Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 14

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Tveir féllu í átökum Palestínumanna við ísraelska lögreglu á Gaza Hörðustu atök frá samningi um sjálfsstjórn Stærsta brotið rekst á Júpíter STÆRSTA brotið úr hala- stjörnunni Shoemaker-Levy 9 rakst á Júpíter í gærmorgun, og var krafturinn af árekstrin- um á við 250 milljón megatonna sprengju, að sögn stjarnfræð- inga. Það var geimsjónaukinn Hubble sem tók þessa mynd af árekstrinum. „Þetta var rokna högg,“ sagði stjarnfræðingur- inn Eugene Shoemaker, á fréttamannafundi.Hann er einn þeirra sem uppgötvuðu halastjörnuna, sem er nefnd eftir þeim. Það var Brot-G, sem svo er nefnt, sem rakst á Júpít- er í gærmorgun, og er það stærsta brotið hingað til. Alls hafa sjö af 21 broti væntanlegu lent á Júpíter, en stjarnfræð- ingar reikna með að síðustu brotin lendi á plánetunni á föstudaginn. Ga/.a, Hebron. Reuter. ÍSRAELSK yfirvöld lokuðu öllum samgönguleiðum frá Gaza-svæðinu inn í landið í gær vegna blóðugra óeirða sem urðu þar á sunnudag. Þá féllu a.m.k. tveir Palestínumenn og á annað hundrað manns, þ. á m. 17 ísraelskir verðir, særðist er til átaka kom þegar palestínskir verkamenn biðu eftir því að ísra- elskir landamæraverðir hleyptu þeim i gegn. Fannst Palestínu- mönnum verðirnir fara sér óvenju hægt. Um 15.000 manns á Gaza stunda vinnu sína í Israel. Sagðir hafa skotið í fáti Fulltrúar beggja deiluaðila munu hafa komið saman í gær til að reyna að setja betri reglur um ferðir pa- lestínsku verkamannanna. ísraelar saka palestínska lög- reglumenn í stöð skammt frá ísra- elsku varðstöðinni við Erez-hliðið um að hafa skotið í fáti í allar átt- ir og m.a. á ísraelsku verðina þeg- ar ólætin hófust. Talsmenn pa- lestínskra yfirvalda á sjálfsstjórn- arsvæðunum vísa þessu á bug, segja óeirðirnar afleiðingu margra ára kúgunar á hernumdu svæðun- um. „Þegar maður kemst að raun um að hann getur ekki brauðfætt ljölskyldu sína getur hann gripið til örþrifaráða", sagði Rashid Abu Shbak, háttsettur embættismaður í stjórn Yassers Arafats á Gaza sem nú hefur umsjón með um 60% svæðisins. Þúsundir manna tóku þátt í átök- unum sem eru þau mestu er orðið hafa síðan ísraelar og Palestínu- menn sömdu um sjálfsstjórn á hluta hernumdu svæðanna. Mikið eigna- tjón varð, bensínstöð við varðhlið Israela var lögð í rúst og kveikt var í meira en 150 rútubílum. Reykjarmekkirnir stigu hátt til lofts og sáust í 15 km fjarlægð. Palestínskur embættismaður sagði að fimm Palestínumenn hefðu týnt lífi en ísraelska útvarpið fullyrti.að fórnarlömbin hefðu verið tvö. Til mótmæla kom annars staðar á her- numdu svæðunum vegna atburð- anna og særðu ísraelskir hermenn tvo Palestínumenn í Hebron í gær. ísraelar fullyrða að óeirðirnar hafi bytjað þegar palestínskur lög- reglumaður missti vopn sitt í hend- ur óeirðaseggja sem hafi síðan skotið upp í loftið. Fólk hafi þá ruðst í gegnum varðstöð palest- ínsku lögreglunnar og kastað hafi verið grjóti í ísraelsku verðina sem hafi orðið að vetja hendur sínar. Sjónarvottur sá fólk betja bifreiðar Palestínulögreglunnar, það sakaði hana um að veita ekki löndum sín- um vernd fyrir ísraelum. Annar sjónarvottur sagðist hafa séð land- nema úr röðum gyðinga, sem eru nokkur þúsund á Gaza-svæðinu, skjóta á palestínska varðstöð. Embættismaður Arafats sagði palestínsku lögreglumennina að- eins hafa skotið upp í loftið til að reyna að dreifa æstum mannfjölda. ísraelar segja að palestínsku öfga- samtökin Hamas, sem beijast gégn friðarsamningum og stjórn Ara- fats, hafi staðið á bak við átökin. Hamas hyllti í gær palestínska lög- reglumenn sem skotið hefðu á ísra- elska verði á sunnudag. Reuter Breski barnsræninginn Foreldrarnir beðnir afsökunar London. Reuter. Hungursneyð vofir yfir Rúandamönnum í Zaíre Líf hundruða þúsunda í hættu Reuter RÚANDISK flóttakona tekur ungabarn frá látinni móður þess, nærri landamærunum við Zaír í gær. JULIE Kelley, 22 ára gömul bresk kona, sem rændi nýlega fjögurra daga gamalli stúlku af sjúkrahúsi í Nottingham, bað í gær foreldra barnsins afsökunar. Lögmaður hennar las upp yfirlýsingu þessa efnis. Barnið fannst óskaddað á laugardag eftir tveggja vikna leit. Litla stúlkan heitir Abbie Hump- hries og hefur lögregluleitin að henni um allt landið verið helsta fréttaefnið í Bretlandi undanfarnar vikur. Bresk dagblöð segja að Kel- ley, sem býr rétt hjá sjúkrahúsinu, haft blekkt foreldra sína, kærasta Elsta móðir heims 62 ÁRA ítölsk kona, Rosanna Della