-
dóttur var veittur þeim keppanda í
kvennaflokki sem hlýtur flest stig
og kom hann því í hlut Eydísar.
Það var Pétur Pétursson, sonur
Kolbrúnar sem afhenti gripinn.
Nýr bikar, gefinn til minningar
um Guðmund Olafsson, var veittur
í fyrsta sinn og skal hann ganga
til þess einstaklings sem nær flest-
um stigum í karlaflokki. Hann hlaut
Magnús Konráðsson og afhentu
foreldrar Guðmundar, Ólafur Guð-
mundsson og Unnur Ágústsdóttir,
Magnúsi bikarinn.
Tvö heimsmet
FATLAÐIR gerðu það gott á Sundmeistaramót-
inu um helgina og settu tvö heimsmet í flokki
fatlaðra og sjö íslandsmet fuku að auki. Sigrún
Huld Hrafnsdóttir setti heimsmet í 200 metra
bringusundi. Sigrún byrjaði á að bæta það um
6 sekúndur og á laugardeginum bætti hún sig
um 4 sekúndur til viðbótar. Bára B. Erlingdóttir
setti heimsmet í 200 metra flugsundi og synti
á 3.38,47.
Sjö íslandsmet voru slegin. Birkir Rúnar Gunnars-
son í 200 metra bringusundi á 3.05,27 en Birkir
syndir fyrir UBK, Hilmar Jónsson úr Ösp í 100 og 200
metra bringusundi á 1.33,86 og 3.34,35. Pálmi Guð-
mundsson, IFR, synti 100 metra skriðsund á 2.14,05
og 50 metrana á 1.02,30 og Einar Erlendsson, einnig
úr ÍFR, sló íslandsmet í 100 og 50 metra skriðsundi.
Að sögn Ingu Maggý Stefánsdóttur þjálfara heims-
meistaranna, sem eru í íþróttafélagi þroskaheftra,
Slgrún Huld Hrafnsdóttir og Bára Erlingsdóttir.
Ösp, syntu 9 krakkar úr félaginu á mótinu. Fimm
keppendur komu frá ÍFR, sem er íþróttafélag fatlaðra
í Reykjavík og að auki synti Birkir Rúnar Gunnarsson
einnig, sem er blindur, en hann syndir fyrir UBK.
Fatlaðir æfa nú stíft fyrir heimsmeistaramót fatlaðra
sem fer fram á Möltu og býst Inga Maggý við enn
meiri bætingu á því móti.
Landsliðið valið
NÝR landsliðshópur sem fer á
sterkt alþjóðlegt mót í Darm-
stadt í Þýskalandi, var valinn
af landsliðsnef nd í lok Sund-
meistaramótsins og telur hóp-
urinn 17 keppendur. Ekki voru
valdir yngri sundmenn því að
sögn landsliðsnefndarinnar
hafa þeir þegar fengið tvö stór
verkefni í vetur.
Þar sem Sundsambandið vill
frekar setja peninga í undir-
búning er valin þjálfari eða þjálfar-
ar fyrir hvert verkefni. Til þessa
verkefnis voru Hafþór Guðmunds-
son og Magnús Tryggvason valdir
sem þjálfarar en Sturlaugur Daða-
son verður fararstjóri. Landsliðs-
nefnd velur síðan í liðið, sem í eru
eftirfarandi: Eydís Konráðsdóttir
og Berglind Daðadóttir úr SFS,
Ama Þórey Sveinbjömsdóttir, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir, Sigríður Valdi-
marsdóttir og Ingibjörg Ólöf ísaks-
en úr Ægi, Elín Sigurðardóttir úr
SH og Þorgerður Benediktsdóttir
úr Óðni. í karlaflokki voru valdir
Magnús Már Ólafsson, Sigurgeir
Þór Hreggviðsson, Hörður Guð-
mundsson og Kári Sturlaugsson úr
Ægi, Ómar Þorsteinn Árnason og
Baldur Már Helgason úr Óðni,
Magnús Konráðsson úr SFS, Óskar
Örn Guðbrandsson, ÍA, og Logi Jes
Kristjánsson, ÍBV.