Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ 34 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 i —---------------------------- FÓLK í FRÉTTUM * .. V® Tónlist Siggi Björas spilar á Borgundarhólmi ISLENDINGURINN Sigurður Bjömsson, Siggi Björns, eins og hann kallar sig, er einn af þeim, sem gera það gott í útlöndum. Hann er frá Flat- eyri, en býr í Arósum í Danmörku og vinnur fyrir sér með því að spila og syngja á veitingahúsum þar í landi. Lungann úr þessu sumri og því síð- asta hefur hann verið á Borgundarhólmi og skemmt í veitingahúsunum Sörens Værtshus í Snogebæk og Gudhjem Rogeri í Gudhjem við góðar undirtektir. Siggi Bjöms hefur farið víða um heiminn eftir að hann hætti á sjó og í fiski heima og meðal annars spilað á Nýja Sjálandi og Japan auk nokk- urra nálægari landa. Þá hefur hann gefið út tvo geisladiska, „Siggi Björns, Blúsý báðum megin“ og „Siggi Björns, Live at Sorens". Mikið er um „trúbadora“ frá flestum heims hornum á Borgund- arhólmi á sumrin enda leggja ferðamenn gjarnan leið sína þangað, þó íslendingar séu þar afar fátíð- ir gestir að sögn Sigga. Hann segist kunna vel við að skemmta á Borgnndarhólmi, þetta sé vina- leg lítil eyja og þar búi gott fólk. „Ég spila líka mikið í Kaupmannahöfn og á fleiri stöðum í Danmörku og kann vel við það. Síðan liggur leiðin heim í haust til hugsanlegra landvinn- inga, en þar hófst ferillinn, reyndar fyrir tilviljun fyrir nokkrum árum, þegar ég var beðinn um að hlaupa í skarðið fyrir mann, sem forfallaðist." segir Siggi, „Það gekk upp og því er ég enn í þessu.“ Morgunblaðið/HG SIGGI Björns spilar í Gudhjem Rngeri á Borgundarhólmi. Ákafi barnanna var kannski aðeins of mikill, því eins og sést á meðfylgjandi mynd náði Mia, fimm ára gömul, ekki að stöðva reiðhjólið í tæka tíð og hjólaði á drottningarmóðurina. Ingrid hló aðeins að uppátæk- inu og hrósaði krökkunum fyrir að vera með reiðhjólahjálma. Tveir dagar í frumsýningu á þessari nýjustu mynd Almodóvars. Litrík, suðræn, erótísk og ekki síst skemmtileg fyrir konur og karla á barmi taugaáfalls... Morgunblaðið/Jón Svavarsson HÓPURINN sem lagði á jökulinn. Hjólaði á drottningarmóðurina ►INGRID, drottningarmóðirin danska, eyðir sumarleyfí sínu í höll sinni á Suður - Jótíandi. Hún fékk óvænta heimsókn fyr- ir skömmu frá börnum sem komu til að færa henni blóm- vönd. Sól á Snæfellsjökli ALGENGT er að starfsmannafélög skipuleggi ýmsar ferðir og uppákom- ur fyrir félaga sína. Ein slík var farin um síðustu helgi er starfs- mannafélag Bifreiðaskoðunar ís- lands fór á Snæfellsjökul á snjótroð- ara og vélsleðum. Útsýnið og veðrið var stórkostlegt og vel fór um hóp- inn í sólbaði áður en snúið var heim á leið. Ferðaþjónustan Snjófell á Amarstapa sá um að koma fólkinu upp og sumum þeirra niður, en aðr- ir renndu sér sjálfir niður á skíðum. Morguninn eftir var ekið fyrir Jökul undir leiðsögn Eyglóár Egilsdóttur, sem lýsti leiðinni, skýrði frá ömefn- um og sagði sögur af tröllum og foiynjum sem þar em sagðar hafa verið fyrr á öldum. Að þvi loknu var haldið aftur til Reykjavíkur. sprungur jökulsins voru ekki árennilegar. «■> -y,.. afmæli Presleys ►HINN áttundajan- úar á næsta ári verður sextugsafmæli Elvis heitins Presleys. í til- efni af því eru fyrir- hugaðir afmælistón- leikar í Memphis átt- unda október næst- komandi og mun ágóðinn renna til góðgerðarmála. Á tónleikunum munu troða upp ýmsar rokkstjörnur og meðal þeirra verða að öllum líkindum Michael Bol- ton, Bryan Adams, Jon Bon Jovi og Cher. Plata með tónleik- unum verður síðan gefin út i kjölfarið og framleiðandi hennar verður Don Was, sem einnig er fram- leiðandi Voodoo Lounge með Rolling Stones. PRINSARNIR Karl og And- rés á heræfingu í Frakklandi fyrir skömmu. Ólíkir konung- legir bræður BRESKU prinsarnir Karl og Andrés eru ekkert sérstaklega lík- ir í háttum. Andrés þykir miklu fijálsmannlegri í fasi heldur en Karl og kannski er meðfylgjandi mynd lýsandi fyrir skapgerðarein- kenni þeirra. Strangleiki Karls þarf þó kannski ekki að koma á óvart ef tekið er tillit til þess hverskyns skylda hvílir á herðum Karls að þurfa með tíð og tíma að erfa bresku krúnuna. Hann hefur líka verið undir miklu álagi eftir skiln- að sinn við Díönu prinsessu og virðist ekki almennilega hafa náð sér á strik í breskum fjölmiðlum eftir það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.