Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Góðar horfur í rekstri Hampiðjunnar
Hagnaður um 51
milljón á fyrri
árshelmingi
AFKOMA Hampiðjunnar hf.
fyrstu sex mánuði ársins varð betri
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nam
hagnaður um 51 milljón á þessu
tímabili samanborið við 37 milljón-
ir á sama tíma í fyrra. Horfur um
sölu á næstu mánuðum þykja góð-
ar og stefnir í að árið 1994 verði
a.m.k. ekki lakara hvað það snert-
ir en árið á undan.
í yfirliti um reksturinn sem sent
hefur verið til hluthafa Hampiðj-
unnar kemur fram að rekstrartekj-
ur námu 495 milljónum fyrstu sex
mánuði ársins, sem er um 3%
aukning frá sama tímabili í fyrra.
Fram kemur í ávarpi Gunnars
Svavarssonar, forstjóra félagsins,
að salan hefur verið meiri en gert
var ráð fyrir í áætlunum. Sala
hafí aukist á netum og fullbúnum
trollum en verið svipuð eða minni
en í fyrra á köðlum og rörum.
Framleiðsla Hampiðjunnar hef-
ur ekki haldist í hendur við söluna
og hafa afurðabirgðir því minnkað
um 44 milljónir frá áramótum.
Ráðgert hafði verið að draga úr
birgðum á seinni hluta ársins
þannig að fyrirtækið mun þá njóta
þess að hafa lokið þessu verkefni.
Afkoman gæti því batnað frá því
sem sést í milliuppgjörinu í stað
þess að standa í stað eins og búist
hafði verið við.
Gunnar bendir á að aukinn
hagnað megi að mestu rekja til
lægri kostnaðar en síðasta ár hafi
verið óvenjulegt að því leyti að
verksmiðjan og skrifstofurnar í
Stakkholti voru fluttar í húsnæðið
á Bíldshöfða 9. Það hafí haft í för
með sér tímabundinn viðbótar-
kostnað. Þá kemur fram að skuld-
ir lækkuðu úr 999 milljónum í 789
milljónir frá áramótum til loka
júní vegna sölu skuldabréfa sem
fengust við sölu húsnæðis í Stakk-
holti og afborgana af langtímalán-
um.
í lok júní námu heildareignir
Hampiðjunnar alls um 1.512 millj-
ónum og eigið fé 722,5 milljónum
þannig að eiginfjárhlutfall var
47,8/ó. Á sama tíma í fyrra var
eiginfj árhlutf allið hins vegar
39,6%.
Necessity-
verslun í
Borgar-
kringluna
KVENFATAVERSLUN innan
dönsku Necessity-verslunark-
eðjunnar verður opnuð á næst-
unni á fyrstu hæð Borgarkringl-
unnar. Þetta er þrítugasta
verslunin innan keðjunnar en
áætlað er að opna tíu verslanir
á ári í Evrópu á næstu árum.
Necessity-verslanirnar eru í
eigu fyrirtækisins TCC/Cockta-
il en það rekur auk þess verslan-
ir undir heitinu Cocktail og
Cha*Cha. Þá er fatnaður frá
fyrirtækinu seldur í fjölmörg-
um öðrum verslunum víða í
Evrópu. í frétt frá umboðsaðila
TCC/Cocktail, Pró hf., kemur
fram að helsta markmið fyrir-
tækisins er að bjóða þægilegan
hátískufatnað á lágu verði.
Stefna þess er sú að bjóða nýja
línu í fatnaði tíu sinnum á ári
en helstu merki eru Cha*Cha,
Banana, Explosion, Repeat,
Cycles og L.E.D. Tvisvar á ári
er gefinn út bæklingur fyrir
Necessity-verslanirnar sem
hægt er að fá í áskrift viðskipta-
vinum að kostnaðarlausu. Vek-
ur athygli að öll myndataka
vegna haust- og vetrarbækl-
ingsins 1994 fór fram hér á
landi og réð fyrirtækið islensk-
ar stúlkur til að silja fyrir í
náttúru landsins.
