Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 22

Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ JltrftwMalíií STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ. Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. EINN FUGL í HENDI Islenskir fjárfestar voru ekki lengi að taka við sér, eftir að opnað var fyrir fjárfestingar um síðustu áramót í skuldabréf- um erlendis. Lætur nærri að viðskipti með erlend skuldabréf og hlutdeildarskírteini í verðbréfasjóðum erlendis nálgist fimm milljarða króna fyrrihluta ársins. Aukið frelsi í viðskiptum sem þessum er án vafa af hinu góða. En fárra mánaða reynsla sýn- ir nauðsyn þess að fara að öllu með gát. Ekki hefur fjárfestingin erlendis skilað fjárfestunum ávöxtun í samræmi við væntingar, hvorki skuldabréfakaup í dollurum né pundum, eins og vakin hefur verið athygli á í fréttum við- skiptablaðs Morgunblaðsins á undanförnum vikum. Raunar hafa fjárfestar sem keyptu skuldabréf í útboði ríkissjóðs í Bandaríkj- unum í byrjun febrúar mátt horfa upp á verulegt verðfall bréf- anna. Ávöxtunarkrafa bréfanna hefur hækkað frá því þau voru gefin út og leitt til verðlækkunar upp á rúm 11%, auk þess sem gengi doliars hefur lækkað um tæp 5% á tímabilinu. Samtals nemur því lækkun bréfanna á ársgrundvelli yfir 40% á þessu tímabili. Það sama hefur gerst, að vísu ekki í jafnmiklum mæli, að því er varðar skuldabréfaútboð ríkissjóðs í breskum pundum, sem J.P. Securities Ltd. annaðist fyrir hönd ríkissjóðs. Frá janúar- byrjun til fyrstu viku þessa mánaðar leiddi hækkandi ávöxtunar- krafa til þess að verð bréfanna lækkaði um 14,6%, auk þess sem gengi pundsins lækkaði á þessum tíma um 1,2%. Samtals er lækkunin 15,5%, sem á ársgrundvelli jafngildir 33,4% lækkun. Lífeyrissjóðirnir eru helstu fjármagnseigendur landsins og strax í febrúarmánuði keyptu þeir svonefnd „Yankee-bréf“ í útboði ríkissjóðs í Bandaríkjunum fyrir um 500 milljónir króna. Það jafngildir því, miðað við 40% verðfall bréfanna á ársgrund- velli, að þau hafi fallið um 200 milljónir króna í verði. Þeir sem hafa keypt bréfin siðar, eftir að ávöxtunarkrafan hækkaði og dollarinn hafði fallið umtalsvert, hafa á hinn bóginn keypt skuldabréfin á hagstæðu verði. Sala bandarísku bréfanna nálg- ast nú 1,2 milljarða króna. Hafa ber í huga að fjárfestingar sem þessar eru yfirleitt hugsaðar sem langtímafjárfestingar, enda eru ofangreind skuldabréf í erlendu myntunum til 10 ára. Engu að síður er ljóst, að áhættan sem fylgir fjárfestingum erlendis, eins og þeim sem að framan greinir, er umtalsverð, eins og dæmin sanna. En þar sem kaupendur bréfanna eru í þessum tilvikum yfirleitt langtímafjárfestar, þá verða þeir fæstir fyrir beinu peningalegu tapi, nema þeir standi skyndilega frammi fyrir því að verða að selja bréfin. En nú um stundir ná þeir ekki þeirri raunávöxtun fjárfestingarinnar, sem að var stefnt. Ugglaust er mikið til í því sem Bjarni Ármannsson hjá Kaup- þingi sagði í samtali við Morgunbiaðið nú fyrir skömmu: „I raun geta fjárfestar almennt ekki leyft sér það sem þeir hafa gert hér á landi, þ.e. að kaupa t.d. spariskírteini til 10 ára og láta þau liggja þann tíma. Verðtryggingin tryggir að spariskírt- einin halda verðgildi sínu, en þegar menn eru komnir með óverð- tryggð bréf í hendur í öðrum gjaldmiðli þurfa þeir stöðugt að vera að endurskoða afstöðu sína m.a. með tilliti til þróunar vaxta. Það má kannski segja að verðtryggingin hafi gert íslend- inga ónæma fyrir þessum breytingum." Vel má vera að höfuðskýring þess að fjárfestar sem hafið hafa óvarlegar og lítt ígrundaðar fjárfestingar fyrir umbjóðend- ur sína í erlendum gjaldmiðlum, hvort sem það eru dollarar eða pund, séu einfaldlega ekki nógu vel undirbúnir til þess að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Að búa við verðtryggingu á flestum sviðum