Morgunblaðið - 19.07.1994, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
SÍMI22140
Háskólabíó
LÖGGAN í BEVERLY HILLS 3
VERÖLD WAYNES 2
STÆRSTA BIOIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
GRÆÐGI
EDDIE MURPHY
BIEVlSRy#HIU.S
. ■i.'imi.;.
Sem fyrr er vörumerki Detroit löggunnar Axels Foley
húmor og hasar í þessari hörkuspennandi mynd.
Bönnuð innan 16 ára.Sýnd kl. 4.50, 7, 9 og 11.10.
★★★
J.K. Eintak
Wayne og Garth jafn vitlausir og nú á rokkmistökuunm Waynestock.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
NAKIN
/ AOOkr.
Bönnuð inilan 16 ára.
Sýnd kl. 5.15 og 9.10.
Aukasýningar vegna mikillar
aðsóknar.
Sýnd kl. 11.10. B. i. 16 ára
Síðustu sýningar
Sprenghlægilegur farsi með Michael J. Fox og Kirk Douglas.
Sýnd kl. 4.50, 7 og 9 .
BEINT Á SKÁ 337,
Jodie Foster er ánægð með
samstarf sitt við Mel Gibson.
Jodie Foster hefur gaman af
því sem hún er að gera.
Gaman hjá
Jodie Foster
JODIE Foster sýnir á sér nýja hlið
í kvikmyndinni „Maverick“, þar
sem hún fer með hlutverk fégráð-
ugs fjárhættuspilara. Upphaflega
átti Meg Ryan að fara með hlut-
verkið, en hún vildi heldur sinna
nýfæddu barni sínu. Þetta er
fyrsta stóra gamanhlutverk Foster
í langan tíma, en margir muna
eftir henni úr gamanmyndinni
„Bugsy Malone“ sem var sýnd við
miklar vinsældir á sínum tíma.
„Ég hef leitað mér að gamanhlut-
verki í tíu ár,“ segir leikkonan. „Ég
vissi að dramatískur leikur væri
mín sterkasta hlið og ég ætlaði
mér ekki út í gamanleik, nema
með fólki sem vissi hvkð það væri
að gera.“ Leikstjórinn Richard
Donner og leikarinn Mel Gibson
reyndust vera þeir menn sem hún
var að leita að: „Ég hef aldrei
verið jafn afslöppuð og ánægð við
tökur á neinni mynd. Ég sagði við
sjálfa mig að ég ætlaði að ljúka
þessu... og gera það vel, þrátt fyr-
ir takmarkaða reynslu af gaman-
myndaleik. Þegar allt kom til alls
hafði ég gaman af því sem ég var
að gera!“
Leikstjórinn Yakin segir um
Sean : „Hann er svo hæglátur
að ég trúði því ekki í fyrstu".
Segir lítið en
sér margt
► SEAN Nelson er fjórtán ára
strákur sem hefur fengið mikið
lof fyrir frammistöðu sína í kvik-
myndinni „Fresh“. Hann fékk
verðlaun á Sundance-kvik-
myndahátíðinni, „en það breytir
ekki þeirri staðreynd að ég er
enn minnstur í bekknum,“ segir
hann. í myndinni leikur hann
krakka frá Brooklyn sem selur
eiturlyf eftir skóla. Sjálfur er
hann frá slæmu hverfi og segir
að strákarnir í hverfinu komi til
sín og segi að hann sé góður með
sig, „en þannig er ég ekki“, bæt-
ir hann við.
Framundan hjá Sean (auk þess
að reyna að bæta sig í spænsku
og vísindum) eru fjölmargar
leikprufur. Þrátt fyrir að vera
kominn þetta langt, er hann þó
aðeins ungur strákur sem tekst
á við veruleikann í kringum sig.
Hann segir lítið en sér margt.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Laugarásbíó sýnir
myndina The Crow
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á kvikmyndinni The Crow,
síðustu mynd Brandons Lee, en
hann lést af voðaskoti er á tökum
myndarinnar stóð. Upprunalegur
höfundur sagnanna um The Crow,
James O’Barr skrifaði sögurnar eft-
ir að unnusta hans lést í upphafi
sjöunda áratugarins.
Sagan gerist í Detroit sem nú
er borg martraðanna. Tilgangslaust
ofbeldi er raunveruleiki þessa stað-
ar, sérstaklega á „nótt djöfulsins"
þegar venjulegt fólk þorir ekki einu
sinni út fyrir dyr. En eins og rokk-
söngvarinn Eric Draven (Brandon
Lee) og unnusta hans Shelley
Webster (Sophia Shinas) eiga eftir
að uppgötva er maður ekki einu
sinni óhultur innandyra á þessu
kvöldi. Hópur ribbalda og misindis-
manna ræðst til inngöngu í íbúð
þeirra og myrðir þau á hrottalegan
hátt á heimili sínu. Sumir glæpir
eru svo hræðilegir í tilgangsleysi
sínu að þeir kreíjast hefndar. Ná-
kvæmlega ári síðar rís Eric upp frá
dauðum í krafti yfirnáttúrulegra
afla sem hann kann engin skil á.
Hann ætlar að ná fram réttlæti
fyrir ranglætið sem hann hefur
verið beittur.
Framleiðendunum Edward R.
Pressman og Jeff Most hefur tekist
að kalla saman einstaklega hæfi-
leikaríkt og áhugasamt fólk til að
vinna að gerð þessarar myndar.
Handritshöfundurinn David D.
Schow hefur unnið talsvert við
myndir í kanti hryllingsmynda og
er ábyrgur fyrir handritum mynda
á borð við Critters, The Texas
Chainsaw Massacre og Nightmare
on Elmstreet 5. Aðstoð við hand-
ritagerðina er í höndum John Shirl-
ey sem þarna sá á eftir sínu fyrsta
handriti í kvikmynd, en hefur síðan
skrifað handritið að The Specialists,
nýjustu mynd Sylvesters Stallone
og Sharon Stone.
The Crow inniheldur mikla tón-
list og er að hluta byggð á rokktón-
list. Meðal flytjenda í myndinni eru:
The Cure, Stone Temple Pilots,
Rage against the Machine og Pant-
era ásamt mörgum fleirum.