Morgunblaðið - 19.07.1994, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Motorworld eru þættir um akstursíþróttir sem sýndir verða í Bretlandi á næsta ári
BBC gerir þátt
um íslenskar
akstursíþróttir
SJÓNVARPSMENN frá BBC í
Bretlandi eru staddir hér á
landi við tökur á efni fyrir þátt
sem nefnist Motorworld og
fjallar um akstursíþróttir víðs
vegar um heim. Hver þáttur er
xh klukkustund að lengd og er
ætlunin að beina sjónum að
Japan, ítaliu, íslandi, bílaborg-
inni Detroit í Bandaríkjunum,
Indlandi og Víetnam í fyrstu
þáttaröðinni.
Þættirnir verða sýndir í árs-
byrjun 1995 og er búist við um
sjö milljón áhorfendum í Bret-
landi. Reynt er að segja sögur
af fólki á ferðalagi í stað þess
að fjalla eingöngu um farar-
tæki og er gert ráð fyrir að
með því móti megi höfða til
breiðari hóps áhorfenda, sam-
kvæmt upplýsingum frá BBC.
Sem dæmi má nefna að áhersl-
an á japanska umferðarmenn-
ingu er á tæknilegu hliðina og
hvert stefni. Spurt er hvort ít-
alskir ökumenn séu jafn bráðir
bakvið stýrið og af er látið.
Einnig er sagt um ísland að
þegar guð hafi skapað landið
hafi hann búið til stærsta bíla-
leikvöll í heimi og fylgst er með
hvernig íslenskir ökuþórar
sleppa af sér beislinu utan vega.
Helstu bíltegundir eru skoðað-
ar og reynt að finna sérein-
kenni fyrir hvert land um sig,
svo eitthvað sé nefnt.
Hrifnir af
móttökunum
Voru bresku sjónvarpsmenn-
irnir yfir sig hrifnir af móttök-
unum hérlendis þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar
að garði, sögðu fólk hér allt af
vilja gert til þess að koma til
móts við þá. Höfðu þeir meðal
annars nýlokið við að mynda
torfærukeppni og glöddust
mjög yfir fjölda bílvelta sem
þeir höfðu náð að festa á filmu.
Bifhjólasamtökin kvikmynduö í Bankastræti,
Morgunblaðið/Halldór
BRESKU þáttagerðarmennirnir frá BBC. Talið frá vinstri: Keith
Schofield kvikmyndatökumaður, Murray Clarke hljóðmaður,
Dennis Jarvis leiksljóri og Jeremy Clarkson þáttastjórnandi.
Þátttaka ríkisins ólík-
leg í fjölnota íþróttahúsi
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Blómstrandi
hvönn í
malbiki
ENGAN bilbug er að fínna á
hvönninni, sem óx upp úr mal-
bikinu á planinu við Fiskmarkað
Vestmannaeyja. Þessi hvönn
hefur sýnt það og sannað að
hún er fremst meðal jafningja,
en hvönnin er mjög harðgerð
jurt. Malbikshvönnin leit fyrst
dagsins Ijós í byijun júlí en í
dag hefur hún komið sér vel
fyrir eins og sjá má á myndinni.
ÓLÍKLEGT þykir að ríkisvaldið
taki þátt í að greiða kostnað á
móti Reykjavíkurborg vegna 1.
áfanga fjölnota íþrótta- og sýning-
arhúss sem tilbúinn yrði fyrir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik í maí á næsta ári. Eins
og greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu hefur Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri lýst því
yfir að Reykjavíkurborg sé reiðu-
búin til að greiða helming kostnað-
arins ef ríkisvaldið og aðrir aðilar
sem hag hefðu af byggingunni
væru reiðubúnir til að taka þátt
tii jafns.
Að sögn Steingríms Ara Ara-
sonar aðstoðarmanns fjármálaráð-
herra hefur borgarstjóri óskað eft-
ir að ræða við fjármálaráðherra
um málið og sagði Steingrímur
að væntanlega yrði þeirri beiðni
vel tekið og málið rætt. „Eftir því
sem ég best veit þá er búið að
afgreiða málið af hálfu ríkisins
með samkomulagi sem gert var
við Kópavogskaupstað 1991,“
sagði Steingrímur.
Samkomulagið í Kópavogi
Þáverandi fjármála- og mennta-
málaráðherrar gerðu árið 1990
formlegt samkomulag við Kópa-
vogskaupstað um að leggja fram
300 milljónir króna til byggingar
íþróttahúss í Kópavogi, sem rúm-
aði þann fjölda áhorfenda sem
Alþjóða handknattleikssambandið
erði kröfu um.
nóvember 1991 var síðan gert
samkomulag um að rifta áður-
nefndu samkomulagi, en ríkið
greiddi þá Kópavogskaupstað 10
milljónir króna upp í útlagðan
kostnað vegna málsins. „Þá hékk
það á spýtunni að ríkið kæmi ekki
að málinu gagnvart öðrum sveitar-
félögum, og með samkomulaginu
í nóvember 1991 var þannig lokað
á þátttöku ríkisins,“ sagði Stein-
grímur.
Kastaðist út og slasaðist
mikið í hörðum árekstri
ÁTJÁN ára stúlka slasaðist alvar-
lega en þó ekki lífshættulega, að
sögn lögreglu, í hörðum árekstri
fólksbfls og strætisvagns á mótum
Kópavogsbrautar og Urðarbrautar
í Kópavogi á sunnudag.
Strætisvagninum var ekið eftir
Kópavogsbraut og í hlið fólksbílsins
sem kom norður Urðarbraut þar
sem ér biðskylda gagnvart umferð
um Kópavogsbraut.
Við áreksturinn kastaðist stúlk-
an, sem sat án öryggisbeltis í aftur-
sæti fólksbílsins, út um afturrúðuna
og skall í götuna.
