Morgunblaðið - 19.07.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 5
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásgeir Einarsson
Eggjanna gætt
LÓA þessi lá á hreiðri sínu í
Oskjuhlíðinni nýlega og gætti
eggja sinna vel. Að sögn Arna
Waag hefur sumarið almennt
verið hagstætt varpi, að vísu
hafi það farið hægt af stað í
vor en úr því hafi ræst. Hann
segir að flestir ungar flestra
tegunda séu skriðnir úr eggj-
unum og komnir á legg, þó
svo að ekki séu allir orðnir
fleygir. Það þekkist einnig
að fuglar, til dæmis skógar-
þröstur, verpi tvisvar til
þrisvar á sumri.
Háskólarektor um sumarmisseri við HÍ
Jákvætt ef fé fæst
fyrir aukakostnaði
SVEINBJÖRN Björnsson rektor
Háskóla íslands er jákvæður gagn-
vart þeirri hugmynd að koma á sum-
armisseri við skólann. Hann segir
að það verði þó ekki gert með því
að færa • fjármagn frá haust- eða
vormisseri heldur verði að koma til
aukaíjárveiting. Eins og fram kom
í Morgunblaðinu í gær hafa stúdent-
ar verið að vinna þessari tillögu fylg-
is og ætla að leggja hana fram á
næsta fundi háskólaráðs, sem fer
með æðsta ákvörðunarvald skólans.
Gunnar Birgisson formaður Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna segir
ekkert því til fyrirstöðu að náms-
menn á.sumarmisseri fái lán á með-
an námið sé fullgilt og rúmist innan
námsferils viðkomandi. íslenskum
námsmönnum við erlenda háskóla
sé oft lánað yfir sumarmisseri ef það
flýti fyrir að þeir ljúki námi.
Sveinbjörn segir að í flestum til-
vikum yrði að endurtaka námskeið
frá haust- eða vormisseri því ekki
væri hægt að gera einhverjum það
að verða að taka námskeið um sum-
arið. Námskeið á sumarmisseri gætu
þannig bæði nýst þeim, sem gekk
illa með námskeiðin á hausti eða
vori og einnig þeim, sem vildu flýta
fyrir sér að ná fullum 30 einingum,
sem lánasjóðurinn krefðist.
Betra að kenna sumt á sumrin
Sveinbjörn bendir á að sum nám-
skeið gætu verið hentugri til kennslu
á sumrin en veturna. „Af því að
þetta yrði viðbót við núverandi
námsskipulag þá gætum við ekki
farið út í þetta nema það yrði kostað
sérstaklega. Við gætum hins vegar
látið húsnæði. Það kæmi líka til
greina að hafa þetta úti á landi ef
það eru heimavistir lausar einhvers-
staðar. Hugmyndin er að kenna
þriggja eininga námskeið á þremur
vikum, þar sem menn lærðu ekkert
annað. Það þyrfti ekki nema fáa
kennara til að sinna þessu,“ segir
hann og vonar að háskólaráð muni
taka jákvætt í hugmyndina en þetta
ráðist allt eins af því hvaða áhuga
stúdentar hafi.
Volkswagen Vento GL. Aukabúnaöur á mynd: Álfelgur og vindskeiö.
Glæsileiki í sinni tærustu mynd!
Volkswagen Vento GL
Glæsileiki og fegurð einkenna Volkswagen Vento yst sem innst.
Þokkafullt útlit, kraftur, mikið rými og hagstætt verð sameinast í
þessum gæsilega bíl.
StaðalbúnaSur í Volkswagen Vento GL: • Öflug 1.8 lítra vél
• Rammgert öryggisbúr • Aflstýri • Veltistýri • Samlæsingar á
hurðum • Mjög vönduð //velour"-innréttingm Fjölstilling á öku-
mannssæti • Rafstýrðir speglar • Stillanlegir höfuðpúðar á aftur-
sælum • Samlitir stuðarar og speglar • Niðurfellanlegt aftursæti
(60/40) • 14 tommu felgur • 550 lítra farangursrými.
nxnDEXZHHi hekla Volkswagen
Laugavegi 170 -174 • Sími 69 55 00 Öruggur á alla vegu!
kr. á götuna