Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.07.1994, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Enn um lengra skólaár Kristín Lilliendahl. EG HEF heyrt frá því sagt að í einni af sveitum landsins hér fyrr á öldinni hafi kennarinn verið kall- aður barnabætir. Og víst er bót að góðum kennara. í hugmynd- inni fólst sú meining að kennarinn bætti við þá uppfræðslu sem börnin fengu heima hjá sér. Ábyrgðin á mennt- un barnanna var fyrst og fremst í höndum foreldranna. Það hefur auðvitað margt breyst frá því þetta var. Og grunntónninn hefur breyst. Ábyrgðin á uppeldi og menntun barnanna er nú að veru- legu leyti í höndum skólans. Þó að löggjöfin kveði ekki skýrt á um það er það deginum ljósara að foreldrar hafa í auknum mæli fært skólanum það vald og skólinn tekið á sig þá ábyrgð. Báðir hópar telja sig ekki hafa haft aðra kosti, en veita þess- ari óheillaþróun furðulega lítið viðn- ám. Skólamenn margir taka jafnvel undir það með nokkru stolti að skól- inn verði nú að taka á sig aukið uppeldishlutverk og þurfi að miða skólastarfið við það. Og ekki munar kennara þá um að taka að sér að kenna allt milli himins og jarðar nema ef vera skyldi kristin fræði sem virðist of oft eiga undir högg að sækja. Foreldrar krefjast æ meiri viðveru barnanna í skólanum vegna vinnu sinnar, skipta sér sára- lítið af innra starfi skólans nema eitthvað sérstakt sé, krefjast einsk- is um gæði í kennsluháttum og taka því jafnframt fegins hendi ef nem- endur fá aðstoð við heimanám á skólatíma. Einstaklingsframtak í skóla- og uppeldismálum hefur alltaf verið lítið hérlendis. Hefðin er að allir gangi sömu leið, tileinki sér sama efnið og á sama hátt innan grunn- skólans. Einkaskólar eru litnir horn- auga af heildinni ellegar þeir þurfa að sanna gildi sitt á 50 árum. Skýr- asta dæmið um jafnaðarstefnuna í skólamálum um þessar mundir er tillagan um lengra skólaár — fyrir alla. Ekkert hefur heyrst um að þeirri tillögu fylgi tillagan um val- kost. Ef svo fer að það verði skyldu- sókn fyrir alla nemendur þarf svo sem enginn að verða hissa. Það þykir nefnilega jafnrétti í okkar sjálfstæða landi að skylda öll börn til lengri skólasetu á vorin vegna þeirra barna sem ekki hafa fastan dvalarstað eftir skólaárið. M.ö.o. ef einhver börn hafa það ekki nógu gott eiga þau sem ekki hafa það siæmt að hafa það ekki nógu gott heldur! Nú kann að vera að einhveijum finnist vegið að skóla- kerfinu. Hér sé á ferð- inni vantraustsyfirlýs- ing á starfi þess. Er skólinn virkilega svona slæmur? Einn góður kennari spurði ungan nem- anda sinn nýverið þessarar spurningar: Hvað er líkt með kenn- ara og tré? Barnið hugsaði sig um og sagði svo að bæði væru lifandi. „Von- andi“ bætti þá kennar- inn við í hljóði. Hann, eins og ég, veit að það er ekki sjálfgefið að börnin okkar hljóti fijóa og lifandi kennslu. En ákaflega margir kenn- arar vinna greinilega af miklum metnaði og af einlægri virðingu fyrir nemendum sínum. Eftir stend- ur sú staðreynd að námsleiði er algengt hugtak í skólamálaumræð- unni hér á landi og sum börn kvíða jafnvel hveijum skóladegi. Hvað hefur lengra skólaár fýrir þau að segja? I DV þann 29. júní sl. er haft eftir Sigríði Önnu Þórðardóttur, al- þingismanni