Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.07.1994, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför sonar og sonarsonar okkar, HELGA GUÐMUNDSSONAR, Stigahlíð 18. Ester Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Thoroddsen. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför BJÖRNS KARLSSONAR, Hafrafellstungu. María Jónsdóttir, Ingirfður Hr. Björnsdóttir, Karl Sigurður Björnsson, Laufey Bjarkadóttir, Jón Ingi Björnsson, Nanna Lára Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GARÐARS FINNSSONAR skipstjóra. Sérstakar þakkir til heimahlynningar fyrir frábæra umönnun. Guðný Matthíasdóttir, Sigríður Garðarsdóttir, Kristinn Jónsson, Steinunn Garðarsdóttir, Bjarni Lúðvíksson, Matthías Garðarsson, Þórhildur Karlsdóttir, Finnur Garðarsson, Kristbjörg Ólafsdóttir, Bjarni H. Garðarsson, Helga Pétursdóttir, Garðar S. Garðarsson, Sigrún Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, son- ar, föður, tengdaföður og afa, GUÐJÓNS INGA SIGURÐSSONAR leikara. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Landspítalans, krabbameins- deildar og heimahlynningar fyrir góða umönnun og aðstoð í veikindum hans. Jóna Sigrún Harðardóttir, Pálína Guðnadóttir, Vilbergur Júliusson, Sigurður Páll Guðjónsson, Ingibjörg Finnbogadóttir Jóna Sigrún Sigurðardóttir, Hanna Björk Guðjónsdóttir, Björg Birgisdóttir. Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, HANS JAKOBS BECK, Skólbraut 1a, Kópavogi, fyrrum bónda, Sómastöðum, Reyðarfirði. Guð blessi ykkur öll. Steinunn Beck, Sigríður Beck og fjölskyldur. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, JÓHANNS J. JAKOBSSONAR efnaverkfræðings, Stekkjarhvammi 74, Hafnarfiröi. Guð blessi ykkur öll. Lára K. Ólafsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ÓLAFS HAFSTEINS JÓHANNESSONAR, Skerjabraut 9, Seltjarnarnesi. Fjóla Sigurðardóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Óskar Geirsson, Elín Kristín Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÓSKAR AÐALSTEINN GUÐJÓNSSON + Óskar Aðal- * steinn Guðjóns- son fæddist á ísafirði 1. maí 1919. Hann lést í Reykja- vík 1. júlí síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 14. júlí. í HUGARFYLGSNUM unglings er oft skammt milli minninga frá barnsárum og drauma. Hugur minn leitaði ofttil þín, pabbi, á þessum árum, en hin „landfræðilega" fjarlægð milli okk- ar var orsök þess að við hittumst nær aldrei. Pabbi, ég vissi af þér fyrir vestan, náttúrubami, lista- manni og starfandi vitaverði á Galt- arvita. - En þangað, til þín, var vandrötuð leið fyrir stelpu, er þekkti leiðir til huliðsheima, eins og til þín, aðeins af lestri ævintýrasagna. Ég, þá 15 ára, heyrði útvarps- mann tilkynna að strandferðaskipið Skjaldbreið færi vestur á morgun. - Ég fór með. í sólskini í hvamminum ykkar Hönnu, vestur á vita, sátum við saman í fyrsta sinn, og hlustuðum á þögn steinanna og söng stóru hvítu fuglanna, við undirleik úthafs- bárunnar ódauðlegu. Þá heyrðum við bæði í þögninni að hin „landfræðilega“ fjar- lægð skiptir ekki máli fyrir vini sem eiga sameiginleg áhuga- mál. Og svo komst þú suður. Pabbi, manstu stundirnar á Reykja- nesi? Þú manst, þú veist, og ég man. Ég man sögumar sem enginn má vita um. Manst þú álfana, klett- ana, hvítu fuglana og allt hitt? Pabbi! Svo komuð þið Hanna í afmælið mitt eina. Þú hrókur alls fagnaðar og heillaðir alla vegna drenglyndis og glaðværðar. Hvers vegna, flýgur hvitur fugl - þögull yfir hömrunum svörtu? Á ögurstund. Þá bára og brimgarður, sem brúnaljós daganna björtu. - Minning um skáldið, sem kveður og kemur ekki aftur. Góði pabbi, takk fyrir að gefa mér allt. Guð geymi þig. Björt. Þegar ég fékk andlátsfregnina var ég stödd um borð í Fagranesinu á leið frá Horni. Mér brá illilega því síðast þegar ég hitti Óskar var hann að ná sér eftir veikindi. Við töluðum mikið saman, þá um Hornstrandir og vit- ann því þangað var ég að fara í tíu daga ferðalag. Hann bað mig að taka myndir og skrifa dagbók svo ferðasagan yrði lifandi og sagðist vera með mér í huganum. Svo klappaði hann saman lófunum sem honum einum var lagið og fallega brosið