Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 18

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Þorkell Kombóið, Ellen Kristjánsóttir með dóttur sinni, Þórður Högna- son, Birgir Baldursson og Eðvarð Lárusson. Hægð og stilling TONLIST Lágstcmmt jasspopp KOMBÓIÐ Kombóið með samnefnda plötu. Kombóið skipa Ellen Kristjánsdóttir, Þórður Högnason, Birgir Baldursson og Eðvarð Lárusson. Japís gefur út 40,03 mín. 1.990 kr. KOMBÓIÐ er nokkuð sér á parti í íslenskum tónlistarheimi ef marka má nýja breiðskífu hljóm- & Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 Dragtir Kjólar Blússur Pils Ódýr náttfatna&ur 12, sími 44433. sveitarinnar, sem er reyndar það fyrsta sem heyrist frá henni utan að einhveija tónleika hefur hún haldið. Þegar í fyrsta lagi breið- skífunnar, Gamall maður, kveður við tón sem ekki hefur heyrst áður hér á landi svo neinu nemi; seið- andi gítarlínur og brothættur lág- stemmdur söngur. í öðru laginu er sett á meiri ferð, þó ekki sé ferðin mikil þar né í öðrum lögum plötunnar. Það er þó nóg að ger- ast ef vel er hlustað, en hlustand- inn verður að teygja sit í átta að sveitinni til að nema það sem fram fer og það er vel þess virði. Upphafslagið, Gamall maður, er skemmtilegt lag þó ekki sé það flókið, og Blue Roses er einnig gott lag, Tom Waits lagið Blue Skies er skemmtilega jassskotið og White Face (Moon Lady), rokk- aðasta lag plötunnar, en varla rokklag þó, kemur skemmtilega út. Hljóðfæraleikur allur er til fyr- irmyndar, þó hvergi hleypi menn á hlemmiskeið, enda Kombóið skip- að hljóðfæraleikurum í fremstu röð. Mest ber á smekklegum gítar- leik Eðvarðs Lárussonar, til að mynda í Blue Skies, en þeir Birgir Baldursson og Þórður Högnason flétta saman þéttan og sveigjan- legan grunn á bassá og trommur sem hæfir einkar vel rödd Ellenar. Illt er að vita ef Kombóið fer framhjá tónlistarunnendum vegna þess eins hve tónlistin er lág- stemmd og krefst mikils næðist við hlustun, því það er vel þess virði að leggja við hlustir. Árni Matthíasson Slakur leikur TÖNLIST S k á I h o 11 Kirkjutónlist eftir J.S. Baeh Bachsveitin og kór Laugardaginn 16. júlí 1994 KIRKJUTÓNVERK þau er J.S. Bach samdi, spanna allt frá einföldu sálmalagi til stórbro- tinna tónverka eins og H-moll messunnar. Skrásettar eru 222 kantötur og eru þá taldar með þær sem eru glataðar og ekki eftir Bach en eignaðar honum áður fyrr. Um það bil 200 eru með réttu eftir meistarann og þó hann hefði ekki samið annað, væri hann í hópi mestu tónskálda sögunnar, því auk gæða verkanna er þar að finna ótrúlega marg- breytni í tón- og formskipan. Tónleikarnir hófust á kantötu nr. BWV 42, páskakantötunni, En er kvöld var komið þennan sama fyrsta dag vikunnar (Jó- hannes 20.19.), sem er samin fyrir páskamessu 8. apríl 1724. Verkið hefst á viðamikilli „sinf- óníu“, hljómsveitarþætti, sem á köflum var ótrúlega ónákvæmur hvað varðar tónstöðu. Það er erf- itt að leika tónhreint á barokk- hljóðfæri og er t.d. bæði blástur og tækni ólík því sem gerist á nútímablásturshljóðfæri og í raun aðeins á færi sérlærðra hljóð- færaleikara að leika á þessi gömlu hljóðfæri svo vel fari. Bac- hsveitin þyrfti og að fá reyndan hljómsveitarstjóra til að taka sveitinni tak og æfa marga þá ágætu tónlistarmenn, sem skipa sveitina, í að leika barokktónlist á þann máta, sem hæfir jafn virðulegri stofnun og Sumartón- listarhátíðinni í Skálholti. Átta söngvarar skipuðu kór- inn, og var samspil hljómsveitar og kórs með þeim hætti, að vart heyrðist í kvenröddunum. Ein- söngsþættirnir voru sungnir af kórfélögunum, sem sumir hveijir sungu ágætlega en í heild höfðu þeir stílinn ekki á valdi sínu, bæði hvað varðar tónferli og textaframburð. Það verk sem var þekkilegast flutt var mótettan Óttast þú eigi, því að ég er með þér (BWV 228). Andstætt kantötunum, sem voru að mestu fyrir einsöngvara, þá voru flestar