í tilefni af opnun verslunar-
innar í Borgarkringlunni fá
1.500 íslenskar stúlkur sent sér-
stakt Necessity-kort sem veitir
10% afslátt í eitt ár. Þetta er
stórt tilraunaverkefni í sam-
vinnu við TCC/Cocktail og var
ráðist í það með það fyrir aug-
um að stofna Necessity-klúbb í
framtíðinni. Kortaviðskiptin
munu einnig nýtast við söfnun
upplýsinga um kauphegðun við-
skiptavina, að því er segir í frétt
frá Pró hf.
; 1,8% Frakkland
11,9% Danmörk
] 2,1% Lúxemborg
2,6% Bretland
| 2,7% írland
12,8% Belgía
J 3,0% Holland
3,0% Þýskaland (vesturhluti)
[3,9% italía
|: 4,7% Spánn
í 5,6% Portúgal
Verðbólga í
ESB-löndum
Hækkun neyslu-
vísitölu frá júní
1993 til júní 1994
Grikkland
10,9
3,2% Meðaltal í ESB-löndum
| 0,0% Kanada
|] 0,5% Sviss
m 0,7%
H 1,1% Noregur
1,3% Finnland
| 2,3% ÍSLAND
2,5% Bandarikin
2,5% Svíþjóö
3,0% Austumki
Verðbólga
í nokkrum
öðrum
löndum
Heimild: Hagstofa islands '
Verðbólga sl. þrjá
mánuði 1,4%
VÍSITALA framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í ágústmánuði
reyndist vera 170,5 stig og hækk-
aði um 0,1% frá því í júlímánuði
sem jafngiidir um 0,7% verðbólgu
á heilu ári. Vísitala vöru og þjón-
ustu var 174,4 stig og hækkaði um
sama hlutfall frá því í júlí.
Undanfarna þijá mánuði. hefur
vísitalan hækkað um 0,4% sem jafn-
gildir 1,4% verðbólgu á ári. Sam-
bærileg þriggja mánaða breyting á
vísitölu vöru og þjónustu jafngildir
1,6% verðbólgu á ári. Síðastliðna
tólf mánuði hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað um 0,8%
og vísitala vöru og þjónustu um
0,9%.
Fram kemur í frétt frá Hagstofu
íslands að verðbólgan í löndum
Evrópusambandsins var að meðal-
tali 3,2% á tímabilinu júní 1993 til
júní 1994 en 2,3% hér á landi.
Nánari samanburður milli einstakra
landa sést á meðfylgjandi mynd.
Kvikmyndagerð
Metsölumynd skilar
PolyGram hagnaði
London. Reuter.
METSÖLUMYNDIN „Four Wedd-
ings and a Funeral“ eða „Fjögur
brúðkaup og jarðarför" hefur
stuðlað að því að hagnaður stóra
tónlistar- og skemmtiefnifyrirtæk-
isins í eigu Hollendinga, PolyGram,
jókst um 15% og að í meiri hagnað
stefnir hjá fyrirtækinu.
Nettótekjur PolyGram, sem
Philips-fyrirtækið á 75% hlut í en
er aðallega stjórnað frá London,
námu jafngildi 132 milljóna dollara
á fyrri árshelmingi miðað við 115
milljónir dollara á sama tíma í
fyrra.
Hins vegar hafði fyrirtækið 65
milljóna gyllina minni tekjur en
spáð hafði verið. Fjárfestar hafa
því reynt að verða sér úti skjót-
fenginn gróða og nokkrir þættir í
rekstrinum hafa vakið efasemdir
sérfræðinga.
Minni tekjur annarra deilda
„Kjarni málsins er að markaður-
inn hefur vanizt 16-18% hagnaði
hjá PolyGram að staðaldri," sagði
einn þeirra, „og minni hagnaður
veldur vonbrigðum.“
Rýmingarsala
„Ef dreginn er frá sá ágóði, sem
“Fjögur brúðkaup og jarðarför"
hlýtur að hafa skilað, hljóta tekjur
annarra deilda að hafa minnkað,"
sagði ónefndur sérfræðingur.