slævir vitund manna gagnvart breytingum og þannig geta fjárfestar, sem hugsað hafa út frá öryggi verðtrygg- ingarinnar, svo árum skiptir, hafa sofnað á verðinum. Fjárfestar, sem hafá tekist á hendur þá ábyrgð að ávaxta fé umbjóðenda sinna á sem arðbærastan, en um leið öruggastan hátt, geta ekki leyft sér að fara með fjármuni þá, sem þeim hefur verið trúað fyrir, á óábyrgan hátt. Þeir mega ekki fjár- festa þar sem áhættuþátturinn er óhóflega mikill. Auðvitað er alltaf viss áhætta fyrir hendi, þegar fjárfest er í óverðtryggðum skuldabréfum, hvort sem er innanlands eða erlendis, en til þess að lágmarka áhættuna, þurfa fjárfestarnir að vinna heimavinn- una sína. Það krefst geysimikillar vinnu og ekki síður þekkingar, að fylgjast með þróun á aðlþjóðlegum verðbréfamörkuðum, gengis- þróun, vaxtastigi og svo framvegis. Það liggur í augum uppi, að mikla sérfræðiþekkingu þarf til þess að geta spáð í spilin, iesið rétt úr vísbendingum og hagað ákvörðunum um kaup og sölu bréfa í samræmi við lesturinn. Dæmin sanna að margir fara flatt á slíkum viðskiptum og því er affarasælast að ganga hægt um gleðinnar dyr og flýta sér hægt, þegar áhættusamar fjárfestingar eru annars vegar. Betri er einn fugl í hendi, en tveir í skógi, segir máltækið. d EVRÓPUMÁLIN FRÁ FUNDINUM á Hótel Sögu. Vilhjálmur Egilsson, Uffe Ellemann-Jensen og Hörður Sigi ÍSLENDINGAR G FLJÓTT UPP HUG Uffe Ellemann-Jensen, fyrrum utanríkisráð- herra Danmerkur, segir í samtali við Steingrím Signrgeirsson að það séu fyrst og fremst póli- tísk rök sem mæli með íslenskri ESB-aðild. Hann segir hins vegar nauðsynlegt að íslend- ingar geri upp hug sinn sem fyrst til að lenda ekki aftast í röðinni. Uffe Ellemann-Jensen, fyrr- um utanríkisráðherra Danmerkur, er einn harð- asti baráttumaður Evrópu- hugsjónarinnar á Norðurlöndum. Fyr- ir fjórum árum ritaði hann grein, sem birt var í dagblöðum á öllum Norður- löndunum, þar sem hann sagðist sann- færður um, að framtíð hinnar nor- rænu samvinnu lægi í víðara evrópsku samhengi. Ellemann-Jensen segist enn vera sömu skoðunar og að hann sé einn þeirra, sem telji æskilegt að ísland verði í hópi ESB-ríkjanna. Hann segist sannfærður um að Islend- ingar geti náð viðunandi niðurstöðu í aðildarsamningum við Evrópusam- bandið. í lok síðustu viku varJacques Sant- er, forsætisráðherra Lúxemborgar, kjörinn næsti forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins á fundi leiðtoga ESB-ríkjanna. Hvaða áhrif telur þú að að kjör hans muni hafa á starf Evrópusambandsins og hver tel- ur þú að verði meginverkefni ESB fram að ríkjaráðstefnunni, sem halda á árið 1996? „Það var auðvitað mjög óæskilegt hvernig kjör hins nýja forseta fram- kvæmdastjórnarinnar bar að. Ég tel nauðsynlegt að Evrópusambandið ákveði nýja aðferð við val í þetta embætti. Það þarf að auka vægi Evr- ópuþingsins við kjörið, opna umræð- una um embættið og tryggja að fyrir valinu verði sá besti úr hópi margra frambjóðenda. Það er hugsanlegt að framkvæmdastjórnin muni veikjast í kjölfar síðustu atburða og það er mik- ið áhyggjuefni. Það á ekki síst við út frá sjónarhorni lítillar þjóðar er hefur hag af sem sterkastri fram- kvæmdastjórn. Það er framkvæmda- stjórnin, sem sér um að Rómarsáttmá- lanum sé framfylgt en sá sáttmáli er skjöldur smáþjóðanna gagnvart hin- um stærri. