Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skildi eftir nafn og heimilis- fang á inn- brotsstað MAÐUR, sem braust inn í íbúð við Nýlendugötu og stal þaðan áfengi og skjalatösku, skildi eftir miða með nafni og heimil- isfangi á staðnum. Skömmu síðar var sá sem nafngreindur var á miðanum handtekinn í miðborginni þar sem hann spíg- sporaði um bæinn með skjala- töskuna sem saknað var. Innbrotið uppgötvaðist á laugardagsmorgun en þá hafði verið brotist þar inn, stolið vodka- og freyðivínflöskum og skjalatösku sem hafði ýmis gögn að geyma. I íbúðinni fundust einnig 6 mogadon-töflur sem þjófurinn hafði skilið eftir sig og miði með áletrun sem virtist beint til húsráðanda á innbrotsstað. Viðtakandi miðans var beð- inn um að leggja leið sína í ákveðið hús í borginni og hafa með sér eitthvað ætilegt. Undir miðann var skrifað með nafni og gælunafni og kannaðist lög- reglan þar við nafn síbrota- manns sem er búsettur í húsinu þar sem matvælin áttu að af- hendast. Skömmu síðar sást sá á gangi með skjalatöskuna og var þá handtekinn. GSM-farsíma- kerfið tekið ínotkun NÝJA stafræna farsímakerfið, GSM-kerfið svokallaða, var form- lega tekið í notkun í gær. Olafur Tómasson, póst- og simamála- stjóri, sem staddur var í höfuð- stöðvum fyrirtækisins í Reykja- vík, hringdi þá á veitingastaðinn Góða dátann á Akureyri, þar sem Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, var staddur og þar með var kerfið formlega opnað. Fyrst í stað verður hægt að nota síma í nýja kerfinu á Stór-Reykjavík- ursvæðinu, á Suðurnesjum og á Akureyri. Guðmundur Björnsson, aðstoðar póst- og simamálastjóri, sem var á Akureyri, sagði að kostir nýja kerfisins umfram gamla farsíma- kerfið, NMT-450 kerfið, væru fjöl- margir, en við fyrstu sýn aðallega þeir að nýju símtækin væru lítil og hentug og útbreidd víða um lönd. GSM-notandi fær kort, sem hann stingur í simann, og getur þannig hringt fyrir eigin reikning hvar sem hann er staddur — á gjaldskrá heimalands síns. Að sögn Guðmundar eru notendur GSM síma þegar orðnir tvær miHj- ónir í Evrópu. Þorvarður Jónsson, framkvæmda- stjóri fjarskiptasviðs Pósts og síma, upplýsti að gjaldskrá í sím- kerfinu væri lægst í Evrópu hér á landi og í Finnlandi: 24,90 kr. á mínútu á dagtaxta í innanlands- simtali, með virðisaukaskatti. Önnur verðdæmi sambærileg eru: Morgunblaðið/Björn Halldór Blöndal tekur nýja símakerfið í notkun á Akur- eyri með því að ræða við Ólaf Tómasson, póst- og símamála- stjóra, sem sést á myndinni fyrir ofan í Reykjavík. 30,25 kr. í Danmörku, 32,50 kr. í Sviss frá 33,10 kr. til 39,30 kr. í Svíþjóð, eftir símafyrirtækjum, um 58 kr. í Þýskalandi en hæstu gjöldin eru í Frakklandi, 62 kr. á mínútu. Stofngjald er mun lægra en í NMT-kerfinu en notkunargjald á álagstímuin í þessu nýja kerfi er hins vegar ívið hærra. Sem dæmi ná nefna að stofngjald í nýja kerf- inu er 4.360 kr. en 11.690 í því gamla. Stofngjald í GMS-kerfinu, fyrir þá sem þegar eiga síma í því gamla, er hins vegar 2.330 kr. Afnotagjald á ársfjórðungl er 1.900 kr. í GSM-kerfinu en 1.520 ÍNMT. Hægt verður að taka 4.000 notend- ur í nýja kerfið fyrst í stað en það verður síðan stækkað eftir þörf- um. Kostnaður við fyrsta áfanga þess — sjálfvirku stöðina í Reykja- vík og 14 radíóstöðvar, sem settar hafa verið upp í Reykjavfk, á Suð- urnesjum og á Akureyri — er um 300 miHjónir króna. Allt að