Morgunblaðið - 19.07.1994, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Unglingar frá Færeyjum, Grænlandi og Islandi vinna Vestnorden-verkefni
Unnið að verkefnum
í Drangey og Bólu
Fyrrihluta júlímánaðar var hóp-
ur unglinga frá grannlöndum
íslands, Færeyjum og Græn-
landi, að störfum í Skagafirði og
unnu þau að svokölluðu Vest-
norden-verkefni, sem beinist að
varðveislu náttúrulegra og sögu-
legra verðmæta.
I hópnum voru sex íslending-
ar, fimm frá Færeyjum og fjórir
frá Grænlandi, en verkefnisstjóri
var Sigurður Jónsson, og er áætl-
að að vinna að samskonar verk-
efnum næsta sumar í Færeyjum,
en síðan á Grænlandi.
Þegar við komuna í Skaga-
fjörð bvrjaði hópurinn á því að
vinna við minningarlund og
miunismerki Hjálmars Jónssonar
í Bólu í Blönduhlíð, en þaðan var
haldið út með og út á fjörð, því
að þessu næst tók hópurinn þátt
í lagfæringum á Reykjadiski, en
þar er Jón Eiríksson bóndi í
Fagranesi að gera viðlegugarð
og láta hlaða upp gamla sjóbúð
og síðar hugsanlega önnur mann-
virki, og eru það Jóhannes Ara-
son frá Múla í Kollafirði og Birg-
ir Friðriksson frá Sauðárkróki
sem eru vegghleðslumeistarar
hinna gömlu húsa.
Áður hafði Jón hlaðið upp
Grettislaug, sem er heit upp-
spretta við fjörukambinn á
Reykjadiskinumþar sem sagan
segir að Grettir Ásmundarson
hafi hvílst eftir að hafa synt úr
Drangey, og Birgir Friðriksson
hlaðið veglegan skjólgarð úr
fjörugijóti við laugina.
Uti í Drangey vann hópurinn
að lagfæringum við uppgönguna
í eyna og einnig í Uppgönguvík-
inni, þar sem Jón Eiríksson legg-
ur bát sínum Víkingi, þegar hann
flytur ferðamenn út í eyju.
Jón Eiríksson sagði að sig
langaði til að koma sjóbúðinni í
gott horf, og einnig væru þarna
á staðnum rústir af gömlu nausti
og hjalli sem vel væri þess virði
að gera upp, og með gijótgarðin-
um, sem nú hefur verið gerður,
væri unnt að flylja ferðamenn
út í Drangey á mun skemmri
tíma en áður, þegar þurfti að
fara frá Sauðárkróki.
Morgunblaðið/BB, Sauðárkróki
Myndin að ofan sýnir er byijað var að hlaða upp gömlu sjóbúð-
ina. Að neðan er Grettislaugin, en hún er heit og gott að baða
sig þar, eins og Grettir gerði forðum.
Smyglað tób-
ak til sölu í
söluturni
LÖGREGLA lagði um helgina
hald á 21 pakka af smygluð-
um vindlingum í söluturni við
Rauðarárstíg.
Lögreglu var tilkynnt að í
söluturninum væri til sölu
tóbak án íslenskra merkinga.
Farið var á staðinn og fannst
21 pakki af Winston-tóbaki
sem báru með sér að hafa
ekki komist í dreifingu eftir
löglegum leiðum.
Lögreglan hefur áður þurft
að hafa afskipti af söluturnin-
um vegna áfengissölu.
Fimm vegaframkvæmdir í kynningu
Mat á umhverfis-
áhrifum fer fram
EMBÆTTI skipulagsstjóra ríkisins hefur nú til afgreiðslu fimm tilkynning-
ar um fyrirhugaðar framkvæmdir og mat á umhverfísáhrifum þeirra.
Hafa þær allar verið auglýstar til kynningar sem stendur yfir í fímm vikur
í hveiju tilfelli. Kynning fer fram á skrifstofu Skipulags ríkisins, Lauga-
vegi 166 í Reykjavík, svo-og í viðkomandi sveitarfélögum og fást nánari
upplýsingar um kynningarstaði hjá S'kipulagi ríkisins og viðkomandi sveit-
arstjóm. Skriflegum athugasemdum ber að skila til Skipulags ríkisins.
Eftirtaldar framkvæmdir eru nú
í kynningu: 1. Útnesvegur um Klif-
hraun, Snæfellsbæ. Athugasemdir
berist fyrir 28. júlí 1994. 2. Breikk-
un Vesturlandsvegar, mislæg
gatnamót Vesturlandsvegar og
Höfðabakka í Reykjavík. Athuga-
semdir berist fyrir 3. ágúst 1994.
3. Vestfjarðavegur nr. 60 um Gils-
fjörð í Saurbæjar og Reykhóla-
hreppi Barðastrandarsýslu. At-
hugasemdir berist fyrir 5. ágúst
1994. 4. Vegtenging um utanverð-
an Hvalfjörð. Jarðgöng undir Hval-
fjörð, tenging þeirra frá núverandi
vegi sunnan íjarðar við Saurbæ í
Kjalarneshreppi og til Akraness til
vesturs og austurs með Akrafjalli
á Vesturlandsveg við Laxá í Leirár-
sveit um Innri-Akraneshrepp og
Skilmannahrepp. Athugasemdir
berist fyrir 9. ágúst 1994. 5.
Hólmavíkurvegur um Borðeyri,
Bæjarhreppi, Strandasýslu. At-
hugasemdir berist fyrir 18. ágúst
1994.
