Morgunblaðið - 19.07.1994, Síða 17

Morgunblaðið - 19.07.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 17 Syngjandí skáld TÖNLIST Trúbadúr Þel Harðar Torfasonar Þel, safn helstu laga Harðar Torfa- sonar, upptökur frá 1971 til 1993. Hörður leikur á gítar og syngur með ýmsum aðstoðarmönnum. Lög eru eftir Hörð og flestir textar. Ofar gefur út, Japís dreifir. 69,23 mín., 1.990 kr. HÖRÐUR Torfason hefur verið kallaður nestor íslenskra trúbad- úra og víst er að hann ruddi braut- ina fyrir fjölmarga sem þrætt hafa þjóðvegi landsins undanfarin miss- eri með gítarinn á bakinu. Fáir hafa þó verið eins duglegir að gefa út tónlist sína og Hörður og það þó ekki hafi hann alltaf átt upp á pallborðið hjá sómakærum fyrir óvægna texta og bersögla. Fyrstu lög plötunnar hafa flest- um lögum oftar heyrst í útvarpi, að minnsta kosti lag Harðar við texta Tómasar Guðmundssonar, Ég leitaði blárra blóma. Vegna lagaskipaninnar á plötunni gefst reyndar einstök yfirsýn yfir þróun Harðar sem tónlistarmanns og glöggt má sjá hvernig hann hefur þróast úr því að vera hálfgerður skemmtikraftur í að vera syngj- andi skáld, því á yngri lögum má heyra hvernig textar Harðar verða sífellt meitlaðri og hnitmiðaðri, aukinheldur sem hann hefur náð sífellt betri tökum á söngnum og gaman er að heyra hvernig hann beitir grua blæbrigða til að undir- strika hendingar textanna, eins og til að mynda í Línudansaranum af Hugflæði. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Hörður Torfason Á fyrstu tveimur breiðskífum Harðar söng hann eigin lög við ljóð ýmissa höfunda og á plötunni eru fimm lög af þeim plötum, en tvö lög eru af þriðju plötu Harðar, Dægradvöl, sem sver sig í ætt við hinar tvær, en hann samdi öll lög og texta á þeirri plötu. Vendi- punktur varð hinsvegar í tónsmíð- um og textagerð Harðar á plöt- unni Tabú, sem vakti hneykslan fyrir hispursleysi í textasmíðum þar sem íslenskt þjóðfélag og sið- gæði er lagt undir skurðhnífinn. Mörgum árum síðar var annar hver tónlistarmaður farinn að syngja um álíka yrkisefni, en það verður að segjast eins og er að textarnir hafa ekki elst vel. Meðal annars fyrir tónlistina er Tabú ein besta plata Harðar og gaman hefði verið að fá fleiri lög af henni, því á næstu plötu, Hugflæði, má segja að Hörður hafi leitað aftur í ein- faldari tónlist, en þrjú lög eru af þeirri plötu, þó á milli hafi verið bráðskemmtilegir sprettir eins og í Veiðisögunni. Af tónleikaplötunni Rauða þræðinum eru tvö lög, ann- að frábært lag Harðar við ljóð Bertolds Brechts um Maríu Farr- ar, sem Halldór Laxness þýddi, og á þeim upptökum má glöggt heyra hvað Hörður er mikill sviðs- maður, enda setur hann tónleika upp eins og leiksýr.ingu. 1990 kom út frá Herði plata á dönsku fyrir Danmerkurmarkað,. Lavmælt, plata, lágstemmdasta verk hans og eitt það fágaðasta. Þó Tusmorkefred sé besta lagið af þeirri plötu, hefðu þau að skað- lausu mátt vera fleiri. Lokalögin á plötunni eru svo afbragðslagið Ljóð af Kveðju, sem kom út 1992, og Dúfan, sem gefið var út á safn- plötunni Börnin heim, en fyrra lagið var endurunnið síðasta sum- ar og hið síðara snemma á þessu ári. Sérstaklega er endurvinnslan á Dúfunni vel heppnuð og gefur fyrirheit um framtíðarplötur Harð- ar. Það hefur verið úr vöndu að ráða fyrir Hörð Torfason að velja úr lagasafni sínu á þessa plötu, því af nógu er að taka, og víst eru margir sem sakna uppáhaldslaga. Hörður lét hafa það eftir sér við útgáfu plötunnar að hann hefði farið nokkuð eftir því hvaða lög áheyrendur völdu helst að fá að heyra. Það er víst vísindaleg stað- reynd að ekki er hægt að koma miklu meiri tónlist á geisladisk en hér er gert og því ekki annað að gera en njóta Þels og bíða eftir Þeli 2. Árni Matthíasson Græðandi sólarvörur Heilsuvai, tfapanssim ZU ^626275. Biddu um Banana