Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Upphaf og- endir allra vandamála í Turku var fjöldinn FJÖLMENN þátttaka á Nordisk Forum í Finnlandi sprengdi allt skipulag. Loforð ekki efnd TVEIMUR mánuðum áður en þingið hófst fór Guðrún til Turku til að tala við finnsku skipuleggjendurna og forsvarsmenn ferðaskrifstofunn- ar sem sá um gistinguna í Finnlandi fyrir íslensku þátttakendurna. Að sögn hennar höfðu konurnar í undir- búningsnefndinni þá á tilfinningunni að hnökrar væru á undirbúningnum og ákváðu þess vegna að fara í sér- síaka ferð út til að kippa þessu í liðinn. Þær fengu þá loforð um að öll gistiaðstaða á stúdentagörðum yrði þrifin, raðað yrði í húsnæði eft- ir hópum og stúdentar yrðu ekki í þeim íbúðujn sem íslenskar konur fengju úthiutað. Þetta voru allt lof- orð sem voru ekki efnd. Hnefarétturinn gilti Guðrún sagði að því hefði verið borið við að konur hefðu hrúgast inn á kvennaþingið án þess að hafa til- kynnt þátttöku og þá hefði hnefa- rétturinn gilt um úthlutun húsnæðis og fleira. Hún vissi t.d. um íslenska konu sem skráði sig og gekk frá öllu í mars en fékk ekki það sem hún hafði verið búin að borga fyrir. En flest vandamál sem komið höfðu upp hefðu verið leyst. Að sögn Guðrúnar gat undirbún- ingsnefndin ekki séð allar íbúðirnar sem boðið var upp á á stúdentagörð- unum enda hefði sú gisting ekki verið á þeirra vegum. Þær töldu þessa gistingu sambærilega því sem boðið er upp á hjá Hótel Eddu en raunin varð sú að á stúdentagörðun- um voru íbúðir allt frá því að vera mjög sóðalegar yfír í að vera glæsi- legar en þrif á íbúðunum voru alveg Ýmis vandkvæði voru á skipulagi og fram- kvæmd Nordisk Forum og fóru íslenskar konur ekki varhluta af því. Anna Sveinbjarnar- dóttir ræddi við Guð- rúnu Ámadóttur, en hún sat í íslensku undir- búningsnefndinni. undir stúdentunum sjálfum komin. Guðrún sagði að konurnar í ís- lensku undirbúningsnefndinni hefðu ekki verið sáttar við skipulag kvennaþingsins og gagnrýnt það en Finnarnir hefðu ráðið því og þær ekki verið hafðar með í ráðum. Umfangið hefði verið of mikið og mistök að engu hefði verið hafnað. Dagskráin hefði verið stúkuð niður og verið sundurlausari fyrir vikið en í Ósló þar sem allt hefði verið sam- þjappaðra. Guðrún sagði að hún hefði t.d. verið ósátt við uppsetningu setning- arathafnarinnar þar sem einungis um 2.000 konur gátu séð almenni- lega þau atriði sem boðið var upp á. Alltaf hefði verið talað um að setningarathöfnin færi fram á pramma en hann hefði í raun verið lokað svið. Guðrún gagnrýndi einnig að lítið hefði verið ráðið af aukafólki til að aðstoða við skipulag, veitingasölu og upplýsingaþjónustu. Hún vissi að færri stúdentar komust að en vildu í þessi störf og fannst skrítið að ekki hefði fleira fólk verið ráðið á tímum atvinnuleysis. Húsnæði ekki nógu stórt Að mati Guðrúnar sló vestnor- ræna smiðjan í gegn þegar á heild- ina væri litið þó að skipulag hennar hefði ekki verið sem best. Hún sagði að þeir sem hefðu komið fyrst hefðu gengið á rétt annarra og framboð hefði verið meira en til hefði staðið í upphafi. Umfangið hefði verið of mikið og húsnæði ekki nógu stórt. Allir hefðu hrúgast þarna inn, t.d. hefðu íslenskar konur fengið inni í smiðjunni sem hefðu fengið úthlutað vonlausu húsnæði úti í bæ eða vant- að æfingaaðstöðu. Þarna hefði skap- ast lifandi andrúmsloft og útlending- ar sem Guðrún ræddi við fannst smiðjan skemmtilegasti staðurinn á Nordisk Forum. Guðrún taldi að lokum að skipu- lagsleysi hefði einnig ráðið ferðinni þegar kom að uppsetningu sölubás- þnna. á Nordisk Forum en konur sem höfðu sýningaraðstöðu í Vestnor- rænu smiðjunni hafa kvartað bæði undan söluaðstöðunni og sýningar- rýminu sem þeim var úthlutað. Guð- rún sagði að sölubásarnir hefðu ver- ið á stað þar