Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 13
VIÐSKIPTI
Skipasmíði
Styrlgum við skipasmíði
í OECD-löndum hætt
París. Reuter.
FULLTRÚAR helztu skipasmíða-
þjóða heims samþykktu um helgina
í meginatriðum að hætta ríkis-
styrkjum og afstýra verðstríði, en
samkomulag náðist ekki við
Frakka, sem hafa einangrazt.
Samkomulagið náðist í aðalstöðv-
um Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar, OECD, í París eftir fimm
ára viðræður Bandaríkjanna, Evr-
ópu- og Asíuríkja. Að sögn fundar-
manna er þetta umfangsmesta til-
raunin, sem gerð hefur verið til þessa
til að koma lagi á skipamarkaðinn
i heiminum eftir offramleiðslu og
miskunnarlausa samkeppni, sem
staðið hefur í mörg ár.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins kom fram fyrir hönd
Frakka og bandalagsþjóða þeirra í
viðræðunum við Kóreu, Japan,
Bandaríkin og Norðurlönd. Samn-
ingurinn hefur enn ekki verið undir-
ritaður og verður að fá pólitíska
staðfestingu.
Andstaða Frakka kom fram í
yfirlýsingu, þar sem sagði að þeir
„vildu að viðræðunum yrði haldið
áfram til þess að náð yrði samkomu-
lagi, sem virti hagsmuni allra að-
ila“. Frakkar segja að í samkomu-
V- itfÁ/a&MxMAi,
FULLTRÚAR helztu skipasmíðaþjóða heims samþykktu um helgina
að hætta ríkisstyrkjum og afstýra verðstríði. Samkomulagið náðist
eftir fimm ára viðræður Bandaríkjanna, Evrópu- og Asíuríkja.
lagsdrögunum sé sneitt fram hjá
óbeinum ríkisstyrkjum, sem við-
.gangist í nokkrum löndum, þótt
lagt sé bann við beinum ríkisstyrkj-
um eins og í Frakklandi.
Bent er á að nauðsynlegt sé talið
að tryggja atvinnu í tveimur helztu
skipasmíðastöðvum Frakka, Saint-
Lazaire og Le Havre, ári áður en
forsetakosningar fara fram.
Framleiðslumörk ekki tiltekin
Sagt er að Frakkar hafi í raun
sett það skilyrði að þeir fengju að
smíða 170.000 tonn á ári sem hing-
að til. Samþykkt var um að leyfa
ríkisstyrki til 250.000 tonna há-
markssmíði, en samkomulag náðist
ekki um skiptinguna.
Þar með áttu ESB-ríkin að fá
bætur fýrir bandarísku Jones-lögin,
sem sambandið hafði viðurkennt á
laugardag. Lögin kveða á um bann
við viðskiptum erlendra skipa á
strönd Bandaríkjanna og viðurkenn-
ing ESB á þeim átti mikinn þátt í
samkomulagi því sem náðist í París.
Að lokum var ákveðið að tiltaka
engin framleiðslumörk og í staðinn
gripið til gagnráðstafana, sem eru
leyndarmál að sögn fundarmanna.
Hugbúnaður
Microsoft
lætur af
einokun
Washington. Reuter.
MICROSOFT-fyrirtækið hefur
samþykkt að láta af ólöglegum ein-
okunaraðferðum, sem það er sakað
um að hafa beitt til þess að ná því
marki að verða stærsti og voldug-
asti hugbúnaðarframleiðandi
heims, með samkomulagi við
bandaríska dómsmálaráðuneytið og
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins.
Dómsmálaráðuneytið í Washing-
ton hafði ákveðið að höfða mál
gegn Microsoft, þar sem fyrirtækið
hefði bælt niður eðlilega samkeppni
og tryggt sér einokunaraðstöðu
með ákvæðum í samningum við
viðskiptaaðila.
Að sögn Anne Bingamans að-
stoðardómsmálaráðherra hefur
lengi verið nauðsynlegt að binda
enda á vafasama viðskiptahætti í
hugbúnaðariðnaðinum í Bandaríkj-
unum.
ESB hjálpaði til við ransókn
á Microsoft
Microsoft framleiðir MS-DOS og
Windows-stýrikerfin, sem notuð eru
í rúmlega 120 miíljónum einka-
tölva. Nokkrar helztu ásakanirnar
gegn fyrirtækinu Microsoft voru:
- Það skilyrði hafi verið sett að
tölvuframleiðendur greiddu Micro-
soft gjald fyrir hveija selda tölvu,
hvort sem í henni var Microsoft-
búnaður eða ekki.
- Óeðlilega langar leyfisveiting-
ar hafi skuldbundið tölvuframleið-
endur til þess að kaupa Microsoft
í mörg ár.
