Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994 15
Dúdajev
vill ræða
við Jeltsín
HAFT var eftir Dzhokhar
Dúdajev, leiðtoga Kákasus-
héraðsins Tsjetsjeníju, í gær
að hann væri reiðubúinn að
ræða við Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta um leiðir til að
leysa deilu þeirra um sjálf-
stjórn hér-
aðsins. Itar-
Tass hafði
eftir Dúdajev
að aðstoðar-
menn Jeltsíns
ættu sökina á
vaxandi
spennu í
samskiptum
Tsjetsjena og
Rússa að undanförnu. „Við
Jeltsín gætum undirritað yfir-
lýsingu til að draga úr spenn-
unni,“ sagði Dúdajev. „Jeltsín
forseti gæti þá séð að Dúdajev
er ekki það skrímsli sem ráð-
gjafar hans hafa talað um.“
Christopher
ánægður
WARREN Christopher, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
hélt til Washington í gær eftir
ijórðu ferð sína til Miðaustur-
landa á þremur mánuðum.
Christopher kvaðst ánægður
með árangur ferðarinnar þótt
ekki hefði náðst neitt tíma-
mótasamkomulag varðandi
deilur ísraela og Sýrlendinga.
Bandarískur embættismaður
sagði að Hafez al-Assad, for-
seti Sýrlands, hefði sagt á
fimm stunda fundi með Christ-
opher á sunnudag að hann
vildi ná friðarsamningi við
ísraela fyrir árslok.
Samkomulag
í Angóla
SAMNINGAMENN stjórnar-
innar í Angóla og UNITA-
skæruliða undirrituðu í gær
samkomulag um hvernig
standa bæri að því að koma á
sáttum í landinu. Nokkur erfið
deilumál standa þó enn í vegi
fyrir friðarsamningi sem
myndi binda enda á 20 ára
borgarastyrjöld.
Vill ræða verj-
ur við páfa
PETER Piot, framkvæmda-
stjóri alnæmisrannsóknadeildar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar (WHO), kvaðst í gær
vilja reyna að sannfæra Jóhann-
es Pál páfa um að smokkar
geti bjargað mannslífum. „Taki
hann kaþólska trú alvarlega,
trúi á náungakærleika og hafi
skilning á breyskleika manns-
ins, ætti ég að geta fengið hann
á mitt band. Þá ætti hann að
skilja að smokkar geta bjargað
mannslífum við ákveðnar að-
stæður," sagði Piot.
Jeltsín
ERLENT
Hætta á blóðugum ætt-
bálkaerjum í Búrúndí
Vaxandi líkur á álíka hörmungum og í Rúanda
Lundúnum. The Daily Telegraph.
VAXANDI líkur eru taldar á álíka hörmungum í Búrúndí og í ná-
grannaríkinu Rúanda vegna eija milli helstu ættbálkanna, hútúa
og tútsa. Komið hefur til átaka í höfuðborg Búrúndís, Bujumbura,
og einn af helstu leiðtogum stjórnarandstöðunnar hefur verið hand-
tekinn. Þykir það það draga mjög úr líkunum á því að hægt verði
að afstýra miklum blóðsúthellingum.
Dýrmætt vatn
Reuter
UNGUR rúandískur flóttamaður ber vatnsskál á höfðinu í dreif-
ingarmiðstöð i Kibumba í Zaire. Flóttamennirnir fá hreinsað
vatn frá bækistöðvum bandaríska hersins.
Hermenn voru sendir til mið-
borgar Bujumbura á mánudag eft-
ir að ungir tútsar höfðu gengið þar
berserksgang og barist við lögregl-
una. Að minnsta kosti 15 manns
hafa síðan beðið bana í höfuðborg-
inni og allt viðskiptalíf þar er lam-
að. Einn af skipuleggjendum mót-
mælanna, Mathias Hitimana, leið-
togi eins af helstu stjórnarand-
stöðuflokkunum, var handtekinn.
Talið er að a.m.k. 50.000 manns
hafi beðið bana síðustu sex mán-
uði í áttbálkaeijunum milli tútsa
og hútúa, sem eru í miklum meiri-
hluta í Búrúndí eins og í Rúanda,
og í innbyrðis eijum ættbálkanna.
Blóðsúthellingarnar í Búrúndí
hafa ekki orðið eins miklar og í
Rúanda en talsmenn hjálparstofn-
ana vara við því að ástandið eigi
örugglega eftir að versna til muna.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
varaði við því í síðasta mánuði að
allt kynni að fara í bál og brand
í landinu.
