Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 2

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ' FRETTIR I i I Starfsmenn Þorgeirs & Ellerts samþykkja kjaraskerðingn NÝTT hlutafélag hefur verið stofn- að um rekstur skipasmíðastöðvar á Akranesi. Félagið heitir Skipa- smíðastöð Þorgeir & Ellert hf. og er tilgangur þess að leigja fasteign- ir óg lausafé þrotabús Þorgeirs & Ellerts hf. sem úrskurðað var gjald- þrota sl. föstudag. Starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar, sem eru um 90 talsins, gáfu samþykki fyrir tímabundinni kjaraskerðingu á fundi á sunnudag en forsvarsmenn fyrirtækisins töldu ekki grundvöll fyrir rekstrinum nema að því fengnu. Að nýja hlutafélaginu standa fjórir einstaklingar og Akranes- kaupstaður. Upphaflegt hlutafé er 10 milljónir en í frétt frá aðstand- endum fyrirtækisins segir að það verði fljótlega aukið í a.m.k. 30 milljónir. Eigendur nýja félagsins hyggjast ná niður kostnaði í rekstri, aðallega með niðurskurði í yfirstjórn. Til að bytja með verð- ur fastráðnum starfsmönnum fækkað en það er von eigenda að verkefnastaðan verði slík að unnt verði að fjölga mönnum sem allra fyrst. Fyrst fellt, svo samþykkt Langflestir starfsmenn skipa- smíðastöðvarinnar eru félagsmenn í Sveinafélagi málmiðnaðarmanna á Akranesi. Valdimar Þorvaldsson, formaður félagsins, segir að yfír- lýsingin, sem forsvarsmenn nýja hlutafélagsins lögðu fyrir starfs- menn, hafi verið felld á fundi í Sveinafélaginu á sunnudagsmorg- un. „Rekstraraðilarnir voru ósveigjanlegir og hótuðu að ekki yrði af leigu. Þá stóðu menn frammi fyrir rekstrarstöðvun. Þótt skiptastjóri hefði viljað reka stöð- ina áfram þá hefði ekki allur mannskapurinn fengið vinnu held- ur aðeins þeir menn sem hefðu komist í þau verk sem þurfti að klára og starfsemin dáið smám saman út. Bæjaryfirvöld og bú- stjóri áttu með okkur fund og eft- ir hann var það mat okkar að hagsmunum fleiri yrði borgið með því að yfirlýsingin yrði samþykkt og unnið eftir henni.“ Yfirlýsingin, sem gildir til 31. október nk., felur í sér skerðingu á fastri yfirvinnu um 29 mínútur á dag. Kaffitíma sem var á milli dagvinnu- og yfirvinnutíma er sleppt. Hann var ólaunaður áður, en núna er hann unninn. Fækkun starfsmanna aldrei samþykkt Valdimar vill taka fram að Sveinafélagið samþykkti ekki fækkun starfsmanna, eins og fram hefur komið í öðrum fjölmiðlum. Þá leggur hann áherslu á að sam- komulagið er til skamms tíma eða 31. október. Fram að þeim tíma á að reyna að semja við nýja eigend- ur. Stéttarfélög rafvirkja og tré- smiða skrifuðu undir yfirlýsinguna með málmiðnaðarmönnum. Morgunblaðið/Golli Reyndu að koma í veg fyrir handtöku HÓPUR unglinga reyndi að koma í veg fyrir að lögregla gæti handtekið 15 ára pilt í miðbænum aðfaranótt sunnu- dagsins en hann var vopnaður hnífi og hafði skömmu áður skorið vegfaranda á hendi með hnífnum. Áverkar vegfarandans voru ekki taldir alvarlegir en að- dragandi árásarinnar var óljós. Tók til fótanna Eftir að sá sem særðist greindi lögreglu frá árásinni á fimmta tímanum á sunnu- dagsmorguninn tók árásar- maðurinn til fótanna en lög- regla náði honum á mótum Bankastrætis og Lækjargötu. Þá dreif að hóp 'um 20 ungl- inga sem að sögn lögreglu veittust að lögreglumönnum og reyndu að koma í veg fyr- ir að pilturinn, sem þá var enn með hnífinn í höndunum, yrði handtekinn. Lögreglunni tókst að hand- taka piltinn og eftir viðtal