Morgunblaðið - 17.08.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 17.08.1994, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR I i Sturla Böðvars- son formað- ur þjóð- minjaráðs Menntamálaráðherra hefur ákveðið skipan þjóðminjaráðs til fjögurra ára samkvæmt lögum nr. 98/1994 um breyt- ingu á þjóðminjalögum. Ráðið verður þannig skip- áð: Sturla Böðvarsson, al- þingismaður, formaður, Sig- uijón Pétursson, fyrrv. borg- arfulltrúi, tilnefndur af Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, Sigríður Sigurðardóttir, safn- stjóri, tilnefnd af Félagi ís- lenskra safnmanna, Helgi Þorláksson, dósent, tilnefndur af Háskóla íslands og Ragnar Sigurðsson, framhaldsskóla- kennari, tilnefndur af Hinu íslenska kennarafélagi og Kennarasambandi íslands sameiginlega. Teknir við innbrot í bíla TVEIR 16 ára piltar voru staðnir að innbroti í bíl í Mos- fellsbæ í fyrrinótt. Talsvert hefur verið um innbrot í bíla í bænum undanfarið en óljóst er hvort þessir piltar hafa verið þar að verki. Maður á kvöldgöngu sá hvar þrír piltar voru að bagsa við bíl sonar hans og lýstu með vasaljósi inn í bílinn. Þegar þeir urðu hans varir hlupu þeir á brott en hann náði einum og gerði syni sín- um viðvart. Sá hljóp annan pilt uppi en sá þriðji komst undan. í ljós kom að piltamir höfðu brotið rúðu í bílnum og tekið úr honum útvarp, segulband og geislaspilara. Þeir voru færðir á lögreglu- stöð. Um helgina var brotist inn í a.m.k. þijá bfla í Mosfellsbæ en ekki lá fyrir í gær hvort piltarnir hefðu einhver þeirra mála á samviskunni. fl : ' - ■■ • Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga 3% hækkun launa- kostnaðar ríkisins ASÍ segir fullyrðingu um launaskrið standa óhaggaða ÞÓ SVO að ársverkum hafi fækkað um 0,4% fyrri hluta þessa árs miðað við sama tímabil 1992 hefur launakostnaður ríkisins hækkað. Heildarlauna- kostnaður þeirra sem Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins annast afgreiðslu fyrir hækkaði að raungildi milli tímabilanna um rúmlega 3%. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkis- endurskoðunar um framkvæmd fjárlaga tímabilið janúar til júní 1994. Ekki er talin með eingreiðsla vegna efnahagsbata og orlofsupp: bætur til starfsmanna í BHMR. í skýrslunni segir, að breytingar á launakostnaði megi einkum rekja til samningsbundinna hækkana vegna starfsaldurs, nýrra kjara- samninga með tilliti til röðunar í launaflokka, endurmats á störfum einstakra starfsmanna með tilliti til launaflokka, breytinga á launa- tengdum gjöldum og breytinga á fjölda ársverka. Fullyrðing ASÍ stendur óhögguð Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, segir að fullyrðing ASÍ um 5-6% launaskrið hjá opinberum starfsmönnum umfram launaskrið á opinberum markaði standi óhögguð, því inni í tölum Ríkisendurskoðunar séu ekki nýlegar hækkanir, til dæm- is hjá hjúkrunarfræðingum, meina- tæknum og slökkviliðsmönnum. „Þegar ASÍ fullyrti að um 5-6% umfram launaskrið hefði orðið hjá opinberum starfsmönnum og bankamönnum svaraði Hagstofan því til að þetta launaskrið hjá opin- berum starfsmönnum næmi 3%, sem er væntanlega sama talan og Ríkisendurskoðun staðfestir í skýrslu sinni,“ sagði Halldór. „Ósamræmið skýrist að mestu af því, að ASÍ miðaði við fyrstu sex mánuði ársins, en tala Hagstofunn- ar miðaði við fyrstu þijá mánuðina. Þar með eru ýmsir samningar ekki inni í útreikningum þeirra, til dæm- is samningar við hjúkrunarfræð- inga, meinatækna og slökkviliðs- menn.