- Leynilegir samningar hafi tak-
markað getu óháðra hugbúnaðar-
fyrirtækja til þess að vinna með
framleiðendum annarra stýrikerfa.
Að sögn dómsmálaráðuneytisins
hefur verið haft samstarf við Evr-
ópusambandið við rannsókn Micro-
soft-málsins síðan í október. ESB
hefur rannsakað starfsemi fyrir-
tækisins í um það bil eitt ár.
Staóreyndir um Skoda
Allir þekkja Skoda, en færri þá byltingu
sem Skoda hefur gengiö í gegnum.
Skoda framleiðir nú eftir gæðastöðlum
móðurfyrirtækisins Volkswagen Group.
Skoda er því t.d. ryðvarinn eins og aðrir
bílar VW Group - með 6 ára ábyr gð.
Skoda Favorit er rnjög vel búinn m.a. með
samlæsingar, styrktarbita í hurðum, o.fl.
Skoda er með bensínsparandi Boscli
innspýtingu og kveikju.
Skoda er þrátt fyrir allar nýjungar,
ódýrasti evrópski billinn á
markaðnum.
Skoda Favorit Colour Line
kr. 718.000 ágötuna.
SKODA
Volkswagen Group
Nýbýíavegur 2, Kópavogur, sími 42600
B ílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauU
Kopavogi, sími
571800
M. Benz 280 SLC 6 cyl., sjálfsk., '75,
leðurklæddur, rafm. í rúðum, 2 dekkja-
gangar á felgum. Ástand og útlit óvenju
gott. V. 1100 þús., sk. á ód.
M. Benz 190E '84, steingrár, sjálfsk., ek.
135 þ., rafm. í rúðum, álflegur, loftkæling
o.fl. Óvenju gott eintak. V. 980 þús., sk.
á ód.
Isuzu Rodeo LS V6 '91, grænsans,
sjaffsk., ek. 65 þ., sóllúga, rafm. í öllu,
álflegur, útvarp+geislasp. Vandaður jeppi.
Toyota Corolla XL '88, steingrár, 4 g.,
ek. 82 þ. Tilboðsverð kr. 490 þús., stgr.
Peugeot 205 Junior '91, 5 dyra, 4 g., ek.
aðeins 37 þ. km. V. 550 þús. Tllboðsverð
Daihatsu Appiause 4x4 '91, grár, 5 g.
ek. aðeins 30 þ. km., dráttarkúla o.fl.
V. 980 þ. Sk. á ód.
MMC Galant GLSi '89, 5 g., ek. 90 þ.,
álflegur, rafm. í rúðum o.fl. Tilboðsverð
890 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade CS '88, 5 dyra, svart-
ur, 4 g., ek. 116 þ. km., (langkeyrsla), ný
coupling o.fl. Góður bíll. V. 285 þús.
Subaru Legacy station 4x4 árg. '90, 5
g., ek. 55 þ. Toppeintak. V. 1280 þús.,
sk. á ód.
MMC Lancer 1.8 GLX station 4x4 árg.
'88, 5 g., ek. 78 þ. V. 730 þús.
Chevrolet Blazer 4.3 L ’91,4 dyra, sjálfsk.,
ek. 39 þ., rafm. í öllu, álflegur o.fl. V. 2550
þús., sk. á ód.
Nissan Patrol T diesel langur, '86, óvenju
gott eintak, upphækkaður, lækkuð hlut-
föll o.fl V. 1650 þús.
Daihatsu Charade TS ’SB.ð dyra, 4 g.,
ek. 95 þ., nýskoðaður '95. V. 195 þús.
MMC Colt GLX '89, grænn, sjálfsk., ek.
80 þ. km., rafm. í rúðum o.fl. V. 660 þús.,
sk. á ód.
MMC Lancer GLX '89, bleikur, sjálfsk.,
ek. 60 þ. km., rafm. í rúðum. V. 720 þús.
Toyota Camry 2000 XLi '87, 5 g., ek. 121
þ. km. Toppeintak. V. 630 þús., sk. á ód.
Toyota Hi Lux Double Cap '91, diesel, 5
g., ek. 67 þ. km., 36" dekk, 5-71 hlutföll
o.fl. V. 1580 þús.
Mazda 323 1500 GLX '88, 3ja dyra,
sjálfsk., ek. 75 þ. km. V. 490 þús.
Topp eintak.
Fjörug bílaviðskipti!
Mikil eftirspurn eftir ný-
legum, góöum bílum.
Vantar slíka bíla á skrá
og á sýningarsvæðið.
Ekkert innigjald.
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!
- kjarni málsins!