125 milljón dollara hagnaður
Aðeins 3 dagar eftir. Mikill afsláttur síðusta dagana.
Lokað mánudag og þriðjudag vegna breytinga.
mfiiarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirói • Sími 651147
PolyGram er eitt af þremur
helztu hljómplötufyrirtækjum
heims og 65% sölunnar eru tónlist-
arefni, en flestum á óvart hefur
kvikmyndin „Fjögur brúðkaup og
jarðarför" aflað rúmlega 125 millj-
óna dollara í brúttóhagnað.
Sérfræðingar telja að kvik-
myndadeiidin sé enn rekin með
tapi, en minnki tapið jafnt og þétt.
Velta hennar jókst um 56% á fyrra
árshelmingi og 11% heildarsölu
PolyGram var kvikmyndaefni.
Japanar
í sam-
starf við
Boeing
Tokyo. Reuter.
JAPANAR hafa ákveðið að taka
þátt í frumrannsókn með Bo-
eing-verksmiðjunum á smíði
100-sæta farþegaflugvélar, svo-
'kallaðrar YSX að sögn starfs-
manns japanskrar flugvélaverk-
smiðju. Kínverjar fá að fylgjast
með rannsókninni.
Að sögn heimildarmannsins
hafa Japanar hætt við upphaf-
lega áætlun um smíði 70- 80-
sæta flugvélar, þar sem þeir
telja að 100-sæta gerð verði
arðvænlegri. Þar með hefur
samvinna við evrópskar flug-
vélasmiðjur nánast verið útilok-
uð að hans sögn.
Embættismaður sagði að Jap-
anar mundu taka formlega
ákvörðun um samstarfsaðila að
verkefninu í lok fjárhagsárs þess
er lýkur 31. marz 1995. Að jap-
anskri flugvélasmíði standa
stjórnvöld og einkafyrirtæki á
borð við Mitsubishi og Kawa-
saki.
Kínveijar hafa áhuga á stór-
um farþegaflugvélum til þess
að ráða við aukna flugumferð
að sögn japanskra embættis-
manna.
Boeing kann að telja að selja
megi Kínveijum stærri flugvélar
með því að kynna þeim þróun
og smíði flugvéla með þátttöku
í YSX-áætluninni samkvæmt
þessum heimildum.
Disney og
símafélög í
samvinnu
Burbank, Kaliforniu. Reutcr.
Walt Disney hefur skýrt frá
sameiginlegu framtaki þess og
þriggja Baby Bell-símafélaga til
þess að bjóða myndbandsþjón-
ustu um símalínur.
Disney, Ameritech, BellSouth
og Southwestern Bell munu
vinna saman að áætlun um að
senda myndbandsþjónustu heim
til neytenda. Um getur verið að
ræða venjulegt útvarpsefni og
efni úr gervihnattasjónvarpi og
auk þess kvikmyndir eftir pönt-
un, heimainnkaup, fræðskuefni,
leiki og ferðaþjónusta.
Ameritech, BellSouth og
Southwestern Bell starfa í 19
ríkjum og keppast um að bjóða
viðskiptavinum sínum samverk-
andi þjónustu, eins og stór fjöl-
miðla- og kaplafyrirtæki eru
þegar farin að gera.
Barclays
með aukinn
hagnað
London. Reutcr.
HAGNAÐUR Barclays-banka í
Bretlandi stórjókst á fyrra árs-
helmingi og Andrew Buxton
stjórnarformaður er vongóður
um áframhaldandi ágóða út
árið.
Hagnaður Barclays fyrir
skatta nam 1.036 milljörðum
punda miðað við 335 milljónir
punda á sama tíma í fyrra - en
spáð hafði verið í mesta lagi 750
milljóna punda hagnaði.
Arður af hlutabréfi var auk-
inn um 23% í 8.0 pens úr 6.5
pensum. Barclays lækkaði arð-
greiðsluna 1992 og hún var
óbreytt í fyrra.