Boat SÓLMARGFALDARANN ef þú vilt verða dökksólbrún/n í sólléttu skýjaveðri. □ Græðandi Banana Boat varasalvi með eða án litar, steyptur úr Aloe Vera. Sólvörn #18 og #21. □ Um 40 mismunandi gerðir Banana Boat vatnsheldra (water proof) sólkrema og sólolla með sólvörn #0, #2, #4, #8, #15, #18, #21, #23, #25, #29, #30, #34 og #50. Verð frá kr. 295,-. □ Hárlýsandi Joe Soap Hair Care sjampó. o Naturica Sólbrún-lnnan-Frá BK-hylki. □ 99,7% Aloe Vera gel frá Banana Boat, 40—60% ódýrara en önnur Aloe gel. 6 misstórar túpur og flöskur. Biddu um Banana Boat í öllum heilsubúðum utan Reykjavikur, sólbaðsstofum, snyrtivöru- verslunum og apótekum, Banana Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis- og exem- sjúklinga. Salóme í Listhorninu Ofbeldi o g atvinnuleysi VEFLISTAKONAN Salome Guðmundsdóttir er nýbúin að opna sýningu í Listahorninu á Akra- nesi. Þar sýnir hún sex verk. Salome lærði vefnað á Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur á ísafirði 1963-1965 og hefur sótt vefnað- arnámskeið í Húsmæðraskóla Reykjavíkur auk margra annarra námskeiða. Hún rak vefstofu á Akranesi í 8 ár og er nú með vinnu- stofu á heimili sínu. Hún hefur tekið þátt í ýmsum sýningum. Sýning Salóme stendur til 15. ágúst. VÉLGENGT glóaldin eftir Anthony Burgess verður frumsýnt í Sumarleikhúsinu við Hlemm föstudaginn 22. júlí nk. Leikritið segir frá Alex, fimmtán ára ungl- ingi, sem hlustar á Beethoven milli þess sem hann nauðgar og mis- þyrmir samborgurum sínum. Hann talar Nadsar sem er sérstakt rúss- neskuskotið unglingaslangur. Hann lendir í fangelsi eftir að hafa verið svikinn af vinum sínum. Þar undirgengst hann meðferð sem gerir honum ókleyft að beita nokk- urn ofbeldi. í leikritinu varpar Burgess fram hugleiðingum sínum um eðli mannsins hvort það sé ekki einmitt ófullkomleikinn sem geri hann að skyni borinni veru. Leikritið drepur á mörgum málefn- um sem brenna á fólki má þar nefna ofbeldi, atvinnuleysi og auk- ið rótleysi í þjóðfélaginu. Leikstjóri er Þór Tulinius og þýðandi er Veturiiði Gunnarsson. Aðalhlutverk er í höndum Gott- skálks Dags Sigurðarsonar og Þor- - svefnpokapláss láks Lúðvíkssonar. Bono og The Edge úr írsku rokkhljómsveitinni U2 hafa samið tónlist við verkið og verður hluti hennar notuð í uppfærslunni. Ljósahönnuður er Sigurður Guðmundsson, Linda Björjg Árnadóttir hannar búninga og Olafur Árni Ólafsson og Auður Jónsdóttir sjá um leikmynd. mmmsmmsmmksmmmmmmmmm Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Sigurður Haukur Lúðvíksson Sigurður Haukur sýnir í Eden Hveragerði - Nú stendur yfir sýning á verkum listmálarans Sig- urðar Hauks Lúðvíkssonar í Eden, Hveragerði. Sigurður Haukur sem sýnir 36 olíumálverk í Eden nam málaralistina bæði hjá Finni Jóns- syni og Jóhanni Briem. Myndefni sitt sækir hann til íslensks þjóð- lífs, bæði til sjávar og sveita. Sýningin í Eden er þriðja sýning listamannsins þar. Hann hefur einnig sýnt í Háholti, á Mokka og í tvígang tekið þátt í alþjóðlegri samsýningu í Nice í Frakklandi. sýningin í Eden er opin alla daga og stendur til og með sunnudaginn 24. júlí. Tveir ■ lausir og liðugir Léttir og þægilegir þráðlausir símar. Telepocket 200 Lítill og léttur þráðlaus sími með skjá Handtæki vegur aðeins 210 gr með rafhlöðu • Aukarafhlaða í hleðslu meðan handtæki er í notkun • 20 númera skammvalsminni með nöfnum* Endurval* Stillanleg hringing. Hagenuk Sterkur og vandaður þráðlaus sími með skjá 20 númera skammvalsminni • Endurval • Auka- rafhlaða í hleðslu meðan handtæki er i notkun • Stillanleg hringing • 100 stillingar á hringtóni. PÓSTUR OG SÍMI Söludeild Ármúla 27 s: 91-636680, Söludeild Kringlunni s: 91-636690, Söludeild í Kirkjustræti s: 91-636670 og á póst- og símstöðvum um land allt GOTTFÓLK/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.