Ökumaður bflsins og kornabarn
í framsæti meiddust ekki og engan
sakaði í strætisvagninum. Fólksbíll-
inn er hins vegar talinn ónýtur.
Lögreglan í Kópavogi óskar eftir
að ná tali af vitnum að óhappinu.
Andlát
MAGNÚS GÍSLASON
MAGNÚS Gíslason,
veitingamaður í
Staðarskála í Hrúta-
firði, lést á Landakots-
spítala í Reykjavík að-
faranótt laugardagsins
16. júlí síðastliðinn, á
fimmtugasta og átt-
unda aldursári.
Magnús fæddist á
Stað í Hrútafírði 16.
mars 1937, sonur hjón-
anna Gísla Eiríkssonar,
bónda, og Magneu
Torfhildar Magnúsdótt-
ur. Hann starfaði um
langt árabil sem bif-
reiðastjóri, en stofnaði síðan ásamt
bróður sínum, Eiríki, veitingaskál-
ann Staðarskála árið 1960 og hafa
þeir rekið hann síðan í sameiningu.
Magnús var fréttaritari Morgun-
blaðsins frá því um 1970 og til
dauðadags. Hann átti sæti í hrepps-
nefnd Staðarhrepps samfellt frá
1984, og sat í margvíslegum nefnd-
um í tengslum við veitingarekstur
og ferðaþjónustu.
Eftirlifandi eiginkona Magnúsar
er Bára Guðmundsdóttir, og áttu
þau sjö börn sem öll
lifa föður sinn.
Um leið og Morgun-
blaðið sendir Báru
Guðmundsdóttur,
börnum hennar og Ei-
ríki Gíslasyni, bróður
Magnúsar innilegar
samúðarkveðjur, þakk-
ar blaðið löng og heilla-
drjúg samskipti Magn-
úsar við blaðið. Morg-
unblaðsmenn voru síð-
ast á ferð í Staðar-
skála, þegar hið nýja
gistihús, Staðarflöt,
var formlega opnað í
sumar. Þar voru margir gestir sam-
an komnir til þess að fagna þessum
merka áfanga í starfsemi þeirra
bræðra og viðtökur allar hinar höfð-
inglegustu, en hið nýja gistihús ber
ekki síst stórhug og framtíðarsýn
Magnúsar Gíslasonar fagurt vitni,
en þar er gistiaðstaða með því besta
sem hér gerist. Gistihúsið var
Magnúsi ofarlega í huga og lagði
hann metnað sinn í að ljúka því sem
fyrst, þegar erfíður sjúkdómur sótti
á hann undir lokin.
Vinnueftirlitið
Hættaá
slysum
í þróm
VINNUEFTIRLIT ríkisins
hefur með hliðsjón af hinu al- ■
varlega vinnuslysi, sem varð í
hráefnisþró loðnuverksmiðju
SR-mjöls á Siglufírði sl. föstu-
dagskvöld, vakið athygli
stjórnenda loðnuverksmiðja á
að alvarieg slysahætta getur
verið til staðar í loðnuþróm
þegar hráefnið er farið að
rotna og skemmast. Hættuleg-
ar lofttegundir geta þá mynd-
ast og súrefnisskortur orðið.
Starfsmenn umdæmisskrif-
stofu Vinnueftirlitsins á Sauð-
árkróki vinna nú að rannsókn
slyssins sem varð á Siglufirði.
í erindi Vinnueftirlitsins til
loðnuverksmiðja er sérstak-
lega vakin athygli á að hlý
veðrátta flýtir allri rotnun hrá-
efnisins, og því þurfi sérstak-
lega að gæta fyllsta öryggis
við vinnu í slíkum hráefnis-
geymslum á þessum árstíma.
Nýr dans
Helga fær
góða dóma
SAN FRANCISCO ballet-
flokkurinn undir stjórn Helga
Tómassonar fær lofsamlega
dóma hjá gagnrýnanda Fin-
ancial Times fyrir balletsýn-
ingar hópsins í Garnier-óper-
unni í París fyrr í mánuðinum.
Gagnrýnandinn tekur fram að
flokkurinn hafí tekið miklum
framförum síðan Helgi tók við
honum árið 1985.
Gagrýnandinn skrifar í
grein sinni að nýjasti dans
Helga, Árstíðirnar, sem sam-
inn er við tónverk Vivaldis,
verðskuldi nokkur húrrahróp.
Dansinn sé fallegur og ballet-
dansmeyjarnar sýni falleg til-
þrif. Dansflokkurinn er allur
sagður hæfíleikaríkur og sýn-
ingin í heild talin ljómandi
dæmi um fagleg vinnubrögð
flokksins.
Tilboð
opnuð í
Kjalveg
FIMMTÁN tilboð bárust
Vegagerð ríkisins í fram-
kvæmdir við Kjalveg. Lægsta
boð átti Nesey hf., Gnúpveija-
hreppi, sem bauð rúmar 12,6
millj. eða 68% af kostnaðar-
áætlun.
Næst lægsta boð átti Rækt-
unarsambandið Ketilbjörn,
Selfossi, þá Fylling hf. Hólma-
vík, Króksverk hf., Sauðár-
króki, Suðurverk hf., Hvols-
velli, Jón og Tryggvi hf.,
Hvolsvelli, Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða, Selfossi, Ár-
vélar hf., Selfossi, Framrás,
Vík, Viggó Brynjólfsson hf.,
Guðmundur Hjálmarsson, Ak-
ureyri, Stakkafell hf., Patreks-
firði, Sveinn Guðmundsson,
Reyícjavik, Klæðning hf.,
Garðabær og Ýtan hf. Akur-
eyri.
■
>
I
>
\
>
>
>
>