tvöföldun á ráðstefnugesta hér ÞAÐ ER samdóma álit ferðamála- stjóra og ferðaskrifstofa að mikil aukning hafi orðið í fjölda ráðstefna og funda hér á landi í ár. Árið sé mjög gott ráðstefnuár og samkvæmt upplýsingum Morgunbiaðsins frá þeim ferðaskrifstofum sem skipu- leggja ráðstefnur hefur fjöldi ráð- stefnugesta allt að því tvöfaldast frá fyrra ári. Forsvarsmenn ferðaskrif- stofanna benda þó á að þessi mark- aður sé mjög sveiflukenndur. Horfur séu þrátt fyrir það góðar og í flestum tilfellum er þegar farið bóka ráð- stefnur fyrir næstu ár. „Það er engin spuming að það hefur orðið veruleg aukning í fjölda funda og ráðstefna," sagði Magnús Oddsson ferðamálastjóri í samtali við Morgunblaðið. „Á vordögum hefur jafnframt orðið vart aukningar í svo- kölluðum hvataferðum (incentive tours) en I þær ferðir bjóða fyrirtæki starfsmönnum sínum eða sölufólki í verðlaunaskyni." Aðspurður segir Magnús orsakirn- ar fyrir íjölgun ráðstefna hér á landi vera margar og samverkandi. „Ferðaskrifstofur hafa verið að auka vægi þessa þáttar í kynningarstarfi sínu. Þá hafa hótel hér á landi verið að byggja sig upp til að geta haldið stærri ráðstefnur og fundi. Þá má ekki gleyma þætti Ráðstefnuskrif- stofu íslands sem opnuð var fyrir um tveimur árum til þess eingöngu að markaðssetja þessa tegund af ferðaþjónustu," sagði hann. Ferðamálastjóri segir að íslend- ingar hafí ákveðna möguleika til að fjölga fundum og ráðstefnum af hæfílegri stærð. „Við höfum flutn- ingsgetuna og gistirými á ákveðnum tíma árs sem er að miklu leyti ónýtt. Til þess að stækka ráðstefnumark- aðinn verulega þarf aftur á móti að leggja fjármagn í aðstöðuna." Samkvæmt upplýsingum frá ráð- stefnudeild Ferðaskrifstofu íslands hefur fjöldi ráðstefnugesta á hennar •vegum tvöfaldast frá því í fyrra. Þá komu til landsins u.þ.b. 2.500 manns til þess að sækja alþjóðlegar ráð- stefnur af einhveiju tagi. í ár verða gestir á bilinu 5.000-5.500. Matthías Kjartansson, annar eig- enda ráðstefnuþjónustunnar Ráð- stefnur og fundir, staðfestir að mik- ið sé um að vera í fyrirtæki sínu í ár. Gestir verði um fjögur þúsund á tíu til ellefu ráðstefnum í ár en ráðstefnur í þeirra umsjón hafi verið fimm í fyrra. Aðspurður staðfestir hann að viðskiptin séu sveiflukennd. „Við höfum orðið vör við það hjá okkur að annað eða þriðja hvert fjölda álandi ár er lægð í ráðstefnuþjónustunni." Matthías segir að ráðstefnugestir séu einstaklega mikilvægir ferða- menn, þeir gisti, borði og drekki vel og gefi þannig mikið af sér. Ráðstefnur af háannatíma Hjá ráðstefnuþjónustu Úrvals/Út- sýnar varð Hrönn Greipsdóttir fyrir svörum. Hún segir að fyrirtækið leggi sérstaka áherslu á að skipuleggja ráðstefnur og fundi utan háannatíma t.d. í mars, apríl, maí, september eða október. „Við eigum að gleðjast yfir aukningu sem á sér stað utan háanna- tímans. Hjá okkur voru apríl og maí t.d. metmánuðir þegar teknar eru saman tölur um fjölda ráðstefnu- og hvataferðagesta," sagði hún og áætl- ar að ferðamönnum á leið á ráðstefn- ur á vegum fyrirtækis síns hafi fjölg- að um 35% milli ára. Drakk út á annars manns debetkort EITT fyrsta debetkortamisferl- ið sem sögur fara af hér á landi uppgötvaðist í fyrrakvöld þegar maður var handtekinn á Hafn- arkránni í Reykjavík með de- betkort annars manns. Maðurinn hafði komið inn á krána og keypt sér veitingar sem hann hafði greitt með