Tveir forsetar fallnir
Tveir forsetar hafa þegar látið
lífið vegna ættbálkaeijanna í Búr-
úndí. Blóðsúthellingarnar hófust
þegar þáverandi forseti, Melchior
Ndadaye, hófsamur hútúi, var ráð-
inn af dögum í valdaráni hersins
í október. Eftirmaður hans, Cypri-
en Ntaryamire, beið bana þegar
flugvél hans og forseta Rúanda,
Juvena Habyarimana, var skotin
niður með flugskeyti í apríl. Talið
er að öfgamenn úr röðum hútúa
hafi skotið flugskeytinu og í kjöl-
far árásarinnar hófust fjöldamorð
hútúa á tútsum í Rúanda.
Öfgasinnaðir hútúar hafa einnig
verið sakaðir um fjöldamorð á túts-
um í Búrúndí. Ekkja fyrri forset-
ans, Laurence Ndadaye, hefur
hvatt þjóðir heims til að skerast í
ieikinn til að „stöðva upphafið að
þjóðarmorði og ættbálkahrannvíg-
um sem andlýðræðisleg öfl kynda
undir af ásettu ráði“.
Talsmenn hjálparstofnana segja
að þær eigi fullt í fangi með að
fást við vandann í Rúanda og séu
engan veginn færar um að bregð-
ast við álíka hörmungum í Búrúndí.
Reuter
Gin og
klaufaveiki í
Grikklandi
Þurft hefur að farga og urða
þúsundir kúa, kinda og geita
að undanförnu í norðurhluta
Grikklands, þar sem upp kom
gin og klaufaveikifaraldur, sem
er bráðsmitandi. Evrópusam-
bandið hefur bannað útflutning
á dýrum og nýju kjöti frá
Grikklandi í kjölfar faraldurs-
ins, og sett ströng takmörk á
útflutning á unnu kjöti og
mjólkurvörum.
Nasrin
skrifar
ævisöguna
TASLIMA Nasrin er nú að
skrifa sjálfsævisögu sína, segir
í norska Dagbladet í gær. Fyrir
viku gaf hún sig fram við yfir-
völd í Bangladesh, kom fyrir
rétt og var iátin laus gegn
ti-yggingu. Þá var handtöku-
skipun á hendur henni aflétt.
I ævisögunni segir Nasrin frá
flótta sínum undan bókstafstrú-
uðum múslimum, sem krefjast
þess að hún verði tekin af lífi
fyrir að hafa svívirt trúna með
skrifum sínum og ummælum í
viðtali. Hún segir sjálf að rangt
hafi verið haft eftir henni. Fyrir
tveim mánuðum fór hún í felur
vegna líflátshótana múslim-
anna.
Harðar deilur um ólöglegan flótta fólks frá Kúbu til Bandaríkjanna
Clinton hafnar orðnni Kastrós
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hafnar staðhæf-
ingum Fidels Kastrós, leiðtoga Kúbu, um að
Bandaríkjastjórn hvetji Kúbveija til að flýja með
ólöglegum hætti, að sögn talsmanns forsetans,
Dee Dee Myers.
Kastró hefur hótað því að heimila fjöldaflótta
frá Kúbu til Bandaríkjanna og Myers sagði að
Bandaríkjastjórn hefði samið áætlun um hvernig
bregðast ætti við slíkum vanda en bætti við að
flóttamönnunum hefði ekki fjölgað verulega
undanfarna daga.
Vaxandi óánægja er á meðal almennings á
Kúbu vegna versnandi lífskjara og til ryskinga
kom milli lögreglu og mótmælenda í Havana á
föstudag. Kastró kom fram í sjónvarpi um helg-
ina þar sem hann gagnrýndi Bandaríkjastjórn
harðlega og sakaði hana um að hafa valdið óeirð-
unum. Hann hótaði að heimila Kúbveijum að
flýja á bátum til Bandaríkjanna ef Clinton breytti
ekki stefnu sinni. Stjórnvöld á Kúbu hafa lengi
sakað Bandaríkjastjórn um að stuðla að því að
Kúbveijar fari með ólöglegum hætti til Banda-
ríkjanna með þeirri stefnu sinni að veita aðeins
takmörkuðum fjölda Kúbveija vegabréfsáritanir
en leyfa þeim sem flýja til Bandaríkjanna án
áritana að dvelja þar áfram.
„Stefna okkar er mjög, mjög ljós,“ sagði
Myers. „Nei, við erum ekki sammála Kastró.
Við hlýðum ekki fyrirmælum frá honum um
stefnu okkar í málefnum Kúbu.“
David Johnson, talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins, sagði að bandarískir og kúb-
verskir embættismenn hefðu komið saman um
helgina til að ræða deiluna. Hann sagði að banda-
rískir embættismenn störfuðu nú þegar eftir
áætlun um viðbrögð við hættunni á fjöldaflótta
en vildi ekki skýra frá því í hveiju hún fælist.
„Við höfum miklar áhyggjur af ummælum Kast-
rós,“ sagði hann.