og formanni nefndar sem starfað hefur að breytingartil- lögum um grunnskólalögin, að hún telji það „... brýnasta verkefni ís- lensks þjóðfélags í dag að bæta menntakerfið". í framhaldi af því segir hún tillöguna um lengra skóla- ár vera lið í því. Máli sínu til stuðn- ings bendir Sigríður Anna á að ýmsar erlendar rannsóknir bendi til fylgni milli lengra skólaárs og námsárangurs. Ég er nú svo einföld að halda að námsárangur sé fyrst og fremst háður námsgetu og góðri kennslu sem þarf að vera vís áður en hægt er að stinga upp á lengra skólaári. í framhaldi af því er kannski eðlilegt að spyija: Ná- kvæmlega hvaða athugun hefur farið fram á námsinntaki og kennsluháttum, svo ekki sé minnst á líðan nemenda almennt innan skólans, sem gefur tilefni til þess að stinga upp á lengra skólaári? Hvað varðar þær rannsóknir sem Sigríður vísar til vil ég taka þær með ákveðnum fyrirvara. Hvar voru þær unnar, hvað var rannsakað, hvernig var það gert og hveijir létu gera þær? Hversu mikið sanngildi hafa niðurstöður þeirra í íslensku samhengi? Sigríður Anna segir líka máli sínu til stuðnings að krafa samfélagsins sé jafnframt í þá átt að lengja skóla- árið. Fyrir fáeinum vikum heyrði ég í morgunþætti Ríkisútvarpsins sagt frá íslenskri könnun sem þrír grunnskólakennarar hér á Reykja- víkursvæðinu gerðu á viðhorfum mæðra til lengra skólaárs. Könnun- in var á landsvísu og niðurstaða SUMAR UTSAUN hefst á nomun! VERÐDÆMI: JAKKAFÖT FHÁ: 4.995 kr. STAKIR JAKKAR FRÁ: 2.900 kr. Námsárangur er háður námsgetu og góðri kennslu, segir Kristín Lilliendahl, sem þarf að vera vís áður en hægt er að lengja skóla- árið. hennar sú að um 70% mæðra vildu ekki lengra skólaár. Þó ég viti lítið um könnunina annað virðist mér hér vera tilefni til að velta því fyrir sér hveijir það eru sem Sigríður vísar til þegar hún talar um kröfur samfélagsins. í framhaldi er eðlilegt að spyija: Hefur verið gerð nákvæm úttekt á því hve sá hópur er stór sem gerir þessar kröfur? Og ekki síst: Hvernig ætla ráðamenn að mæta kröfum þeirra foreldra sem vilja ekki lengra skólaár? Mér leikur líka forvitni á að vita hvort nefndin sem Sigríður Anna veitir forstöðu hefur í góðum ásetn- ingi sínum leitt hugann að þeim námstækifærum sem tekin eru af börnum með lengra skólaári? A.m.k. er víst að mun færri börn en ella komast að í sumarbúðum eða til dvalar í sveit. Þá má líka ætla að rekstrargrundvelli slíkrar starfsemi verði raskað að nokkru. Sú menntun sem sumar þessar stofnanir veita er að mínu mati ómetanlegt skref á skólagöngu barna. Þau rök sem mér hafa þótt einhvers virði í umræðunni um lengra skólaár eru þau að erfitt sé að kenna af alvöru náttúrufræði þar sem ekki er hægt að nota sum- arið til vettvangsferða. En því hafa kennarar greinarinnar ekki almennt fagnað því tækifæri að geta skipu- lagt og boðið upp á námskeið eða skólabúðir fyrir foreldra og börn á sumrin og aukið þannig tekjur sínar um leið og þeir vinna verðugt þró- unarverkefni í tengslum við kennslu sína? Eða ef til vill er hér góð hug- mynd að viðbót við vetrarstarf skól- anna sem vert er að gefa börnum kost á að sækja og eyða til þess því fé sem annars færi í að halda úti hefðbundnu skólastarfi mánuði lengur en áður. Það er auðvitað