Corte, varð elsta móðir heims í gær þegar hún 61 13 marka dreng. „Það var eins og tvítug kona væri að ala barn,“ sagði Sever- ino Antinori, umdeildur læknir sem hefur gert konum, sem eru komnar úr barneign, kleift að ala börn. Barnið var tekið með keisaraskurði. og flesta nágranna sem öll hafi haldið að hún hafi eignast barnið. Áður leitað hjá Kelly Nágrannar fóru að kanna fæð- ingarskýrslur og var hvergi minnst á að barn hefði fæðst í hverfinu þótt Kelley hefði virst vera barns- hafandi síðustu mánuði. Lögreglu var skýrt frá þessu en það þykir undarlegt að lögreglumenn sem leituðu að Abbie litu inn hjá Kelley fjórum dögum fyrr en sannfærðust þá um að um annað barn væri að ræða. Danadrotting á batavegi Kaupmannahöfn. Reuter. MARGRÉT Þórhildur Danadrottn- ing gekkst í gær undir aðgerð vegna krabbameins í legi. Hún er á góðum batavegi. I aðgerðinni var legið numið á brott, og eru líkur á fullum bata sagðar mjög góðar. Aðgerðin var framkvæmd á sjúkrahúsinu í Árósum, þar sem fjölskylda drottningar var í sumarleyfi. ÞÚSUNDIR Rúandamanna, sem flúðu til Zaíre, deyja á næstu dögum verði þeim ekki komið til hjálpar án tafar og líf hundruða þúsunda manna er í hættu, að sögn tals- manna hjálparstofnana í gær. Þeir sögðu ástandið hrikalegt og þörfina á matvælum jafnvel meiri en í hung- ursneyðinni í Sómalíu. Rúm milljón Rúandamanna, flestir þeirra hútúar sem eru í meiri- hluta í Rúanda, hefur komið til borgarinnar Goma í Zaíre síðustu daga. Nokkrir flóttamannanna hafa þegar látið lífið af völdum vatns- skorts og matvælum hefur ekki enn verið dreift í bænum. „Verði ekki gripið til mikilla neyðaraðgerða taf- arlaust verður Goma að mesta hörmungarsvæðinu í heiminum," sagði í yfirlýsingu frá Refugees International, hjálparstofnun með höfuðstöðvar í Washington. Sprengjuvörpuárás á flóttafólk - Þýsk stjórnvöld ákváðu að senda flutningavél með matvæli til Goma í gær að beiðni Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þúsundir hermanna hútú-stjórn- arinnar hafa einnig flúið yfir landa- mærin til Zaíre með vopn og bryn- varðar bifreiðar. Hermenn Zaíre reyndu að afvopna þá og mikil spe.tna er við landamærin. Fjöldi tútsa býr í Goma og óttast er að til átaka komi milli þeirra og hútúa úr röðum flóttamannanna. Franskir hermenn og starfsmenn Rauða krossins fluttu særða Rú- andabúa frá landamærunum að Zaíre eftir að 120 flóttamenn hið minnsta biðu bana þar vegna bar- daga milli uppreisnarmanna og her- manna hútú-stjórnarinnar. Hræðileg sjón blasti við frétta- mönnum sem komu á svæðið í gærmorgun. Þeir sáu lík ungra barna sem létu lífið í miklum troðn- ingi þegar flóttamennimir lögðu á flótta vegna sprengjuvörpuárásar á sunnudag. Særðir flóttamenn hróp- uðu enn á hjálp mörgum klukku- stundum eftir árásina. Smábarn svaf hjá blóðstorknu líki móður sinnar og í kringum það voru lík 30 annarra sem biðu bana í árásinni. „Við fordæmum sprengjuvörpu- árásina harðlega. Þetta er glæp- samlegt athæfi,“ sagði Panos Mo- umtzis, talsmaður Flóttamanna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Frakkar í átökum Franska stjórnin skýrði frá því á sunnudag að franskir hermenn hefðu lent í átökum við uppreisnar- menn á verndarsvæðinu sem Frakk- ar komu upp í Rúanda, sunnan við Goma. Ráðherrar hútú-stjórnarinnar hafa flúið yftr á verndarsvæðið, en þeir hafa verið sakaðir um að hafa staðið fyrir tilraun til að útrýma tútsum. Uppreisnarmennirnir, sem eru flestir tútsar, hafa varað Frakka við því að þeir ætli að ná ráðherrun- um og sækja þá til saka fyrir stríðs- glæpi. Franska stjórnin hefur sagt ráðherrana „óæskilega“ á svæðinu en ráðið uppreisnarliðinu frá því að ráðast á verndarsvæðið. Hálf önnur milljón flóttamanna er á verndarsvæðinu og hjálpar- stofnanir óttast að þeir flýi til Zaíre haldi uppreisnarliðið áfram sókn sinni. Allt að 100.000 manns hafa þegar flúðið þaðan til Zaíre frá því á föstudag. Ný stjórn í dag Flokkur uppreisnarliðsins, Föð- urlandsfylking Rúanda (RPF), hef- ur tilnefnt hútúa, Pasteur Bizi- mungu, sem forseta landsins og ráðgert er að ný stjórn taki við völdunum í dag. Forsætisráðherra hennar verður einnig hútúi, Faustin Twagiramungu. Með því að veita hútúum tvö æðstu embættin virtist Föðurlands- fylkingin vilja sannfæra hútú-meiri- hlutann um að nýja stjórnin yrði honum ekki andvígur. Fjórir flokkar hútúa fá sæti í stjórninni en ekki þeir sem tengjast Juvenal Habyarimana, forsetanum sem var drepinn 6. apríl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.