Morgunblaðið - 10.08.1994, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Makaskiptasamningum við sölu húsa fjölgar
íbúð upp í söluverð
i annað hvert skipti
UM ÞAÐ bil annar hver einbýlis- eða raðhúsaeigandi á höfuðborgarsvæðinu
sem hyggst selja fasteign sína þarf að taka íbúð upp í kaupverðið og hefur
makaskiptasamningum fjölgað undanfarin ár, þó ekki séu til nákvæmar tölur
um fjölgunina. í október og nóvember á síðasta ári voru gerðir 74 slíkir samn-
ingar, en það er 43% af þeim kaupsamningum sem gerðir voru á þessu tíma-
bili. Þessar upplýsingar koma fram í fréttabréfí Fasteignamats ríkisins.
Alls bárust Fasteignamatinu 429
kaupsamningar yfir einbýlis- og rað-
hús á höfuðborgarsvæðinu á árinu
1993 og nam söluverðmæti þeirra
um 4,7 milljörðum króna. í fasteigna-
**skrá eru 14.306 einbýlis- og raðhús
á þessu svæði. Makaskiptasamningar
eru ekki í þessum tölum, en séu þeir
reiknaðir með og fjöldi þeirra í októ-
ber og nóvember notaður til viðmið-
unar, áætlar Fasteignamatið að um
620 kaupsamningar hafi verið gerðir
1993, velta þeirra verið 7,5 milljarð-
ar og alls hafí 4,3% einbýlis- og rað-
húsa á svæðinu skipt um eigendur.
Örn Ingvarsson, forstöðumaður
tækni- og kerfissviðs, segir að stofn-
unin hafi hingað til ekki talið maka-
skiptasamninga með í tölum sínum,
en vegna verulegrar aukningar
þeirra hafi verið ákveðið að breyta
því. „Þegar árferði versnar, aukast
makaskiptasamningar," segir hann.
Erfiðara að selja stærri
fasteignir
Örn segir að erfíðara sé að selja
stærri fasteignir, en makaskipta-
samningar eru einkum gerðir þegar
einbýlis- og raðhús eru seld. Hreinum
kaupsamningum hafí á móti fækkað
úr 249 árið 1992 í 177 árið 1993.
Örn segir að þessi prósenta sé eig-
inlega of há. „Það er eðlilegt að ein-
hver hluti dýrari eigna sé seldur á
þennan hátt,“ segir hann. Fasteigna-
markaðurinn sé að þessu leyti að líkj-
ast bílamarkaðinum, þar sem reglan
sé að fólk verði að taka ódýrari bíla
upp í þegar dýr bíll er seldur.
Verð lækkar
Verð á einbýlishúsum lækkaði
einnig milli áranna 1992 og 1993.
Mestur varð samdrátturinn frá síðari
hluta 1992 til síðari hluta ársins
1993, þegar raunverð lækkaði um
8,2%. Lækkunin frá fyrri hluta ársins
1992 til fyrri hluta ársins 1993 nam
hins vegar 2,2%.
Örn segir ástæðu þess að verðið
lækkaði um 8,2% á þessu tiltekna
tímabili vera að á síðari hluta ársins
1992 hafí verð á einbýlishúsum verið
í hámarki. Því sé fallið svona hátt.
Verð einbýlishúsa í ár hafí hins veg-
ar staðið í stað.
Morgunblaðið/Golli
Of hvasst fyrir
loftbelginn
TILRAUN var gerð í gær til að
koma loftbelg á loft á knatt-
spyrnuvellinum í Garðabæ. Flug-
maðurinn, Andy Walker, kom
með loftbelginn frá Bretlandi
gagngert til að sýna hér. Belgur-
inn sveif á flugdegi á Egilsstaða-
flugvelli 9. júlí sl. og Andy sýnir
flug að nýju á flugdegi á Reykja-
víkurflugvelli á laugardag. Á
myndinni sést þegar reynt var
að koma belgnum á loft til æfin-
gaflugs í gær. Of sterkur vindur
kom hins vegar í veg fyrir að
af fluginu gæti orðið og kom
fyrir ekki þó Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri legði flugmannin-
um lið.
Hágangur II ekki
sektaður fyrir veiðar
Uggnr í
Norð-
mönnum
TALSMENN hagsmunaaðila í
norskum sjávarútvegi eru að
sögn Qölmiðla þar í landi
áhyggjufullir vegna þeirrar
ákvörðunar norskra stjórnvalda
að reyna ekki að lögsækja tog-
arann Hágang II fyrir ólöglegar
veiðar við Svalbarða. Þeir óttast
að íslensk og önnur erlend skip
muni nú flykkjast á svæðið.
„Það veldur mér vonbrigðum
að íslendingunum skuli ekki
vera hegnt fyrir ólöglegar veið-
ar,“ segir Robert Hansen, tals-
maður samtaka í sjávarútvegi í
Tromse, i samtali við Dagbladet
í gær.