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hversu mikið vægi framkvæmda- stjórnin með Santer innanborðs mun hafa. Menn verða líka að vara sig á því að vanmeta hann ekki. Ég hef þekkt Santer árum saman og hann er mjög hæfur stjórnmálamaður. Hann stóð sig tii að mynda frábær- lega er Lúxemborgarar fóru með for- ystuna í ráðherraráðinu en segja má að á þeim tíma hafi að mestu verið gengið frá Maastricht-sáttmálanum. Við skulum því bíða og sjá. Ef við lítum á verkefnin framundan tel ég að þau mikilvægustu séu fram- tíðarsamband okkar við ríki Austur- Evrópu og Rússland. Það ríkir mikill óstöðugleikþ í Rússlandi, að ekki sé minnst á Úkraínu, og að mínu mati er tíminn að renna út. Þetta ætti að vera aðalmálið á næstu ríkjaráð- stefnu: Að stækka banda- lagið til austurs. Það mun einnig þvinga okkur til að taka upp nánara samstarf varðandi utanrikis- stefnu og við munum þurfa að sam- ræma okkur í varnarmálum. Á sama tírna verðum við að ræða um hvernig beri að endurskipuleggja uppbygg- ingu sambandsins, þannig að það verði starfhæft með svo mörg ný að- ildarríki innanborðs. Það eru því flók- in vandamál framundan." Telur þú að fjölgun aðildarríkja muni breyta starfsfháttum sambands- ins? „Nei. Ef Austurríki og Norðurlönd- in fara inn í ESB verðum við ekki lengur tólf aðildarríki heldur sextán og að sama skapi mun jafnvægið breytast innan sambandsins. Norður- hlutinn mun styrkjast, sem er raunar eitt af því sem við höfum talið æski- legt. En að öðru leyti mun sambandið starfa áfram í svipaðri mynd, áherslan verður á innri markaðinn og útvíkkun til austurs." En það verða engin varanleg áhrif, að þínu mati, á eðli sambandsins. Menn munu halda áfram að beijast fyrir frekari samruna ESB á svipaðan hátt og verið hefur? „Já, ég held að það sé ekki bara hægt að halda áfram á þeirri braut heldur óhjákvæmilegt og þar að auki æskilegt. Það verður að „dýpka“ sam- starfið enn frekar. Að sama skapi tel ég að menn muni í auknum mæli verða reiðubúnir að sætta sig við þann mun sem er á milli Evrópuríkja. Það var allt að því stofnanabundið með Maastricht-sáttmálanum er Bretar fengu undanþágu frá hinum félags- lega kafla hans. Ég held að það verði sífellt nauðsynlegra að við sýnum aukinn sveigjanleika þannig að allir geti farið inn í sambandið og til að við getum haldið öllum innan sam- bandsins." Telur þú umræðuna um eftirmann Delors hafa verið til marks um slíkan vilja? Það virtist ekki vera mikill sveigjanleiki til staðar á Korfú. „Eg held að umræðan um Dehaene hafi ekki snúist um hann sem persónu heidur um ákvarðanir sem höfðu ver- ið teknar, varðandi forseta fram- kvæmdastjórnarinnar, á óheppilegan hátt. Það var það sem Bretarnir lögð- ust til atlögu gegn. Við verðum að mínu mati að finna opnari leið til að takast á við þetta vandamál til að enginn geti haidið því fram að stóru ríkin komi sér saman um hlutina sín á rnilli." Þú sagðir áður að mikil- vægasta málið framundan væri að veita ríkjum í austri aðild. En hvað með önnur ríki á borð við ísland? „Ég er einn þeirra sem teldi það mjög æskilegt ef íslendingar myndu hefja umræðu um Evrópusambands- aðild og hefja samningaviðræður um hana. Það væri mjög jákvætt því þá yrðu Norðurlöndin sameinuð innan ESB og að auki myndi atkvæðavægi þeirra aukast. Ef Norðmenn, Svíar og Finnar ganga inn í ESB höfum við samtals þrettán atkvæði en Þjóð- veijar, sem eru fjórum sinnum fjöl- mennari en Norðurlandaþjóðirnar samtals, eru einungis með tíu at- kvæði. Ef íslendingar myndu gerast aðilar hefðum við fimmtán atkvæði. Það er því eftirsóknarvert af mörgum ástæðum. Það eru hins vegar ekki margir innan Evrópusambandsins sem eru að velta fyrir sér möguleikanum á íslenskri aðild og áhugi manna er sí- fellt að beinast meira í austurátt. Það mun því verða sífellt erfiðara að ná athygli ESB ef íslendingar ákveða að gerast aðilar. Mitt ráð til íslendinga væri því að þið mynduð gera upp hug ykkar sem fyrst og kanna hvort að þið náið ekki viðunandi samningsnið- urstöðu. Ef ekki þá getið þið ávallt hafnað niðurstöðunni." Þú þekkir ágætlcga til íslenskra aðstæðna og þeirra efasemda, sem menn hér hafa haft varðandi aðild, ekki síst vegna sjávarútvegsmála. Telur þú hugsanlegt að íslendingar geti náð niðurstöðu í samningum við Verðurað „dýpka“ sambandið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.