á lögreglustöð var hann færður í Unglingaheimili ríkisins til vistunar. Að sögn lögreglu hefur mikill fjöldi unglinga, verið í miðborginni um kvöld og næt- ur undanfarnar helgar og tengir lögregla fjöldann starf- semi tívolísins við höfnina. Knattspyrnu- völlur fluttur með skipi í Bolungarvík verið að gera knatt- spyrnuvöll og til þess að fá hent- ugt gras, vallarsveifgras, þurfti að flytja grasið að sunnan og vest- ur. í gær var verið að undirbúa lestun túnþaka um borð í skip, sem flytja á túnþökurnar vestur. Gras- inu var sáð á sand og er því álitið hentugt á knattspyrnuvelli og mun erfitt að fá slíkt gras á Vest- fjörðum. Greiðslur í sjóði verkalýðsfélaga Ráðherra mun ræða við verka- lýðshreyfingu GUÐMUNDUR Árni Stefánsson félagsmálaráðherra segist munu leita viðræðna við forystu verkalýðshreyfingarinnar um hvernig unnt sé að tryggja það að fólk sem greiðir til verkalýðsfélaga og sjóða þeirra þekki réttarstöðu sína gagnvart félögunum. Ráðherra er að iáta afla upplýs- inga um fjölda þeirra tilvika þar sem fólk greiðir í sjóði verkalýðshreyf- ingarinnar án þess að eiga fullan aðgang að þeim réttindum sem full aðild veitir, líkt og ekkja Dagsbrúnarmanns sem ekki fær tryggingabæt- ur frá Dagsbrún. Maður hennar hafði greitt til verkalýðsfélagsins árum saman en þar sem hann hafði ekki undirritað umsókn um félagsaðild þá náði tryggingin, semDagsbrún hafði keypt, ekki til hans. „Ég held að það sé fullkomin ástæða vegna þeirra tilefna sem upp hafa. komið að fara ofan í saum- ana á því í hversu miklum mæli þetta er og gera þessar reglur þann- ig úr garði að fólk viti upp á hár sína réttarstöðu. Ég hafði ætlað mér að taka upp viðræður við verkalýðshreyfinguna um hvemig að því verði staðið." Guðmundur Ámi kvaðst ekki ætla að fella neina stóra dóma um réttmæti þess að veraklýðshreyf- ingin taki við greiðslum í sjóði sína frá launþegum án þess að veita þeim um leið réttindi. „En það er grundvallaratriði að fólki sé kunn- ugt um réttindi_ sín eða réttleysi." Guðmundur Ámi sagðist telja að líta yrði til þeirra mála sem upp væru komin en taldi óljóst hve langt aftur í tímann yrði hægt að leið- rétta stöðu fólks í þessum efnum. „Ég held að meginatriðið sé það að menn glöggvi sig á umfanginu. Ég bað mína starfsmenn um það fyrir helgi að leita að þeim upplýs- ingum þannig að heildammfang málsins liggi fyrir,“ sagði Guð- mundur Ámi Stefánsson og sagði að jafnframt yrði skoðað sérstak- lega fyrrgreint mál ekkjunnar. Morgunblaðið/Einar Snorri Magnússon 50 skátar á Homströndum 50 SKÁTAR frá öllum Norður- löndum hafa undanfarna daga verið á ferð um Hornstrandir. Þeir fóru sjóleiðina frá Isafirði og fóru í land í tveimur hópum, á Hesteyri og í Veiðileysufirði. Gengu þeir síðan með búnað sinn á bakinu um friðland Stranda; Kjaransvík, Hornvík, Barðsvík, Furufjörð og Þaralátursfjörð í Reykjafjörð. Síðustu þijá daga hafa þeir dvalið í Reykjafirði við leik og störf að hætti skáta, m.a. gengið á Drangajökul og Geir- ólfsnúp. Leiðangurinn hefur gengið afar vel, utan óhapps sem varð þegar einn þátttakenda, Dagmar Ólafsdóttir, 19 ára, datt og hlaut mikinn skurð á enni sem blæddi talsvert úr. En svo vel vildi til að einn þátttakenda er læknir og gerði hann læknisaðgerð á stúlkunni á staðnum. Hún var staðdeyfð með sprautum, sárið hreinsað og í það saumuð þijú spor. Allt fór vel og gat skátinn slasaði haldið ferð sinni áfram eins og ekkert hefði