Neikvæð umhverfisröskun
verði sem minnst
Hin nýtilkomnu lög um mat á
umhverfisáhrifum gera ráð fyrir
að áform um framkvæmdir séu
kynnt opinberlega svo þeir sem
telja sig framkvæmd varða geti
fengið tækifæri til að tjá sig í tíma.
Með mati á umhverfisáhrifum er
leitast við að afla nauðsyniegra
upplýsinga sem liggja þurfa fyrir
við ákvörðun um nýframkvæmdir
svo neikvæð umhverfísröskun
verði sem minnst. Með auglýsingu
framkvæmdar og kynningu er
reynt að tryggja rétt þeirra sem
málið varðar til að tjá sig og jafn-
framt úrskurður um heimild til
framkvæmdar byggi á sem bestum
gögnum, eins og segir í frétt frá
Skipulagsstjóra ríkisins.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
GASKÚTARNIR kannaðir eftir að eldurinn var slökktur.
Mikil sprengihætta
af eldi í
Sclfossi, Morgunblaðið.
MIKIL hætta skapaðist á verkstæði
Ræktunarsambands Flóa og Skeiða
við Gagnheiði á Selfossi þegar loki
sprakk ofan af gaskút og eldsúla
gaus upp. Einn starfsmanna fyrir-
tækisins var að vinna við logskurð
rétt við gaskútinn og við lá að hann
króaðist af. Hann komst fram hjá
kútnum og kallaði til slökkvilið.
„Ég var að logskera úti í horni,
rétt fyrir innan kútinn. Þá heyrði
ég að toppurinn á kútnum fór af
með hvelli. Þegar ég leit við stóð
eldsúlan upp úr kútnum. Mér brá
auðvitað rosalega en komst framhjá
gaskát
kútunum til að kalla á slökkviliðið,“
sagði Kristinn Bergsson starfsmað-
ur hjá Ræktunarsambandi Flóa og
Skeiða.
Slökkviliðsmenn lögðu sig í bráða
hættu við að kæla gaskútinn niður
og forða því að hann og súrkúturinn
við hlið hans spryngju. Þeim tókst
fljótt að yfirbuga eldinn og héldu
síðan áfram að kæla kútana. Engar
verulegar skemmdir urðu á verk-
stæðinu.
Lögreglan lokaði af svæði í
kringum verkstæðið vegna sprengi-
hættunnar.
11 prestar
sækja um
3 embætti
UMSÓKNARFRESTUR um
stöðu presta á Selfossi, Kol-
freyjustaðarprestakall í Fá-
skrúðsljarðarsókn og á Rauf-
arhöfn rann út 15. júlí sl. Sex
prestar sóttu um á Selfossi,
fjórir á Kolfreyjustað og einn
á Raufarhöfn.
Um Selfossprestakall sóttu
þeir Eiríkur Jóhannsson,
prestur á Skinnastað, Guð-
mundur Guðmundsson, að-
stoðarprestur í Neskirkju,
Gunnar Siguijónsson, prestur
á Skeggjastöðum, Haraldur
Kristjánsson, prestur í Vík í*
Mýrdal, Jón Ragnarsson,
deildarstjóri fræðsludeildar
kirkjunnar, og Þórir Jökull
Þorsteinsson, settur prestur á
Grenjaðarstað. Um embættið
á Kolfreyjustað sóttu þeir
Bragi Benediktsson, prófastur
á Reykhólum, Carlos Ferrer,
Sigurður Ægisson, prestur í
Bolungarvík og Önundur
Björnsson. Ágúst Einarsson,
settur prestur á Raufarhöfn
frá febrúar sl., sótti einn um
embættið þar.
Varað við
slökkvitækjum
BRUNAMÁLASTOFNUN rík-
isins telur að áströlsk hand-
slökkvitæki af tegundinni Fire
Out veiti falskt öryggi og var-
ar fólk við að kaupa slík tæki.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá stofnuninni hefur hún þeg-
ar bannað notkun tækjanna
en hefur engu að síður fengið
ábendingar um að tæki af
þessari tegund séu boðin í
heimasölu.
Handslökkvitæki þessi eru
einnota og hlaðin með 0,4 kg
af ABC þurrdufti. Um ástæðu
þess að tækin voru bönnuð
segir í fréttatilkynningunni,
að þau séu of lítil til að koma
að gagni fyrir óþjálfaða not-
endur og veiti þannig falskt
öryggi. Að mati stofnunarinn-
ar er hæfilegt að hafa sex kg
ABC dufttæki á heimilum,
sumarbústöðum og í bílskúr-
um en tveggja kg tæki í bílum.
Fimm tilboð
í Nesveg
FIMM tilboð bárust Vegagerð
ríkisins í framkvæmdir við
Nesveg milli Sandvíkur og
Reykjanesvita.
Lægst bauð Klæðning hf. í
Garðabæ, eða rúmar 25,5
milljónir, sem er 91% af kostn-
aðaráætlun. Aðrir sem buðu
voru Ellert Skúlason hf.,
Njarðvík,. Bergmót hf.,
Reykjavík, Borgarverk hf.,
Borgamesi, Ræktunarsam-
band Flóa og Skeiða, Selfossi
og Árvélar hf., Selfossi.
Velta í
Þrengslum
MAÐUR var fluttur á slysa-
deild eftir bílveltu í Þrengslun-
um um klukkan 10 í gærmorg-
un.
Maðurinn kenndi eymsla í
baki og hálsi eftir að Toyota
Corolla fólksbíll sem hann ók
lenti út af veginum og valt.
Að sögn lögreglu á Selfossi
voru meiðsli mannsins ekki
talin hættuleg.