Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Árleg dánartíðni vegna lungnateppusjúkdóma 1951 til 1990 1971-80 1981-90 1951-60 1961-70 1971-80 1981-90 106 Tífalt fieiri konur deyja úr lungnaþembu nú en fyrir 40 árum Hafa síður hætt reyk- ingum en karlar síðari ár DÁNARTIÐNI vegna lungna- þembu hefur tífaldast meðal kvenna síðastliðin 40 ár og dánar- tíðni vegna langvinnrar berkju- bólgu þrefaldast, samkvæmt nið- urstöðum könnunar sem Þórarinn Gíslason lungnalæknir og Kristinn Tómasson geðlækhir hafa gert og birtar voru í ágústhefti Lækna- biaðsins. Ekki var um sambæri- lega aukningu að ræða á dánar- tíðni meðal karla og segir í grein- inni að niðurstöðurnar endurspegli reykingavenjur kvenna og þá stað- reynd að konur hafi síður hætt reykingum en karlar síðustu ára- tugi. Upplýsingum var safnað um astma, langvinna berkjubólgu og lungnaþembu og voru niðurstöð- umar unnar fyrir fjögur tíu ára tímabil, eða frá 1951-1990, með tilliti til aldurs og kyns. í ljós kemur að níu einstakling- ar yngri en 45 ára hafa látist úr astma á tímabilinu, það er sjö konur og tveir karlar. Samkvæmt stöðluðu dánarhlutfalli dóu hlut- fallslega færri karlar 1981-1990 en á síðustu fjörutíu árum. Meðal kvenna virðist ekki hafa orðið um marktæka breytingu að ræða þeg- ar tekið er tillit til aldurssamsetn- ingar. Dánartíðni af völdum astma með því lægsta Þórarinn Gíslason segir að dán- artíðni vegna astma á Islandi sé með því lægsta sem gerist í heim- inum og sé hún sérlega lág meðal ungs fólks, eða fólks undir 45 ára UNDIRRITUÐ lýsa eindreginni ánægju með störf Jakobs Frí- manns Magnússonar menningar- fulltrúa við sendiráð íslands í London, sem einkennst hafa af dirfsku og dugnaði við kynningu á íslandi, íslenskri menningu og framleiðsluvörum. Árni Benediktsson, fram- kvæmdastjóri, Ásgeir B. Kristins- son, verslunarmaður, Ámundi Ámundason, framkvæmdastjóri, Ásmundur Jónsson, deildarstjóri, Björgvin Halldórsson, framleið- andi, Björk Guðmundsdóttir, tón- listarmaður, Bryndís Halla Gylfa- dóttir, tónlistarmaður, Bubbi Morthens, tónlistarmaður, Bubbl- eflies, Egill Eðvarðsson, framleið- andi, Eiður Snorri, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Einar Snorri, myndasmiður, myndasmið- ur, Einar Örn Benediktsson, fjöl- miðlafræðingur, Ellen Kristjáns- dóttir, tónlistarmaður, Eyþór Arn- alds, tónlistarmaður, Eyþór Gunn- arsson, tónlistarmaður, Gísli aldri. Segir Þórarinn einnig að dánartíðni meðal yngra fólks vegna þessa sé tuttugu til þijátíu sinnum lægri hér en til dæmis á Nýja-Sjálandi. Bendi niðurstöður erlendra kannana til vaxandi dánartíðni af völdum astma í Ástralíu, Englandi, Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum. Því hafi ver- ið ákveðið að gera þessa rann- sókn, sem hófst fyrir tveimur árum. Þreföld aukning meðal karla Fengnar voru upplýsingar frá Hagstofu íslands um dánarorsakir frá 1951-1990. Vegna breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinnar á tímabilinu eru niðurstöður leið- réttar með því að nota svokallað staðlað dánarhlutfall. Eins og fyrr segir kemur í Ijós að dánartíðni meðal kvenna vegna lungnaþembu hefur tífaldast og þrefaldast vegna langvinnrar berkjubólgu. Meðal karla má greina þrefalda aukningu á dánartíðni vegna lungnaþembu en breytilega dánartíðni vegna astma og langvarandi berkju- bólgu. Telja Þórarinn og Kristinn að þessar niðurstöður endurspegli breytingar á reykingavenjum, þar sem konur hafi síður hætt reyking- um en karlar eins og fram komi í hóprannsókn Hjartaverndar. Heildardánartíðni vegna lang- vinnrar berkjubólgu hefur þrefald- ast frá 1951-1960 í samanburði við 1981-1990 og þá aðallega í elstu aldurshópunum. Meðaldán- artíðni á síðastliðnum áratug var Yfirlýsing Helgason, tónlistarmaður, Guð- mundur Andri Thorsson, rithöf- undur, Guðný Haildórsdóttir, kvik- myndaleikstjóri, Gunnar Þórðar- son, tónlistarmaður, Halldór Þor- geirsson, framleiðandi, Hallgrímur Helgason, rithöfundur og listmál- ari, Haraldur