kort- inu. Þegar hann fór hins vegar að veita öðrum gestum fijáls- lega og greiða fyrir með kort- inu, vöknuðu grunsemdir starfs- fólks og við snögga athugun kom þá í ljós að ekki var um hinn rétta korthafa að ræða. Maðurinn var færður á lög- reglustöð. Þar gaf hann þær skýringar, sem lögreglu þóttu ekki trúverðugar, að hann væri nákunnugur réttum korthafa. Sá hefði afhent sér kortið og beðið sig að skemmta sér vel með það og kvitta fyrir veiting- ar með sínu nafni. Slasaðist í vatns- rennibraut TÓLF ára gamall drengur höfuðkúpu- og herðablaðsbrotn- aði þegar hann féll úr vatns- rennibraut á Patreksfirði í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sótti drenginn og flutti hann í Borgarspítalann. Að sögn lögreglunnar á Pat- reksfirði var drengurinn að leika sér í vatnsrennibrautinni ásamt fleiri börnum. Hann fór út úr efri beygju brautarinnar og féll tæpa tvo metra niður á steinstétt. Að sögn Iögreglu brugðust starfsmenn sundlaugarinnar rétt við, hreyfðu drenginn ekki en kölluðu til Iækna sem komu innan fárra mínútna. Drengur- inn var fluttur á heilsugæslu- stöðina og síðan sendur til Reykjavíkur til frekari rann- sóknar. Læknir á Borgarspítalanum sagði í gærkvöldi að drengurinn væri með fullri meðvitund og líðan hans eftir atvikum. Hann er höfuðkúpu- og herðablaðs- brotinn og er ekki í lífshættu. Hann var lagður inn til eftirlits eftir rannsókn á slysadeild. Atvinnuleysi enn minnkandi í júlí í JÚLI sl. voru skráðir rúmlega 95 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu, rúmlega 36 þúsund hjá körlum og rúmlega 59 þúsund hjá konum. Þetta jafngildir því að 4.400 menn hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, þar af 1.668 karlar og 2.732 konur. Þessar tölur jafngilda 3,2% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði samkvæmt spá Þjóðhags- stofnunar, eða 2,1% hjá körlum og 4,8% hjá konum. Fækkun atvinnuleysisdaga í júlí nam rúmlega 25 þúsund dögum frá mánuðinum á undan og atvinnuleys- isdagar í júlí voru lítið eitt færri en í sama mánuði í fyrra. Að meðaltali voru 1.162 færri atvinnulausir en í júní, en um 5 færri en í júlí í fyrra. Síðasta virkan dag júiímánaðar voru 4.715 manns á atvinnuleysis- skrá á landinu öllu, en það er um 471 færri en í lok júní. Síðastliðna tólf mánuði voru um 6.314 manns að meðaltali atvinnu- lausir, eða 4,9% en árið 1993 voru um 5.600 manns að meðaltali at- vinnulausir, eða 4,3%. Minna atvinnuleysí alls staðar Atvinnuleysi minnkaði mikið alls staðar á landinu í júlí, en hlutfalls- lega mest á Suðurnesjum og á Norð- urlandi vestra, en atvinnulausum fækkar mest á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysið er nú minna á Austur- landi, Suðurlandi, Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu en í júlí í fyrra og meira dregur úr atvinnuleysi kvenna en karla. Atvinnuleysi í maí, júní og júlí 1994 VEST- FIRÐIR AUSTUR- LAND , VESTURLAND Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli. Á höfuðborgarsvæðinu standa 2.907 atvinnulausir á bak við töluna 3,6% í júlí og fækk- aði um 540 frá því i júní. Ails voru 4.400 atvinnu- lausir á lándinu öllu í júlí og hefur fækkað um1.162fráþvi Ijúní. LANDSBYGGBIN M J J NORÐURLAND VESTRA -------1 NORBURLAND EYSTRA HÖFUÐBORGAR- SVÆBIÐ K SUÐURLAND SUÐURNES 4,7% M J J LANDIÐ ALLT 4,8% ■ 4,1% I 3,2% M J J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.