í skorist. -♦ ♦ ♦ Dróst 193 metra UMFERÐARSLYS varð á Reykja- nesbraut um tíuleytið í gærkveldi við veitingahúsið Jarlinn, er maður á bif- hjóli lenti aftan á Subaru-skutbíl. Áreksturinn var allharður, afturrúða brotnaði og kastaðist ökumaður hjólsins upp á þak bifreiðarinnar. Bæði ökutækin voru á leið norður Reykjanesbraut og mun Subaru-bif- reiðin hafa verið á 60 km hraða. Þar sem bílstjórinn snögghemlaði ekki féll bifhjólamaðurinn ekki í götuna, heldur barst með bifreiðinni á þaki hennar, um 193 metra að sögn lögreglu. Maðurinn á hjólinu var með hjálm á höfði. Hann skarst nokkuð í andliti en er óbrotinn. Var hann fluttur á slysadeild Borgarspít- alans en fékk að fara heim að lok- inni aðhlynningu að sögn lögreglu. Skoðanakönnun Hagrangs um lífeyrissjóði fyrir Verslunarráð íslands FLEIRI eru fylgjandi en andvígir því að geta valið um lífeyrissjóð innan núverandi lífeyrissjóðakerfis og fleiri eru fylgjandi en andvígir þeirri hugmynd að bankar, spari- sjóðir, verðbréfafyrirtæki og trygg- ingafélög geti einnig annast rekstur lífeyrissjóða. Þetta kemur fram í könnun sem Hagvangur gerði fyrir Verslunarráð íslands. Könnunin náði til fólks á aldrin- um 18-67 ára á landinu öllu. Úrtak- ið var 1.000 manna slembiúrtak og var svarhlutfallið 73,7%. 75,1% þeirra sem svöruðu voru fylgjandi því að geta valið um líf- eyrissjóð, 8,9% andvígir og 15,9% tóku ekki afstöðu. Nokkru fleiri konur voru fylgjandi en karlar eða 76,4% kvenna á móti 73,8% karla. Hlutfall þeirra sem voru fylgjandi var 78,3% á hofuðborgarsvæðinu á móti 71,1% á landsbyggðinni. Almemiingur vill fá að velia Bankar o.fl. gætu annast rekstur lífeyrissjóða 61,2% þeirra sem svöruðu voru fylgjandi þeirri hugmynd að bank- ar, sparisjóðir, verðbréfafyrirtæki og tryggingafélög gætu annast 1. Míklar umræður hafa verið um Kfeyrissjóðsmál (slendinga undan- farin ár og möguieika manna til að velja sér lífeyrissjóð. Ert þú fylgj- andi eða andvíg(ur) því að geta valið um lífeyrissjóð innan núver- andl kerfis? 8,9% andvíg - Taka ekki afstöðu -i 2. Ein leið í lífeyrismálum er sú að auka valmöguleika fólks þannig að bankar, sparisjóðir, verðbréfafyrir- tæki og tryggingarfélög geti einnig annast rekstur lífeyrissjóða og tekið við lífeyrisiðgjöldum. Ert þú fylgjandi eða andvíg(ur) þessari hugmynd? 13,9% andvíg Taka ekki afstöðu -j í I ! ! í i , rekstur lífeyrissjóða og tekið við lífeyrisiðgjöldum. 13,9% voru and- vígir þeirri hugmynd og 24,9% tóku ekki afstöðu. Fleiri karlar en konur voru fylgjandi hugmyndinni eða 65% karla á móti 57,5% kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu voru 66,1% fylgjandi hugmyndinni en 54,9% á landsbyggðinni. Mest andstaða við hugmyndina var í aldurshópnum 50-67 ára eða 18,5%. í þeim hópi voru 54,9% fylgj: andi og 26,5% tóku ekki afstöðu. I aldurshópnum 30-49 ára voru 62,9% fylgjandi, 12,3% mótfallin og 24,8% tóku ekki afstöðu. 1 yngsta aldurshópnum, 18-29 ára voru 63,5% fylgjandi, 13% mótfallin og 23,6% tóku ekki afstöðu til hug- myndarinnar. „Þetta sýnir mjög afdráttarlaust hvað almenningur vill og að það er yfirgnæfandi stuðningur við ftjálsræði í vali milli lífeyrissjóða og frjálsræði í rekstri," segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Verslunarráðs. Hann segir augljóst að taka þurfi tillit til þess- ara niðurstaðna þegar lögum um lífeyrissjóði verður breytt. I i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.