Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 1

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 1
88 SÍÐUR B/C 161. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Israelar o g Jórdanir hefja samningaviðræður á vopnahléslínunni Líkur á frið- arsamningi Aqaba. Reuter. SAMNINGAMENN Jórdaníu og ísraels tókust í hendur í gær við landa- mæri ríkjanna sem í áratugi hafa verið mörkuð með gaddavír og jarð- sprengjum. Þeir spáðu því að viðræður þeirra myndu leiða til friðar- samnings milli ríkjanna. „Líkurnar á friði eru mjög miklar,“ sagði Eli Rubinstein, oddviti ísraelsku sendinefndarinnar, þegar 30 samninga- menn frá hvoru landi settust við borð á vopnahléslínunni sem gilt hefur frá því Ísraelsríki var stofnað árið 1948 eða í 46 ár. Þetta er fýrsti samningafundur ríkjanna á heimaslóðum. Þau hafa tekið þátt í friðarviðræðunum í Washington í tvö ár án mikils árang- urs en samningamenn beggja ríkj- anna sögðust vongóðir um að samn- ingar næðust um frið. Vilja hernumin svæði Jórdanir leggja áherslu á kröfu sína um að Israelar láti hernumin svæði af hendi og auki hlut þeirra í vatnslindum. Þeir vilja einnig að Bandaríkjastjórn gefi þeim eftir skuld upp á 950 milljónir dala. ísra- elar leggja hins vegar áherslu á efna- hagsleg tengsl ríkjanna. Viðræðum samninganefndanna í eyðimörkinni lýkur í dag og utan- ríkisráðherrar ríkjanna koma síðan saman ásamt utanríkisráðherra Bandaríkjanna á jórdönsku hóteli við Dauðahaf á morgun. Shimon Peres, utanríkisráðherra Israels, verður þá æðsti embættismaður landsins sem kemur til Jórdaníu í opinberum er- indum. Hussein Jórdaníukonungur 9g Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, koma síðan saman í Wash- ington á mánudag. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínumanna (PLO), fagnaði friðarviðræðum Jórdana og Israela og kvaðst vonast eftir sams konar viðræðum milli ísraela og Sýrlendinga. Reuter FORMAÐUR ísraelsku viðræðunefndarinnar, Elyakim Ruben- stein (t.v.), og Fayez al-Tarawneh, formaður jórdönsku nefndar- innar, tókust í hendur þegar þeir hittust innan um gaddavír og jarðsprengjur á landamærum ríkjanna. Að því búnu hófust friðarviðræðurnar en vonast er til, að þær bindi enda á stríðs- ástandið, sem ríkt hefur milli ríkjanna í 46 ár. Hryðjuverk í Buenos Aires Sautján létu lífíð Buenos Aires. Reuter. AÐ minnsta kosti 17 manns létu lífið og 127 slösuðust í gær þegar mikil sprenging varð í aðalstöðvum samtaka gyðinga í Buenos Aires í Argentínu. Er augljóslega um hryðjuverk að ræða. Ekki var vitað í gær hvort sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl eða annars staðar en byggingin, sem var sjö hæða, jafnaðist næstum við jörðu. Sendiherra ísraela í Argentínu, Yitzhak Aviran, sagði, að ísl- amskir öfgamenn hefðu verið að verki. Landamærum lokað Carlos Menem, forseti Arg- entínu, lét loka landamærum ríkisins og flugstöðvum til að hugsanlegir hryðjuverkamenn kæmust síður úr landi. Björgun- armenn unnu að því í gær að leita í rústunum og tókst þeim að bjarga barni og ungum manni lifandi rúmlega átta stundum eftir sprenginguna. Friður í Bosníu Talið víst að Serbar segi nei Brussel, Pale, Sarajevo. