Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 19
Aleinn að lieiman
KVIKMYNPIR
Bí ó h «11in
Tómur tékki (Blank
Check) ★ Vi
Leiksljóri Rupert Wainwright. Aðal-
leikendur Bryn Bonsall, Karen
Duffy, Miguel Ferrer, Michael Lem-
er. Bandarisk. Walt Disney 1994.
ÞAÐ DREYMIR sjálfsagt flesta
um að eignast ávísun uppá milljón
dali, jafnvel þó hún væri eitthvað
lægri. Og þessi draumur rætist
hjá strákkæglinum Bonsall. Hann
hefur verið langa hríð í peninga-
svelti heima fyrir, finnur engan
skilning hjá fúlum föður sínum og
tveir eldri bræður ofbjóða honum
í hveiju fótmáli. En þetta er lúnk-
inn strákur og þegar hann fær af
tilviljun þessa fjárfúlgu uppí hend-
urnar er hann ekki seinn á sér að
njóta lífsins. Verst að peningarnir
eru í eigu glæpamanna.
Minnir óneitanlega á hina vin-
sælu mynd Aleinn heima, sögu-
hetjurnar ungar og afskiptar (hér
flyst hún reyndar viljandi að heim-
an) og í brösum við örgustu fúl-
menni, en samlíkingin nær lítið
lengra. Tómur tékki er heldur ódýr
og yfirgengileg mynd þar sem hin-
ir villtustu draumar strákpottorma
eru látnir rætast á glórulausan
hátt. Strákurinn, innan við ferm-
ingu, fær að vaða að vild í seðium,
bílífi, meira að segja kvenfólki, um
langa hríð. Án þess að jafnvel for-
eldrarnir sjái nokkuð athugunar-
vert við að hann er fluttur að heim-
an, í eigin glæsivillu, með einkabíl-
stjóra á launaskrá. Og svo fær
áhorfandinn sinn skammt af hræ-
billegum boðskap sem að þessu
sinni gengur útá það að maður fái
ekki allt fyrir dollarana. Föðurást,
heimili, hamingju, og þar fram
eftir götunum.Það má vel vera að
myndin hugnist ungum áhoriend-
um, flestum öðrum er hún vafa-
laust heldur til skapraunar.
Fyrir utan aulalegan efnisþráð-
inn og ódýran boðskapinn er hún
heldur slælega leikin og það er
óvenjulegt í bandarískri kvikmynd.
Raunar ótrúlegt hversu ótæmandi
leikaranáman virðist vera vestur
þar, aldur og manngerðir skipta
engu máli. Lerner (Barton Fink)
sýnir einn einhver tilþrif í þessari
dæmigerðu kvikmyndalegu gúrk-
utíðarmynd.
Sæbjörn Valdimarsson
PABBI/MAMMA
Allt fyrir nýfædda barnið
ÞUMALÍNA
Islensk
tölvu-
tónlist
ALÞJÓÐLEGA tölvutónlistarhá-
tíðin Elektron Musik Festivalen var
haldiní 12. sinn nýlega í Skinn-
skattberg í Svíþjóð. Þetta er ein
virtasta hátið á viði tölvutónlistar
og í þetta sinn var athyglinni beint
að Islandi. Að sögn Þorsteins
Haukssonar, tónskálds var hátíðin
einstaklega vel heppnuð og aðsókn
góð. Sænska ríkisútvarpið tók upp
alla tónleika og verður dagskrá frá
hátíðinni send út nú í haust.
íslensk verk frumflutt
Hátíðin hófst með því að frum-
flutt var verk eftir Karólínu Eiríks-
dóttur, Adagio, sem var sérstak-
lega samið fyrir hátíðina. Á þessum
fyrstu tónleikum var einnig flutt
Resonance eftir Kjartan Ólafsson.
Um kvöldið voru tónleikar þar sem
flutt voru verk fyrir hljóðfæri og
tölvuhljóð. Guðni Franzson, klari-
nettuleikari, lék einleik í verkum
eftir Þórólf Eiríksson og Ríkharð
H. Friðriksson og frumflutti nýtt
verk eftir Helga Pétursson. Á sömu
tónleikum lék sænski blokkflautu-
leikarinn Dan Laurin, Fléttur eftir
Þorstein Hauksson en sænska ríks-
iútvarpið pantaði það sérstaklega
fyrir Dan Laurin. Síðari daginn var
flutt verkið Samstirni eftir Magnús
Blöndal Jóhanneson, en það var
jafnframt elsta verkið á hátíðinni.
Sérstök sýning var á kvikmyndinni
„Hringurinn" eftir Friðrik Þór Frið-
riksson, en tónlistin er eftir Lárus
H. Grímsson. Samhliða tónlistar-
flutningnum var myndlistarsýning
með verkum eftir Sigurð Gumunds-
son, Erró og Valgerði Hauksdóttur.
Upphafsmaður hátíðarinar er
Ulf Stenberg, en hann er nú yfir-
maður Elektron Musik Studioen í
Stokkhólmi.