Jónsson, myndlistar- maður, Helga Hilmarsdóttir, kaupmaður, Helgi Þorgils Frið- jónsson, myndlistarmaður, Herdís Hallvarðsdóttir, tónlistarmaður, Hilmar Örn Hilmarsson, tónskáld, Hrafn Gunnlaugsson, kvikmynda- leikstjóri, Hrafnkell Sigurðsson, myndlistarmaður, Húbert Nói, myndlistarmaður, Höskuldur Ás- geirsson, framkvæmdastjóri ís- lenskra sjávarafurða, Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi, Jón Ás- bergsson, framkvæmdastjóri Út- flutningsráðs íslands, Jón Kaldal, blaðamaður, Jón Ólafsson, útgef- andi, Júlíus Kemp kvikmyndaleik- stjóri, KK, tónlistarmaður, Kristín Jóhannesdóttir, kvikmyndaleik- stjóri, Kristján Jóhannsson, óperu- 8,7 meðal karla og 7,6 meðal kvenna. Aukningin er mest í dán- artíðni vegna lungnaþembu á tímabilinu en dánartíðni af hennar völdum var einkum Iág meðal karla milli 1951 og 1960. Var meðaldánartíðni úr lungnaþembu milli 1981-1990 13,0 hjá körlum og 11,5 hjá konum. Greinarhöf- undar taka þó fram að skráning Alþjóða sjúkdómsskrárinnar (Int- ernational Classification of Dise- ase) hafi verið óljós fram til 1971. Frá 1970 aukist dánartíðnin all- verulega, einkum hjá konum. Mest sé aukningin hjá öldruðum en einnig umtalsverð meðal miðaldra. Mest aukning hjá konum Séu sjúkdómarnir þrír skoðaðir til samans kemur í Ijós að dánar- tíðni af þeirra völdum var mun hærri meðal karla milli 1951 og 1980 en á síðasta áratug var hún næstum sú sama hjá báðum kynj- um. Er dánartíðnin hæst meðal eldra fólks, einkum vegna lang- vinnrar berkjubólgu og lungna- þembu. Kristinn bendir á að aukin dán- artíðni undanfarinn áratug vegna langvinnra lungnateppusjúkdóma skýrist að hluta til af breyttri ald- urssamsetningu þjóðarinnar en hún skýri þó ekki aukningu á lungnaþembu og langvinnri berkjubólgu sem dánarmeini. Loks segir að á þeim 40 árum sem at- hugunin nær til aukist dánartíðnin eingöngu af völdum iungnaþembu og langvinnrar berkjubólgu, sem tengist alfarið reykingum. söngvari, Magnús Kjartansson, varaformaður STEF, María Ell- ingsen, leikkona, Ottó Tynes, starfsmaður, Ólafur Gunnarsson, rithöfundur, Ólafur Stephensen, Pétur Björnsson, framkvæmda- stjóri í Hull, Pétur Blöndal, dreif- ingarstjóri, Sigríður Kolbrún Oddsdóttir, flugfreyja, Sigurður Árni Sigurðsson, myndlistarmað- ur, Sigurður Pálsson, skáld, Sig- urður Órlygsson, listmálari, Sigur- jón Sighvatsson, kvikmyndafram- leiðandi, Sjón, skáld, Stefán Hilm- arsson, tónlistarmaður, Stefán Jónsson, leikari, Steinar Berg ísleifsson, útgefandi, Steindór Haraldsson, kynningarstjóri, Svava Johansen, verslunarkona, Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, Tolli, myndlistarmaður, Tómas Andrés Tómasson, veitingamaður, Tómas M. Tómasson, upptöku- stjóri, Vernharður Linnet, kenn- ari, og Þorsteinn J. Vilhjálmsson, höfundur. Bændasamtökin sameinast I stakk búin til að takast á við kom- andi samkeppni Haukur Halldórsson Helsta málið sem fjall- að verður um á að- alfundi Stéttarsam- bands bænda 25.-27. ágúst á Flúðum er fyrirhuguð sameining SB og Búnaðar- félags íslands í ein heildar- samtök bænda, en 27. ágúst verður jafnframt haldið auka Búnaðarþing í Árnesi til að fjalla um sameining- una. Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands- ins segir að á aðalfundinum verði lagt fram uppkast að samningi um sameininguna og hvernig að henni skuli staðið, en m.a. þarf að ákveða hvernig staðið verð- ur að kosningum til fyrsta sameiginlegs fundar heildar- samtakanna sem fyrirhug- aður er í mars á næsta ári. Sá fundur setur sé síðan eigin samþykktir en drög að þeim sem kynnt hafa verið bændum verða til umfjöllunar á aðalfundi SB og á auka Búnaðarþingi. Hauk- ur segir vilja bænda í þessu efni augljósan en í skoðanakönnun sem fram fór meðai þeirra samhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor sögðust 88% vera samþykkir sam- einingunni. Hann teldi því að gras- rótin hefði talað og það sé hennar vilji að þessi samtök sameinist. - Hvaða breytingar hefur sam- eining bændasamtakanna helst