Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 11 LAIMDIÐ Morgunblaðið/Sigríður, Siglufirði. Síldarminjasafnið í Róaldsbrakka. segja að einkum hafi verið lögð áhersla á tvennt í starfi félagsins. í fyrsta lagi að henda reiður á muna- safnið, bjarga því frá glötun, koma upp bráðabirgðasafni og halda áfram söfnun mikilvægra minja. I öðru lagi var hafin endursmíði á Róalds- brakka, sem var eitt af húsunum sem friðuð voru árið 1978. Heldur illa var komið fyrir brakk- anum, hann gamall, lúinn og af mörgum dæmdur ónýtur. Nú hefur hann verið yngdur upp og ber nú sama svipmót og 1907, þegar hann var vígður á Jónsmessu það sumar. Endursmíði brakkans er undir umsjá Húsafriðunarnefndar og hefur Stef- án Örn Stefánsson, arkitekt, hannað verkið. Mikið verk liggur að baki og unn- ið hefur verið af kappi undanfarnar vikur úti og inni, og tekist hefur að ljúka flestu því sem ætlunin var að gera. Á neðstu hæð brakkans hefur verið sett upp sýning á munum og myndum tengdum veiðum og söltun. Enn er margt ógert á efri hæðum brakkans, en stefnt er að því að ljúka við það fyrir 90 ára afmæli brakk- ans, sem er á Jónsmessu 1997. _ Frá opnun síldarminjasafnsins. Styrktaraðilar Allt kapp hefur verið lagt á það að Róaldsbrakki yrði gerður sem veglegastur á ný og það sem allra fyrst. Þrátt fyrir nokkurn mótbyr og skakkaföll við upphaf verks hafa framkvæmdir gengið vonum framar. Því ber fyrst og fremst að þakka FÁUM, með Örlyg Kristfinnsson í broddi fylkingar, svo og þeim mikia velviija og skilningi sem þetta mál naut, að koma á fót síldarminjasafni í brakkanum. Mjög margir hafa lagt málinu lið í smáu sem stóru, með vinnufram- lagi, andlegum stuðningi eða pen- ingagjöfum. Þeir helstu sem veitt hafa fjárstuðning: Styrkir Húsfriðun- arnefndar hafa verið það stórir í nokkur ár að segja má að það hafi riðið baggamuninn í öllu þessu verki. Menntamálaráðuneytið hefur veitt myndarlegan stuðning svo og ís- landsbanki, Sjóvá-Almennar hf., Skeljungur hf. og Siglufjarðarkaup- staður, sem nú á þessu ári og í fyrra veitir rausnarlegan stuðning. Bræðsluminjasafn í sjötíu ára gömlum vélarsal sunn- an við Róaldsbrakka hefur verið sett upp sýning á vélum og verkfærum frá annarri síldarvinnslu og er það hugsað sem vísir að bræðsluminja- safni. Lýðveldishlaupið Fyrsti gull- verðlauna- hafinn SEXTUGASTI þátttökudagurinn í Lýðveldishlaupinu var 13. júlí. Fjöldi manna hefur þegar unnið til brons- og silfurverðlauna og þeir sem duglegastir hafa verið að taka þátt í hlaupinu og hafa hlaup- ið eða gengið 3 km hvern dag síð- an hlaupið hófst þann 15. maí eiga nú rétt á gullverðlaunum. Þórir Jónsson, formaður UMFÍ, varð fyrstur til að fá afhent gull- verðlaun fyrir að hafa tekið sextíu sinnum þátt í hlaupinu, en auk Þóris hafa margir einstaklingar víðsvegar á landinu unnið til gull- verðlauna. Brons- og silfurverð- launahafar í Lýðveldishlaupinu eru nú þegar orðnir yfir 2.000 talsins og má vænta þess að stór hluti þeirra stefni á að ná gullverðlaun- um áður en Lýðveldishlaupinu lýk- ur þann 21. ágúst. Þátttökustaður fyrir Lýðveldis- hlaupið verður settur upp á Lands- móti UMFÍ á Laugarvatni nú um helgina og munu ýmsir fræknir kappar eins og Þórir Jónsson, Stef- án Jasonarson, Jón H. Sigurðsson, Sigurlaug Hermannsdóttir og Magnús Scheving leiða hlaupið. Anna Margrét Jóhannesdóttir verkefnissljóri Lýðveldis- hlaupsins veitir Þóri Jónssyni formanni UMFÍ gullmerki fyrir þátttöku í Lýðveldis- hlaupinu. ADnm # Laugavegi 47

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.