“ Færeyskir stúdentar í VOR brautskráðist frá mennta- skólanum í Þórshöfn í Færeyjum, Fróðskaparsetrinu, fjöldi stúd- enta, svo sem endranær. Þessar myndir eru frá brautskráning- unni og eru skemmtilegar fyrir það að krakkarnir eru allir í þjóð- búningum. Húfan þeirra er einnig dálítið frábrugðin íslenzku stúd- entshúfunni, því að borðinn um- hverfis hvíta kollinn er gerður úr sama efni og gömlu færeysku húfubátarnir, sem frægir voru fyrr á tímum, en sjást þó enn. Þá hangir úr hvirfli húfunnar skúfur í stíl við borðann sem áður er nefndur. Þá er og þetta sama efni notað í þjóðbúningapils stúlkn- anna. Unga stúlkan á myndinni heitir Rósalind Óskarsdóttir og er íslendingur að fjórðungi. Morgunblaðið/Sigriður Óskarsdóttir Kiwanis gefur út eitur- lyfjavísi KIWANISHREYFINGIN hefur gefið út til dreifingar á öll heimili í landinu svokallaðan eiturlyfjavísi en hann er hand- hægt hjálpartæki til að greina fyrstu einkenni um notkun vímuefna ef grunur vaknar um slíka neyslu. Eiturlyfjavísirinn upplýsir um flest vímuefni sem á markaði eru og gefur einnig upplýsingar um einkenni, breytingu á hegðun, tæki sem notuð eru o.fl. Hjólað hringinn Vegna þessa verkefnis gengst Kiwanishreyfingin fyrir kynningarátaki sem felst í því að ijórir hjólreiðakappar hjóla hringinn í kringum landið. Þeir hafa meðferðis eiturlyfjavísinn og afhenda hann forsvars- mönnum bæjar- og sveitar- félaga á nokkrum stærstu þétt- býlisstöðum um landið. Þeir sem takast þessa ferð á hendur eru Eiður Aðalgeirsson, Þór Sveinsson, Jón Tryggvi Þórs- son og Borgar Ólafsson. Ferðin hefst við Kiwanishús- ið, Engjateigi 11, kl. 10 í dag, miðvikudaginn 17. ágúst og lýkur á sama stað kl. 18 sunnu- daginn 21. ágúst. Þórannn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, ræsir hjólreiðakappana en Ingi- björg Sólrún Gísladóttir tekur á móti þeim við komuna. Daihatsu Charade TS, árg. ‘90, rauður, 4 g., ekinn 69 þ.km. Verð 580.000 staðgr., ath. skipti. Toyota Corolla XL, árg. ‘ 92, vínrauður, 5 g., 4 d, ekinn 50 þ.km. Verð kr. 880.000 staðgr., ath. skipti. Volkswagen Golf GT 1800, árg. ‘93, ekinn 16. þ.km., rauður 5 g. Verð kr. 1.490.000 staðgr., ath. skipti. Nissan Sunny st 4WD, árg. ‘92, vínrauður, ekinn 42 þ.km. Verð kr. 1.250.000 staðgr. Honda Civic ESi, árg. ‘92, ekinn 9 þ. km., sjálfskiptur, 4 d. hvítur. Verð 1.450.000 staðgr., ath. skipti. Nissan Terrano 30 V6, árg.‘ 94, græn- sans, sjálfskiptur, sóllúga, álfelgur, ekinn 7 þ.km. Verð kr. 3.600.000. Mazda 323 st. 4x4, árg. ‘93, rauöur, álfelgur, ekinn 25 þ. km. Verð kr. 1.250.000, skipti, skuldabréf. Nissan Patrol GR árg. ‘91, dökkgrár, sóllúga, ekinn 75 þ. km. Verð kr. 2.650.000. Subaru Legacy 2000, árg. ‘92, sjálfskiptur, gullsanseraður, ekinn 59 þ. km. Verð kr. 1.750 .000 Nissan 100 NX 2000 GTi árg. ‘93, blásans, T-toppur, álfelgur ABS, ekinn 11 þ. km. Verð kr. 1.550.000. VANTAR NÝLEGA BÍLA Á STAÐINN-MIKIL SALA-FRÍAR AUGLÝSINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.