Fjölmiðlar í Noregi eru á því
að Islendingar hafi a.m.k. unnið
áfangasigur með niðurstöðunni.
Mál skipveija á Hágangi þykja
einnig óljós í mörgum atriðum
og standi staðhæfing gegn stað-
hæfingu um meint haglabyssu-
skot Antons Ingvasonar stýri-
manns á skipveija norsku
strandgæslunnar.
íslendinga fái kvóta
Einn af þingmönnum jafnað-
armanna frá Finnmörku vill að
Norðmenn snúi við blaðinu og
veiti íslendingum veiðiheimildir
við Svalbarða. Þannig megi gera
þá samábyrga fyrir því að ekki
sé stunduð rányrkja á miðunum.
Islendingar eigi a.m.k. sama
rétt á slíkum heimildum og
Grænlendingar, Færeyingar og
nokkrar þjóðir Evrópusam-
bandsins, sem hafa nú veiði-
heimildir við Svalbarða.
■ Sigur fyrir ísland/21
■ Sýnirbest/4
Morgunblaðið/Sverrir
Hvalfiarðargöngin
Tilboð
opnuð í
lok ágúst
ÚTBOÐ vegna Hvalfjarðarganganna
verða opnuð 30. ágúst og segir Gylfí
Þórðarson, stjórnarformaður Spalar
hf., að þrír aðilar muni bjóða í verkið.
Um er að ræða þijá hópa nor-
rænna verktaka og er íslenskt verk-
takafyrirtæki í hveijum hópi. Gylfi
segir, að það taki 2-3 mánuði að
undirbúa framkvæmdir að útboði
loknu. Reiknað er með, að unnið verði
að gangagerðinni beggja megin Hval-
fjarðar og er áætlað að verkið taki
tvö ár og sjö mánuði.
Hann segir, að verið sé að hnýta
endahnútinn á fjármögnun gang-
anna, en það verði gert þegar búið
er að opna tilboðin.
IA o g FH
sigraðu
ÍSLENSKU liðin, ÍA og FH, sigr-
uðu bæði í leikjum sínum í Evr-
ópukeppninni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Skagamenn unnu
Bangor City í Wales 2:1 og FH
vann norður-írska liðið Linfield
1:0 á Kaplakrikavelli í Hafnar-
firði. Skagamenn komust í 2:0 í
leiknum í Wales með mörkum frá
Kára Steini Reynissyni og Sigurði
Jónssyni. Hörður Magússon gerði
sigurmark FH-inga gegn Linfield
úr vítaspyrnu. Síðari leikir lið-
anna í Evrópukeppninni fara
fram eftir hálfan mánuð. ÍBK er
þriðja íslenska liðið í Evrópu-
keppninni og leikur fyrri leik sinn
gegn ísraelsku bikarmeisturunum
Maccabi í Keflavík annað kvöld.
Á myndinni er Þorsteinn Jónsson
FH-ingur í baráttu um knöttinn
við varnarmenn Linfield á Kapla-
krikavelli í gærkvöldi.
Dánartíðni vegna lungna-
þembu tífaldast hjá konum
DÁNARTÍÐNI vegna lungna-
þembu hefur tífaldast meðal
kvenna síðastliðin 40 ár og dán-
artíðni vegna langvinnrar
berkjubólgu þrefaldast. Eru nið-
urstöðurnar sagðar endurspegla
reykingavenjur kvenna og þá
staðreynd að konur hafi síður
hætt reykingum en karlar síð-
ustu áratugi.
Þetta kemur fram í könnun
sem Þórarinn Gíslason lungna-
læknir og Kristinn Tómasson
geðlæknir hafa gert og birt var
í ágústhefti Læknablaðsins. Nið-
urstöður voru leiðréttar með því
að nota svokallað staðlað dánar-
hlutfall vegua breytinga á aldurs-
samsetningu þjóðarinnar. Er
bent á að aukin dánartíðni
undanfarinn áratug vegna lang-
vinnra lungnateppusjúkdóma
skýrist að hluta til af breyttri
aldurssamsetningu, en skýri ekki
aukningu á lungnaþembu og
langvinnri berkjubólgu sem dán-
armeini.
Ekki var um sambærilega
aukningu að ræða meðal karla
en aldursstöðluð dánartíðni með-
al þeirra sýndi þrefalda aukningu
dánartíðni vegna lungnaþembu.
Segir meðal annars í greininni
að á þeim 40 árum sem athugun-
in nær til aukist dánartíðnin ein-
göngu af völdum lungnaþembu
og langvinnrar berkjubólgu, sem
tengist alfarið reykingum.
■ Dánartíðni/8
Árleg dánartíðni vegna
lungnaþembu
1951-90 106
1951-60 1961-70 1971-80 1981-90
■ Evrópukeppnin / C2 og C3