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evr- ópusambandsins skoruðu í gær á þjóðarbrotin í Bosníu að fallast á alþjóðlega áætlun um frið í landinu en frestur til þess rennur út í dag. Sambandsþing Króata og múslima samþykkti hana í gær en allt bend- ir til, að Serbar hafni henni. Hvatti leiðtogi þeirra óbeint til þess á þingi Bosníu-Serba í Pale í gær. í yfirlýsingu frá ráðherrunum segja þeir, að áætlunin, sem Bret- land, Frakkland, Þýskaland, Rúss- land og Bandaríkin standa að, sé eina raunhæfa leiðin til friðar og hana verði að samþykkja eða hafna, enginn millivegur sé til. Samkvæmt áætluninni fá Serbar 51% lands en Króatar og múslimar 49%. Hafnað sem móðgun Sambandsþing Króata og músl- ima og þing Serba komu saman í gær til að ræða áætlunina og vai' hún samþykkt á því fyrrnefnda en Radovan Karadzic, leiðtogi Serba, hvatti til að hún yrði felld. „Ef við höfnum áætluninni, verðum við að beijast áfram, ráðast inn á svæði óvinarins án tafar og gjörsigra hann,“ sagði Karadzic. Aðrir serb- neskir þingmenn tóku í sama streng og sögðu, að samkvæmt áætluninni fengju Króatar og múslimar öll orku- verin, námur, helstu vegi og náttúru- auðlindir. Kváðust þeir mundu hafna henni sem hverri annarri móðgun. _ Silvio Berlusconi ver umdeilda tilskipun Terracina. Morgunblaðid. SILVIO Berlusconi, forsætisráð- herra Italíu, lýsti yfir í gær, að hann væri reiðubúinn að breyta ein- hveiju varðandi tilskipunina um takmarkanir við gæsluvarðhaldsúr- skurðum en í meginatriðum yrði hún óbreytt. Hefur tilskipunin vakið mikla óánægju og mótmæli í land- inu og dómarar hafa hótað að segja af sér. Búist er við, að 4.000 manns verði sleppt vegna tilskipunarinnar. I sjónvarpsviðtali í gærkvöldi neitaði Berlusconi að stjórnar- kreppa væri yfirvofandi þótt tveir helstu samstarfsflokkarnir ætluðu ekki að styðja tilskipunina á þingi og hann þvertók fyrir að með henni væri verið að koma spilltum mönn- um til hjálpar. Spillingin undanþegin Samkvæmt henni er ekki hægt að halda þeim í gæsluvarðhaldi sem sakaðir eru um spillingu og mútu- þægni. Sagði hann að breyta mætti orðalagi tilskipunarinnar en aðal- atriðin yrðu óbreytt. Roberto Mar- oni innanríkisráðherra hefur hótað að segja af sér verði tilskipunin ekki dregin til baka og hann gefur í skyn að Berlusconi hafi komið henni í gegn vegna þess að ný og mikil spillingarmál séu í uppsigl- ingu. Saksóknarar í Napólí fóru í gær fram á rannsókn í máli 140 manna vegna nýrra upplýsinga um gífur- legar mútugreiðslur fyrirtækja til embættismanna í heilbrigðiskerf- inu. Er Francesco De Lorenzo, fyrr- verandi heilbrigðisráðherra, sakað- ur um að hafa þegið mútur 100 sinnum en honum var sleppt úr fangelsi á laugardag vegna tilskip- unar Berlusconis. ^ Reuter Olýsanleg eymd HREYFING uppreisnat'nianna í Rúanda, Föðurlandsfylkingin, lýsti í gær yfir sigri í stríðinu við her hútú-stjórnarinnar og kvaðst reiðubúin að Iýsa yfir einhliða vopnahléi. Þúsundir Rúanda- nianna gætu dáið af völdum hung- urs á næstu dögum í borginni Goma í nágrannaríkinu Zaíre verði þeini ekki kornið til hjálpar án tafar og hungursneyð vofir yfir hundruðum þúsunda. Myndin er af flóttamönnum í grennd við borgina. Allt að tvær ntilljónir manna eru á flótta í Rúanda og kynnu að fara yfir landamærin til Zaíre á næstu dögum. ■ Hungursneyð vofir yfir/14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.