----» -----
Steinalíf
í Hafnar-
borg
SÝNING Einar Más Guðvarðar-
sonar, Steinalíf - myndir og stein-
ar, var opnuð í kaffistofu Hafnar-
borgar laugardaginn 16. júlí sl. Þar
sýnir Einar Már ljósmyndir og
steina frá fjölskrúðugu steinaríki í
Mani syst á gríska Pelopsskagan-
um.
Einar Már hefur áður sýnt högg-
myndir, lágmyndir og málverk hér
á landi og erlendis. Þetta er níunda
sýning hans frá árinu 1983. Kaffi-
stofa Hafnarborgar er opin frá
10-18 virka daga og 12-18 um helg-
ar. Sýningin stendur til 3. ágúst.
Til hamingju með vinninginn!
Dregið var í fyrsta skipti úr Safnkortspotti ESSO á föstudaginn og eins
og sjá má eru vinningarnir bæði verðmætir og áhugaverðir.
• Sony KVX litsjónvarp frá Japis að verðmæti 120 þús. kr„ kom í hlut
Smára Sigurjónssonar, Uthaga 8, 800 Selfossi.
• Meiriháttar Mývatnssveit, ferð á vegum Samvinnuferða-Landsýnar
að verðmæti um 60 þús. kr„ kom í hlut
Víðis Jóhannssonar, Fagurhólstúni 8, 350 Grundarfirði.
• Perlur Skaftafellssýslu, ferð á vegum Samvinnuferða-Landsýnar
að verðmæti um 60 þús. kr„ kom í hlut
Þorgeirs Jóhannessonar, Efri-Fitjum, 531 Hvammstanga.
• Gönguskó ísland, frá Útilífi Glæsibæ að verðmæti 15. þús. kr„ fengu eftirtaldir:
Guðmundur K. Baldursson, Vallarhúsum 4, 112 Reykjavík.
Margrét Björk Andrésdóttir, Stuðlaseli 18, 109 Reykjavík.
Valdimar J. Guðmannsson, Bakkakoti, 541 Blönduósi.
Þórdís S. Guðmundsdóttir, Granaskjóli 12, 107 Reykjavík.
• Flugmyndir. bók eftir Klaus D. Francke, frá Máli og Menningu
að verðmæti 5.000 kr„ fengu eftirtaldir:
Gunnar Þ. Sigurðsson, Kjarrhólma 4, 200 Kópavogi.
Ólafur Stephensen, Ölduslóð 20, 220 Hafnarfirði.
Sigurður Lárusson, Tjaldanesi 2, 371 Búðardal.
Guðmundur E. Guðmundsson, Austurvegi 32, 800 Selfossi.
Bjami Eiríksson, Miklaholtshelli, 801 Selfossi.
Rut Bragadóttir, Meðalholti 21, 105 Reykjavík.
Sveinn Ragnarsson, Baldursgötu 36, 101 Reykjavík.
Jón Þórhallsson, Karlsbraut 18, 620 Dalvík.
Gísli Sveinsson, Aflagranda 40, 107 Reykjavík.
Guðbjöm Geirsson, Króktúni 20, 860 Hvolsvelli.
Viðskipti vinningshafa áttu sér stað á eftirtöldum afgreiöslustöðum: K.Á. Bensfnstöð Selfossi (3), Bensínafgr. Lækjargötu Hafnarfirði (3),
Bensínstöð Esso Grundarfirði (1), Hymunni Borgamesi (1), Bensínafgr. Gagnvegi Reykjavík (1), Esso-skálanum Blönduósi (1),
Bensínafgr. Ægisíðu Reykjavík (l), Bensínafgr. Borgartúni, Reykjavík (2), Dalakjöri Búðardal (1), Bensínafgr. Skógarseli Reykjavík (1),
Versluninni Dröfn Dalvík (1), Bensínstöð Esso Hvolsvelli (1).
SAFNK0RT ESS0 - enginn kostnaöur, aðeins ávinningur!
3M
Ljósmyndafilmur
LIGHTNING
Verð nú: 4.990 (áður 7.490)
Stærð 39-47.
Góðir körfuboltaskór m/dempara
í hæl og úr Nubuck leðri.
K ‘1
£SS' ■ ■
VENUS
Verð nú: 3.990 (áður 5.490)
Mjúkir leðurskór m/dempara í sóla.
Mjög sterkir og þægilegir skór.
ZONE
Verð nú: 2.490 (áður 3.750)
Stærð 30-38.
Sterkir leðurskór.
EMMA
Verð nú: 1.990 (áður 3.150)
Stærð 30-39
Sterkir leðurskór.
SYNERGY
Verð nú: 4.990 (áður 7.840)
Stærð 35-46.
Góðir hlaupa- og gönguskór
m/dempara í hæl.
Sendum í póstkröfu
W
SPORTBÚÐIN
Armúla 40 • Slml 813555 09 813655