ljómaði á andlitinu og augun leiftruðu af lífi. Við systkinin minnumst dagana þegar Óskar frændi og Hanna komu í heimsókn í Sogamýrina og gistu. Þá bakaði mamma kleinur og pönnukökur og okkur krökkunum þótti þá lífið svo skemmtilegt. Nú ertu horfinn okkur, síðastur í röðinni af föðurbræðrum mínum að kveðja þennan heim, en ég veit að það verður tekið vel á móti þér. Eftir lifa bækumar þínar og þær mun ég geyma vel. Elsku Hanna og fjölskylda, Guð styrki ykkur á erfiðum tímum. Blessuð sé minning frænda míns. Þorbjörg Einarsdóttir. GUÐJÓNINGISIG URÐSSON + Guðjón Ingi Sigurðsson fæddist á ísafirði 8. febrúar 1941. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 3. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Víði- staðakirkju 13. júlí. ÞEGAR ÉG kveð kæran vin, Guðjón Inga, minnist ég þess, þegar hann lítill drengur kom í bekkinn minn, en ég var þá kennari við Barna- skóla Hafnarfjarðar. Það var langt liðið á haust 1949, þegar skólastjórinn, Guðjón Guð- jónsson, bað mig að tala við sig. Erindið var að biðja mig fyrir átta ára dreng í bekkinn minn. Hann var þá nýfluttur til Hafnarfjarðar með foreldrum sínum^ en þau höfðu átt áður heima á Isafirði. Þessi drengur var Guðjón Ingi Sigurðs- son. Faðir hans var sjómaður og hafði ráðið sig á vélbátinn Jón Magnússon, sem var gerður út frá Hafnarfirði. Ég man eftir Guðjóni Inga frá þessari stundu. Lítill drengur með stór björt augu, svolítið feimnisleg- ur. Fann ég strax, að þarna hafði bæst góður drengur í glaða hópinn minn. En sorgin var ekki langt unda, því í mars 1950 fórst bátur- inn Jón Magnússon með allri áhöfn. Þetta var þungur harmur og sár og nú var Guðjón Ingi föðurlaus. Á þessum tíma bundust tryggða- bönd milli mín og mæðginanna, Guðjóns Inga og Pálínu, móður hans, vinátta, sem aldrei hefur rofn- að. Seinna bjuggum við Pálína sam- an tvö ár með drengina okkar, Guðjón Inga og Yngva. í skólanum kom fljótt í ljós, hvað Guðjón Ingi las vel, hvort sem hann flutti ljóð eða sögur. Kom þetta sér oft vel á árshátíðum skólans, sem þá voru alltaf haldnar í Bæjarbíói um helgina fyrir páska. Þá voru alltaf sett upp leikrit og ég man enn eftir Guðjóni Inga í ýmsum hlutverkum, svo em í Prinsinum hjartalausa. Veturinn 1953-54 setti Leikfélag Hafnarijarðar á svið leikritið Hans og Grétu. Var ég þá beðin að benda á börn til að leika titilhlutverkin. Auðvitað kom Guðjón Ingi fyrst í hug minn sem Hans og jafaldra hans, Björk Guðjónsdóttir, lék Grétu. Sjálf var ég nornin. Senni- lega hefur þetta orðið hvatinn að áhuga hans á leiklist og framsögn. Strax á barnsaldri kom fram, að Guðjón Ingi hafði fallega söngrödd og ánægju af söng. Ég minnist þess nú, að í skólanum var þá morg- unsöngur fastur liður og máttu bekkimir oft velja sér lag. Eitt sinn hafði ég látið bekkinn minn æfa lagið: „Landið vort fagra“. Leist þá sumum samkennara minna illa á, að það gæti gengið. Lagið væri allt of erfitt. En við vorum ákveðin og enn man ég rödd Guðjóns Inga, sem hljómaði yfir ög leiddi sönginn: „Landið vort fagra með litskrúðug ljöllin, leiftrandi fossa og glóð und- ir ís“. Þannig er gott að minnast Guð- jóns Inga. Hann dáði fegurð í orðum og hljómum. Blessun fylgi minningu hans. Hulda Runólfsdóttir frá Hlíð. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS HINRIKSSONAR múrara, Grasarima 6. Unnur S. Björnsdóttir, Hinrik Jónsson, Mary A. Campbell, Ragnheiður Jónsdóttir, ElfasG. Magnússon, Garðar Jónsson, Hulda Óskarsdóttir og barnabörn. t Kveðjuathöfn um móður okkar, STEINUNNAR RÓSU ÍSLEIFSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum, fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, þriðjudaginn 19. júlí, kl. 13.30. Jarðsett verður frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum fimmtudaginn 21. júlí kl. 11.00. Marlaug E Laufey Ein Baldvin Eir narsdóttir, arsdóttir, larsson. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit afmælis- og minningar- greina séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöf- undar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ( ( < ( ( I ( ( I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.