mótetturnar samdar fyrir 8 radda kór og af sjö mótett- um, sem Bach samdi, voru aðeins tvær með sérstökum undirleik hljóðfæra. Við flutning þeirra mun þó hafa tíðkast að notast við fylgirödd (basso continuo), eins og gert var að þessu sinni. Kórinn söng margt fallega, en í mótettunum, sem flestar voru pantaðar vegna jarðarfara, gat Bach leyft sér að hafa stærri kór en venjulega í sjálfum kirkju- kórnum og því hefði verið í stíl að hafa fleiri söngvara en átta, þ.e. einn söngvara í hverri rödd, til að kórhljómurinn væri gæddur meiri þéttleika en á sér stað í tvöföldum kvartett. Seinni kantatan, Hvert á ég að flýja (BWV 5), er ein af fyrstu kantötum meistarans og frum- flutt í október 1724. Þar gat að heyra mjög góðan trompettein- leik hjá Einari Jónssyni, en hann lék á trompett (clarino) eins og Bach notaði. Kórinn skipti með sér verkum í flutningi á tónles- og aríuþáttunum, sem gerði flutninginn á báðum kantötunum nokkuð mislitan, þó hver fyrir sig gerði ýmislegt vel, þegar til heild- arinnar er litið. Það verður að segjast eins og er, að leikur Bachsveitarinnar að þessu sinni var vægast sagt slak- ur, sérstaklega hvað varðar tón- stöðu og einkum í fyrsta verkinu, þar sem mest reyndi á samleik hennar. Jón Ásgeirsson Gulli sleginn sjóður TÓNLIST S k á I h « 11 Sellótónleikar Laurence Dreyfus Sellósvítur nr. 2 og 3 eftir J.S. Bach Laugardaginn 16. júlí EINLEIKSSVÍTURNAR sem J. S. Bach samdi fyrir selló eru, ásamt fiðlusónötu-/partítunum, merkilegar tónsmíðar, samdar fyrir eitt hljóðfæri, en samt svo stórbrotnar í gerð að fáu eða engu verður þar við jafnað. Al- veg fram á þriðja áratug tuttug- ustu aldar voru þessi verk talin vart hafa meira gildi en góðar fingraæfingar og hvað varðar sellósónöturnar sérstaklega var Pablo Calsals fyrstur til að leika þær á tónleikum. Þá varð mönn- um ljós sú staðreynd, að há- timbrað umstang í listsköpun hafði ekki ávallt að geyma þá innviðu, að það stæðist eigin þunga og að í einraddaðri tónlínu hafði meistaranum tekist að reisa þá innviðustólpa er stæðust gern- ingaveður tímans. Það er sama hvar menn leita sér fanga eða ætla sér tak í stór- um verkum, þá endar leitin um síðir þar sem fyrst var haldið af stað, og hversu smár sem sá stað- ur kann að virðast, er hann, um það er lýkur, maður sjálfur. Að hlýða á mál meistarans, mitt í öllum hávaða nútímans, er eins og að hverfa til þess upprunalega og heyra það sem Guð var mann- inum, heilagt og ekki orðið skot- spónn hláturstrúða og spékarla, sem hafa gert hláturinn að óvini viskunnar. Snobb er gjarna notað í tengslum við alvarlega list'og ef sú staðhæfing hefur gildi, á hún einnig við allt sem nýtur frægðar og ekki síst innihalds- laust dægurglamrið. Laurence Dreyfus er einn þeirra manna sem reynir að leita þess upprunalega í barokktónlist og má segja að ætlun hans sé að skerpa þær línur, sem merkja má í máðri mynd liðins tíma. Á tuttugustu öldinni öðluðust menn þá tækni, að geta geymt liðinn tíma og þegar því marki var náð, kveikti það áhuga á því sem tínt var að mestu leyti, þó til væri vitneskja um ýmislegt þar að lút- andi. Margir telja þess leit óþarfa og að hún nái vart meiru en sem nemur að skerpa skuggadrætti þeirrar myndar sem til er. En leitin að upprunanum er tilfinningalegs eðlis og því er rétt að setjast niður og huga að tón- máli meistarans. í glæsilegum leik Deyfusar mátti heyra berg- mál af leik Bachs, rétt eins og hann væri meðal okkar og e.t.v. veit hann, að tónmál hans er jafn nýtt og ferskt, sem það var fyrir 350 árum. Það er semsagt ekki miklvægast að líkja eftir tíman- um, því tíminn sjálfur lifir í tón- máli verkanna og er sjóður Bachs gulli sleginn, ófalinn, öllum til- tækur til gagns og gleði. Jón Ásgeirsson Lokað í dag hefst á morgun kl. 8.00. mmm TÍSKUVERSLUN KRINGLUNNI • SÍMI 33300

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.