sem alltaf væri útimark- aður í Turku og þetta hefði verið eins og aðstaða í Kolaportinu. Hún sagði að íslensku konurnar hefðu átt að fá sérstaka auglýsingu fyrir sína sölubása. Seltzer vill kaupa Alafosshúsið STJÓRNENDUR Seltzer á íslandi hafa óskað eftir því við iðnaðarráðuneyt- ið að það kanni hvort grundvöllur sé fyrir því að fyrirtækið eignist hús- næði Alafoss í Mosfellsbæ, en húsið er í eigu Framkvæmdasjóðs íslands. Niðurstaða þarf að fást í málið fyrir 10. september þegar stjórn Seltzer Ltd. kemur saman til að fjalla um framtíðarstaðsetningu fyrirtækisins. Helgarmót TR * Helgi Ass Grétarsson sigraði HELGI ÁSS Grétarsson bar sigur úr býtum á helgarskák- móti Taflfélags Reykjavíkur um síðustu helgi. Hann vann Sævar Bjarnason í úrslita- skák í 7. og síðustu umferð og hlaut 6 vinninga. Sævar varð annar á mótinu með 5 'h vinning. Helgarskákmótið þótti tak- ast með ágætum að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Taflfélaginu. Þegar hefur verið ákveðið að halda næsta helgarmót helgina 9.-11. september næstkom- andi. Hörður Baldvinsson, verksmiðju- stjóri Seltzer, sagði að Álafosshúsið hentaði að mörgu leyti vel fyrir starf- semi Seltzer. Það þurfi þó að gera talsverðar endurbætur á húsnæðinu og lagfæra umhverfi þess. Hann sagði að þó verulegur áhugi væri hjá Seltzer að eignast Álafosshúsið væru fleiri kostir til athugunar. Hörður sagði auk þess að leysa húsnæðismálin þucfi fyrirtækið á nýju fjármagni að halda, líklega ekki undir 100 milljónum. Hann sagði að verið væri að vinna að söfn- un þess. Breskir eigendur Seltzer hafa lýst yfir áhuga á að flytja fyrirtækið til Wales, m.a. vegna þess að opinberir aðilar þar bjóða fram aðstoð við að koma því fyrir. Hörður sagði að núverandi starfsmenn fyrirtækisins leggi alla áherslu á að Seltzer verði áfram á íslandi. Hann benti á að því fylgi kostnaður að þjálfa upp nýtt starfsfólk, auk þess sem að staðsetningin í Wales geti hugsan- lega spillt fyrir markaðssetningu á Seltzer, en drykkurinn hefur alla tíð verðið markaðsettur sem íslensk vara. Þorkell Helgason, ráðaneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu, sagði að verið væri að skoða hvort grundvöllur væri fyrir því að selja Seltzer Álafosshúsið. Hann sagðist eiga von á að málið skýrist fljótlega. Stofnfundur dyslexíufélags 10% mannkyns með dyslexíu Margrét Sigrún Enda þótt um 10% alls mannskyns þjáist af svokallaðri dyslexíu og að meðaltali einn nem- andi í hverjum bekk í grunn- skóla eigi mjög erfitt með lestur og skrift af völdum dyslexíu hefur lítið farið fyrir umræðu um hana hér á landi. Nú horfir hins veg- ar betur við því hópur áhugafólks um dyslexíu hefur snúið bökum saman og efnir til stofnfundar dyslexíufélags í Listasafni ASÍ 23. ágúst kl. 21. Margrét Sigrún Sigurðar- dóttir, talsmaður hópsins, segir að flestir kannist við fyrirbærið undir nafninu les- blinda. „Það er villandi og alþjóðlega orðið dyslexía hefur orðið fyrir valinu því vandinn á ekki rætur sínar að rekja til augnanna heldur boðskipta heilahvelanna. Einstaklingar með dyslexíu eiga erfítt með að lesa, stafsetja orð og skrifa. Helst.u ein- kenni eru stafavíxl og að sleppa stöfum, sérstaklega sérhljóðum, úr orðum.“ - Hvaða áhríf hefur dyslexía á skólalærdóm? „Að vera barn í grunnskóla með dyslexíu er mjög erfitt. Kennarar hafa heldur ekki verið nógu vak- andi í málinu og ástæðan er fyrst og fremst sú að þeir hafa ekki vitað hveiju þeir eiga að fylgjast með. Vandinn felst líka í því að einstaklingar með dyslexíu eru alveg einstaklega glúrnir við að fela vanda sinn og fara krókaleið- ir til að komast fram hjá erfiðleik- um. Dyslexían er því oft falin og einstaklingurinn er einn í sálar- kreppu. Mikil togstreita gerir oft vart við sig. Skólakerfið segir að þú sért