ekki einfalt mál en hugsanlega framk væm anlegt. Sjálf er ég kennari. Því fæ ég stundum þá gagnrýni á skoðun mína um lengra skólaár að hún mótist af þeim forréttindum að eiga frí á sumrin. Kennarar eiga ekki frí á sumrin sainkvæmt lögum þó það sé opinbert leyndarmál að sum- ir þeirra taki sér það. Kennarar hafa hins vegar sveigjanlegan vinnutíma. Margar aðrar starfs- stéttir vilja beijast fyrir sveigjan- legum vinnutíma sjálfum sér til handa en vanvirða kennarastéttina fyrir í stað þess að benda á hana sem gott fordæmi. Þeirra er skað- inn. Það er hins vegar löngu tíma- bært að sumarvinna kennara verði almenningi sýnilegri. Mér þætti það eðlilegra að kennslutími í árinu væri óbreyttur en kennurum veittur bæði stuðningur og aðhald við að vinna að nýsköpun í gerð námsefn- is eða kennsluháttum á sumrin, heldur en rýra tíma þeirra til þess sem ég held að sé ekki vel til þess fallið að „bæta menntunina í land- inu“! Að rýra kosti nemenda til fjöl- breytni í námi, draga úr möguleik- um kennara til nýsköpunar í starfi og að ganga fram hjá vilja mæðra til að bera meiri ábyrgð á eigin börnum gengur auk þess þvert á þá hugsjón að virða einstaklings- framtak og ábyrgðarvilja. Hugsjón sem mér eins og Sigríði Önnu hefur þótt þess virði að barist sé fyrir. Andstæða þeirrar hugsjónar er að láta undan þrýstingi. Höfundur er kennari við Þroskaþjáifaskóla íslands. Rangfær slur eða? Snær Karlsson í MORGUNBLAÐ- INU 15. júní sl. er í forystugrein blaðsins vegið harkalega að Verkamannafélaginu Dagsbrún fyrir að veita ekki öllum þeim sem greiða iðgjald til félagssjóðs félagsins fulla o g óskoraða aðild að því. Það er ekki laust við að dálítil undrun sæki að manni með tilliti til ýmissa skrifa blaðsins á síð- ustu misserum, bæði í greinum og frá rit- stjórn blaðsins um fé- lagafrelsi og nauðsyn þess að afnema skylduaðild að stétt- arfélögum á íslandi. Þessi skylduað- ild hefur þó aldrei verið fyrir hendi meðal flestra stéttarfélaga innan ASÍ. Nú er þessi skylduaðild orðin að brennandi nauðsynjamáli að mati höfundar forystugreinar blaðs- ins. Þetta minnir mann óneitanlega á manninn sem skreið aftur í gegn- um sjálfan sig til að sleppa út í gegnum skráargatið á dýflissu sinni. En um hvað snúast þessi skrif. Jú, þau snúast um hörmulegan at- burð, banaslys á vinnustað. Hér er í viðkvæmu máli farið með ásakan- ir sem ekki eru málsatvikum sam- kvæmt og án þess að leyta upplýs- inga um málið allt. Þar er fyrst til að telja að ekki hefur verið talið heimilt af stjórn Dagsbrúnar frá upphafi, að innrita fólk í félagið án skriflegs samþykkis þess. Því hefur félagið brýnt fyrir fólki nauðsyn þess og kosti að gerast félagsmenn. Félagið hefur varið verulegum fjár- upphæðum í auglýsingar í fjölmiðl- um til að koma þessum upplýsing- FYRIRBURA- fatnaður ÞUMALÍNA HíáANDRÉSI Skólavörðustíg 22 • Sími 1 82 50 • Póstkröfuþjónusta um á framfæri, m.a. í þeim „merka“ fjölmiðli Morgunblaðinu. Því til viðbótar hefur fólki verið sent persónulegt bréf um málið og þess- ar upplýsingar eru fast- ur liður í útgáfu kaup- taxta félagsins. Eg sleppi því hér að telja upp allt það sem þar kemur fram, en kannski minnast ein- hveijir heilsíðuauglýs- ingar um þetta efni hér í Morgunblaðinu