Morgunblaðið - 19.07.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 35
I DAG
Arnad heilla
Hafsteinn Austmann,
listmálari, Hörpugötu 8,
Reykjavík. Hann og kona
hans Guðrún Þ. Stephen-
sen vonast til að sjá vini
og vandamenn heima hjá
sér milli kl. 17-20 í dag,
afmælisdaginn.
BBIPS
II m s j ö n G u ð m . I’ á 11
Arnarson
„FRÁBÆR VÖRN!“ Ábót-
inn í klaustri breska brids-
höfundarins David Birds er
glúrinn spilari, en ekki
nærri eins góður og hann
heldur sjálfur. Þegar ábót-
inn misstígur sig, er hann
yfirleitt snöggur að koina
sökinni yfír borðið, jafnvel
þótt makker sé blindur. Á
sama hátt, eignar hann sér
iðulega heiðurinn af öllum
góðum verkum. Spilafélagi
hans, bróðir Xavier, var því
heldur betur undrandi þeg-
ar ábótinn tók upp á því
að hrósa honum fyrir
snjalla vörn gegn þremur
gröndum suðurs:
Suður gefur; NS á
hættu. Norður ♦ Á ¥ KG5 ♦ 964 ♦ DG8643
Vestur Austur
♦ G109853 ♦ 72
¥ D74
♦ 75 111111 ♦ D1083
* ÁK ♦ 972
Suður ♦ KD64 ¥ 1093 ♦ ÁKG2 ♦ 105
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 grand*
2 spaðar 3 lauf Pass Pass Pass 3 grönd Pass
Xavier hélt á spilum vest-
urs og kom út með spaða-
gosa. Sagnhafi átti slaginn
í borði og spilaði strax laufi
á tíuna.
Ábótinn hafði frávísað
spaðanum í fyrsta slag, svo
Xavier sá enga framtíð í
frekari spaðasókn. Eina von-
in var að ráðast á slagaupp-
sprettu sagnhafa. Xavier
skipti því yfir í hjartadrottn-
ingu! Hugmyndin var að
taka innkomuna úr blindum,
áður en sagnhafi næði að
fría laufið.
Sagnhafi lagði kónginn á
drottninguna og ábótinn
dúkkaði eftir nokkra um-
hugsun. Sagnhafi spilaði
aftur laufi og reyndi síðar í
spilinu að komast inn á
hjartagosa. Það tókst ekki
og spilið fór óhjákvæmilega
einn niður.
„Frábær vöm,“ ítrekaði
ábótinn. „Ef ég dúkka
hjartakónginn kemst sagn-
hafi inn á gosann þegar
hann hefur fríspilað lauflit-
inn. Sástu þetta, bróðir
kær!“
ÁRA afmæli. í dag
19. júlí er fimmtug-
ur Sölvi Steinberg Páls-
son, skipstjóri, Geithöm-
rum 13, Reykjavík. Hann
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Ijósm Sigr. Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Háteigskirkju af
sr. Pálma Matthíassyni
þann 28. maí sl. Bára Haf-
steinsdóittir og Jón S.
Garðarsson. Heimili þeirra
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði af sr. Einari Eyjólfs-
syni þann 2. júlí sl. Júlía
Yngvadóttir og Sigurjón
Grétarsson. Þau era til
heimilis á Hverfisgötu 50,
Hafnarfirði.
Ljósm. Sigr. Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin vora
saman í Lágafellskirkju af
sr. Jóni Þorsteinssyni þann
11. júní sl. Olga Stefáns-
dóttir og Jón Þór Eyþórs-
son. Heimili þeirra er í
er í Suðurhúsum 10, Safainýri 27, Reykjavík.
Reykjavík.
Með morgunkaffinu
Farsi
30-50% afslátturaf
öllum vörum í versluninni
50% útborgun,
eftirstöðvar lánaðar í
6 mánuði vaxtalaust
Þar sem
vandlátir
versla A
PEISINN
Kirkiuhvoli • sími 20160
STJÖRNUSPÁ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ættir ekki að taka afstöðu
ágreiningi tveggja vina í
dag. Starfsfélagi þarfnast
sérstakrar umhyggju þinnar
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ágreiningur getur komið upp
í dag varðandi peninga. Þér
tekst að ná mikilvægum
samningum varðandi vinnuna
í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Þú getur orðið fyrir óvæntum
útgjöldum vegna heimilisins
í dag. Reyndu að sýna þolin-
mæði I samskiptum við aðra.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) H88
Láttu ekki skapið hlaupa með
þig í gönur í dag og koma í
veg fyrir góð afköst í vinn-
unni. Reyndu að taka lífinu
með ró.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú hefur í mörgu að snúast
og lítill tími gefst til skemmt-
unar í dag. En í kvöld gefst
tækifæri til að sinna einka-
málunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Láttu ekki vandamál úr vinn-
unni bitna á fjölskyldunni í
dag. Leitaðu álits ráðamanna
á hugmyndum þínum.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú er hagstætt að leita samn-
inga um viðskipti eða kaup-
hækkun. Einbeittu þér að
áríðandi verkefiium sem bíða
lausnar.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Reyndu að varast deilur um
peningamál í dag. Góðar
fréttir berast langt að. Spenn-
andi ferðalag virðist á næstu
grösum.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Taktu það ekki nærri þér
þótt einhver nákominn sé í
slæmu skapi í dag. Þú þarft
að sýna' lipurð í samskiptum
við aðra.
Steingeit
(22.des.-19.janúar) m
Ágreining vinnufélaga má
hæglega leysa með því að
ræða málin í bróðerni. I kvöld
þarft þú tíma útaf fyrir þig.
Vatnsberi
(20.janúar- 18.febrúar) ðh
Reyndu að komast hjá
ágreiningi við einhvern ná-
kominn í dag. Þér tekst að
finna lausn á vandamáli
tengdu fjármálum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Eitthvað veldur ættingja
átlygaum árdegis, en úr ræt-
ist er á daginn líður. Horfur
eru á að þú komist í ferðalag.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dœgradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staó-
reynda.
Nýkomnir
bama regngallar
á 2.490-
Vorum aö fá sendingu af þessum vönduöu regn- og
vindgöllum í stærðunum 2 til 12 (95-145).
Fást í tveimur litasamsetningum.
Settiö, buxur og jakki kostar aöeins 2.490-
Verslun athafnamannsins frá 1916
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855, grænt númer 99-6288.
KRABBI
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert stórhuga og ferð eigin
leiðir að því marki sem þú
hefur sett þér.
i
•l-
r
-