Morgunblaðið - 19.07.1994, Page 36

Morgunblaðið - 19.07.1994, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Körfuknattleiksmaður kvænist VINTJM og vandamönnum Guðmundar Bragasonar landsliðsmanns í körfuknattleik frá Grindavík fannst tilhlýðilegt að fagna þeim áfanga þegar hann gekk í hjónaband með Stefaníu Jónsdóttur sem einnig er framarlega í körfuknattleik með Grindavíkurliðinu. Þeir gerðu það meðal annars með því að hengja körfubolta í bíl þeirra nýgiftu sem þeim var ekið í frá kirkjunni. Fara vinsældir Murphy’s dalandi? Eddie í Beverly Hills 3. VANGAVELTUR hafa verið uppi um hvort Eddie Murphy sé kominn af hátindi frægðar sinnar. Nýjasta kvikmynd hans, Löggan í Beverly Hills 3, hefur fallið í skuggann á kvikmyndinni „The Flintstones" og hlotið helmingi minni aðsókn. Árið 1984 var hann eftirsóttasti leikari Bandaríkjanna. Löggan í Beverly Hills sló öll met og halaði inn rúma tuttugu og fjóra milljarða ísl. króna í miðasölu það árið. Eddie Murphy varð hæstlaunaðasti leik- ari sem Hollywood hafði kynnst. Newsweek kallaði hann „Hr. Metaðsókn", en hjá Paramount-kvikmyndaverinu var látið nægja að kalla hann „Pen- ingar“. Síðan þá hafa myndir hans ekki notið eins mikillar hylli og ýmsir velta því fyrir sér hvort hann sé ennþá virði þeirra 840 milljóna ísl. króna sem hann fær fyrir hveija mynd. Eddie Murphy vísar slíkum efasemdum á bug: „í byijun gerði ég fimm eða sex kvikmyndir sem höluðu inn ótrúlegar upphæðir — rúma fjórtán milljarða hver. Ef ég geri mynd núna sem halar inn sex milljarða er það allt í einu orðið vandamál hjá fólki. Jæja þá, en ég get sætt mig við slík vandamál.“ Leikstjórinn John Landis tekur undir með Murphy. „Fólk segir að hann sé ekki stjarna lengur,“ segir Landis, „Má ég aðeins grípa fram í... Eina myndin sem hann hefur gert og hefur þénað minna en 100 milljónir dala [sjö milljarðar ísl. króna] var sú síðasta og hún þén- aði 40-eitthvað dali í Bandaríkjun- um. Steve Martin myndi drepa til að eiga kvikmynd sem þénaði siíka upphæð.“ Eddie Murphy hlær að þessu öllu saman: „Aðrir 48 klukku- tímar átti að vera misheppnuð líka. Ég var rétt í þessu að fá aðra ávís- un inn um lúguna upp á 500.000 dali [35 milljónir ísl. króna]. Mis- heppnuð?“ |B , - .. innmMlja, M *• A > *i mMW. FOLKI FRETTUM kom fyrst fram átta ára gam ►JEFF Bridges fæddist 4. des- ember 1949 í Los Angeles. Hann kom fyrst fram átta ára gamall í sjón- varpsþáttunum „Sea Hunt“ sem faðir hans, Lloyd Bridges, leik- stýrði. Hann útskrifað ist úr leiklistar- skóla í New York og slapp við að berjast í Víetnam vegna sam- banda föður síns. Þrátt fyrir yfir- lýstan „otta við frægð og frama“ varð hann fljótt virtur leikari í Hollywood og fékk Óskarsverð- laun fyrir bestan leik í aukahlut- verki fyrir leik sinn í myndinni „The Last Picture Show“. Undan- farin ár hefur hann staðið fyrir gerð gæðakvik- mynda að mati gagnrýnenda, en alltaf hefur eitt- hvað skort á að þær fengju metaðsókn. Nicolas Cage gerir ýmislegt fyrir frægðina Þau gera hvað sem er fyrir frægðina KVIKMYNDASTJÖRNUR leggja ýmislegt á sig til að skila hlutverki sínu með sóma. Nicolas Cage slær þó flest met hvað þetta varðar. Fyrir kvikmyndina „Birdy“ lét hann draga úr sér tvær tennur og hann Weaver gleypti sex lifandi kakkalakka fyrir kvikmyndina Koss blóðsugunnar (Vampire’s Kiss). Meðal annarra metnaðarfullra leikara má nefna Sigourney Weaver sem þvoði sér ekki í sex vikur og reykti hundrað sígarettur á dag til að gera rödd sína ráma fyrir myndina „Gor- illas InThe Mist“. Einnig voru bijóstin á Carrie Fisher límd niður á meðan tökur stóðu yfir á Stjörnustríði (Star Wars) og bijóstin á Madonnu voru á hinn bóginn límd við kjólinn fyrir kvikmyndina Dick Tracy. Snilligáfa Hver er kvaðratrótin af 439.447.369? GERT Mittring, heimsmeistari í hugarreikningi, dvelur um þessar mundir á íslandi. Hann býr yfir ótrúlegri stærðfræðikunnáttu og getur reiknað afar flókin stærðfræðidæmi í huganum á örfáum sekúndum. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins lét hann reikna kvaðratrótina af 439.447.369 kom svarið sjálfkrafa og án nokkurrar umhugsunar: „tveir, núll, níu, sex, þrír“. Gert Mittring er hér á landi í fylgd dr. Idu Fleisch, formanns tveggja félaga, Mensa og Intert- el, sem stofnuð voru fyrir fóik með háa greindar- vísitölu. „Mittring er með feiknalega háa greindar- vísitölu," segir Ida, „himinháa“. Reyndar er heila- starfsemi hans rannsóknarefni í nokkrum háskói- um í Bandaríkjunum, þar sem vísindamenn velta því fyrir sér hvernig heilinn geti unnið úr svo flókn- um viðfangsefnum á jafn skömmum tíma og raun ber vitni. Mittring komst til dæmis á forsíður þý- skra dagblaða nýlega þegar hann reiknaði kvaðrat- rótina 137 af þúsund stafa tölu á innan við fimm inínútum. Slíkt er jafnvel hraðvirkustu og full- komnustu tölvum ofviða. Ekki er nóg með það heldur getur hann reiknað út vikudagana alveg frá árinu 1582, en þá var dagatalinu breytt frá hinu júlíanska í hið grego- ríska. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann hvaða vikudagur 6. desember 1971 hefði verið var svarið umhugsunarlaust: „mánudagur“, en þegar Mittring var spurður hvernig hann færi að þessu var fátt um svör. „Þetta kemur af sjálfu sér,“ sagði hann og brosti, af þeirri barnslegu ein- lægni sem er sérvitringum svo oft eiginleg. Morgunblaðið/Krislinn ÞEGAR Gert Mittring var krakki var hann byijaður að reikna áður en hann fór að tala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.