heimskur. En þú veist, innst inni, að þú ert það ekki. Þú getur bara ekki sýnt fram á það og sannað. Ef ekki er tekið á þess- ari togstreitu veldur hún sálræn- um örðuleikum, skertri sjálfsmynd og niðurbroti einstaklingsins." - Þú hefur sjálf reynslu af dyslex- íu? „Já. En ég hef reyndar sloppið mjög vel. Ég átti í mjög miklum erfiðleikum með að læra að lesa og á ennþá mjög erfitt með réttrit- un. Ég veld henni þegar ég er óþreytt en þegar ég þreytist fer allt úr skorðum,“ segir Margrét. Mikil þjálfun lausnin Hún segir að með mikilli þjálfun sé hægt að ná langt til að þjálfa dyslexíu af sér. „Ég er t.d nánast einkennalaus. Stafsetningin er það eina. Maður fær bara fólk til að lesa yfir fyrir sig ritgerðir og slíkt. Dyslexía er ekkert sem ekki er hægt að lifa með. Verra er ef ekki er tekið á vandamálinu. Þá situr oft eftir mjög slakur lestur og staf- setning. En á þessu tvennu byggist allt upp í þessu samfélagi.“ - Þú hefur eitthvað starfað í sam- bandi við dyslexíu? „Ég er að vinna að úttekt á hvaða stuðningskerfi erlendir há- skólar bjóða nemendum með dyslexíu og hvað hægt er að gera til að létta undir með háskólanem- um með þennan vanda við háskól- ann hérna heima. Nýsköpunar- sjóður styrkir verkefnið og er það unnið á vegum Námsráðgjafar HÍ.“ Stuðningur byggist á þrennu Margrét segir að stuðningur við nemendur með dyslexíu byggist upp á þrennu. „Kennd er náms- tækni því einstaklingar með ►Margrét Sigurðardóttir er fædd 7. október 1972 í Reykjavík. Hún lauk stúd- entsprófi af náttúrufræða- og félagsfræðibraut frá Mennta- skólanum í Kópavogi árið 1992. Eftir það hóf hún nám í heimspeki við Háskóla Is- lands og heldur áfram námi á vegum Erasmus-áætlunar- innar á írlandi næsta vetur. í sumar hefur hún starfað við dyslexíu-verkefni á vegum Námsráðgjafar HÍ sem er styrkt af Nýsköpunarsjóði. dyslexíu eru oft með mjög slaka námstækni. Þeir reyna að lesa sem lengst í einu en missa einbeitingu og gengur ekkert. Erlendir háskól- ar byggja líka mikið upp á leið- beinandakerfum, t.d. fá nemend- urnir stuðningsnemanda til að taka niður glósur og lána þeim. Þeir þurfa þá ekki að glósa í tím- um. Því það er mun erfiðara fyrir þennan hóp en aðra að hlusta og skrifa í einu. Að síðustu eru úr- ræði í prófum. í sumum tilfellum hafa þessir nemendur fengið próf- in lesin upp fyrir sig, lengri próf- tíma og í erfiðustu tilfellunum eru munnleg próf.“ - Þið ætlið að fara að bindast samtökum? „Við fórum að velta því fyrir okkur tvær, ég og Rakel Þórðar- dóttir, í vor af hveiju ekki væru til samtök fólks með dyslexíu á íslandi. Okkur fannst svekkjandi að hafa ekki getað leitað til neins þegar við vorum að ganga í gegn- um þetta. Ég var reyndar greind mjög ung en hún ekki fyrr en í fyrravetur, yfir tvítugu. Sú hug- mynd kom þá upp að fyrst ekki voru til svona samtök gætum við sjálfar stofnað þau. Við fórum því á stúfana til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því og komumst að því að félag af þessu tagi væri afar þarft. Síð- an var allt sett á fullt og núna er dálítill hópur að vinna að undirbúningi stofnunar íslensks dyslexíufélags 23. ágúst. Stofn: fundurinn verður í Listasafni ASl kl. 21 um kvöldið.11 „Félaginu er fyrst og fremst ætlað að auka þekkingu á vanda- málinu. Auk þess á það að virka sem upplýsinga- og stuðningsmið- stöð fyrir þá sem eru með dyslex- íu og aðstandendur þeirra. Við komumst að því í tengslum við stofnun félagsins að félög af þessu tagi erlendis höfðu starfað í fleiri ár. Má þar nefna að danska félag- ið er 50 ára gamalt. Sérstök Evr- ópudeild er meira að segja starf- andi. Við erum því í rauninni ekki að gera neitt nýtt og höfum verið að sækja reynslu til hinna.“ Oft erf itt að uppgötva dyslexíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.