fyrr á þessu ári. Hvað varðar það að eiga rétt á greiðslum úr sjúkra- sjóði Dagsbrúnar, þá er félagsaðild ekki skilyrði. Það fá allir sem greitt er af til félagsins bætur úr sjóðnum eins og reglugerð hans mælir fyrir um. Dánarbætur voru greiddar Þannig var það einnig í umræddu máli. Ekkjan fékk greiddar úr sjúkrasjóði Dagsbrúnar dánarbætur eins og reglugerð hans mælir fyrir um þrátt fyrir að viðkomandi væri ekki félagsmaður. Það að ekki hafi verið greiddar dánarbætur er því rangt. Það er ákaflega miður að jafn hörmulegur atburður skuli hafa orðið að blaðamáli með þeim hætti sem hér hefur gerst, en það var ekki að frumkvæði Dagsbrúnar. ítrekaðar ábendingar um að af mönnum sé greitt og þeir eigi rétt á því að gerast fullgildir félagar bera því miður ekki alltaf árangur. Þar er ekki við félagið að sakast. Fyrir nokkrum árum samdi Dagsbrún við tryggingafélag um frekari vinnuslysa- og frítímatrygg- ingu í þeim tilgangi að veita félags- mönnum meira fjárhagslegt öryggi í vinnu og utan. í þeim samningi er það áskilið að einungis er um fullgilda félagsmenn að ræða, sem félagið geti fært sönnur fyrir. Mán- aðarlega eru sendir listar til trygg- ingafélagsins með nöfnum þessa fólks. Vegna þessa er nauðsynlegt að fólk skrái sig formlega í félagið ef það á að njóta þessara viðbótar- trygginga. Það er og á að sjálf- sögðu að vera val hvers og eins hvort hann telur ástæðu til að nýta sér þetta. Sá aðili sem því miður íefur orðið tilefni til þessara blaða- Frá upphafi hefur stjórn Dagsbrúnar ekki talið heimilt, segir Snær Karlsson, að innrita fólk í félagið án skrif- legs samþykkis þess. skrifa var bókagerðarmaður og kaus að vera það fremur en að vera í Dagsbrún. Það var hans frjálsa ákvörðun hvað sem bréfum og skrifum Morgunblaðsins líður. Helgar tilgangurinn meðalið? Þrátt fyrir mjög rætna forystu- grein Morgunbiaðsins um stjórn Dagsbrúnar og málefni sjúkrasjóðs félagsins, þar sem réttu máli er hallað, er vonandi að þetta leiði ekki af sér að félagið sjái sig til- neitt að afleggja þessa tryggingu sem sjóðurinn veitir félagsmönnum. Sérkennilegt er að blaðið kallar til framkvæmdastjóra Vinnuveit- endasambands íslands, til vitnis- burðar um óeðlilega meðferð á sjúkrasjóðum verkalýðsfélaganna. Þar er málefnalega að máli vikið og án alhæfinga eins og við var að búast. Sagt að erfitt sé að fá upplýs- ingar um sjóðina. Reikningar þeirra liggja i flestum tilfellum til sýnis hjá verkalýðsfélögunum á ákveðn- um tíma. Þess má geta að Vinnu- veitendasambandið á annan endur- skoðanda að sjúkrasjóði Dagsbrún- ar. Ekki sé gerð krafa um löggild reikningsskil, þrátt fyrir að lang- flest verkalýðsfélög láti löggilta endurskoðendur eða bókhaldsstofur ganga frá reikningum sínum sam- kvæmt góðum reikningsskilavenj- um og með áritun. Skattayfirvöld sjái ekki reikningana, sem hlýtur að þýða það að VSf sendi skattayf- irvöldum reikninga sína, eða hvað? Það verður að segjast eins og er að efnistök og umfjöllun „hins virta og óháða fjölmiðils“ koma fremur á óvart í þessu máli. En það er gott að vita hvar hjartað slær og þar hafi ekki orðið mikil breyting á. Höfundur er í Dagsbrún og starfsmaður Verkamannasambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.