í för með sér? „Stéttarsambandið hefur farið með hagsmuna- og kjaramál bænda og leiðbeiningarþjónustan hefur verið hjá Búnaðarfélaginu. Viss tvíverknaður hefur verið í því að bæði Stéttarsambandið og Bún- aðarfélagið hafa verið umsagna- raðilar um fjöldamörg mál og full- trúar samtakanna hafa gjarnan setið í sömu nefndum. Það hefur verið nokkuð stöðluð krafa bænda miðað við þann samdrátt sem orð- ið hefur í landbúnaði að félagskerf- ið þurfi að verða ódýrara, einfald- ara og skilvirkara. Ég tel að með sameiningu samtakanna eigi það að geta orðið eitthvað ódýrara, en það sem skiptir mestu er að menn fái þá þjónustu sem þeir greiða fyrir. Þá á ákvarðanataka öll að geta orðið skilvirkari og ég held það hljóti líka að verða að teljast einfaldara að hafa þetta allt undir einni stjórn.“ - Hvernig verður leiðbeining- arþjónustunni, sem notið hefur fjárstuðanings frá ríkinu, hagað eftir sameininguna? „Leiðbeiningarþjón- ustan verður að vinna í samræmi við þá land- búnaðarstefnu sem samkomulag er um milli ríkis og bænda og ég bind ákveðn- ar vonir við að starfsmenn og að- staða nýtist enn betur eftir sam- eininguna en áður var og þetta geti á allan hátt orðið skilvirkara. Ríkið greiðir fyrir hluta leiðbein- ingarþjónustunnar og ég sé ekki að það þurfi að verða nein breyting á því, en markmið þess að ríkið hefur greitt inn í leiðbeiningar- þjónustuna og á sama hátt stutt rannsóknastarfsemi hefur verið að reyna að tryggja framleiðniaukn- ingu í greininni. Við gerum ráð fyrir að í nýju samtökunum verði sérstök leiðbeiningardeild og leið- beiningarþjónustan verði rekin í einhvers konar verktakastarfsemi. Leiðbeiningardeildin sem nýtur opinbers stuðnings verður síðan með sjálfstæðar fjárreiður þannig að hægt sé að fylgjast með því hvernig fjármunum er varið.“ ► Haukur Halldórsson formað- ur Stéttarsambands bænda er fæddur að Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd 25. janúar 1945. Hann útskrifaðist sem búfræðingur frá bændaskólan- um á Hvanneyri 1965 og eftir það stundaði hann framhalds- nám í búfræði í Danmörku. Hann hefur verið bóndi í Svein- bjarnargerði frá 1968. Haukur var um árabil formaður Búnað- arsambands Eyjafjarðar og for- maður Sambands íslenskra Ioð- dýraræktenda. Hann hefur ver- ið formaður Stéttarsambands bænda frá 1987 en hann var fyrst kosinn fulltrúi á aðalfund samtakanna árið 1985. - Hver telurþú að verði helstu verkefni nýju bændasamtakanna á þeim breytingai-tímum sem fram- undan eru, t.d. hvað varðar vænt- anlegan innflutning búvara? „Eg trúi því að sameinuð bændasamtök séu í stakk búin til að takast á við þá samkeppni sem framundan er og þá bæði til að standa sig á innanlandsmarkaði og einnig til markaðssóknar er- lendis. EES-samningurinn er stað- reynd, þó hann eigi væntanlega eftir að breytast í tvíhliða samn- ing, og síðan tekur GATT-samn- ingurinn væntanlega gildi á næsta ári. Þá verður innflutningur á bú- vörum frjáls utan þess sem bannað verður á grundvelli heilbrigðislaga. Við vitum að við höfum enga möguleika á að keppa á svokölluðum heims- markaði með búvörur okkar, sem þrátt fyrir GATT-samningana er ljóst að verða miklir undirboðsmarkaðir áfram þar sem ekki var samið um nema þriðjungs- lækkun á útflutningsbótum og nið- urgreiðslum. Við höfum hins vegar verið að skoða mjög vel hvort við eigum ekki njöguleika á hinum sérhæfðu mörkuðum þar sem gæði matvæla eru metin umfram annað. Þetta krefst gífurlega mikillar vinnu hérna heima og allsheijar gæðastjórnun þarf að vera til stað- ar alveg frá bóndanum og í gegn- um allt kerfið. Þetta eru hlutir sem við ætlum okkur að takast á við af því að þarna teljum við okkur eiga nokkra möguleika. Við tök- umst því á við þessa breyttu stöðu með allsheijar gæðastjórnun alveg frá jörð til borðs og við ætlum ís- lenskri matvælaframleiðslu stóra hluti bæði á innanlandsmarkaði og erlendis með þessum aðgerð- um.“ Þarf gæða- stjórnun frá jörð til borðs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.